Feykir


Feykir - 04.11.2020, Page 10

Feykir - 04.11.2020, Page 10
Egill Einarsson, einkaþjálfari, fjölmiðla- og tónlistarmaður, býr í Kópavogi og er fæddur í upphafi eitís. Hann á ættir að rekja í Skagafjörðinn og segir að það sé ekki langt síðan hann var á ættarmóti með Dýllurum á Sauðárkróki. Egill segist aðallega hafa verið að vinna með hljómborð, fiðlu og trompet á giggum undanfarið. Egill segir að það sé af ýmsu að taka þegar spurt er út í helstu afrekin á tónlistarsviðinu. „Hafnaði í öðru sæti í undankeppni Eurovision hér á landi 2008. Lagið Louder var á toppnum á Íslenska listanum í átta vikur í röð og er eina íslenska lagið sem hefur náð því. Hef giggað með fremstu tónlistarmönnum heims eins og Basshunter, David Guetta og Scooter. Jólalagið mitt Musclebells fékk svo 13 million views á Youtube og Facebook á einungis tveimur vikum,“ segir Egill fjallbrattur. Hvaða lag varstu að hlusta á? Var að hlusta á Rave Love með W&W rétt áðan. Uppáhalds tónlistartímabil? Þetta er erfitt. Það er svo mikið af góðri tónlist að koma út í dag að ég segi að heimurinn sé að toppa bara í þessum töluðu orðum. toppurinn Vinsælast á Playlista Egils: Stronger Without You DJ MUSCLEBO Skank in the Rave DARREN STYLES Take My Hand OBERG Up & Down TIMMY TRUMPET FCK 2020 SCOOTER Kids These Days WILL SPARKS Egill Einarsson | tónlistarmaður með meiru Heimurinn er að toppa sig tón- listarlega í þessum töluðu orðum ( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Raftónlist. Er mikið í happy hardcore playlistum á Spotify eins og staðan er núna. Besti gym-playlistinn á Spotify þessa dagana heitir “LEÐUR” og eftir LeðurHanz eða Jóhann Ólaf Schröder. Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Allt saman í rauninni. Bubba, Megas, Guns N Roses, Metallicu, Scooter. Alltaf verið spiluð frábær tónlist á heimilinu frá því ég man eftir mér. Hver var fyrsta platan/diskurinn/ kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Líklega Appetite for Destruction með Guns'N'Roses. Hvaða græjur varstu þá með? Ég var með plötuspilara heima og ferðageislaspilara. Sakna plötuspil- arans, það var ákveðin stemning að setja stóra svarta plötu á fóninn. Allur sjarmi farinn úr þessu í dag. Hvert var fyrsta lagið sem þú manst eftir að hafa fílað í botn? Það þurfti bara eina spilun á Move Your Ass með Scooter. Man ég hugsaði strax: „OK, þetta er besta lag allra tíma!” Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Það væri blanda með nokkrum af bestu tónlistarmönnum heims, Basshunter, Timmy Trumpet, DJ Muscleboy, Amin Van Buuren, W&W og Da Tweekaz svo eitthvað sé nefnt. Þú vaknar í rólegheitum á sunnu- dagsmorgni, hvað viltu helst heyra? Ég er ekki einn af þeim sem hlusta á rólega tónlist þegar ég vakna, ég fer beint í rave playlista á Spotify þar sem tempóið er aldrei undir 140 BPM. Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Ég færi líklega bara á Tomorrowland aftur með sama hóp og ég geri alltaf því það er ekki hægt að gera neitt skemmtilegra í þessu lífi en að fara á þá virtu tónlistarhátíð. Hvað músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkominn með bílpróf? Nákvæmlega sama og þessa dagana, danstónlist. Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? H.P Baxxter og Love Guru. Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? Ég gerði ekki annað en að hafa Guns'N'Roses diskana á repeat þegar ég var gríslingur. En erfitt að gera upp á milli þeirra. Svo færðist ég meira og meira yfir í raftónlist þegar fór að líða á. Egill Einarsson. AÐSEND MYND Austurríski djasspíanóleikarinn Alexandra Ivanova kom til Skaga- strandar til dvalar í Nesi listamiðstöð í ágúst, til að vinna að tónverkum og félagslegri tilraun fyrir leikhúsverk um skynjun fólks á Miðausturlöndum. Þetta leiddi til viðtals við sveitarstjór- ann á Skagaströnd, Alexöndru Jóhannesdóttur, um málefni sem eru í brennidepli og snerta samfélagið. Sveitarstjórinn lagði áherslu á áskorunina um að halda uppi lífsgleði hjá öldruðum, þar sem takmarka hefur þurft gestakomur á öldrunar- heimilinu Sæborg frá því í vor. Þar sem reynsla hennar eigin afa og ömmu frammi fyrir erfiðleikum samtímans hafði snert við henni, gat Alexandra Ivanova ekki hætt að hugsa um íbúa Sæborgar eftir að hafa talað við sveitarstjórann. Alexandra var innblásin af geisladisknum Raddir Íslands frá Þjóðlagasetri Siglufjarðar og bjó til sambræðing tveggja heima: Íslendingar að syngja gömul drykkjar- og gamanlög og eigin píanóundirleik sem er innblásinn af djass og austur- lenskri tónlist. Íbúar Sæborgar hlýddu á nýja tegund af heimatónleikum, upptöku af átta lögum, þar á meðal Ég hef selt hann yngra Rauð eftir Pál Ólafsson og Stallan, snjalla, bralla ber eftir Björn Jónsson, sem voru tileinkaðir hverj- um og einum af þeim og gefinn á minnislykli. „Við létum ekki nægja að hlusta einu sinni, nei, nei. Við horfðum bæði fyrir og eftir hádegi,“ sagði Magga Alda Magnúsdóttir, hjúkrunar- fræðingur á Seeborg. Alexandra Ivanova er austurrískt tónskáld og píanóleikari með búlgarsk- ar rætur sem leiðbeint hefur verið af líbansk-ameríska tónskáldinu og píanóleikaranum Tarek Yamani. Í tónlist sinni sameinar hún austurlensk, asísk og afrísk-kúbönsk áhrif við djass. Hún hefur komið fram með tríóum sínum og verkefnum víðsvegar um Music For Fun á Skagaströnd Gömul íslensk lög endurvakin fyrir íbúa Sæborgar Austurríki, Frakkland, Bretland, Sam- einuðu arabísku furstadæmin og Ísland, þar á meðal á Jazzhátíð Reykjavíkur 2020 og í Mengi Reykjavík „Auðvitað var þetta áhættusamt en ég vildi búa til eitthvað skemmtilegt og óvænt, eitt- hvað sem fær fólk til að hugsa og hlæja á sama tíma: hjónaband íslenskra drykkjusöngva og djass með austur- lensku ívafi.“ sagði Alexandra Ivanova um verkefnið. „Music for fun – Tónlist til skemmt- unar“ er fögnuður yfir því sem enn er mögulegt: að gefa smá hlátur. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfræðinga Sæborgar fyrir aðstoðina og austurríska sendi- ráðsins í Kaupmannahöfn fyrir að styðja þetta verkefni. /ÓAB - Fréttatilkynning Rósa og Alexandra Ivanova. AÐSEND MYND 10 42/2020

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.