Morgunblaðið - 10.08.2021, Page 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 2021
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Komdu í BÍLÓ!
Þessir síungu strákar eru klárir
í að selja bílinn þinn
Kíktu við, hringdu eða sendu okkur skilaboð!
Hlökkum til!
Indriði Jónsson og Árni Sveinsson
Hjá okkur er alltaf gott úrval af nýlegum glæsilegum tengiltvinn bílum (plug in hybrid)
Audi – BMW– Skoda – VW–M.Benz
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Erla Björg Gunnarsdóttir frétta-
maður hefur verið ráðin ritstjóri
fréttastofu Stöðvar 2, Bylgjunnar og
Vísis. Tekur hún þá við starfi Þóris
Guðmundssonar. Kolbeinn Tumi
Daðason, fréttastjóri Vísis, verður
fréttastjóri allra þriggja miðla.
Þórir Guðmundsson segist í sam-
tali við mbl.is skilja sáttur við vinnu-
veitanda sinn og samstarfsfólk. Þóri
var sagt upp störfum í gærmorgun
og var tilkynnt um þá ákvörðun síð-
ar í gær.
Skilur í góðu
„Það er bara alls ekkert ósætti
eða neitt slíkt,“ sagði Þórir við
mbl.is spurður hvort nokkuð slíkt
væri.
„Eiginlega þvert á móti er ég að
skilja eftir mig mjög einbeittan, góð-
an og samheldinn hóp á fréttastof-
unni. Þessi tíðindi með mig er ein-
faldlega ákvörðun Þórhalls
Gunnarssonar og við áttum ágætis
fund í morgun að öllu leyti nema
einu, svo ræddi ég við fólkið á frétta-
stofunni og áttum við góða kveðju-
stund. Ég skil mjög sáttur við frétta-
stofu á góðum stað.“ Þórir segir
endurskipulagningu á fréttamiðlum
Sýnar; Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunn-
ar, hafa verið ástæðu uppsagnar
hans. Þórir hefur unnið áratugum
saman í fjölmiðlum með hléum þar
sem hann sinnti hjálparstarfi fyrir
Rauða krossinn. Aðspurður segist
hann ekki hafa ákveðið hvað hann
taki sér nú fyrir hendur en að hann
ætli að gefa sér góðan tíma til þess
að skoða það.
„Starfsferill minn hefur í raun
skipst á milli þess að vera í fjölmiðl-
um eða einhvers konar hjálparstarfi.
Ég er ekkert búinn að ákveða og ég
ætla að taka mér góðan tíma í það.“
Skilur sáttur við
fréttastofuna
- Ritstjóraskipti á fréttastofu Stöðvar 2
Þórir
Guðmundsson
Erla Björg
Gunnarsdóttir
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta hefur verið gamall draumur hjá mér.
Segja má að í þessu sameinist tvö áhugamál.
Ég er hrifinn af gamla íslenska byggingar-
stílnum og er áhugamaður um guðfræði.
Kirkjan er vitnisburður um trú og þakklætis-
vottur um blessun okkar og fjölskyldunnar í
lífinu,“ segir Birgir Þórarinsson, alþingis-
maður Miðflokksins, um veglega heim-
iliskirkju í 19. aldar stíl sem þau hjónin, Birgir
og Anna Rut Sverrisdóttir, hafa reist á túninu
á jörð sinni, Minna-Knarrarnesi á Vatnsleysu-
strönd.
Karl Sigurbjörnsson biskup vígði Knarrar-
neskirkju í fyrradag. Honum til aðstoðar voru
Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup og
Kjartan Jónsson, sóknarprestur Ástjarnar-
prestakalls. Meðal gesta við athöfnina var
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Sex ár eru liðin frá því Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, þáverandi forsætisráðherra,
tók fyrstu skóflustunguna að kirkjunni. Birgir
hefur sjálfur unnið mikið við bygginguna en
notið aðstoðar smiða og annarra sérfræðinga.
Til dæmis hlóð hann sjálfur grjótgarðinn í
kringum kirkjuna og tók tvö ár í það verk en
Birgir segist sérstakur áhugamaður um grjót-
hleðslu.
Hann viðurkennir að framkvæmdin hafi
kostað sitt en tekur fram að hann hafi ekki
tekið kostnaðinn saman og muni ekki gera það.
Hann leitaði til erlendra listamanna um list-
muni. Þannig er altaristaflan máluð af úkra-
ínska listamanninum Andrii Kovalenko. Hún
sýnir meðal annars núverandi ábúendur og
nokkra forfeður þeirra. Listamaðurinn málaði
einnig helgimynd sem sýnir heilagan Nikulás,
sem var meðal annars verndari sjómanna og
sæfarenda. Prédikunarstóllinn er eftirgerð af
prédikunarstól frá 1594 sem varðveittur er á
Þjóðminjasafninu.
Birgir segir að þó Knarrarneskirkja sé
heimiliskirkja verði hún notuð við allar al-
mennar kirkjuathafnir. Þar verði þó ekki
reglulegar messur. Hann segir að komnar séu
nokkrar beiðnir um giftingar þar. Þá sé ætl-
unin að messa árlega á Nikulásarmessu, 6.
desember.
Í kirkjukaffi Úkraínski listamaðurinn Andrii
Kovalenko með kirkjueigendunum, Önnu Rut
Sverrisdóttur og Birgi Þórarinssyni alþing-
ismanni sem vann sjálfur að byggingunni.
Munir kirkjunnar Altari kirkjunnar er
óhöggvinn fjörusteinn úr Flekkuvíkurfjöru.
Kristur er í miðdepli altaristöflunnar. Prédik-
unarstóllinn er eftirgerð stóls frá 1594.
Vígsluathöfn Heilagur Nikulás vakir yfir kirkjugestum í Knarrarneskirkju. Helgimyndina málaði úkraínski listamaðurinn Andrii Kovalenko og gaf til kirkjunnar.
Vegleg heimiliskirkja tekin í notkun
- Hjónin á Minna-Knarrarnesi á Vatnsleysu-
strönd byggja sér kirkju á túni jarðarinnar