Fréttablaðið - 21.12.2021, Page 18

Fréttablaðið - 21.12.2021, Page 18
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. „Ég elska mjúkar sængur,“ segir Hildur Þórðardóttir, verslunar- stjóri hjá Rúmföt.is, sem er ein flottasta rúmfata- og sængurbúð landsins. Rúmföt.is var opnuð fyrir þremur árum og hefur verið mikið að gera æ síðan. „Viðtökurnar hafa farið fram úr björtustu vonum og margir nefnt það við mig að það hafi verið vöntun á svona verslun eftir að Fatabúðin og Verið hættu starf- semi. Fólk er virkilega þakklátt fyrir að hægt sé að kaupa gæða rúmföt og sængur á Íslandi,“ segir Hildur. Lúxussængur frá Svartaskógi Í viðbót við lúxussængurföt frá Ítalíu, Þýskalandi og Kína selur Rúmföt.is dúnsængur í algerum sérflokki. „Fyrir nokkrum árum heimsótti eigandinn, Björn Þór Heiðdal, sýn- inguna Heimtextil í Frankfurt, en það er stærsta textílsýning í heimi. Heimtextil er haldin ár hvert og þangað koma nánast öll fyrirtæki í þessum bransa. Gildir þá einu hvort þú sért að leita að indversk- um mottum, sturtuhengjum fyrir hótel eða dúnsængum: þú finnur bókstaflega allt á þessari sýningu,“ segir Hildur, og víkur nú sögunni að Black Forest-lúxussængunum í Rúmföt.is. „Það er skemmst frá því að segja að við fundum æðislega góðar sængur frá þýska fyrirtækinu OBB, en við flytjum bara inn bestu sængurnar úr Black Forest-línunni þeirra. Það eru lúxussængur fyrir fólk sem vill mikil gæði á sanngjörnu verði. Í sængurnar er eingöngu notaður 100 pró- sent gæsadúnn, meðal annars af kanadagæsum sem þykir einn besti dúnninn og er 850 CUIN. Það þýðir að sængin einangrar vel og er líka létt. Samkeppnisaðilar okkar selja dúnsængur með dúni sem er aðeins 500 til 700 CUIN og fá jafn- vel fáeinar fjaðrir að fljóta með,“ greinir Hildur frá. Dúnsængur með gæðavottun Allar Black Forest-sængurnar í Rúmföt.is eru vottaðar með DOWNPASS® vottun. „Slík vottun tryggir að ekki sé notaður dúnn af gæsum sem eru plokkaðar lifandi eða farið illa með,“ segir Hildur. „Hverri sæng fylgir rekjanlegt DOWNPASS® númer sem tryggir að hlutirnir séu eins og þeir eiga að vera. Til að sæng geti fengið DOWNPASS®- vottun þurfa bæði þeir sem fram- leiða dúninn, og sauma sængina, að standast ítarlega skoðun sem er endurtekin reglulega.“ Ekki er nóg að velja góðan dún í sængurnar: það þarf líka að vanda valið þegar kemur að ytra byrði þeirra. „Við notum 460 þráða míkró- satín í allar sængur sem við seljum. Það er ótrúlega fíngert bómullarsatín sem er meðhöndlað á sérstakan hátt. Míkrósatínið er framleitt í Þýskalandi, eins og sængurnar, og meðhöndlað með aloe vera til að gera það enn mýkra en ella. Sængurnar skrjáfa líka lítið, sem mér finnst skipta máli,“ segir Hildur. Ekki má gleyma öllum rúmföt- unum sem fást í Rúmföt.is. „Við bjóðum upp á gæði sem er erfitt að nálgast annars staðar,“ segir Hildur. „Við erum sérlega montin af 550 og 1.400 þráða bómullarsatíni sem ég hef ekki séð í öðrum búðum á Íslandi, en það er aðeins brot af því sem við seljum. Við erum með yfir 180 tegundir af virkilega vönduðum sængurfötum og því er nokkuð ljóst að flestir ættu að geta fundið eitthvað við hæfi hjá okkur.“ Sögur gefa búðarstússinu tilgang Að sögn Hildar hefur jólasalan gengið mjög vel í Rúmföt.is. „Margir viðskiptavinir eru nú að koma í annað eða þriðja skiptið að kaupa jólagjafir handa fjöl- skyldunni. Það kom til okkar eldri kona sem lét okkur vita að barna- barnið hefði beðið um alveg eins rúmföt og hún átti í jólagjöf. Hún hafði þá keypt rúmföt hjá okkur og notað þau þegar barnabarnið kom í heimsókn. Það eru svona sögur sem okkur finnst gaman að heyra og gefa þessu búðarstússi smá tilgang,“ segir Hildur brosmild og komin í sannkallað jólaskap. n Rúmföt.is er á Nýbýlavegi 28. Sími 565 1025. Opið alla virka daga frá klukkan 12 til 18 og á laugardögum frá klukkan 11 til 16 til jóla. Skoðið glæsilegt úrvalið á rumfot.is Dúnsængurnar frá Black Forest eru úr kanadískum gæðadúni. Þær eru léttar, veita góða einangrun og skrjáfa lítið. Undurmjúk rúmföt með fiðrildamunstri. Þetta hlýlega og fallega rúmfatasett heitir Aldís. Það er áprentað 300 þráða bómullarsatín. Lund er 300 þráða áprentað bómullarsatín. Það er draumur að sofa með silkimjúk og gullfalleg Magn- olia ljósgræn rúmföt sem eru í senn svalandi og hlý. MYNDIR/ AÐSENDAR Röndótt damask er sígilt og eftirsóknarvert utan um rúmið. Þessi fallegu eru frá Kurt Bauer. Slík vottun tryggir að ekki sé notaður dúnn af gæsum sem eru plokkaðar lifandi eða illa farið með. Hildur Þórðardóttir 2 kynningarblað A L LT 21. desember 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.