Fréttablaðið - 31.12.2021, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 31.12.2021, Blaðsíða 12
2. Múlagljúfur Þetta stórkostlega mosavaxna árgljúfur felur sig í sunnanverðum Öræfajökli, skammt frá Kví- skerjum. Það er tvímælalaust á meðal snotrustu staða á Íslandi og er klárlega náttúruperla á heimsmælikvarða. Innst í gljúfrinu er Múlafoss í Múlaá en neðar steypist ofan í það 117 metra hár foss sem heitir Hangandifoss. Fossatvennan með mosavaxið gljúfrið í forgrunni og Rótarfjalls- hnjúk í baksýn er snotur hönnun og þarna hefur skaparinn greini- lega átt góðan dag. MYND/TG 3. Stórurð Einmuna veðurblíða á Austurlandi síðastliðið sumar varð til þess að óvenjumargir lögðu leið sína í Stórurð, en hún kúrir í kjöltu Dyr- fjalla norðan Egilsstaða. Velja má um nokkrar auðveldar gönguleiðir að risavöxnum klettum Stórurðar, sem helst minna á mosavaxnar íbúðablokkir sem fljóta á sér- kennilega sægrænu jökulvatni. Í baksýn blasa við tíguleg Dyrfjöllin með hæsta tindinn Súlu í 1.126 metra hæð, en dyrnar eru 700 metra breiðar. MYND/SIGTRYGGUR ARI Tíu heitustu áfangastaðir Íslands 2021 Ef einhver hefur komið standandi niður í Covid-19 faraldrinum þá er það íslensk náttúra, enda ferðast Íslendingar sem aldr- ei fyrr um eigið land. Sífellt fleiri hafa því valið að kynnast íslenskri náttúru í stað utanlandsferða og því sem hún hefur upp á að bjóða. Margir hafa valið þekktar náttúruperlur eins og Gullfoss, Geysi, Dettifoss og Ásbyrgi, á meðan aðrir hafa leitað uppi önnur djásn sem liggja utan alfaraleiðar, en þar leynast tíu náttúruperlur sem slógu í gegn á árinu sem er að líða. Tómas Guðbjartsson Sigmundur Ernir Rúnarsson 4. Geldingadalir Eftir tæplega 800 ára goshlé á Reykjanesskaga var boðið upp á sannkallaða flugeldasýningu þegar gos hófst í Geldingadölum í mars. Gosið varði í rúmlega hálft ár, og þótt ekki teldist það með stærstu jarðeldum þá var það einkar tilkomumikið og auðvelt að komast að því fótgangandi. Meirihluti Íslendinga og tugir þúsunda ferðamanna gátu því séð gosið í návígi og fundið jörðina skjálfa og drynja undir fótum sér, svo og hitann í kinnum frá spúandi landi. MYND/TG 1. Grænihryggur Margir telja Torfajökulssvæðið sunnan Landmanna- lauga fegursta stað Íslands. Þar er að finna bogformað Jökulgil sem umkringt er sundurskornum líparít- fjöllum í öllum regnbogans litum. Innar leynast svo gullmolar eins og Grænihryggur, og framan við hann ljósi Kanilhryggurinn og brúnsvart Lakkrísstígvélið, bergstandur sem minnir á súkkulaði með lakkrísbitum. Ganga á Grænahrygg tekur þrjá tíma frá skála Ferða- félags Íslands í Landmannalaugum. MYND/ÓLAFUR MÁR 5. Dynjandi Dynjandi hefur löngum talist til fegurstu og tilkomu- mestu fossa landsins og er sannarlega ein helsta náttúruperla Vestfjarða – og raunar stærsta vatns- fallið á kjálkanum. Með opnun Dýrafjarðarganga haustið 2020 varð loksins kleift að sækja þennan magnaða foss heim að vetrarlagi og dást að voldugri klakabrynjunni sem fer svo vel við snævi þakta klettana í kring. Dynjandi er nákvæmlega 100 metra hár og rennur samnefnd á ofan af Dynjandisheiði í Arnarfjörð. MYND/PÁLL STEFÁNSSON 6. Drangaskörð Jörðin Drangar með sínum stórkostlegu Dranga- skörðum var gerð að friðlandi undir loks ársins og er hún sú fyrsta sem friðuð er sem óbyggð víðerni. Ferðalag til þessarar einstöku náttúruperlu, hvort heldur er gangandi eða á báti, er ógleymanleg upp- lifun, ekki síst þegar þrætt er í gegnum skörðin líkt og tannþráður í skolti risaeðlu. Þar er upplagt að leggjast niður og njóta um stund, en fuglarnir allt í kring eiga það til að stinga sér niður eins og orrustu- þotur. MYND/TG 7. Núpsstaðaskógur Sannarlega er hér kominn einn af fegurstu skógum landsins sem felur sig í krika á milli Skeiðarárjökuls og fjalls norður af Lómagnúp sem heitir Björninn. Eftir að Súla breytti farvegi sínum í Gígjukvísl í stað Núpsár er auðvelt að komast inn í Núpsstaðaskóg á óbreyttum jeppa. Þarna er frábært tjaldstæði sem skartar snotrum fossum sem nýta má sem útisturtu að lokinni göngu á Súlur eða að Tvílitahyl sem hvorutveggja eru einstakir áfangastaðir sem gleðja augað. MYND/ÓLAFUR MÁR 8. Rauðauga Þessi snotra lind er skammt frá Dómadalsleið að Fjallabaki og státar ekki aðeins af rauðum augn botni heldur einnig mögnuðu umhverfi allt um kring. Úr auganu, sem glápir beint og óvænt upp úr jörðu, rennur tær Rauðufoss- akvísl sem endar í stórkostlegum Rauðufossum, einum fimm kíló- metrum neðar. Gaman er að ganga meðfram ánni að Auganu, en þar sem gróður er sérlega viðkvæmur á þessum slóðum er brýnt að halda sig ávallt við göngustíga. MYND/TG 9. Gengissig í Kverkfjöllum Annar af tveimur sigkötlum í Kverkfjöllum í norðanverðum Vatnajökli er náttúrulegt Gengis- sig sem myndaðist við jarðhrær- ingar árið 1959. Það tekur stöð- ugum breytingum á milli ára, en síðastliðið sumar var það sérlega tilkomumikið, enda hafði lónið þá nánast tæmst. Eftir sátu ísjakar sem flugu um á blágráu vatni sem hrikalegir ísveggir hringuðu sig um. Ekki er ráðlegt að ganga að Gengissigi nema í góðu veðri, vel búinn, en gangan þangað tekur tíu tíma. MYND/SIGTRYGGUR ARI 10. Lónsöræfi Af mörgum talið eitt stórkostleg- asta göngusvæði landsins, hvort sem gengið er ofan af Eyjabökkum eða af bílastæðinu á Illakambi inn af Lóni. Fjölmargir lögðu leið sína í Lónsöræfi í sumar, enda veðurblíð- an fyrir austan með eindæmum. Fáir staðir á landinu geta státað af annarri eins litadýrð, hvað þá í ná- lægð jökla, jökuláa og birkiskógar frá landnámi. Einn tilkomumesti staður Lónsöræfa er Tröllakrókar sem eru óviðjafnanleg og víðfeðm bergrisaröð. MYND/ÓLAFUR MÁR 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 12 Fréttir 31. desember 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.