Feykir


Feykir - 04.11.2020, Side 11

Feykir - 04.11.2020, Side 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Tala. Sudoku Krossgáta FEYKIFÍN AFÞREYING Feykir spyr... Hver er versti matur sem þú hefur smakkað? Spurt á Facebook UMSJÓN : klara@nyprent.is „Það særir mig að segja það en kjúklingapottrétturinn sem mamma prófaði að elda síðast þegar við fjölskyldan komum í heimsókn. Suðu Sigfús hefði orðið stoltur af honum... ég elska þig mamma.“ Ragnar Freyr Guðmundsson Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum: Ótrúlegt - en kannski satt... Froskar eru magnaðar skepnur. Það uppgötvaðist í geimferð að froskar geta kastað upp. Ótrúlegt, en kannski satt, þá ælir froskurinn maga sínum út þannig að hann hangir úr munni hans. Þá notar froskurinn framfæturna til að krafsa magainnihaldið burt og gleypir magann að því loknu aftur. Tilvitnun vikunnar Grundvallarskylda stjórnvalda er að verja líf eigin þegna. Sérhver ríkisstjórn sem mistekst að sinna þeirri skyldu er ekki þess verðug að stjórna. – Donald Trump „Súrir hrútspungar.“ Anna Rún Austmar „Hræringur!“ Ásta Birna Jónsdóttir „Hef ekki smakkað neitt ógeðslegt.“ Júlía Sigurðardóttir bringur. Hartmann stundar skot- veiði og höfum við verið að fikra okkur áfram í eldun og framreiðslu á villibráð. Við erum ekki að finna upp hjólið hér frekar en með pizzuna, en höfum aðlagað að okkar smekk og erum ánægð með. stokkandarbringur (helst veiddar í nágrenninu) salt og pipar Aðferð: Bringum er skellt á vel heitt grill, þær grillaðar á hvorri hlið og saltað og piprað eftir smekk. Erfitt er að gefa fasta uppskrift, enda hráefnið misjafnt og tilfinn- ingin fljót að koma um hluti eins og hvenær bringurnar séu hæfilega eldaðar, en best finnst okkur að „pota“ í þær til að meta stífleikann. Meðlæti fer eftir smekk, en okkur finnst æðislegt að gera góða villibráðasósu og þá færir það leikinn upp á allt annað stig að nota í hana íslensk bláber. Kartöflur í ofni og síðan eitthvað sætt meðlæti eins og bakaðar perur. MILLIMÁLSRÉTTUR Sumarlegt Melónusalat vatnsmelóna lime mynta hrásykur (eða önnur sæta – má einnig sleppa) Í þessari uppskrift eru engar mæl- ingar þar sem þetta fer að mestu eftir smekk. Melónan er skorin í litla munn- bita, limesafi kreistur yfir og smátt skorin mynta sett saman við. Sætan er valkvæð, en það getur verið gott að setja örlitla sætu saman við. Gott ef það nær að hvílast aðeins, alls ekki of lengi – og mikilvægt er að borða kalt. Verði ykkur að góðu! Þau skora á Rakel Sunnu frá Þóru- koti og Jóhann Braga, kærasta hennar, að taka við matarþættinum. Föstudagspizza og stokkandarbringa Matgæðingar vikunnar eru þau Ólöf Rún Skúladóttir og Hartmann Bragi Stefánsson. Þau búa ásamt eins og hálfs árs syni þeirra, Hirti Þór, á Sólbakka II í Húnaþingi vestra. Þau eru nýlega flutt aftur heim eftir nám og eru nú komin inn í búskapinn á Sólbakka með foreldrum Ólafar. Hartmann er menntaður pípari og bú-fræðingur, vinnur nú að mestu leyti við búið, en Ólöf, sem er lærður landfræðingur og búfræðingur, hóf nýlega starf á leik- skólanum Ásgarði á Hvammstanga. ,,Okkur langaði að deila með ykkur þremur uppskriftum, einni hversdags, annarri kannski meira til hátíðabrigða, ef uppskrift skyldi kalla og þriðju af sumarlegum millimálsrétti nú rétt fyrir mesta skammdegið. Vonum að þið njótið góðs af.“ RÉTTUR 1 Föstudagspizzan (fyrir 2-3 – á eina ofnplötu) Það er pizza á föstudögum – það er bara þannig. Við gerum gerlaust pizzadeig sem maður er enga stund að útbúa. Hún kemur upprunalega frá Sollu (á Gló), en höfum aðlagað að okkur. Uppskriftin er víða þekkt, en við höldum að það megi vel minna á hana. Fljótleg, góð og létt í maga. 250 g hveiti (ekki verra ef það er spelt) 1 tsk. lyftiduft (má sleppa) ½ tsk. salt 1 tsk. oregano 2 msk. olía u.þ.b. 150 ml sjóðheitt vatn Aðferð: Vatnið er soðið, öllu blandað saman í skál og hnoðað létt. Deigið er flatt út beint á bökunarpappír og skal botninn verða vel þunnur. Best er að setja rakt viskustykki undir bökunar- pappírinn. Fletja degið út strax því það er mun auðveldara að fletja það út heitt. Því næst er botninn forbakaður í u.þ.b. sjö til tíu mínútur á 200°C. Þegar botninn hefur forbakast er gott að láta hann kólna örstutt áður en áleggi, að eigin vali, er raðað á. Mælum eindregið með að setja ostinn undir áleggið, geyma þó örlítið af osti sem stráð er yfir áleggið í lokin. Bakað í u.þ.b. 10 mínútur á 200°C. RÉTTUR 2 Stokkandarbringur Hátíðarmaturinn er stokkandar- ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is Ólöf Rún og Hartmann Bragi á Sólbakka II matreiða Hjörtur Þór, Hartmann Bragi og Ólöf Rún. AÐSEND MYND LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Krummi tékkar á stöðunni. 42/2020 11 Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar Lítilræði á launamiða. Losna kann í dagsins önn. Oflöng, hvimleið orðaskriða. Úti á sjó var spýtt um tönn.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.