Morgunblaðið - 10.08.2021, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 2021
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Við þekkjumst öll úr ólíkum áttum. Við Símon
og Romain vorum saman í Listaháskólanum og
við Jara erum búnar að syngja saman í Grad-
ualekórnum og Graduale Nobili í Langholts-
kirkju og í Söngskólanum í Reykjavík. Okkur
langaði að gera eitthvað saman,“ segir Harpa
Ósk Björnsdóttir sópran um tilkomu tónleika-
ferðar þeirra Jöru Hilmarsdóttur mezzósópr-
ans, Romains Þórs Denuits píanóleikara og
Símonar Karls Sigurðarsonar Melsteð klarín-
ettuleikara.
Tónleikarnir bera yfirskriftina Þá mun ég
gleðjast og gráta og þar flytja þau verk eftir
Robert Schumann og Franz Schubert. Tvennir
tónleikar fóru fram fyrr í vikunni, þeir fyrri í
Hóladómkirkju á Hólum í Hjaltadal og aðrir í
Stykkishólmskirkju. Í kvöld, þriðjudagskvöld
10. ágúst, kl. 20, fara síðan fram tónleikar í
Reykholtskirkju í Borgarfirði og loka-
tónleikarnir verða í Kaldalóni í Hörpu annað
kvöld, miðvikudaginn 11. ágúst, einnig kl. 20.
Harpa og Jara stunda báðar framhaldsnám í
klassískum söng í Þýskalandi, Harpa í Hoch-
schule für Musik und Theater „Felix Mendels-
sohn“ í Leipzig en Jara við Hochschule für
Musik und Tanz í Köln. Símon stundar nám við
Listaháskóla Íslands en var í skiptinámi í
Robert Schumann Hochschule í Düsseldorf
síðasta vetur. „Svo okkur langaði að gera eitt-
hvað þýskt,“ útskýrir Harpa. Þau fengu síðan
Romain til liðs við sig en hann lauk bakka-
lárgráðu í píanóleik við Listaháskóla Íslands
vorið 2020 og hefur meistaranám á Ítalíu í
haust.
Skiptast á skin og skúrir
Á efnisskránni eru valdir dúettar úr Span-
isches Liederspiel op. 71, Fantasiestücke op.
73 fyrir klarínettu og píanó og valin ljóð úr
Frauenliebe und Leben op. 42 eftir Schumann
auk Der Hirt auf dem Felsen D. 965 eftir Schu-
bert.
„Titill tónleikanna er þýðing á tilvitnun í eitt
ljóðið í Frauenliebe und Leben. Jöru datt þetta
í hug,“ segir Harpa og hóar í stöllu sína sem
skýrir hugmyndina á bak við heitið. „Okkur
fannst það lýsa svolítið háfleygninni og hversu
fljótt skiptast á skin og skúrir í svona ljóða-
söng. Eina stundina er manneskjan hágrátandi
og þá næstu er hún í sæluvímu,“ segir Jara.
„Það er svolítið stefið í þessum ljóðaflokki,
það gerist rosalega hratt að hún fari úr heitri
ást í mikla sorg og reiði,“ segir Harpa og Jara
bætir við: „Bara eins og lífið, stormasamt.“
Eins og áður sagði voru söngkonurnar
Harpa og Jara og klarínettuleikarinn Símon öll
við nám í Þýskalandi síðastliðinn vetur þar sem
hugmyndin kviknaði að samstarfi.
Með tónleikunum kanna tónlistarmennirnir
tengsl söngraddar og klarínettu. „Við settum
saman þetta prógramm þannig að það væri
hægt að hafa saman klarínettu og söngrödd og
mótuðum þessa hugmynd í kringum það og
fengum svo hann Romain til að spila með okk-
ur. Við leituðum mjög lengi að verkum þar sem
klarínettan hljómar með söng. Það fyrsta sem
kemur upp er Der Hirt auf dem Felsen sem er
frægasta söng- og klarínettuverkið svo það lá
rosalega beint við,“ segir Harpa.
Klarínettan hermir eftir söngröddinni
„Fyrst syngjum við saman þrjá dúetta og
svo kemur klarínettan með sólópart,“ segir
Jara og útskýrir að þegar maður hlusti á þetta
svona í röð verði klarínettan lík söngrödd. „Ef
maður lokar augunum þá er þetta svolítið eins
og söngrödd.“
Síðan syngur Jara ljóðaflokk og í lokaverk-
inu koma hljóðfærin þrjú saman, klarínetta, pí-
anó og söngrödd Hörpu. „Þar er klarínettan
eins og bergmál af söngröddinni. Við gerum
mikið af því að láta blæbrigðin hljóma svipað.
Klarínettan hermir eftir söngröddinni sem er
svolítið skemmtilegt,“ skýrir Harpa.
Tónlistarmennirnir eru ánægðir að fá tæki-
færi til þess að stíga á svið hérlendis. „Það
skiptir okkur mestu máli að vera loksins að
flytja tónlist á Íslandi. Það er örugglega þema
hjá mörgum núna. Þetta eru fyrstu tónleikarn-
ir okkar á Íslandi eftir að við fórum út í nám.
Það hefur verið lítið í gangi út af Covid og öllu
verið frestað eða aflýst. Það er rosalega gaman
að geta unnið svona prógramm. Það eru líka
margir sem hafa ekki heyrt í okkur í tvö ár,“
segir Harpa.
„Það er gaman að koma heim og geta sungið
fyrir vini og fjölskyldu og bara fólk á Íslandi,“
segir Jara þá og Harpa bætir við: „Sýna hvað
við erum orðnar góðar í þýsku,“ og þær hlæja.
Tónleikarnir á Hólum eru styrktir af Hóla-
dómkirkju og Guðbrandsstofnun og eru hluti
af Sumartónleikaröð Hóladómkirkju. Fjór-
menningarnir dvöldu þar í viku við æfingar
fyrir tónleikana. Tónleikarnir í Hörpu eru
styrktir af Styrktarsjóði um tónlistarhús og
Ruthar Hermanns og þeir á Vesturlandi eru
styrktir af sóknaráætlun Vesturlands.
Tónlistarfólk Romain Þór, Símon Karl, Harpa Ósk og Jara á Hólum í Hjaltadal þar sem fyrstu
tónleikar ferðarinnar fóru fram. Þau leiða saman söngröddina, klarínettu og píanó.
Klarínettan bergmál söngraddar
- Tónleikaferðin Þá mun ég gleðjast og gráta endar í Kaldalóni Hörpu - Fjórmenningar kanna
tengsl klarínettu og söngraddar í Schubert og Schumann - Gleðjast yfir því að syngja á Íslandi
Þór
bærin
g
Alla v
irka d
aga fr
á 10-1
4
Dennis „Dee Tee“ Thomas, einn
stofnenda sálarfönksveitarinnar Kool
& the Gang, er látinn, sjötugur að
aldri. Hljómsveitin átti allnokkra
smelli á sínum tíma og má þar helstan
nefna „Get Down On It“. Thomas lést
í svefni um nýliðna helgi á heimili
sínu í New Jersey. Hann lék á saxó-
fón í hljómsveitinni og var enn frem-
ur forsprakki hennar. Síðustu tón-
leikar sveitarinnar fóru fram 4. júlí, á
þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, í
Hollywood Bowl í Los Angeles.
Thomas var ekki aðeins þekktur
fyrir tónlistarsköpun heldur einnig
tilkomumikinn klæðaburð og sá hann
auk þess um fataval hljómsveit-
arinnar og var stílisti hennar. Mun
hann einnig hafa séð um fjármál
sveitarinnar og segir sagan að hann
hafi gengið með ágóðann af tón-
leikum í bréfpoka.
Hann stofnaði hljómveit með fé-
lögum sínum árið 1964 sem hét í
fyrstu The Jazziacs og síðar Kool &
the Gang. Hljómsveitin hefur hlotið
tvenn Grammy-verðlaun og sjö verð-
laun Bandarísku tónlistarverð-
launanna, American Music Awards.
Árið 2014 hlaut sveitin verðlaun Soul
Train fyrir framlag sitt til sálar-
tónlistar. Hafa lög hennar verið notuð
í fjölda kvikmynda og þá m.a. Rocky,
Saturday Night Fever og Pulp Fict-
ion, eins og bent er á í frétt The
Guardian.
AFP
Svalir Dennis Thomas lengst til hægri með Kool and the Gang árið 2018.
Dennis Thomas úr
Kool & the Gang allur