Feykir - 30.09.2020, Blaðsíða 9
Húnakaffi, nýtt bakarí á Blönduósi
Brynjar Þór fær mikið hrós
fyrir brauðin og kökurnar
Húnakaffi er lítið
handverksbakarí á Blönduósi
sem Brynjar Þór Guðmunds-
son setti á fót í sumar eftir
miklar vangaveltur og
hvatningu bæjarbúa. Brauðin
þykja afbragðsgóð og eykst
vöruúrvalið með hverri
vikunni sem líður. Feykir hafði
samband við Brynjar Þór sem
sagði frá tilurð bakarísins og
framtíðarhorfur.
Brynjar segir hugmyndina að
nafninu vera gamla eða frá því
um 2005. „Þegar ég var í bak-
aranámi og var að spjalla við
samnemendur mína um bakarí
og nafnagiftir fannst mér nafnið
bara nokkuð flott en þá vorum
við pabbi og mamma með
Bakaríið á Blönduósi. Þegar ég
sat einn heima á 31. afmælis-
deginum mínum 2017, þá
nýlega skilinn og hafði tapað
forræðisdeilu og allt bara í rugli,
og velti fyrir mér hvert lífið
hefði farið, fór ég að hugsa aftur
í tímann og þá kviknaði
áhuginn. En eftir um tvo
mánuði slokknaði sú pæling,
skortur á húsnæði og vesen við
að finna vélar og tæki svo ég
lagði það á hilluna og hélt áfram
með lífið. En svo veturinn 2018
þá svona datt upp allt það sem
ég hefði viljað og ég ákvað bara
að láta vaða, stofnaði fyrirtækið
og fékk leiguverð í gamla
Ömmukaffi.
En svo ákváðu eigendurnir
að selja frekar en að leigja og
reyndist það vera full stór biti
fyrir mig með standsetningu
og vélakaupum. Hélt ég bara
ótrauður áfram og fékk á end-
anum húsnæði í gömlu bygg-
ingavöruversluninni og flestar
af þeim vélum sem mig vantaði
fundust hratt og vel,“ segir
Brynjar aðspurður um tilurð
bakarísins. Eitthvað gengu fram-
kvæmdir hægt vegna skorts á
iðnaðarmönnum svo Brynjar
tók til hendinni og henti sér
sjálfur í framkvæmdir. Bakaríið
var svo opnað mánudaginn 27.
júlí í sumar eftir mikið baks, eins
og hann segir sjálfur.
Öll plön eiga
það til að klikka
„Sennilega er þetta bara
sambland af fortíðarþrá og
ævintýramennsku sem setur
þetta verkefni af stað í bland við
það að fólk var orðið þreytt á
lélegu brauðaúrvali hér á svæð-
inu. Svo fékk ég mikla hvatningu
til að fara af stað.“
Heimildir Feykis herma að
nýja bakaríið hafi fengið gríðar-
góðar móttökur og hefur
Brynjar fengið mikið hrós fyrir
brauðin sem og kökurnar.
„Salan fór vel af stað. Þó vill
maður alltaf fá meira svo hægt
sé að bæta við fólki og fjölga
störfum á svæðinu. Eins og
staðan er í dag hefur heil-
hveitibrauðið verið vinsælast og
svo þriggjakorna- og sólblóma-
brauðið.“
Brynjar auglýsti á Face-
booksíðu sinni eftir því hvað
fólk vildi helst sjá nýtt í vöru-
úrvalinu og segir hann það hafa
verið gert til þess að ýta við fólki
og leyfa því að taka svolítið þátt
í þeirri ákvarðanatöku. „Niður-
stöðurnar voru þær að ég þarf
sennilega að skella mér í tækja-
kaup en kleinur, ástapungar og
annað sambærilegt sem þarfn-
ast djúpsteikingarpotts voru
ofarlega þar. Nokkrir töluðu um
að ég ætti að fara að senda á
skagfirska efnahagssvæðið en
sennilega sleppi ég því í bili. Það
sem ég hef einna helst lært á
þessu er að öll plön eiga það til
að klikka eða tefjast vegna
furðulegustu hluta þannig að
núna er það bara að byggja upp
fyrirtækið og svo freista þess að
ná inn á Vestursýsluna þegar
þannig liggur við. Að öðru leyti
er það bara að vera með góðar
vörur á góðu verði og styrkja sig
þannig áfram. Er svo sem að
horfa í kringum mig með
tækifæri og það kemur í ljós
hvernig fer.“
Nafnið Húnakaffi bendir til
þess að um kaffihús sé að ræða
en svo er víst ekki og segir
Brynjar það helgast af því að
aðgengi sé ekki nógu gott eins
og er en ætlunin sé þó að taka
yfir húsnæðið sem Teni er í í
dag. „Hver veit hvernig spilast
úr þessum málum. Ætlunin var
ekki að fjölga kaffisöluaðilum á
svæðinu heldur taka einn yfir,
þannig að núna er ég bara að
spila þetta eftir hendinni og sjá
hvernig það gengur,“ segir
Brynjar í lokin.
Feykir óskar Brynjari og
Húnakaffi til hamingju og
velfarnaðar í framtíðinni.
VIÐTAL
Páll Friðriksson
Bakarinn í Húnakaffi, Brynjar Þór Guðmundsson, við opnun bakarísins í sumar.
MYND AF FACEBOOK
Heimildamynd eftir Óskar Pál Sveinsson
frumsýnd á laugardaginn
Á móti straumnum
sýnd á RIFF
RIFF kvikmyndahátíð í Reykjavík
var sett þann 24. september sl.
og stendur fram á sunnudag,
4. október, en boðið er upp á
úrval alþjóðlegra kvikmynda,
viðburða og pallborðsumræðna
í Bíó Paradís, Norræna húsinu
og á netinu. Auk hefðbundinna
bíósýninga í Bíó Paradís er
boðið upp á yfir 100 myndir frá
öllum heimshornum í gegnum
netið. Á móti straumnum, mynd
Óskars Páls Sveinssonar um
transkonuna Veigu Grétars-
dóttur sem siglir á kajak í
kringum Ísland, verður frumsýnd
nk. laugardag kl. 18.
Veiga segir á Facebook-síðu
sinni að hún hafi verið stödd
í bókabúðinni á Ísafirði fyrir
tveimur árum þegar hún fékk
símtal frá Óskari Páli sem hafði
áhuga á að gera heimildamynd
um ferð hennar í kringum
landið og hana sjálfa. „Þetta
er búið að vera skemmtilegt
ferðalag, lærdómsríkt en jafn-
framt erfitt að rifja upp allt
sem ég fór í gegnum í mínu
kynleiðréttingarferli fyrir framan
myndavélina. Nú, tveimur
árum seinna, er afraksturinn
tilbúinn og verður myndin
frumsýnd 3. október á Riff kvik-
myndahátíðinni,“ skrifar hún.
Í kynningu á myndinni á
heimasíðu RIFF segir að myndin
sé táknræn og greini samtímis frá
ferðinni í kynleiðréttingarferlinu
og svo frá róðrinum á kajak þar
sem glímt er við náttúruna um
hvor hefur betur. Myndin lýsir
innri baráttu Veigu um líf eða
dauða, hvort sem er í lífinu sjálfu
eða ein úti á kajak.
Feykir hafði samband við
Skagfirðinginn listræna, Óskar
Pál Sveinsson, og spurði frétta af
verkefninu en Á móti straumnum
er fyrsta heimildamynd hans
sem leikstjóri. Hann hefur þó
unnið við nokkrar aðrar myndir
bæði sem kvikmyndatökumaður
og meðframleiðandi.
Hvernig kom það til að þú
fórst í þetta verkefni? Ég frétti
af þessari kajak ferð hennar
Veigu fyrir tveimur árum síðan
og hafði þá áður heyrt hennar
persónulegu sögu. Ég sá strax
fyrir mér að þarna mætti flétta
tvær magnaðar átakasögur í
eina áhugaverða mynd.
Í kynningu á myndinni segir:
„Samhliða tekst hún á við sjálfa
sig í kynleiðréttingarferlinu
og gefur myndin innsýn í innri
baráttu Veigu um líf eða dauða
hvort sem er í lífinu sjálfu eða ein
úti á kajak.“ Hvernig var að vera
hluti af því þegar einstaklingur
tekst á við slíkt persónulegt
verkefni ásamt hinu? Það var
vissulega krefjandi á köflum,
það gat tekið á fyrir Veigu að
rifja upp erfiða hluti úr fortíðinni
og það þurfti að nálgast þetta af
nærgætni og virðingu. Það voru
ekki síður miklar áskoranir að
mynda kajak hringferðina en á
sama tíma heilmikið ævintýri.
Þetta endaði í þriggja mánaða
útilegu hjá mér í fyrra.
Hvað var erfiðast við myndina
eða verkefnið? Ég held að
það hafi verið að eiga við hið
síbreytilega veður okkar sem
gerir allar tökur utandyra, og
hvað þá úti á sjó, ansi hressandi
á köflum.
Hvað er á döfinni hjá þér?
Ég er að vinna að nýrri mynd
með ljósmyndaranum Ragnari
Axelssyni eða Rax. Ég er búinn
að vera að ferðast með honum
um Grænland og fylgja honum
út á ísinn þar sem hann er að
mynda efni í sína nýjustu bók.
Bókin og myndin fjalla um eina
af aðal hetjum norðurslóða,
grænlenska sleðahundinn. /PF
Skagfirðingurinn Óskar Páll Sveinsson vinnur nú að nýrri mynd með ljósmyndaranum
Ragnari Axelssyni eða Rax. MYND: ?
37/2020 9