Feykir


Feykir - 04.11.2020, Page 3

Feykir - 04.11.2020, Page 3
Heldur hefur þeim fjölgað sem sæta einangrun og sóttkví milli vikna en Feykir sagði frá því í síðasta blaði að einn hafi þá greinst með kórónuveiruna. Nú eru hins vegar níu einstak- lingar í einangrun, samkvæmt tölum aðgerða- stjórnar á Norðurlandi vestra frá því í gær. Eitt nýtt smit greindist þá frá deginum áður en viðkomandi var í sóttkví. Alls voru 17 í sóttkví í gær, sem er mikil fækkun milli daga þar sem 39 manns voru í sóttkví á mánudaginn, og í fyrsta sinn í þessari bylgju faraldursins í öllum póst- númerum á Norðurlandi vestra. Á Facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra kemur fram að sú niðurstaða sé ánægju- leg og vonast aðgerðastjórn til þess að það sýni að samfélagssmit sé ekki mikið í nærumhverfinu eða að tekist hafi að ná utan um það. „Það kemur í ljós núna á næstu dögum. En verum á tánum. Við náum árangri saman,“ segir í færslunni. Alls voru 27 innanlandssmit sl. frá mánudegi til þriðjudags en samkvæmt covid.is voru 872 í einangrun í gær, 74 á sjúkrahúsi og fjórir á gjörgæslu. Af þeim sem greinst hafa með Covid-19 á Íslandi eru 16 látin. /PF COVID-19 | Norðurland vestra Níu í einangrun Nýr diskur Guðmundar Ragnarssonar og Róberts Óttarssonar Tíminn flýgur Á dögunum kom út fimm laga geisladiskur Guðmundar Ragnarssonar og Róberts Óttarssonar á Sauðárkróki og fengu þeir félagar Úlf Úlfinn, Helga Sæmund, í lið með sér en hann sá um hljóðfæraleik, útsetningar og upptökur fjögurra laganna. Fimmta lagið var hins vegar unnið í Stúdíó Benmen á Króknum þar sem Fúsi Ben lék á trommur, bassa og undirgítar en Magnús Jóhann Ragnarsson á Hammond og Reynir Snær Magnússon á gítar. Fyrir fimm árum gáfu þeir spilafélagar Guðmundur og Róbert út disk sem bar nafnið Orð en þá langaði alltaf að halda áfram. „Við gerum þetta í mjög miklum rólegheitum. Það má segja að þessi diskur sé afrakstur fimm ára mjög stopullar vinnu. Við höfum mjög gaman af þessu og þetta er bara það sem við höfum að segja þessa dagana,“ segir Guðmundur. „Nafn- ið segir svolítið til um það hvernig verkið hefur gengið, tíminn flýgur,“ skýtur Róbert inn í léttur í bragði og bætir við: „En að öllu gamni slepptu hefur þetta verið mjög skemmtilegt, en þetta er tímafrekt.“ Helgi Sæmundur, sonur Guð- mundar, kom inn í kompaníið og útsetti eftir sínu höfði. Segir hann diskinn innihalda dægurlög en jafnvel með tilraunakenndu ívafi. „Ef maður hlustar á plötuna Orð, þá er hún byggð upp á sömu fjórum, fimm, hljóðfærunum en þarna kem ég inn með einhvers konar library í tölvunni þar sem hægt er að velja hvaða hljóðfæri sem er og setja í lagið. Það tekur líka aukatíma að sigta þau út og ekki alltaf gott að hafa úr of miklu að velja. Við erum samt ánægðir með þetta,“ segir Helgi Sæmundur. En hvernig skyldi hann hafa komið inn í þetta verkefni? „Það er nú bara þannig að pabbi hefur verið að ýta á mig í nokkur ár að gera alvöru músík,“ svarar Helgi Sæmundur léttur í bragði en eins og allir vita hefur hann gert garðinn frægan með rappdúóinu Úlfur Úlfur. „Ég var nýfluttur aftur á Krókinn, kom tveimur mánuðum áður en konan mín, og bjó þá heima hjá mömmu og pabba. Ég var svona eiginlega að vinna upp í leigu og mat en svo langaði mig þetta líka. Í Úlfur Úlfur fylgir maður ákveðinni formúlu og ákveðnum stílum en ég fékk algert frelsi til að gera þetta. Fékk bara hljóma og texta og algert frelsi til að leika mér.“ Róbert er ánægður með útkom- una og segir þetta geggjað allt saman. „Mér finnst bæði lögin hans Guðmundar og útsetningar Helga Sæmundar og endanleg útkoma frábær. Á pínu erfitt með að hlusta á sjálfan mig en hitt geggjað! Maður sér ákveðna þróun úr Orði yfir í þennan disk, bæði vinnuferlana hjá okkur og svo viðbótina, að fá Helga Sæmund inn. Framþróun í okkar vinnu alla vega,“ segir Róbert. Lögin eru öll eftir Guðmund og textinn Tíminn flýgur, en þrír textanna eru eftir Hilmi heitinn Jóhannesson og einn eftir Gillon, Gísla Þór Ólafsson. Eitt lagið er unnið í Stúdíó Benmen en hin lögin í stofunni hjá Guðmundi í Eyrartúninu. Kápan er skemmtilega útfærð en hana gerði Linda Þórdís Barðdal Róbertsdóttir. „Úr því að við vorum búin að fá Helga Sæmund, sem er minn sonur, þá kom Róbert með dóttur sína, Lindu Þórdísi, í hönnun á kápunni. Hún sýndi strax algeran skilning á því sem við vildum koma fram með,“ segir Guðmundur. Óvíst er hvar mennirnir skegg- ræða en kannski er það í Bakaríinu á Króknum. „Það eru mikil fræði á bak við þetta hjá okkur. Við ósk- uðum eftir því að við Guðmundur yrðum tveir að framan og og svo þrír á bakhliðinni, þá væri Helgi Sæmundur kominn með. Þetta er djúpt!“ segir Róbert sposkur á svip. Fyrir áhugasama er Tíminn flýgur kominn á streymisveituna Spotify en diska er hægt að kaupa í Skagfirðingabúð, Hlíðarkaup, Bakaríinu og Gránu á Sauðárkróki og kostar 2000 kr. „Hér er um fína jólagjöf að ræða eða bara til að eiga,“ segir Guðmundur, „enda allt þægileg lög.“ /PF /PF Þríeykið sem gerði diskinn Tíminn flýgur. Róbert Óttarsson, Guðmundur Ragnarsson og Helgi Sæmundur Guðmundsson. MYND: PF Kápumynd disksins Tíminn flýgur eftir Lindu Þórdísi Barðdal Róbertsdóttur. Umslagið var hannað hjá Nýprenti. Hekla Katharína Kristinsdóttir landsliðsþjálfari hefur valið knapa í U21-landsliðshópi Landsambands hestamanna fyrir árið 2021, en framundan er Heimsmeistaramót íslenska hestsins í Herning í Danmörku í byrjun ágúst. Knapar í landsliðs- hópum LH eru í forvali þegar kemur að landliðs- verkefnum en einnig er landsliðsþjálfara heimilt að velja knapa utan hópsins þegar þurfa þykir. Á heimasíðu LH kemur fram að úrtakið sé stórt og mikið af frambærilegum unglingum og ungmennum sem sýna mikinn metnað og góða frammistöðu. Skagfirðingar eiga sinn fulltrúa í landsliðinu þar sem Guðmar Freyr Magnússon á Sauðárkróki var valinn en hann er efstur á stöðulista ungmennaflokks í fimmgangi á Snillingi frá Íbishóli. Guðmar er fæddur árið 2000, sonur Valborgar Hjálmarsdóttur á Sauðárkróki og Magnúsar Braga Magnússonar á Íbishóli en þar stundar Guðmar tamningar og þjálfun. Á lhhestar.is segir að við val á knöpum í landsliðshópa LH hafi verið tekið tillit til árangurs í keppni, reiðmennsku, hestakosts og íþróttamannslegrar framkomu. Landsliðsþjálfari vegur og metur knapana eftir árangri þeirra en ekki síður hestakosti árið 2021 og stillir hópnum þannig upp að styrkleikar séu í öllum greinum íþróttakeppninnar sem keppt er í á íslenska hestinum. /PF U21 landsliðshópur LH Guðmar Freyr valinn í liðið Guðmann Freyr Magnússon MYND AF LHHESTAR.IS 42/2020 3

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.