Morgunblaðið - 10.08.2021, Blaðsíða 16
Þú lifir ekki í for-
tíðinni en fortíðin lifir
í þér. Þú gleymir nót-
unum en líkaminn
man hvernig hljóð-
færið virkar. Þú
hættir að læra en
þekkingin margfald-
ast áfram. Þá sem þú
elskaðir einu sinni
elskarðu enn og frá
því færðu ekki slopp-
ið. Þegar þú opnar
þig fyrir öðrum flytur fólk inn í
þig og þeir sem tékka
sig inn á hótelið sem
þú ert tékka sig aldrei
út. Þú ert safn af öðr-
um, á meðan fortíð-
arútgáfur af þér dreif-
ast og geymast á
annarra manna söfn-
um.
En þú ert meira en
minjagripurinn sem
þig langar að vera og
þú getur sannað það.
Þú átt fæðingarvott-
orð sem staðfestir
hvaðan þú kemur, vegabréf sem
sýnir hvar þú hefur verið og ná-
granna sem vita hvar þú ert. Þú
hefur einhvers staðar til að vera,
eitthvað til að gera og einhvern
sem stendur ekki á sama. Þú veist
hverjum þú tilheyrir og hverjir
tilheyra þér. Þú finnur þig í
spegli, í mannfjölda og á skjá sem
þú geymir í vasanum. Þú sýnir
ólíkar hliðar í ólíkum aðstæðum
og hliðarnar á þér trúa ekki hver
á aðra. Hvernig þú talar dæmi-
gerir hvernig þú hugsar og hvern-
ig þú hlustar sýnir hvað þú veist.
Þú veist hvað þú ert að gera og
hvað það mun gera þér. Þú ert
meðaltal þeirra sem þú þekkir og
miðgildi þeirra sem þú kannast
við. Þú ert summan af því sem þú
gerir mínus það sem þú gerir
ekki. Þú ert möguleikar deilt með
takmörkunum sinnum, heppni í
tilviljanakenndu veldi. Þú ert út-
hugsað dæmi sem gengur upp þar
til annað kemur í ljós.
Vitundin er verksmiðja minn-
inganna og lærdómur er vitnis-
burður um erfiðleika. Þar af leið-
andi kunna erfiðustu minning-
arnar að vera minnisstæðari en
aðrar, vegna þess að þær geyma
einhvern sannleik sem við erum
tilbúin að þjást fyrir. Þær minna
okkur á hverfulleika lífsins og
undirstrika þá staðreynd að
þolinmæði er mælikvarði ást-
arinnar. Heimurinn er tráma, fólk
er triggerandi og lífið er ómetan-
legt tækifæri til að díla við þetta
allt saman.
Lífið er áfall
Eftir Ernu Misti
Erna Mist
»Hugvekja um
hvernig maður
mótar mann.
Höfundur er listmálari.
ernamist@ernamist.net
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 2021
Ég er ein af þeim,
sem hæstvirtir ráð-
herrar forsætis- og
heilbrigðismála vilja
ná tali af, því að ég er
óbólusett og hef mín-
ar eðlilegu ástæður
fyrir því. Þess vegna
vona ég, að þær
ágætu vinkonur lesi
þetta.
Á níunda áratug
síðustu aldar varð ég
ofnæmissjúk og hafði ofnæmi fyrir
öllum aukaefnunum eða svoköll-
uðum E-efnum í matnum og þoli
því ekki að borða hvað sem er enn
í dag, en ekki nóg með það. Ég
fékk líka lyfjaofnæmi, og hafði
raunar haft það undirliggjandi í
mér nokkuð lengi, því að ég kafn-
aði nærri því af pensilíni, sem mér
var gefið löngu fyrir þennan tíma,
og þegar ég þurfti að vera inni á
Landspítalanum sumarið 2009, og
mér láðist að geta þess að ég væri
með ofnæmisastma, fékk svo mor-
fín eða eitthvað álíka við upp-
skurðinn, þá var ég nær köfnuð,
þegar það fór að verka, og gat rétt
náð að gera hjúkrunarkonu við-
vart, áður en ég kafnaði alveg, svo
að það varð að gefa mér mótefni
við því, sem virtist virka.
Strax þegar lyfjaóþolið og -of-
næmið byrjaði í mér, þá var mikið
vandamál að gefa mér nokkurt
einasta lyf, þegar á þurfti að
halda, því að það var leitun á lyfi,
sem ég gat þolað, – og hafði það í
för með sér, að ég fór að stunda
grasalækningar fyrir sjálfa mig og
reiða mig á grös jarðarinnar, sem
hafa dugað mér betur í dag en
nokkurt lyfseðilsskylt lyf hefði
getað gert, þó að þau geti nú mörg
verið góð og gagnast mörgum
þeim, sem þau þola. Margir ætt-
ingjar mínir eru líka grasalæknar,
og ég ráðfærði mig oft við Ástu
grasalækni og fleiri, þegar ég
þurfti þess með. Ég fékk mér líka
bækur, m.a. frá Austurríki, sem
gögnuðust mér vel, sérstaklega ein
þeirra eftir Mariu Treben, þar
sem allir heimsins sjúkdómar voru
upptaldir og sagt, hvaða jurtir var
hægt að nota við lækningu þeirra,
og það var hægt að treysta því, að
það stóð allt, sem þar kom fram.
Við notkun jurtaseyða og jurta-
tesins, sem ég blandaði, fylgdi
bætt og betri heilsa, og ég fór að
taka eftir því, að ég var ekki eins
næm fyrir sjúkdómum og fyrr.
Grösin vernduðu mig fyrir um-
gangspestum og veirusýkingum
greinilega, og hafa gert það til
þessa. Sérstaklega hefur hvönnin
verið góð þar, svo og brenninetlan,
vallhumallinn, fjallagrösin og blóð-
bergið. Ég hef aldrei farið í inflú-
ensusprautur á veturna, og hef
heldur ekki þurft
þess, því að ég veit,
að hvönnin ver mig
fyrir öllum pestum,
enda verður mér
sjaldan misdægurt
enn þann dag í dag,
og fljót að ná því úr
mér, sem kann að
koma í mig, þar sem
grösin eru líka fljót að
hreinsa það úr mér.
Þegar ég veiktist
sumarið 2009, þá hafði
komið smá krabba-
meinsber í ristilinn á
mér, sem þurfti að skera. Þegar
mér var sagt, að aðeins einn eitill
af ellefu hefði getað orðið mér
banvænn, þá sagði ég: „Blessuð
séu grös jarðarinnar.“ Því að þá
vissi ég, að þau höfðu bjargað mér,
enda var ég líka að forverja mig,
þar sem þessi tegund krabbameins
var ættlæg í minni fjölskyldu.
Grasaseyðin mín og hvönnin
sérstaklega hafa því haldið mér á
lífi til þessa, og ég hef drukkið
jurtaseyðið mitt á hverjum einasta
morgni frá því ég byrjaði á þessu
árið 1987. Og blessuð hvönnin ver
mig fyrir þessum veirufjanda, veit
ég. Ég fer um allt, að vísu með
grímu, þegar skylda ber til, og er
innan um fólk, án þess að verða
fyrir barðinu á veirufjandanum, –
sem betur fer. Hvönnin ver mig
eins og hún hefur alltaf gert, og
því tel ég mér óhætt að vera
óbólusett, enda sýnist mér nú í
dag, að allir geti veikst, hvort
heldur þeir eru bólusettir eða
ekki. Svo er verið að tala um hin
og önnur afbrigðin, sem ekki er
vitað, hvort bóluefnin ráði við, fyr-
ir nú utan mismuninn á þessum
bóluefnum, svo að ég treysti engu
þeirra til þess að verja mig á við
jurtirnar, enda spyr hvönnin ekki
að því, hvað veiran eða afbrigðið
heitir; hún ræðst til atlögu við
þetta allt saman.
Þar sem ég er nokkuð viss um,
að ég muni ekki þola bóluefnin
frekar en annað lyfjakyns, þá leyfi
ég mér að afþakka bólusetningu,
hvað sem hver segir, og læt
hvönnina og aðrar góðar jurtir
verja mig áfram fyrir öllum
veirum, bakteríum og sjúkdómum
og halda í mér lífinu, eins og þau
hafa gert hingað til, þangað til
Guði þóknast að taka mig til sín.
Ef ykkur væri sama, þá er þetta
sama og þegið, kæru ráðherrar.
Eftir Guðbjörgu
Snót Jónsdóttur
» Grösin vernduðu mig
fyrir umgangs-
pestum og veirusýk-
ingum greinilega, og
hafa gert það til þessa.
Guðbjörg Snót
Jónsdóttir
Höfundur er guðfræðingur
og fræðimaður.
Um bólusetningu og
vörn hvannarinnar
og annarra jurta
Skólar & námskeið
fylgir Morgunblaðinu
miðvikudaginn 18. ágúst 2021
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Pöntun auglýsinga er
til og með 13. ágúst.
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
Í blaðinu verður fjallað um þá
fjölbreyttu valkosti sem í boði
eru fyrir þá sem stefna á að auka
við þekkingu sína og færni
á komandi haustmánuðum.
Endurmenntun • Iðnnám • Tómstundarnámskeið • Tölvunám • Háskólanám • Framhaldsskólanám
Fjarnám • Meistaranám • Tónlistarnám • Kvikmyndanám • Skólavörur • O.m.fl.
Það geta allir fundið eitthvað
girnilegt við sitt hæfi
Freistaðu
bragðlaukanna
... stærsti uppskriftarvefur landsins!