Morgunblaðið - 10.08.2021, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 10.08.2021, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 2021 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda. „Á ÉG EKKI AÐ BYRJA Á ÞVÍ AÐ LÁTA YKKUR HAFA LISTA YFIR ALLA ÞÁ SEM HAFA HANDFJATLAÐ MATSEÐLANA SÍÐASTA HÁLFA MÁNUÐINN?“ „ÉG VIL GJARNAN FÁ AÐ SKOÐA ÓBRJÓTANLEGU DISKANA YKKAR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að geta grátið. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann GÚMMÍSNJÓKARL BÁTURINN ÞINN ER HRIPLEKUR! JÓLIN ERU Á NÆSTA LEITI … HVAÐ MEÐ AÐ GEFA MÉR NÝJAN BÁT? HVAÐ MEÐ KORKTAPPA Í SKÓINN?! neytinu, f. 3.2 1976, maki hennar er Benedikt Eyþórsson, sagnfræðingur hjá Þjóðskjalasafni Íslands og þeirra börn eru Kolfinna Margrét, f. 2006, Bjarni Þór, f. 2008, og Sigrún Hildur, f. 2015. b) Árni Sverrir framhald- skólakennari, f. 23.5 1979, maki hans er Katrín Magnúsdóttir, verkefn- isstjóri Skóla á grænni grein og framhaldsskólakennari. Þeirra börn eru Ari Ófeigur, f. 2012, og Edda Margrét, f. 2017. c) Sigrún, sér- greinadýralæknir hjá MAST og bóndi á Efstu-Grund, f. 6.1. 1985, sambýlismaður hennar er Sigurjón Sigurðsson bóndi á Efstu-Grund. Börn Sigrúnar og Sigurmundar Jónssonar eru Freydís Erna, f. 2012, og Sölvi, f. 2014. d) Þorgrímur Guðni nemi, f. 12.1. 1991, maki hans er Tea Maria Guljas nemi. 4) Hrefna, hjúkr- unarfræðingur á Spáni, f. 20.8. 1959. Fyrrum eiginmaður er Friðrik Magnússon pípulagningameistari. Börn þeirra: a) Kristrún þrívídd- arhönnuður, f. 15.5. 1984, b) Rakel Karen Hrefnudóttir, starfsmaður á leikskóla og nemi, f. 7.10. 1988, maki hennar er Ómar Þór Ómarsson múr- ari og þeirra börn eru Viktor Logi, f. 2011, Eiríkur Dreki, f. 2013, og Kári Hrafn, f. 2017. c) Tómas Óskar, f. 13.8. 1991. Systkini Margrétar eru Guðrún, f. 3.8. 1906, d. 30.10. 1930; Björn Ingimar, bóndi á Björnskoti á Skeiðum, f. 11.11. 1907, d. 18.4. 1984; Guðmundur, verkamaður á Stokks- eyri, f. 21.11. 1908, d. 18.4. 1984; Þor- björg, húsfreyja á Selfossi, f. 13.2. 1911, d. 10.9. 2003; Finnbogi, iðn- aðarmaður í Rvk., f. 28.12. 1911, d. 27.2. 1991; Sigurmar Ágúst, f. 30.8. 1913, d. 21.6. 1914, og Eiríkur, bóndi í Norðurgarði á Skeiðum, f. 29.7. 1915, d. 17.8. 2003. Foreldrar Margrétar voru hjónin Valdimar Jónsson, f. 26.6. 1880, d. 26.7. 1972, og Sigríður Guðmunds- dóttir, f. 4.11. 1876, d. 7.10. 1970, bændur í Norðurgarði á Skeiðum. Margrét Valdimarsdóttir Sigríður Sturlaugsdóttir húsfreyja á Reykjum á Skeiðum Eiríkur Eiríksson bóndi, dannebrogsmaður og hreppstjóri á Reykjum á SkeiðumÞorbjörg Eiríksdóttir húsfreyja á Álfsstöðum, vinnukona á Laugum í Hrunasókn Guðmundur Guðmundsson bóndi á Efri-Brúnavöllum og Álfsstöðum Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Norðurgarði á Skeiðum Guðríður Vigfúsdóttir vinnukona á Bergsstöðum í Bræðratungu Guðmundur Þorsteinsson bóndi í Kervatnsstöðum í Biskupstungum Þorbjörg Ketilsdóttir húsfreyja í Saurbæ í Villingaholti Jón „eldri“ Jónsson bóndi í Saurbæ í Villingaholti Margrét Jónsdóttir húsfreyja á Syðri-Sýrlæk Jón Jónsson bóndi á Syðri-Sýrlæk Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Syðri-Sýrlæk Jón Gottsveinsson grashúsamaður í Neðri- Gróf og bóndi á Syðri- Sýrlæk Úr frændgarði Margrétar Valdimarsdóttur Valdimar Jónsson bóndi í Norðurgarði á Skeiðum Boðnarmiði barst þessi frétt: „Bæjarráð Árborgar: Hand- taka skal hænur tafarlaust og han- ar bannaðir með öllu.“ Af þessu til- efni kvað Helgi Ingólfsson og kallar „Við Ölfusá“: Ef spígspora við sprænuna og spilla friði granna, handtaka skal hænuna, en hanann alveg banna. Nú kom upp í hugann kvæðið „Hænsni“ eftir Örn Arnarson, sem ég lærði strákur af því að pabbi gaf mér Illgresi þegar ég fór í sveitina: Nokkur heiðurshænsni í hænsnakofanum búa. Og haninn er þeirra höfuð og hænurnar á hann trúa. Þau lifðu í eining andans og eftir hænsnavenjum, uns hænan ein tók upp á svo undarlegum kenjum. Að hoppa upp á hauginn er hennar fasti vani, reigja sig og rembast og reyna að vera hani. Haninn bölvar í hljóði en hvað er um það að tala þótt hænuréttindahæna heimti að fá að gala. „Böggur Hildar“, – Sigurlín Her- mannsdóttir segir „sögu frá síðustu öld“: Reyndu að gera nú gagn, Hildur, galaði frúin hún Magnhildur er Hildur sér gleymdi því hana æ dreymdi að vera rauðsokka’ eins og hún Ragn- hildur. Gunnar J. Straumland yrkir, – og birtir mynd af laxi á skurðarborð- inu: Fiskur er ljúffengi lífshvatinn, við laxinn var skaparinn mjög natinn. Nú hlakkar í mér því hamingjan er að horfast í augu við kvöldmatinn. Jón Thoroddsen yrkir um „For- ystufé á Svalbarði“: Hér vaka þeir sem fremstir fóru í fári kunnir leiðanna. Ættartengsl við ýta sóru örlagavættir heiðanna. Halldór Halldórsson segir, að sér finnist alltaf hálf óraunverulegt þegar gefur gott skyggni til suðurs, af Holtinu í Hafnarfirði! Héðan sjá má Djöfuls dans djúpt úr iðrum brjóta og eimyrjuna andskotans upp úr víti fljóta! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af hænsnfuglum og saga frá síðustu öld

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.