Morgunblaðið - 24.08.2021, Side 2

Morgunblaðið - 24.08.2021, Side 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 2021 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Óvissa um framtíð Fossvogsskóla hefur ekki hjálpað til við að halda í kennara hjá skólanum en einn kenn- ari hætti störfum þar óvænt fyrir helgi. Fjórir kennarar hafa alls hætt störfum við skólann síðan í vor. Nú auglýsir Fossvogsskóli eftir starfsfólki og segir Ingibjörg Ýr Pálmadóttir, skólastjóri Fossvogs- skóla, að mönnunin mætti vera betri. Ingibjörg hefur sjálf þurft að hlaupa til og sinna kennslu. Í gær mættu nemendur í öðrum til fjórða bekk Fossvogsskóla í húsnæði Hjálpræðishersins, þar sem skóla- starf þeirra verður þar til færanleg- ar kennslustofur verða teknar í gagnið. „Það er kominn ákveðinn vendi- punktur í þessu máli þegar Hjálp- ræðisherinn hleypur undir bagga með borginni,“ segir Eyþór Arnalds borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, um málið. Hann metur borgina bæði ófæra um að útvega húsnæði, enda hafi hún þurft að leita á náðir Hjálpræðis- hersins, og ófæra um að taka ákvörð- un. Eyþór vísar þá til könnunar sem foreldrum var boðið að taka þátt í á föstudag til þess að hafa áhrif á ákvörðun um hvar skólastarf yrði til húsa uns færanlegar kennslustofur væru tilbúnar. Hefur hún hlotið mikla gagnrýni. Ómerkilegt þykir Eyþóri að ábyrgðinni á ákvarðanatökunni hafi verið ýtt yfir á foreldra með könnun sem hann metur stórgallaða. „Per- sónuverndarsjónarmiðum var ábóta- vant, svo var hún opin og fresturinn skammur.“ Eyþór bendir á að það sé kald- hæðnislegt að Hjálpræðisherinn taki nú á móti nemendum í húsnæði sem stendur á lóð sem borgaryfirvöld neituðu að láta Hjálpræðisherinn hafa, nema gegn gjaldi, á sínum tíma. „Nú er gott að hafa Hjálpræð- isherinn.“ Lögum samkvæmt fá trúfélög út- hlutað lóðum fyrir starfsemi sína endurgjaldslaust. Hjálpræðisherinn er skilgreindur sem trúfélag, en þeg- ar hann sótti um að fá úthlutað lóð fékk hann það ekki. Var litið svo á að Hjálpræðisherinn gæti ekki fengið úthlutað nýrri lóð því hann hefði átt lóð fyrir í miðbæ Reykjavíkur. Skólabókardæmi um klúður Eyþór segir mál Fossvogsskóla vera skólabókardæmi um klúður. „Má segja að þetta sé klúður í tveimur meginþáttum. Fyrst margra ára vanræksla á viðhaldi og svo algert úrræðaleysi í þrjú ár um hvernig taka eigi á vandanum. Börn- in flakkandi á milli í óvissu á sama tíma og heimsfaraldur geisar. Þetta er stjórnlaust.“ Aðkoma borgarstjóra, Dags B. Eggertssonar, í málinu þykir Eyþóri ekki til marks um hugrekki. „Hann sést þegar allt er í lagi en þegar á bjátar hverfur hann bara. Borgar- stjóri hefur ekkert sést í þessu máli.“ Eyþór óttast að skólinn verði ekki kominn í lag fyrir næsta vetur. Fjórir kennarar hafa hætt síðan í vor - Mönnun í Fossvogsskóla mætti vera betri, að sögn skólastjórans - Óvissan hefur ekki hjálpað til - Vendipunktur í málinu þegar Hjálpræðisherinn hleypur undir bagga, segir Eyþór Arnalds Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fyrsti skóladagurinn Í gær mættu nemendur annars til fjórða bekkjar Fossvogsskóla í húsnæði Hjálpræðishersins. Tilkynningum til barnaverndar- nefnda fjölgaði verulega á fyrri helmingi ársins eða um 6,3% miðað við fyrstu sex mánuði síðasta árs en þá voru tilkynningarnar einnig mun fleiri en á sama tíma á árinu 2019. Alls bárust 6.830 tilkynningar til barnaverndarnefnda á fyrri helm- ingi yfirstandandi árs og voru þær hátt í 1.300 fleiri en á sama tímabili fyrir tveimur árum. Þetta kemur fram á nýju yfirliti Barnaverndarstofu. Þar er á það bent að tilkynningum vegna kyn- ferðislegs ofbeldis gegn börnum fjölgaði mikið á milli ára. „Á fyrstu 6 mánuðum ársins bárust 390 tilkynn- ingar vegna kynferðislegs ofbeldis, eða yfir 65% fleiri tilkynningar en á sama tímabili áranna á undan,“ segir í umfjöllun Barnaverndarstofu. „Sem fyrr, bárust flestar tilkynn- ingar frá lögreglu. Tilkynningum frá skólum og heilbrigðiskerfinu hefur farið fjölgandi. Á fyrsta hálfa ári 2021 bárust 1.118 tilkynningar frá skólakerfinu, samanborið við 836 og 858 tilkynningar á sama tímabili árið 2020 og 2019, eða yfir 30% fleiri til- kynningar. Þá bárust 21,5% fleiri til- kynningar frá heilbrigðisþjónustu á fyrstu sex mánuðum ársins 2021 sé miðað við sama tímabil ársins 2020.“ Í umfjöllun um heildarfjölda til- kynninga til barnaverndarnefnda kemur fram að flestar tilkynningar á fyrstu sex mánuðum ársins voru vegna vanrækslu, líkt og árin á und- an eða 42,9% allra tilkynninga. Til- kynningum vegna vanrækslu fjölg- aði um 5% á fyrstu sex mánuðum yfirstandandi árs. Næstflestar tilkynningar sem nefndunum bárust voru vegna áhættuhegðunar barna eða, 28,4% allra tilkynninga og fram kemur að á fyrri hluta ársins bárust 15,8% fleiri tilkynningar vegna áhættuhegðunar barna en á sama tímabili í fyrra. „27,9% tilkynninga sem bárust á fyrstu 6 mánuðum ársins 2021 voru vegna ofbeldis og um 1% allra til- kynninga varðaði heilsu eða líf ófædds barns,“ segir í umfjöllun Barnaverndarstofu. 489 vegna líkamlegs ofbeldis Barnaverndarnefndir fá einnig margar tilkynningar um líkamlegt ofbeldi gagnvart börnum. Þær voru alls 489 á fyrri helmingi ársins og 17% fleiri en á sama tímabili á sein- asta ári. Þá hefur tilkynningum vegna tilfinningalegrar vanrækslu barna einnig fjölgað á milli ára. Á fyrstu 6 mánuðum ársins 2021 bár- ust 32,3% fleiri tilkynningar vegna tilfinningalegrar vanrækslu en á sama tímabili ársins 2020, segir í um- fjöllun Barnaverndarstofu. omfr@mbl.is Tilkynningum um kyn- ferðislegt ofbeldi fjölgaði - Mikil fjölgun tilkynninga til barnaverndarnefnda á árinu Tilkynningar til barnaverndarnefnda Fjöldi tilkynninga fyrstu sex mánuði 2019 til 2020 8.000 6.000 4.000 2.000 0 2019 2020 2021 H e im il d : B a rn a v e rn d a rs to fa 5.554 6.423 6.830 Morgunblaðið/Kristinn Fjölgun Alls bárust barnaverndarnefndum 6.830 tilkynningar vegna van- rækslu eða ofbeldis gagnvart börnum á fyrstu sex mánuðum ársins. Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF)og Samtök atvinnulífsins (SA), fyrir hönd Isavia, funduðu lengi í húsakynnum Ríkissátta- semjara í gær. Fundurinn hófst klukkan eitt eftir hádegi og var honum ekki lokið þegar Morgun- blaðið fór í prentun á ellefta tím- anum í gærkvöldi. Ekki náðist í Arnar Hjálmsson, formann Félags íslenskra flug- umferðarstjóra í gærkvöldi, en áð- ur en fundurinn hófst sagði hann í samtali við mbl.is að viðræður hefðu þokast lítið áfram. Félagið átti í gær eina vinnustöðvun inni. Tillaga um sex sjálfstæðar og tímasettar vinnustöðvanir var sam- þykkt með miklum meirihluta þann 9. ágúst en ekki hefur komið til þess að boða þær og hafa því fimm af þeim brunnið inni. Þegar blaðamaður náði tali af Arnari fyrir fundinn treysti hann sér ekki til að fullyrða um hvort óþreyja væri að aukast og hvort líklegt væri að til vinnustöðvunar yrði boðað. Langur fundur hjá FÍF og SA - Fimm vinnustöðvanir hafa brunnið inni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Viðræður Frá fundi flugumferðar- stjóra og Samtaka atvinnulífsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.