Feykir


Feykir - 30.09.2020, Síða 2

Feykir - 30.09.2020, Síða 2
Íbúakönnun landshlutanna er í gangi þessar vikurnar þar sem íbúar hvers svæðis voru valdir af handahófi og óskað eftir þátttöku þeirra. Landshlutasamtökin hvetja alla þá sem lenda í úrtaki, að svara spurningakönnuninni til að niðurstöðurnar verði sem mark- tækastar enda hefur hvert svar mikla þýðingu. Í könnuninni er spurt hvort fólk sé ánægt með aðbúnað þar sem það býr, þjónustu og ýmislegt annað sem skiptir máli fyrir velferð íbúanna. Einnig hvort það hygg- ist búa áfram þar sem það býr, hvar það sæki vinnu og við hvaða starfsgrein og ýmislegt er varðar vinnumarkaðinn. Í tilkynningu segir að könnunin veiti sveitarstjórnarmönn- um mikilvægar vísbendingar um forgangsröð í verkefnum sveitarfélagsins og öðrum opinberum aðilum hvar tíma og fjármunum sé best varið. „Þess vegna er óhætt að segja þetta kjörið tækifæri fyrir íbúa til að gera gott samfélag enn betra.“ Það eru orð að sönnu. Á Norðurlandi vestra er gott að búa en það má efalaust laga ýmislegt og á það mætti benda í ofangreindri könnun. Hvað betur má fara í sveitarfélagi hvers og eins vegur þyngra í svona könnun en í neikvæðu tuði á Facebook. Ef ég ætti að hugsa mér einhver atriði í þessu máli sýnist mér bættar samgöngur vera mjög framarlega á öllu svæðinu og sérstaklega Vatnsnesvegurinn sem þolir enga bið á fram- kvæmdum. Fjölbreyttari atvinnumöguleikar er svo annað atriði sem sífellt er hugsað til og ætti að vera síkvikt verkefni allra. Það er komin nokkur reynsla á fjarvinnu í Covid- ástandinu og í flestum tilfellum gengið vel og ætti því að fjölga störfum án staðsetningar. Margt annað má tína til. Ég verð að segja eins og er að ég sakna þess að raforka Blönduvirkjunar sé ekki meira nýtt á svæðinu. Kannski er ekki rétti tíminn til að finna orkufrekan iðnað núna, hvað veit ég. Mér finnst samt eins og við sitjum eftir í grænmetisvæðingunni og þangað mætti beina orkunni. Sunnlendingar byggja upp hvert gróðurhúsið á fætur öðru enda trúa þeir því að ræktun grænmetis eigi bjarta framtíð fyrir sér á Íslandi. Ég trúi því líka en ég myndi benda á það, hefði ég fengið að taka þátt í íbúakönnun, að rafmagnsverð til slíkra framkvæmda þyrfti að lækka. Það vilja allir fá salat með lambakjötinu. Lifið heil. Páll Friðriksson, ritstjóri LEIÐARI Ég vil meira stuð Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Sigríður Garðarsdóttir siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir klara@nyprent.is Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 720 kr. m.vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Áskorun um samstarf í umhverfismálum Fyrirtæki í útbænum á Sauðárkróki í átak Í síðustu viku mættu full- trúar fyrirtækja, stofnana og verslana, sem eru með starfsemi á Eyrinni og í útbænum á Sauðárkróki, á fund sveitarstjórnar Svf. Skagafjarðar og afhentu áskorun um átaksverkefni í umhverfis- málum. Óskað var eftir viðræðum við sveitarfélagið um umhverfisátak á atvinnu- svæðinu og í útbænum. Ýmsir hafa haft orð á því í gegnum tíðina að útbærinn og Eyrin mættu við andlitslyftingu og nú í sumar tók Fisk Seafood rækilega til í sínum ranni og Steinull er komin af stað í tiltekt. Í kjölfarið kom upp sú hugmynd að fyrirtæki og aðrir aðilar á svæðinu tækju sig saman og gerðu skurk í um- hverfismálum á svæðinu og fengju sveitarfélagið í lið með sér. Á fund sveitarstjórnar voru mætt sr. Sigríður Gunnarsdóttir frá Sauðárkrókskirkju, Róbert Óttarsson frá Sauðárkróks- bakaríi og Magnús Svavarsson frá Vörumiðlun. Fram kom í máli Magnúsar að það hefði verið sama við hvern var talað þegar undirtektir voru kann- aðar, allir voru jákvæðir og skrifuðu undir áskorunina. Í áskoruninni segir: „Það er sameiginlegt hagsmunamál allra að hafa umhirðu og umgengni til fyrirmyndar. Ef fyrirtækin og sveitarfélagið leggjast á eitt í þeim efnum er fullvíst að við náum góðum árangri.“ Lagt er til að mynd- aður verði framkvæmdahópur sem samanstendur af fulltrúum úr hópi fyrirtækjanna og full- trúum Sveitarfélagsins Skaga- fjarðar. „Ekki er óraunhæft að ætla tvö ár í slíkt átaksverkefni,“ segir síðan í lok áskorunarinn- ar. /ÓAB Sögufélag Skagfirðinga Skagfirðinga- bók nr. 40 Í tilefni útkomu Skagfirð- ingabókar verður sam- koma í Safnahúsinu á Sauðárkróki laugardaginn 3. október kl. 14. Þar verð- ur bókin kynnt og höfð til sölu á kynningarverði. Í tilkynningu frá Sögu- félagi Skagfirðinga er höfuðgrein bókarinnar um Guðjón Ingimundarson, íþróttakennara á Sauðár- króki sem Sölvi Sveinsson tók saman og mun hann koma og spjalla um hana. Birgir Guðjónsson mun einnig tala um föður sinn og kynnt verður skráning skjala og ljósmynda úr fórum Guðjóns á vegum Héraðs- skjalasafnsins. Léttar veitingar verða í boði en með tilliti til Covid- faraldurs í landinu verða gestir beðnir um að vera með grímu og þeim úthlutað á staðnum. /PF Aflatölur 20.–26. september 2020 á Norðurlandi vestra 861.810 kg landað á Norðurlandi vestra SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG Bíldsey SH 65 Lína 4.685 Guðrún Petrína GK 107 Landbeitt lína 5.291 Hafrún HU 12 Dragnót 37.420 Kristinn HU 812 Landbeitt lína 45.885 Óli G GK 50 Lína 24.559 Rán SH 307 Landbeitt lína 11.152 Sævík GK 757 Lína 21.948 Alls á Skagaströnd 159.633 HOFSÓS Bíldsey SH 65 Lína 9.482 Særif SH 25 Lína 4.827 Alls á Hofsósi 14.309 HVAMMSTANGI Sjöfn SH 707 IGPL 2.350 Alls á Hvammstanga 2.350 SAUÐÁRKRÓKUR Akurey AK 10 Botnvarpa 190.324 Drangey SK 2 Botnvarpa 112.965 Fjölnir GK 157 Lína 77.416 Hafborg SK 54 Handfæri 2.162 Helga María RE 1 Botnvarpa 135.554 Málmey SK 1 Botnvarpa 135.888 Onni HU 36 Dragnót 7.300 Stakkhamar SH 220 Lína 12.327 Steini G SK 14 Handfæri 668 Særif SH 25 Lína 10.914 Alls á Sauðárkróki 685.518 SKAGASTRÖND Addi afi GK 97 Landbeitt lína 7.443 Auður HU 94 Handfæri 202 Auður HU 94 Landbeitt lína 1.048 Í vikunni sem leið var tæpum 160 tonnum landað á Skagaströnd og var Kristinn HU 812 aflahæstur með tæp 46 tonn. Á Sauðárkróki var Akurey AK 10 aflahæst með rúm 190 tonn en þangað bárust tæplega 686 tonn. Á Hofsósi lönduðu tveir bátar rúmum 14 tonnum og voru það línubátarnir Bíldsey SH 65 og Særif SH 25. Heildarafli vikunnar á Norðurlandi vestra var 861.810 kg. Sigfúst Ingi Sigfússon tók við áskoruninni fyrir hönd sveitarstjórnar. Frá vinstri: Róbert Óttarsson, Magnús Svavarsson, Sigfús Ingi og sr. Sigríður Gunnarsdóttir. MYND: ÓAB 2 37/2020

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.