Morgunblaðið - 24.08.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 24.08.2021, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 2021 Límtré • Vatnsfráhrindandi olíuborið límtré • Hægvaxið gæðalímtré • Sérsmíðum eftir máli Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekki hafa fundist óyggjandi skýringar á tilurð eða tilgangi bátlaga steins, svo- kallaðs steinskips, sem bóndinn í Fagradal í Mýrdal fann að nýju í Dala- hrauni í landi jarðarinnar fyrr í sumar. Áhugamaður um veru papa á Íslandi hefur fundið út að stefni skipsins snúi að eyjunni Jónu (Iona) á Suðureyjum við Skotland en úr klaustrinu þar hafi írskir eða skoskir munkar komið til Ís- lands. Jónas Erlendsson, bóndi í Fagradal, sem fann steinskipið hefur haft í nógu að snúast í sumar. Hann hefur farið sextán ferðir að steinskipinu, yfirleitt með gesti. Í stærsta hópnum voru um þrjátíu manns. Segir hann að fólki þyki það sérstök upplifun að skoða bátinn. Menn séu mikið að spá í það hvernig hægt hafi verið að höggva þetta út úr hörðum steini án nútíma verkfæra. Fram hafa komið ýmsar hugmyndir um tilurð steinsins og tilgang. Naglfar eða viti? Tilgáturnar hafa verið allt frá því að þetta hafi verið tæki til að brynna fé eða landamerkjasteinn til þess að vera viti fyrir skipin við ströndina. Í þeirri síðastnefndu hefði holan í steininum verið fyllt af lýsi og ljósið verið mið fyr- ir skipin, eins konar viti. Jónas telur að kenningin um brynningu fjár falli á því að þar skammt frá renni lækur. Þá er ekki vitað um nein landamerki á þess- um stað. Þórður Tómasson í Skógum telur fund steinskipsins merkasta fornleifa- fund hér á landi það sem af er 21. öld- inni. Hann telur að það tengist Nagl- fari í Ásatrú 10. aldar á Íslandi. Naglfar var skip sem gert var úr nögl- um dauðra manna. Það átti að fljóta í sævargangi í frásögninni um ragna- rök. Fleiri kenningar um tengingu við heiðinn sið hafa komið fram. Í gær komu erlendir gestir með þá tilgátu að steinskipið væri fórnaraltari. Sérfræðingar frá Minjastofnun Ís- lands rannsökuðu steininn og um- hverfi hans í júní. Uggi Ævarsson, minjavörður Suðurlands, segir að til standi að gera frekari rannsóknir á næstunni, vonandi með sérfræðingi í gjóskulögum og aldursgreiningum. Sjálfur efast hann um að hægt verði að tímasetja framkvæmdina, segir að að- stæður séu þannig. Það verði þó reynt. Uggi telur að skipið hljóti að vera manngert. Leitar til sérfræðinga á Jónu Björn Pétursson, áhugamaður um veru papa á Íslandi fyrir landnám nor- rænna manna, hefur athugað stefnu steinskipsins og afstöðu til ýmissa kennileita. Hann segir að staða þess sé engum tilviljunum háð. Bendir á að suðvestur sé hin heilaga átt munkanna og eigi rætur í fornegypskum trúar- brögðum. Reynisdrangar eru í suð- vesturátt frá steinskipinu og papa- krossinn frægi í Vestmannaeyjum fjær. Þá bendi framendi skipsins og stefnumarkandi steinar fyrir framan það í suðausturátt, beint á klaustur heilags Kólumkilla á eyjunni Jónu (Iona) á Suðureyjum Skotlands. Þaðan hafi írskir og skoskir munkar komið til landsins og þangað hafi þeir vænt- anlega snúið að dvöl sinni lokinni. Björn hefur sent fyrirspurn til Jónu um hugarheim munkanna og trú með tilliti til steinskipsins og er nú verið að finna sérfræðing til að svara honum. Vonast hann til að fá svör á næstunni, fyrst um staðfestingu á að þessi forn- leifafundur geti tengst munkunum, og síðan hvort sérfræðingurinn vilji þá ekki koma til að skoða skipið. Segist Björn munu koma á samskiptum Skot- anna við minjavörðinn á Suðurlandi sem fari með málið. Sjálfur telur Björn, út frá þessum athugunum, líklegast að steinninn sé frá tímum papa hér á landi, fyrir árið 700 og því vel fyrir tíma víkinganna. Hann vill þó hafa fyrirvara um frekari rannsóknir á aldri mannvirkisins og álit sérfræðinga í Skotlandi. Ekki eru allir sannfærðir um pap- ana. Þórður Tómasson hafnar teng- ingu steinsins við þá. Hann segir í bréfi til Jónasar að engar sögulegar eða sýnilegar heimildir séu um papabyggð fyrir landnám í Mýrdal, hvað þá um torsótt steinhögg þeirra á Fagradals- heiði. Uggi Ævarsson fornleifafræðingur telur ekki efni til að útiloka hugmyndir um að steinskipið tengist pöpum, ekki frekar en aðrar kenningar, og vill bíða með frekari ályktanir þar til nið- urstöður rannsókna liggja fyrir. Steinskip með stefnu á heilaga Jónu - Margar tillögur hafa verið settar fram um tilurð og tilgang steinskipsins sem fannst í Mýrdal - Áhugamaður telur afstöðu þess ekki tilviljun og að það sé minjar frá dvöl papa hér fyrir landnám Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Pílagrímaför Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að steinskipinu. Hér er á ferð fólk úr gönguhópi sem vildi sjá fyrirbærið með eigin augum. Helgiathöfn Víra Novytska frá Úkraínu og Sléttan Vasyliev frá Rússlandi helltu niður dýrindis koníaki við undirbúning athafnar við „altarið“. Evrópumótið í brids hófst í gær- morgun með keppni í opnum flokki og eldri flokki, en konurnar byrja á miðvikudag. Í opna flokkn- um er 31 þjóð, 20 í kvennaflokki og 24 þjóðir í heldri manna flokkn- um, þ.e. spilarar eldri en 62 ára. Allir spila við alla og er hver leik- ur tíu spil, en mótinu lýkur á laug- ardag. Sex efstu þjóðirnar vinna sér inn rétt til að spila á heimsmeistara- mótinu þar sem keppt verður um Bermúdaskálina, sem Íslendingar unnu í Yokohama 1991 eða fyrir 30 árum. Mótið átti upphaflega að fara fram í Madeira í Portúgal í júní í fyrra, en hefur verið frestað í tvígang vegna kórónuveirunnar. Mótið er spilað á netinu vegna faraldursins og spila íslensku liðin í höfuðstöðvum Bridgesambands- ins við Síðumúla. Alþjóðlegur dóm- ari frá Wales fylgist með að farið sé að settum reglum í hvívetna. Hægt er að fylgjast með öllum spilum á realbridge eða finna upp- lýsingar á www.bridge.is. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Brids Hrannar Erlingsson, fyrirliði Íslands í opnum flokki, og fyrir aftan hann er Simon Gottschalk, eftirlitsmaður Bridgesambands Evrópu. Evrópumótið á netinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.