Morgunblaðið - 10.08.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 10.08.2021, Blaðsíða 32
Jazzhátíð Reykjavíkur verður haldin 28. ágúst til 4. sept- ember og því boðið upp á átta daga dagskrá þar sem djass, blús, fönk og spunatónlist verða í forgrunni. Tón- leikar og viðburðir verða hátt í 40 talsins og munu tæp- lega 200 listamenn koma fram á hátíðinni, innlendir sem erlendir, eins og sjá má á vef hátíðarinnar, reykjavikjazz.- is. Þeirra á meðal er kvartett Bandaríkjamannsins Am- brose Akinmusires en Akinmusire hlaut tilnefningu til Grammy-verðlauna á árinu fyrir nýjustu plötu sína, On The Tender Spot Of Every Calloused Moment, sem er gefin út hjá hinu virta útgáfufyrirtæki Blue Note. 40 viðburðir og um 200 listamenn Rebekka Líf Ingadóttir rebekka@mbl.is Félagarnir Davíð Sigurðsson og Alexander Sindrason opnuðu hinn 20. júlí kaffihús og vínbar í Urr- iðaholti í Garðabæ. „Við erum bún- ir að vera lengi með bakteríuna í maganum að opna okkar eigið konsept sem við vorum að finna út hvað gæti verið. Svo þegar þetta húsnæði kom upp í Urriðaholti fannst okkur sniðugt að nýta rým- ið í kaffihús og vínbar,“ segir Dav- íð Sigurðsson, annar eigandi Dæ- inn. „Alexander er mikill kaffikarl og ferðaðist um Suður-Ameríku til þess að fara í kaffiskóla og kynna sér kaffi, sjálfur hef ég verið meira í víninu og kokteilum og rak áður veitingastað niðri í bæ þannig að maður hefur smá reynslu í þessu.“ Nýtt og upprennandi hverfi Davíð segir að nokkur atriði hafi átt þátt í ákvörðuninni um að opna staðinn í Urriðaholti; hverfið sé nýtt og upprennandi og Alexand- er, annar eigandinn, búi þar ein- mitt sjálfur og hafi þess vegna fylgst með uppgangi þess og stemningunni. „Svo býr mikið af ungu fólki hérna, stutt á milli húsa og fólk getur rölt og fengið sér nokkra drykki og rölt síðan aftur heim í stað þess að taka leigubíl eða koma sér heim úr bænum.“ Hann segir þá að þá hafi langað til að skapa stemningu í hverfinu þar sem fólk gæti gert sér smá daga- mun og þetta yrði eins konar fé- lagsmiðstöð fyrir íbúa hverfisins. Danskur innblástur Davíð segir innblásturinn að staðnum fenginn frá Danmörku, þar sem hann hefur sjálfur búið síðastliðin fjögur ár. Þar sé oftast þétt setið á kaffihúsum og vínbör- um og slíkir staðir séu oftast inni í hverfum, sem þekkist almennt ekki á Íslandi. „Þaðan kom inn- blásturinn með hvernig við vildum hafa þetta og hvernig við vildum láta staðinn líta út. Svo fengum við mikla hjálp hjá kærustunni minni, Unu Mjöll Ásmundsdóttur, sem var að læra arkitektinn úti í Dan- mörku.“ Davíð segir að nafn stað- arins komi frá þeim félögum; þeir voru staðráðnir í að nýta íslenska bókstafinn æ, sem einnig er að finna í dönsku, og er ætlun félag- anna að það verði ásýnd vöru- merkisins. „Ég fékk síðan símtal frá Alexander þegar ég bjó úti í Danmörku og við vorum að velta fyrir okkur hvað við ættum að láta staðinn heita, þá spyr hann: „Hvað með Dæinn?“ Það varð síðan allt í einu að nafni sem við fíluðum báð- ir í tætlur.“ Morgunblaðið/Unnur Karen Eigendur Þeir Davíð og Alexander eiga og reka staðinn saman. Vilja skapa danska stemningu í Urriðaholti - Opnuðu kaffihús og vínbar í Urriðaholti í Garðabæ Dæinn Kaffihúsið og vínbarinn eru til húsa í Urriðaholti í Garðabæ. ÍSLAN D VAKNA R Jón ax el - kr istín s if - ás geir p áll alla v irkna morg na fr á 06-1 0 ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 222. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Breiðablik er aðeins fjórum stigum frá toppliði Vals, og með leik til góða, í Pepsi Max-deild karla í fótbolta eftir sannfærandi 3:1-útisigur á Stjörnunni í grannaslag í gærkvöldi. Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, kom liðinu í 3:0 snemma í seinni hálfleik með öðru glæsi- marki sínu í leiknum. Viktor Karl Einarsson gerði fyrsta markið á 24. mínútu. Danski varnarmaðurinn Oliver Haurits skoraði sárabótarmark fyrir Stjörnuna rúmum stundarfjórðungi fyrir leikslok og þar við sat. »27 Breiðablik færist nær toppliðunum ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.