Morgunblaðið - 24.08.2021, Page 1

Morgunblaðið - 24.08.2021, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 4. Á G Ú S T 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 197. tölublað . 109. árgangur . SAGA HLAÐIN BOÐSKAP OG FRÆÐSLU FJÖLBREYTTAR TILGÁTUR RÓBERT ER STAÐRÁÐINN Í AÐ NÁ LANGT FJÖLDI FÓLKS HEIMSÆKIR STEINSKIPIÐ 6 ÓLYMPÍUMÓTIÐ 27bbbbn 29 Fyrsti skóladagurinn hjá nemendum annars til fjórða bekkjar Fossvogsskóla var nokkuð óvenjulegur en kennsla barnanna fór fram í húsnæði Hjálpræðishersins við Suður- landsbraut. Kennslan mun halda áfram þar uns færan- legar kennslustofur verða teknar í gagnið eftir þrjár vik- ur, ef allt gengur upp. Mikil röskun hefur verið á skólastarfi í Fossvogsskóla eftir að mygla fannst þar árið 2017. Skólastjóri og aðstoðarskólastjóri Fossvogsskóla sögðu í gær að vel hefði gengið á þessum fyrsta skóladegi barnanna. Húsnæði Hjálpræðishersins er gott og andinn góður, að sögn Árna Freys Thorlacius Sigurlaugssonar aðstoðarskólastjóra. Það sem honum þykir aftur á móti verst er þurfa að flytja nemendur í skólann með rútu. Það taki tíma, fjármagn og valdi mengun. »2, 14 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kennsla hófst í húsnæði Hjálpræðishersins Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Flugmönnum og flugliðum flug- félagsins Play hefur verið boðið að taka á sig allt að 50% lækkun á starfshlutfalli gegn því að fá fast- ráðningu í vetur en þessi hugmynd var rædd á fjarfundi sem stjórnend- ur Play héldu með starfsmönnum fé- lagsins á miðvikudag sl. Heimildir Morgunblaðsins herma að hljóðið í flugmönnum sé þungt eftir fundinn. Hugmyndin að breytingunum kom ekki frá stjórnendum, að sögn Birgis Jónssonar, forstjóra Play. „Ég var nú reyndar ekki á fundinum sjálfur en það er mikilvægt að árétta að þessi hugmynd kemur ekki frá stjórninni heldur vaknar hún hjá hópnum.“ Þá segir hann starfsmenn ekki hafa verið tilneydda til að lækka starfshlutfall sitt heldur sé með þessu boði verið að reyna að tryggja að fleiri starfsmenn fái fastráðningu í vetur og forða þannig fólki frá því að lenda í atvinnuleysi. „Í stað þess að þeir sem eru bara með ráðningarsamning út sumarið myndu detta út í haust og koma svo kannski aftur inn í vor var sú hug- mynd lögð fram að þeir starfsmenn sem gætu og vildu, tækju á sig lækk- un á starfshlutfalli.“ Play er þó langt frá því að draga saman segl sín enda hyggst flug- félagið sækja á Bandaríkjamarkað eftir áramót og mun þá þurfa allan tiltækan mannskap til að mæta auk- inni eftirspurn, að sögn Birgis. „Allt sem við erum að gera núna er bara upphitun fyrir næsta vor og er- um við að þjálfa áhöfnina fyrir Bandaríkin,“ segir hann. „Fólk vissi það alveg þegar það byrjaði hjá okk- ur í sumar að við þurfum að vera fleiri á næstu mánuðum en flugáætl- unin gerir ráð fyrir eins og hún er núna.“ 52 flugliðar eru í fullu starfi hjá Play í dag en þar af eru 16 fastráðnir. Flugmenn Play eru 26 samtals og eru þeir allir fastráðnir í fullu starfi. Sviptingar í ráðningum hjá flugfélaginu Play - Flugmönnum og flugliðum boðin lækkun á starfshlutfalli Morgunblaðið/Eggert Play Forstjórinn segir flugfélagið ekki vera að draga saman seglin. MLækkun á starfshlutfalli … »12 Baldur S. Blöndal Urður Egilsdóttir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra segir það hafa verið lengi í vinnslu að rýmka heimildir til sölu Co- vid-sjálfsprófa og notkunar hraðgrein- ingarprófa áður en reglugerð um efnið var breytt í gær. „Nú var kominn tími til að gefa út þessa reglugerð og engar ástæður til þess að bíða með það,“ sagði Svandís. Félag atvinnurekenda gagnrýndi í gær m.a. bannið sem þá gilti við sölu sjálfsprófa í erindi til heilbrigðisráðu- neytis. Aðspurð um erindið sagðist Svandís ekki vita hvort því hefði verið svarað en sagði regluverkið breytast fljótt: „Framkvæmdin var orðin með þeim hætti að það voru ekki alltaf rannsókn- arstofur að baki þessum prófastöðv- um. Þess vegna sáum við ekki ástæðu til þess að halda í það skilyrði. Reglu- verkið þróast eftir því sem þessu vind- ur fram. Það er auðvitað mikil- vægt að það sé í takti við það sem gerist og gengur en þó þannig að við gætum örygg- issjónarmiða.“ Sóttvarnalækn- ir viðraði efasemd- ir um ágæti sjálfs- prófa í gær en Svandís segir gæðakröfur reglugerð- arinnar miklar: „Við gerum kröfu um tiltölulega nákvæmt sjálfspróf og sett- um ákveðið viðmið þar. Fólki er síðan skylt að fara í PCR-próf ef það fær já- kvæða niðurstöðu.“ Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir ónæmisfræðideildar Landspítala, seg- ist hlynntur sjálfsprófum en telur að notkun þeirra verði að vera í samráði við sýkla- og veirufræðideild Landspít- ala. „Ég er fylgjandi því að þetta sé notað skynsamlega,“ segir Björn. »14 - Framkvæmdin breyst á prófstöðvum Lengi í vinnslu að heimila sjálfspróf Svandís Svavarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.