Dagrenning - 01.01.1941, Page 20
iTOts langar fjetm.
Eftir Erl. Johnson.
(£>-<>
Lag: "Hvað er svo glatt.n
Mig lang-ar heim á ljúfar æskuslóðir,
þar lífsins njóta fósturjörðu á.
Mig langar heitn, en huldir kraftar hljóðir
hamla því og vekja sorg og þrá.
Mig langar heim með ljósins»bliki hröðu,
og lesa þar minn hinsta strengja brag;
Mig langar heim og standa þar í stöðu,
en sterkast þó, að lifa nýja dag.
Maður nokkur, var þektur að því, að vera hirðulaus
með sjálfann sig í klæðaburði og þvo sér sjaldan, var ný-
kosinn sveitar oddviti. Blaðamaður einn gerði honum
þann hrekk, skömmu síðar að geta þess í blaði sínu, að
“herra L., ætlaði að þvo sér áður en hann settist í odd-
vita stólinn sem yrði um næstu mánaðar mót,” Hinn
ný-kosni oddviti varð æfur er hann las þetta, þaut inn í
skrifstofu blaðins og krafðist þess, að þessi yfirlýsing
væri afturkölluð í næsta blaði.
Daginn eftir kom afrurköllunin þannig orðuð:
“Að gefnu tilefni auglýsist hér með, að herra L., sá
ný-kosni oddviti ætlar ekki að þvo sér áður heldur en
hann sest í oddvita sætið.”
••«>#===«>•■