Morgunblaðið - 24.08.2021, Side 8

Morgunblaðið - 24.08.2021, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 2021 Bætt hreinlæti í nýjum heimi Fáðu ráðgjöf fyrir þitt fyrirtæki www.hreint.is s: 589 5000 hreint@hreint.is Samfylkingarskáldið Hall- grímur Helgason birtir flenni- mynd á Facebook af Kristínu Edwald, hrl., formanni Landskjörstjórnar og finnst yf- irgengileg spilling að hún hafi líka verið í kjörstjórn í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins, hún njóti því einskis trausts kjósenda annarra flokka. - - - Árna Páli Árnasyni, fyrrver- andi formanni Samfylking- arinnar, ofbauð og lagði orð í belg: - - - Trúnaðarmenn í stjórnmála- flokkum hafa alltaf verið til- nefndir í kjörstjórnir og formaður ræðst af stjórnarmeirihluta hverju sinni. Mér finnst þetta ekki skynsamlegt innlegg. Þetta – eins og flest annað í lýðræðinu – ræðst af afli atkvæða.“ - - - Treystu 75% kjósenda Ástráði [Haraldssyni] þegar hann var tilnefndur í þetta? Eða mér þegar ég var kjörinn í yfirkjörstjórn Reykjavík norður 1999 fyrir Sam- fylkinguna? Þetta er bara ekki sæmandi að ganga að fólki með þessum hætti,“ segir Árni Páll. - - - Ég var kallaður til að hafa eft- irlit með fyrstu formann- skosningu Samfylkingarinnar árið 2000 akkúrat af því ég var í yfir- kjörstjórn. Var það þá spillt? Hvort einstaklingur er síðan að sinna öðrum verkum fyrir stjórn- völd er annað mál. Það gera lög- menn oft. Til dæmis ég, alveg frá 1999-2006, allan tímann sem ég sat í yfirkjörstjórn. Ítreka bara: Ef þú vilt breyta kerfinu, leggðu það þá til. En svona árásir á myndbirta einstaklinga eru ekki sæmandi. Viltu þá plís taka mig niður fyrst.“ Árni Páll Árnason Ósæmandi áróður STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Samgöngu- og sveitarstjórnarráðu- neytið telur að alvarlegir og kerfis- bundnir annmarkar hafi verið í stjórnsýslu Borgarbyggðar, nánar tiltekið á mannvirkja- og skipulags- sviði þess og sveitarstjórn beri skylda til að grípa til viðeigandi ráð- stafana. Í ljósi þess að sveitarfélagið hefur þegar gripið til ákveðinna ráð- stafana til úrbóta og vinnur að öðr- um sem eiga að koma í veg fyrir að slíkir annmarkar endurtaki sig telur ráðuneytið ekki tilefni til að gefa sveitarfélaginu bein fyrirmæli um að koma stjórnsýslu sinni í lögmætt horf. Ráðuneytið hóf athugun sína vegna kvartana og ábendinga um meinta ólögmæta stjórnsýslu Borg- arbyggðar á sviði skipulags- og mannvirkjamála. Sneru þær meðal annars að því að sveitarfélagið hafi ekki gætt að almennum reglum stjórnsýsluréttar við afgreiðslu mála og að meðferð mála hafi jafnframt ekki verið í samræmi við önnur lög. Fram kemur í leiðbeiningum ráðuneytisins til Borgarbyggðar að kvartanir bárust frá Fossatúni ehf., Þorsteini Mána Árnasyni og Hótel Borgarnesi auk þess sem ráðuneyt- inu barst ábending um dóm Héraðs- dóms Vesturlands í Húsafellsmálinu sem mikið hefur verið í fréttum að undanförnu. Ráðuneytið taldi í úr- skurði sínum að alvarlegir gallar væru á stjórnsýslu Borgarbyggðar á þessu sviði, eins og fyrr segir, en í ljósi úrbóta sveitarfélagsins væri ekki tilefni til að gefa fyrirmæli um lagfæringar á stjórnsýslunni. Unnið eftir úrbótaáætlun „Nei, ég geri það ekki. Fram kem- ur í álitinu að við erum meðvituð um stöðuna og höfum verið að grípa til aðgerða,“ segir Þórdís Sif Sigurðar- dóttir sveitarstjóri, þegar hún er spurð hvort leiðbeiningar ráðuneyt- isins teldust áfellisdómur yfir stjórn- sýslu Borgarbyggðar. Hún bendir á að á árunum 2019 og 2020 hafi verið gerð úttekt og grein- ing á skipulags- og byggingarmálum og úrbótaáætlun gerð í kjölfarið. Í henni sé lýst hvað sveitarfélagið hafi verið að gera og muni gera. Nefnir hún breytingu á skipuriti, betrum- bótum á verkferlum og gerð gæða- handbókar. „Öll þannig vinna tekur tíma. Við erum í miðju verkefni og ætlum okkur að ná þeim mark- miðum sem við höfum sett okkur,“ segir Þórdís. helgi@mbl.is Hafa verið að gera lagfæringar - Ágallar í stjórnsýslu Borgarbyggðar Talsvert hefur verið um innbrot að undanförnu í hús í Urriðaholti í Garðabæ. Staða mála hefur verið mikið rædd á félagsmiðlum meðal íbúa, sem segja þess dæmi að hurðir, til dæmis á jarðhæðum fjölbýlis- húsa, séu brotnar upp, farið þar inn í geymslur íbúða og lausir hlutir tekn- ir. Í sumum tilvikum sé tjónið veru- legt. Fólk sem býr í hverfinu ræðir einnig um að styrkja nágranna- vörslu og taka næturvaktir í hverf- inu, klætt gulum vestum. Leitað hefur verið til stjórnenda Garðabæjar vegna stöðu mála og í gær var gefið út að öryggismynda- vélar við innkomuna í Urriðaholt verði settar upp. Slíkt verði gert í samvinnu við lögregluna á höfuð- borgarsvæðinu, sem ein muni hafa aðgengi að myndefninu. Varðstjóri þar, sem Morgunblaðið ræddi við í gær, sagðist þó ekki telja að innbrot þar væru í meira lagi. Verri tímar að þessu leyti hefðu komið. Innbrot í til dæmis vinnuskúra á nýbyggingar- svæðum væru alþekkt. „Nú þegar hafa verið settar upp myndavélar við helstu leiðir inn og út úr bænum og höldum því nú áfram í Urriðaholti. Hröðum þeirri vinnu sem þegar er hafin. Ég vonast til þess að myndavélar í hverfinu verði komnar upp eftir tvær vikur eða svo,“ sagði Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, í samtali við Morgunblaðið. Um 2.400-2.500 manns búa í dag í hverfinu og flutt er inn í um 1.000 íbúðir. Hverfið hefur verið í hraðri uppbyggingu síðustu misseri og þegar öll hús hafa verið reist verði íbúðirnar um 1.700 og íbúar þá eitt- hvað á fimmta þúsundið. sbs@mbl.is Myndavélar við innbrotahverfið - Töluvert um innbrot í Urriðaholti - Ræða um að styrkja nágrannavörslu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.