Morgunblaðið - 10.08.2021, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 2021
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Ebrahim Raisi, forseti Írans, lýsti
því yfir í gær í samtali við Emmanuel
Macron Frakklandsforseta að allar
viðræður um kjarnorkuáætlun Írana
yrðu að tryggja réttindi og hagsmuni
íranskra stjórnvalda.
Forsetarnir ræddust við símleiðis
í gær og stóð símtalið yfir í um
klukkustund. Macron hvatti þar
Raisi til þess að hefja viðræður fljót-
lega um endurreisn kjarnorku-
samkomulagsins frá 2015, en síðustu
umleitanir til þess runnu út í sandinn
í júnímánuði.
Þá hvatti Macron Íransstjórn til
að láta af öllum aðgerðum sínum sem
brjóta í bága við samkomulagið, en
Íranar hafa ekki viljað ljá máls á
slíku nema Bandaríkjastjórn aflétti
refsiaðgerðum sem hún setti á Íran
árið 2018.
Raisi tók við embætti í síðustu
viku, og var samtal hans við Macron
fyrstu samskipti hans í embætti við
leiðtoga vestræns ríkis. Sagði Raisi
meðal annars að Íranar myndu „við-
halda fælingarmætti“ sínum í Persa-
flóa, en þeir hafa verið sakaðir um að
hafa staðið að árás á olíuflutninga-
skipið MT Mercer undan ströndum
Ómans 29. júlí síðastliðinn. Þá yrði
öllum ógnum við öryggi Írans svarað
af fullum krafti.
Íranar hafa neitað allri sök, en
flutningaskipið tilheyrði ísraelska
fyrirtækinu Zodiac Maritime. Tveir
úr áhöfn skipsins létust, einn Breti
og einn Rúmeni. Hafa Ísraelar hótað
hefndum vegna árásarinnar.
Antony Blinken, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hét því einnig í
gær að Bandaríkjastjórn myndi gera
Írana ábyrga fyrir árásinni, og sagði
að heimsbyggðin gæti ekki leyft
þeim að sleppa undan refsingu fyrir
hana. Sagði Blinken að slíkt myndi
einungis hvetja Írana og aðra til þess
að virða alþjóðalög og hafréttarsátt-
mála að vettugi.
Viðræður tryggi
réttindi Írana
- Vilja refsa fyrir árásina á olíuskipið
AFP
Íran Ebrahem Raisi Íransforseti
ræddi við Macron í síma í gær.
Þessi sjálfboðaliði var einn af þúsundum slökkviliðs-
manna sem reyndu að slökkva gróðureldana á grísku
eyjunni Evía í gær, en eldarnir hafa nú geisað í heila
viku. Þúsundir manna hafa neyðst til að flýja eyjuna og
fjöldi heimila orðið eldinum að bráð.
Kyriakos Mitsotakis, forsætisráðherra Grikklands,
sagði í gær að rúmlega 580 eldar hefðu kviknað vítt og
breitt um landið á síðustu dögum vegna fordæmalausr-
ar hitabylgju og þurrkatímabils. Bað hann Grikki af-
sökunar á „veikleikum“ í viðbrögðum gríska ríkisins.
AFP
Ekkert lát á hitabylgjunni
Gróðureldar hafa geisað á Evía í heila viku
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Antonio Guterrez, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, varaði
við því í gær að mannkynið væri nú
á heljarþröm í loftslagsmálum, eftir
að ný skýrsla milliríkjanefndarinnar
um loftslagsbreytingar, IPCC, var
birt í gærmorgun, en þar segir að
jörðin sé að hlýna hraðar en áður
var talið.
Í niðurstöðum skýrslunnar segir
m.a. að meðalhitastig jarðarinnar
muni árið 2030 ná 1,5 gráðum á Cel-
síus umfram það sem þekktist fyrir
iðnbyltinguna, miðað við núverandi
stöðu mála, en fyrri spár gerðu ráð
fyrir að þeim þröskuldi yrði ekki náð
fyrr en árið 2040.
Meðalhitastig jarðarinnar er nú
þegar 1,1 gráðu hærra en það var
fyrir iðnbyltingu, og Parísarsam-
komulagið frá 2015 gerir ráð fyrir
aðgerðum þar sem stefnt sé að því
hlýnunin verði undir 2°C og að reynt
verði eftir fremsta megni að halda
henni undir 1,5 gráðum.
Samkvæmt skýrslunni myndi
hlýnunin samt sem áður ná því
marki árið 2050, jafnvel þó að það
tækist að kolefnisjafna allan útblást-
ur fyrir þann tíma.
Höfundar skýrslunnar skoðuðu
fimm sviðsmyndir þar sem þróunin
var áætluð fram til áranna 2030,
2050 og 2090 með tilliti til þess
hversu vel eða illa gengi að draga úr
losun kolefnis í andrúmsloftið.
Áætluðu þeir að hlýnunin árið
2090 myndi í besta falli ná 1,8 gráð-
um en fara verst í 4,4 gráður, en slík
hlýnun myndi hafa miklar hörmung-
ar í för með sér.
Vöruðu skýrsluhöfundar við því
að jafnvel þó að hlýnuninni yrði
haldið í skefjum væru samt miklar
líkur á hitabylgjum, þurrkum, flóð-
um og alls kyns veðuröfgum öðrum,
sem ekki hefðu sést áður frá því að
skráningar hófust.
Viðvörunarbjöllurnar ærandi
Guterrez sagði að viðvörunar-
bjöllurnar væru nú orðnar ærandi
og að skýrslan hlyti að vera „útfar-
arhringingin“ fyrir jarðefnaelds-
neyti, þ.e. kol, olíu og jarðgas. Sagði
hann að útblástur gróðurhúsaloft-
tegunda væri að „kæfa plánetuna
okkar“, og að ekki væri hægt að
tefja lengur að grípa til aðgerða
gegn hlýnun jarðar.
Þjóðarleiðtogar víðs vegar um
heiminn tóku í sama streng. Boris
Johnson, forsætisráðherra Bret-
lands, sagði að hann vonaðist til að
skýrslan myndi vekja fólk af værum
blundi og hvetja heimsbyggðina til
aðgerða, en Bretar verða gestgjafar
26. loftslagsráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna í Glasgow í nóvember nk.
John Kerry, fulltrúi Bandaríkja-
stjórnar í loftslagsmálum, sagði að
skýrslan sýndi að krísan væri nú þeg-
ar til staðar, og að hún væri að verða
sífellt alvarlegri. Antony Blinken,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagði að nú þyrftu þjóðarleiðtogar,
einkaframtakið og einstaklingar að
taka höndum saman til þess að gera
allt sem í þeirra valdi stæði til að
verja jörðina fyrir frekari skaða.
Frans Timmermans, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Evrópusam-
bandsins í loftslagsmálum, sagði að
skýrslan sýndi að enn væri ekki of
seint að bregðast við og koma þannig
í veg fyrir að hlýnunin færi algjörlega
úr böndunum. Hins vegar þyrfti að
grípa til aðgerða strax, og benti
Timmermans þar sérstaklega á lofts-
lagsráðstefnuna í Glasgow.
Barbara Pompili, umhverfisráð-
herra Frakklands, sagði áskorunina
hins vegar mikla, þar sem skýrslan
þýddi að mannkynið yrði að færa sig
á næstu tíu árum frá notkun jarð-
efnaeldsneytis, eftir að hafa treyst á
það í nokkrar aldir.
Hlýnunin meiri en áður var talið
- Guterrez segir nýja skýrslu IPCC hringja útfararbjöllum fyrir jarðefnaeldsneyti - Hlýnun jarðar
muni ná 1,5°C árið 2030 að óbreyttu - Þjóðarleiðtogar segja tíma kominn til alvarlegra viðbragða
AFP
Útblástur Skýrsla IPCC dregur upp dökka mynd af stöðu loftslagsmála.