Morgunblaðið - 10.08.2021, Blaðsíða 32
Jazzhátíð Reykjavíkur verður haldin 28. ágúst til 4. sept-
ember og því boðið upp á átta daga dagskrá þar sem
djass, blús, fönk og spunatónlist verða í forgrunni. Tón-
leikar og viðburðir verða hátt í 40 talsins og munu tæp-
lega 200 listamenn koma fram á hátíðinni, innlendir sem
erlendir, eins og sjá má á vef hátíðarinnar, reykjavikjazz.-
is. Þeirra á meðal er kvartett Bandaríkjamannsins Am-
brose Akinmusires en Akinmusire hlaut tilnefningu til
Grammy-verðlauna á árinu fyrir nýjustu plötu sína, On
The Tender Spot Of Every Calloused Moment, sem er
gefin út hjá hinu virta útgáfufyrirtæki Blue Note.
40 viðburðir og um 200 listamenn
Rebekka Líf Ingadóttir
rebekka@mbl.is
Félagarnir Davíð Sigurðsson og
Alexander Sindrason opnuðu hinn
20. júlí kaffihús og vínbar í Urr-
iðaholti í Garðabæ. „Við erum bún-
ir að vera lengi með bakteríuna í
maganum að opna okkar eigið
konsept sem við vorum að finna út
hvað gæti verið. Svo þegar þetta
húsnæði kom upp í Urriðaholti
fannst okkur sniðugt að nýta rým-
ið í kaffihús og vínbar,“ segir Dav-
íð Sigurðsson, annar eigandi Dæ-
inn. „Alexander er mikill kaffikarl
og ferðaðist um Suður-Ameríku til
þess að fara í kaffiskóla og kynna
sér kaffi, sjálfur hef ég verið
meira í víninu og kokteilum og rak
áður veitingastað niðri í bæ þannig
að maður hefur smá reynslu í
þessu.“
Nýtt og upprennandi hverfi
Davíð segir að nokkur atriði hafi
átt þátt í ákvörðuninni um að opna
staðinn í Urriðaholti; hverfið sé
nýtt og upprennandi og Alexand-
er, annar eigandinn, búi þar ein-
mitt sjálfur og hafi þess vegna
fylgst með uppgangi þess og
stemningunni. „Svo býr mikið af
ungu fólki hérna, stutt á milli húsa
og fólk getur rölt og fengið sér
nokkra drykki og rölt síðan aftur
heim í stað þess að taka leigubíl
eða koma sér heim úr bænum.“
Hann segir þá að þá hafi langað til
að skapa stemningu í hverfinu þar
sem fólk gæti gert sér smá daga-
mun og þetta yrði eins konar fé-
lagsmiðstöð fyrir íbúa hverfisins.
Danskur innblástur
Davíð segir innblásturinn að
staðnum fenginn frá Danmörku,
þar sem hann hefur sjálfur búið
síðastliðin fjögur ár. Þar sé oftast
þétt setið á kaffihúsum og vínbör-
um og slíkir staðir séu oftast inni í
hverfum, sem þekkist almennt
ekki á Íslandi. „Þaðan kom inn-
blásturinn með hvernig við vildum
hafa þetta og hvernig við vildum
láta staðinn líta út. Svo fengum við
mikla hjálp hjá kærustunni minni,
Unu Mjöll Ásmundsdóttur, sem
var að læra arkitektinn úti í Dan-
mörku.“ Davíð segir að nafn stað-
arins komi frá þeim félögum; þeir
voru staðráðnir í að nýta íslenska
bókstafinn æ, sem einnig er að
finna í dönsku, og er ætlun félag-
anna að það verði ásýnd vöru-
merkisins. „Ég fékk síðan símtal
frá Alexander þegar ég bjó úti í
Danmörku og við vorum að velta
fyrir okkur hvað við ættum að láta
staðinn heita, þá spyr hann: „Hvað
með Dæinn?“ Það varð síðan allt í
einu að nafni sem við fíluðum báð-
ir í tætlur.“
Morgunblaðið/Unnur Karen
Eigendur Þeir Davíð og Alexander eiga og reka staðinn saman.
Vilja skapa danska
stemningu í Urriðaholti
- Opnuðu kaffihús og vínbar í Urriðaholti í Garðabæ
Dæinn Kaffihúsið og vínbarinn eru til húsa í Urriðaholti í Garðabæ.
ÍSLAN
D
VAKNA
R
Jón ax
el - kr
istín s
if - ás
geir p
áll
alla v
irkna
morg
na fr
á 06-1
0
ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 222. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Breiðablik er aðeins fjórum stigum frá toppliði Vals, og
með leik til góða, í Pepsi Max-deild karla í fótbolta eftir
sannfærandi 3:1-útisigur á Stjörnunni í grannaslag í
gærkvöldi.
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, kom
liðinu í 3:0 snemma í seinni hálfleik með öðru glæsi-
marki sínu í leiknum. Viktor Karl Einarsson gerði fyrsta
markið á 24. mínútu. Danski varnarmaðurinn Oliver
Haurits skoraði sárabótarmark fyrir Stjörnuna rúmum
stundarfjórðungi fyrir leikslok og þar við sat. »27
Breiðablik færist nær toppliðunum
ÍÞRÓTTIR MENNING