Morgunblaðið - 24.08.2021, Page 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 2021
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Áformað er að framkvæmdir við
smíði nýrrar brúar yfir Ölfusá verði
boðnar út um næstu áramót, með
það fyrir augum að framkvæmdir
geti hafist á fyrri
hluta næsta árs.
Þetta segir Sig-
urður Ingi Jó-
hannsson sam-
gönguráðherra.
Upphaflega var
gert ráð fyrir að
hafist yrði handa
um brúarsmíði
árið 2025, en nú
hefur tekist að
þoka málinu
áfram svo hægt verður að hefjast
handa talsvert fyrr en áformað var.
Ný Ölfusárbrú verður um 330
metra löng; stagbrú með stöpli í
miðju sem hvíla mun á Efri-Laug-
ardælaeyju sem er á ánni miðri
nokkru fyrir ofan Selfoss. Vestan ár
mun nýr Suðurlandsvegur sem nú
er verið að leggja sunnan við Ing-
ólfsfjall tengjast brúnni. Austan ár
verður vegurinn í heimatúni á
kirkjustaðnum Laugardælum og
lagður yfir hluta golfvallarins þar.
Áætlaður kostnaður við fram-
kvæmdina er rúmir sex milljarðar
króna.
„Allir telja mikilvægt að brú komi
í beinu framhaldi af nýjum Suður-
landsvegi í Ölfusinu. Þess vegna
meðal annars er þessari fram-
kvæmd flýtt,“ segir Sigurður Ingi.
„Við vonumst til að framkvæmdir
við brúna hefjist næsta vor og hún
verði þá tilbúin einhvern tíma á
árinu 2025. Vissulega hefur þetta
verkefni lengi verið á stefnuskrá og
því oft frestað, en nú er þetta að
komast á beina braut.“
Framkvæmdir við brúna nýju
verða fjármagnaðar með svokallaðri
PPP-leið, samvinnuleið sem styðst
við lög um samvinnuverkefni og
samþykkt voru á Alþingi í júní 2020;
það er samstarfi ríkis, verktaka og
fjármálafyrirtækja sem lána fé í
verkefnið. Skv. samgönguáætlun er
gert ráð fyrir að kostnaður við verk-
ið verði 6,1 ma. króna og að brúsinn
verði borgaður með veggjöldum.
Áætlanir hafa þá miðast við að gjald
fyrir hvern bíl sem yfir brúna fer
gæti orðið um 400 krónur.
Fljótt greitt niður
„Í samtölum mínum við fólk á
Suðurlandi er ný Ölfusárbrú oft
rædd. Þar greini ég að fólki er í mun
að fá nýja brú sem fyrst og að fæst-
um finnst veggjöld vera tiltökumál,
megi það flýta framkvæmdum,“ seg-
ir Sigurður Ingi. „Viðmiðið var að
veggjaldið yrði um 400 krónur, en
nú heyrist mér á fólki að því þyki
500-700 króna gjald ekkert mál.
Með ögn hærra gjaldi verður fram-
kvæmdin greidd niður fyrr en ella –
og því eru margir möguleikar hvað
varðar fjármögnun í skoðun jafn-
hliða útboðsgerð.“ sbs@mbl.is
Tölvumynd/EFLA
Brýr Nýja brúin yfir Ölfusá verður nokkru fyrir ofan byggðina á Selfossi.
Útboð um áramót
- Nýrri Ölfusárbrú flýtt - Undirbúa
fjármögnun - Veggjöld ekki tiltökumál
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
Íbúar Grjótaþorpsins í Reykjavík
leita nú réttar síns varðandi garð-
hýsi sem situr í garði eins af elstu
húsum þorpsins, Hákots við Garða-
stræti. Sverrir Guðjónsson, einn af
íbúum, segir þá nú íhuga að kæra
málið til lögreglu en smáhýsið var
sett niður í leyfisleysi borgaryfir-
valda.
Ósamræmi byggingarfulltrúa
Í skriflegu svari til blaðamanns
frá Robert Pajdak, ráðgjafaverk-
fræðingi á umhverfis- og skipulags-
sviði, segir að samþykki skrifstofu
rekstrar og umhirðu borgarlandsins
hafi verið sent til embættis bygging-
arfulltrúa. Borgarland er samheiti
yfir allt það landsvæði sem tilheyrir
Reykjavíkurborg, götur, gang-
stéttir, stíga og opin svæði, en smá-
hýsið er nær borgarlandi en þrír
metrar og þurfti því samþykki. Sam-
þykkið lá hins vegar ekki fyrir er
hýsinu var komið fyrir í byrjun júlí.
„Við höfum ekki fengið að vita
neitt og ekki fengið nein svör um það
að þetta hafi verið samþykkt,“ segir
Sverrir og nefnir tölvupóst frá bygg-
ingarfulltrúa sem barst 5. ágúst þar
sem hann staðfestir að hýsið hafi
verið sett niður í óleyfi. „Ég held að
borgin sé að reyna að ýta þessu frá
sér,“ segir Sverrir. „Þeir taka greini-
lega ekki tillit til þess að Grjótaþorp-
ið nýtur hverfisverndar í skipulagi
en við fengum þær upplýsingar frá
Minjastofnun. Þetta hverfi hefur það
mikla sérstöðu að það nær út fyrir
landsteina. Hvernig stendur á því að
svona illa passandi kofabygging geti
komið hérna inn í Grjótaþorpið og
brotið algjörlega upp þessa götu-
mynd og umhverfi þorpsins án þess
að biðja um leyfi?“ spyr Sverrir og
nefnir að ekki sé tekið tillit til
húsanna í kring.
Hann nefnir að í Byggingasögu
Grjótaþorps, sem Nikulás Úlfar
Másson, núverandi byggingar-
fulltrúi, ritaði og kom út árið 2000,
leggur Nikulás áherslu á að varð-
veita Grjótaþorpið í núverandi
mynd. „Það ber því að sýna sérstaka
aðgát við allt inngrip inn í Grjóta-
þorpið, svo sem með nýbyggingum,
viðbygginum og breytingum á hús-
um,“ segir í ritinu. Segir Sverrir því
bera á ósamræmi í orðum Nikulásar
og framkomu borgarinnar nú.
Móðgandi fyrir löghlýðna
„Þó að samþykki liggi fyrir um
einhverjar mælingar þá er hýsið sett
upp í óleyfi og það hljóta að vera ein-
hver viðurlög við því,“ segir Sverrir,
en Robert hjá umhverfis- og skipu-
lagssviði svaraði ekki þeirri spurn-
ingu blaðamanns.
„Við erum nú að skoða það með
okkar lögfræðilega bakhjarli hvort
það sé eðlilegast að kæra málið til
lögreglu, en við þurfum að athuga
hver sé besta leiðin í þessu máli,“
segir Sverrir og bætir við að málið sé
hið sérkennilegasta. Hann nefnir að
íbúar sendu fyrir helgi mótmæli til
margra einstakra embættismanna
og nokkurra stjórnmálamanna innan
borgarkerfis Reykjavíkur. Þar er
óskað eftir fundi varðandi garðhýsið
við fyrsta tækifæri.
„Þetta er líka móðgandi fyrir alla
þá sem fylgja reglugerðum og eru að
passa upp á þorpið og húsin sem í því
standa. Fólkið sem vill hafa þetta allt
eftir bókinni,“ segir Sverrir.
Íbúar Grjótaþorps
íhuga kæru til lögreglu
- Samþykki hefur verið sent til embættis byggingarfulltrúa
Morgunblaðið/Unnur Karen
Óánægja Sverrir Guðjónsson og Oddur Björnsson, íbúar Grjótaþorpsins, vilja láta fjarlægja garðhýsið.
Ríkiskaup hafa fyrir hönd Fram-
kvæmdasýslu ríkisins (FSR) aug-
lýst útboð á jarðvinnu vegna bygg-
ingar 60 rýma hjúkrunarheimilis á
Húsavík. Heimilið verður staðsett
við Sjúkrahús HSN á Húsavík, við
götuna Auðbrekku. Frá heimilinu
verður gott útsýni út á Skjálfanda,
að því er segir í tilkynningu Fram-
kvæmdasýslunnar, FSR.
Reiknað er með að útboð vegna
smíði hússins fari fram snemma
árs 2022 og að framkvæmdir við
bygginguna hefjist á vordögum.
Samkvæmt áætlunum FSR á
heimilið að vera tilbúið árið 2024.
Hönnunarsamkeppni var haldin
vorið 2020 og alls bárust 23 til-
lögur. Fyrstu verðlaun í sam-
keppninni fékk tillaga Arkís og
Mannvits.
Jarðvinnan sem nú fer í útboð
verður býsna umfangsmikil. Grafa
þarf upp um 23 þúsund rúmmetra
af jarðvegi og losa um 200 rúm-
metra af bergi.
Tölvumynd/Framkvæmdasýslan
Húsavík Hjúkrunarheimilið nýja verður aftan við sjúkrahúsið. Gott útsýni
verður þaðan út á Skjálfandaflóann. 60 rými verða á heimilinu.
Jarðvinnan boðin út
- Bygging 60 rýma hjúkrunarheimilis
á Húsavík hefst á vordögum 2022