Feykir - 30.09.2020, Blaðsíða 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Lið Tindastóls spilaði fyrstu
leiki sína í 1. deild kvenna í
körfubolta á nýju tímabili í
Síkinu nú um helgina.
Mótherjinn í þessum tvíhöfða
var lið Vestra frá Ísafirði og fór
svo að heimastúlkur unnu fyrri
leikinn nokkuð örugglega en
þær hentu frá sér sigri í seinni
leiknum sem fram fór á
sunnudag með hræðilegum
leik í fjórða leikhluta.
Tindastóll - Vestri 74-54
Jafnræði var með liðunum
framan af í fyrri leik liðanna en
lið Vestra var yfir, 14-16, að
loknum fyrsta fjórðungi. Þá
tóku heimastúlkur leikinn yfir
og leiddu í hálfleik, 39-26. Þær
héldu áfram að bæta við
forystuna í þriðja leikhluta og
voru 21 stigi yfir að honum
loknum og þann mun náðu
Ísfirðingarnir ekki að vinna
neitt upp. Lokatölur 74-54.
Eva Wium var frábær í liði
Tindastóls með 20 stig, 14
fráköst og sjö stoðsendingar
og nafna hennar Dagsdóttir
átti sömuleiðis hörkuleik og
skilaði 17 stigum og 12 frá-
köstum.
Nýr leikmaður Tindastóls,
Dominique (Nicky) Toussaint
er nýsloppin úr sóttkví og því
lítið getað æft með stelpunum
og hún spilaði rétt rúmlega
stundarfjórðung. Hún náði
jafnvel minni spilatíma þegar
liðin mættust öðru sinni. Það
virtist þó ekki ætla að koma að
sök því lið Tindastóls leiddi
lengstum.
Tindastóll - Vestri 49-54
Eftir lítið skor fyrstu mínútur
leiksins var lið Tindastóls 12-8
yfir að loknum fyrsta leikhluta.
Ákafinn í liði Tindastóls var
mikill bæði í sókn og vörn en
þær söfnuðu villum villt og
galið og það átti kannski eftir
að draga tennurnar úr varnar-
leik liðsins á lokakaflanum.
Gestirnir héldu í við Stóla-
stúlkur í öðrum leikhluta og
staðan 25-21 í hálfleik.
Lind, Eva Wium og Marín
bjuggu til ágætt forskot í þriðja
leikhluta og það var Eva Rún
sem setti niður 3ja stiga körfu í
byrjun fjórða leikhluta og
staðan orðin 44-30 og allt í
blóma í Síkinu. Það sem eftir
lifði leiks gerðu stelpurnar
okkar hins vegar aðeins fimm
stig á meðan gestirnir sölluðu
niður körfum með Oliviu
Crawford í feiknastuði og fór
svo á endanum að Crawford
kláraði dæmið fyrir gestina.
Lokatölur 49–54 fyrir Vestra.
Hörmuleg hittni heima-
stúlkna var helsta orsökin fyrir
tapinu en skotnýtingin var
undir 20% sem er ekki til að
hrópa húrra yfir. Stólastúlkur
unnu frákastaslaginn og tóku
fleiri skot en gestirnir en það
dugar skammt ef boltinn fer
ekki ofan í körfuna.
Árni Eggert þarf því aug-
ljóslega að fínstilla leik
Stólastúlkna og um leið og
Nicky lærir inn á samherja
sína og íslenska körfuboltann
þá ætti allt að ganga betur. /ÓAB
Skin og skúrir hjá Stólastúlkum
1. deild kvenna í körfubolta | Tindastóll – Vestri
Fyrri leikur Kormáks/Hvatar og
ÍH í undanúrslitum 4. deildar
fór fram á Blönduósvelli á
laugardaginn. Heimamenn
hefðu helst þurft að vinna
leikinn til að tryggja sér góða
stöðu fyrir seinni leik liðanna
sem fram fer í kvöld í
Skessuhöllinni í Hafnarfirði.
Jafntefli varð hins vegar
niðurstaðan þar sem liðin
gerðu sitt hvort markið og
einvígið því í jafnvægi.
Hafþór Þrastarson kom
gestunum yfir eftir 18 mínútur
en Ingvi Rafn Ingvarsson,
fyrirliði Húnvetninga, jafnaði
leikinn á 54. mínútu. Heima-
menn voru óánægðir með að
hafa ekki bætt við marki en
gestirnir ógnuðu ekki að ráði
og markvörður Kormáks/
Hvatar þurfti ekki að taka á
Jafntefli á Blönduósvelli
Úrslitakeppni 4. deildar | Kormákur/Hvöt – ÍH 1–1
honum stóra sínum sam-
kvæmt upplýsingum Feykis.
Í hinum leik undanúrslit-
anna lagði lið KFS Hver-
gerðingana í Hamri 1-0.
ÍH og Kormákur/Hvöt
mætast sem fyrr segir í Skess-
unni í Hafnarfirði og nú þurfa
stuðningsmenn Kormáks/
Hvatar að fjölmenna á FH-
svæðið og öskra sína menn
upp í 3. deild. Leikurinn er
sem fyrr segir í dag og hefst kl.
18:00. /ÓAB
Lið Kormáks/Hvatar á haustdögum. MYND: LAM
Olivia Crawford að fá boltann, Eva Rún fylgist með. MYND: ÓAB
Stólastrákar mættu ferskir á
Fylkisvöll á föstudag en
Árbæingarnir í liði Elliða
reyndust sterkari og uppskáru
3-1 sigur. Lið Tindastóls er í
miklum og jöfnum pakka um
miðja deild þegar flest liðin
eiga eftir að spila fjóra til fimm
leiki.
Heimamenn komust yfir
eftir 14 mínútur með marki frá
Patryk Hryniewicki. Konni
jafnaði metin á 41. mínútu,
setti boltann í hornið eftir
góðan undirbúning Luke, og
því jafnt í hléi. Tvö mörk
snemma í síðari hálfleik gerðu
út um leikinn. Fyrst skoraði
Pétur Óskarsson á 52. mínútu
og Óðinn Arnarson gerði
þriðja markið á 61. mínútu.
Luke Rae fékk besta færi
Stólanna í síðari hálfleik en
setti boltann í stöngina.
Lið Tindastóls fann ekki
taktinn í leiknum og sigur
heimamanna sanngjarn. Atli
Dagur varði nokkrum sinnum
vel í marki Stólanna en hann
hefur sannarlega staðið fyrir
sínu í sumar.
Stólarnir spila við KV í dag
en eiga svo loks heimaleik gegn
Augnbliki á laugardag. /ÓAB
Flökt á Stólastrákum
3. deild karla | Elliði – Tindastóll 3–1
Kvennalið Tindastóls
tryggði sér sæti í Pepsi
Max-deildinni að ári þegar
þær lögðu lið Völsungs á
Húsavík fyrir viku. Þetta var
sannarlega stór dagur í
sögu Tindastóls sem hefur
aldrei áður átt lið í efstu
deild fótboltans, hvorki í
kvenna- né karlaflokki.
Völsungur – Tindastóll 0–4
Sigurinn gegn liði Völsungs
var öruggur þrátt fyrir að
stelpurnar hafi ekki átt sinn
besta leik. Lokatölur 0-4 og
ekkert annað að gera en að
óska þessum frábæru stúlk-
um hjartanlega til hamingju
með einstakan árangur í
sumar. Eitt mark var skorað í
fyrri hálfleik og það gerði
Bryndís Rut fyrirliði og
varnarmaskína. Í síðari hálf-
leik bættu Hugrún, Rakel
Sjöfn og Mur við mörkum.
Tindastóll – Haukar 3–0
Tindastóll fékk síðan Hauka-
stelpur í heimsókn á Krók-
inn sl. sunnudag og það er
skemmst frá því að segja að
enn einn sigurinn vannst og
enn einu sinni héldu Stóla-
stúlkur markinu hreinu.
Lið gestanna má þó eiga
það að það lét aðeins reyna á
Amber Michel í marki
Tindastóls en hún stóð fyrir
sínu eins og vænta mátti.
Fyrsta markið gerði Aldís
María eftir 15 mínútna leik
en í blálokin bættu Bergljót
og Jackie við mörkum.
Lokatölur því 3–0.
Þetta var níundi sigur-
leikur Stólastúlkna í röð og
hefur liðið ekki fengið á sig
mark í síðustu átta leikjum.
Þær eiga leik á Skaganum
um helgina og svo mæta
Húsvíkingar á Krókinn í
lokaumferðinni 9. okt. /ÓAB
Lengjudeild kvenna | Tindastóll
Stólastúlkur
komnar upp í
efstu deild!
Lið Tindastóls fagnar að leik loknum á Húsavík. MYND: GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR
37/2020 5