Dagrenning - 01.01.1941, Síða 3
DAGRENNING
Óháð Mánaðarrit til skemtunar og fróðleiks.
Gleðstu meðan æskan ör að þér blítt vill láta,
er ellin þreytir þrek og- fjör. þá er tími að giáta.
VI. ár. VIÐIR, Man, Janúar, 1941. No. 11.
“SAGA VESTUR-ÍSLENDINGA”
EFTIR
Þ. Þ. Þorsteinsson,
Fyrstabindið af þessuverki
er nú fullgert og komið,.ihing-
að Vestur, og í hendur útsölu
manna. Bókin er í laglegu
bandi og verðið er $8.50.
Vitanlega verður að líta á
þetta bindi að eins sem sögu-
inngang, en þar er vel af stað
farið enda var Þorsteinn bú-
inn að sýna það með bók sinni
‘‘Vestmenn,” að hann er starf-
inu vaxinn.
Það er sannarlegt gleðiefni
öllum fslendingum, að mega
eiga von á sögu Vestur íslend-
inga í samstæðri heild, þar
sem svo margt af því, sem rit-
að hefir verið um íslenzkt
landnám hér í álfu, á ýmsum
timum, hefir verið mjög svo
óábyggilegt og í molum. Það
vita þeir best um, sem búnir
eru að lifa hér síðan landnám
fslendinga hófst hér í álfu og,
sem fylgst hafa með mönnum
og málefnum.
Nú er það skylda okkar allra
sem íslendingar, að greiða
fyrir sölu á þessu fyrsta bindi
af “Sögu Vestur íslendinga”
svo, að sögu nefndinni verði
áframhald starfsins mögulegt
því á sölunni á þessu bindi,
byggjast möguleikarnir til á-
framhalds. Það væri illa farið
ef hér yrði að nema staðar
með þetta verk sökum þess,
að bókin seldist ekki nægilegu
vel. Það má ekki koma fyrir.
Það er mál margra, að verð
bókarinnar sé svo hátt, að það
geti ekki aðrir en efnamenn