Fréttablaðið - 31.12.2021, Page 24

Fréttablaðið - 31.12.2021, Page 24
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Tæknifyrirtækið Leikbreytir byggir á áratuga reynslu starfs- manna á sviði stafrænnar þróunar og almennrar fyrirtækjaþjónustu. Ein af nýlegri lausnum fyrirtækis- ins nefnist Farsímaveski Wallet sem gerir fyrirtækjum kleift að gefa út gjafakort og inneignar- nótur í farsímann, bæði Apple Wallet og í Android, segir Yngvi Tómasson, framkvæmdastjóri Leikbreytis. „Þannig sér viðskipta- vinurinn alltaf hvað hann á mikið eftir á kortinu og hægt er að senda honum áminningu um að nota kortið bæði almennt og háð stað- setningu.“ Hann segir fyrirtækið hafa þróað ýmsar sérlausnir á móti helstu bókhaldskerfum eins og Navision og DK sem oft halda utan um gjafakort, vildarklúbba og inneignarnótur. „Við gerum fyrir- tækjum kleift að gefa allar inn- eignarnótur út í Farsímaveski sem og gjafakort. Eins höfum við þróað lausnir sem snúa að vildarkerfum, bæði punktasöfnun sem og lausnir um sérkjör eins og gömlu stimpil- kortin sem bjóða upp á tíunda kaffibollann frían sem dæmi. Þetta er í raun heildarlausn þar sem færa má flest allt sem er gefið út í dag sem plastkort yfir í Farsíma- veskið og bjóða upp á aukna virkni í leiðinni.“ Fækka endurteknum verkefnum Sjálfur hefur Yngvi starfað í tækni- geiranum síðan hann var sextán ára og því hokinn af reynslu. Áhugi hans liggur þó aðallega í vöru- þróun og að nota tæknina til þess að hjálpa fyrirtækjum á viðskipta- miðaðan hátt. Hann átti og rak um tíu ára skeið fyrirtækið Davíð og Golíat sem hann seldi árið 2017. Hann lýsir aðdraganda stofnunar Leikbreytis. „ Ég starfað hjá Nova samhliða því að stunda MBA-nám í HR eftir söluna. Á þessum tíma sá ég gríðarlega mörg tækifæri með nýrri tækni, fyrri reynslu og möguleika með nýjum verkfærum sem námið hafði veitt mér. Það varð í raun ekki aftur snúið og ákvað ég að fara á fullt í að undir- búa stofnun tæknifyrirtækis sem myndi bjóða upp á lausnir sem gætu aðstoðað stafræna vegferð fyrirtækja með áherslu á sjálf- virkni.“ Hann segir upplýsingatæknigeir- ann vera í raun mjög ungan enn og mikið af tækifærum sem felist í að bjóða fyrirtækjum upp á betri lausnir og betri þjónustu. „Lykilat- riðið í öllum okkar lausnum er að finna ekki upp hjólið heldur sam- þætta lausnir sem eru til og búa til viðskiptamiðaðar vörur fyrir við- skiptavini okkar. Rauði þráðurinn í öllum okkar lausnum er að hjálpa fyrirtækjum að bæta þjónustu, auka sölu og fækka endurteknum verkefnum starfsmanna.“ Engin útrunnin kort í skúffunni Yngvi segir ávinning neytenda vera mjög mikinn enda kannist flestir við að vera með skúffu heima hjá sér fulla af gjafakortum sem eru jafnvel útrunnin. „Með því að vera með gjafakortið í eigin síma og í síma makans eru töluvert meiri líkur á að þú notir það þar sem þú eða makinn eruð alltaf með það á ykkur. Eins eru fyrirtækin sem selja gjafakortin komin með tæki frá okkur til að minna fólk á að nota gjafakortin, bæði þegar stytt- ist í að þau renni út og eftir stað- setningu þegar þú ert í nágrenni við verslanir þeirra. Auk þess sést alltaf í símanum hversu há upp- hæð er eftir á gjafakortinu.“ Þegar kemur að inneignarnótum og skilamiðum hafa fyrirtæki eins og S4S, sem reka Air, Steinar Waage, Ecco og fleiri verslanir, innleitt lausn frá Leikbreyti. „Þar „Þetta er í raun heildarlausn sem má hugsa þannig að hægt er að færa flest allt sem er gefið út í dag sem plastkort yfir í Farsímaveskið,“ segir Yngvi Tómasson, framkvæmda- stjóri Leik- breytis. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR eru allar inneignarnótur sendar í símann hjá viðskiptavinum í stað þess að fá strimil sem líklegur er til að eyðast eða týnast, eins og margir kannast vafalaust við.“ Mikill ávinningur Ávinningur fyrirtækja sem taka upp tæknina er ekki síður mikill, að sögn Yngva. „Fyrirtæki fá tæki- færi til að auka þekkingu sína á viðskiptavinum sem eiga gjafa- kortin og fá um leið verkfæri til að vera í sambandi við þá, bjóða þeim ný tilboð og minna þá á að nota gjafakortin og inneignarnóturnar.“ Einnig geta fyrirtækin sent notendum sérstök skilaboð eftir staðsetningu, bæði út frá GPS og sérstökum búnaði sem er settur í verslanir og veitingastaði, sem gerir þeim kleift að senda mun hnitmiðaðri skilaboð á gjafakortshafa sem eru staddir þar. „Það er líka hægt að selja gjafakort á netinu og bjóða viðskiptavinum upp á að afgreiða sig sjálfa með kaupum á nýjum gjafa- kortum sem bæði er hægt að senda út rafrænt á þann sem á að fá gjafa- kortið eða prenta út og gefa með flösku eða konfektkassa. Lausnirnar okkar má einnig nýta til þess að gefa út viðbótar afsláttar- miða auk þess sem að bæði er hægt að nota Farsímaveskis- lausnina í hefð- bundinni verslun og vefverslun, en oft er ekki hægt að nota gjafabréf og inneignir í vefverslunum. Grunnlausn okkar í Farsímaveskislausnum er í raun ekki bara hugsuð fyrir gjafabréf, vildarklúbba og inneignarnótur þótt það séu vissulega áherslur okkar 2022. Kerfið er fullbúið og tilbúið til að útbúa aðgangsmiða á viðburði, árskort, líkamsræktar- kort og svo mætti lengi telja.“ Gleymd kort úr sögunni Yngvi sér fram á mjög mikinn vöxt næstu árin. „Við reiknum með að allir kaupmenn og fyrirtæki sem selja gjafakort muni færa sig yfir í svipaðar lausnir til að halda utan um gjafakort. Verslanir munu stórauka uppbyggingu vildar- klúbba með þessum nýju lausnum og í raun verða allir kaupmenn að vera með í þessari þróun til að verða ekki eftir. Sam- keppnin um við- skipti er ekki lengur bara innanlands heldur við netversl- anir erlendis líka þar sem risar eins og Amazon nýta sér allar þær upp- lýsingar og tækni sem þeir hafa til að byggja upp viðskiptavild. Það verður einfaldlega krafa neytenda. Að gleyma Costco-kortinu heima, bensínlyklinum, gjafakortinu, starfsmannapassanum eða aðgangskortinu í sund mun heyra sögunni til því allt er í símann. Með heildarvöruframboði okkar hjálpum við fyrirtækjum að taka gjafakortasöluna og allt í kringum hana á annað stig og auka jafn- framt alla sjálfvirkni í kringum sölu nýrra korta og í raun stuðla að umhverfisvænni lausn þar sem gjafakort eru ekki lengur gefin út sem plastkort.“ Nánari upplýsingar á leikbreytir.is. Dæmi um inneignarnótu sem fólk fær beint úr kassakerfi S4S í stað þess að fá strimil sem eyðist eða týnist. Hér er gjafa- kort í farsímaveski, sem sýnir stöðuna á kortinu og strika- merki sem talar við gjafakortakerfi. 2 kynningarblað A L LT 31. desember 2021 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.