Morgunblaðið - 24.08.2021, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 2021
GEFÐU STARFSFÓLKINU
DAGAMUN
Suðurlandsbraut 30 | 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Talíbanar hótuðu í gær alvarlegum
„afleiðingum“ ef Bandaríkjamenn,
Bretar og önnur erlend ríki hafa enn
herlið í Afganistan eftir 31. ágúst
næstkomandi, en þann dag rennur út
sá tímafrestur sem Joe Biden Banda-
ríkjaforseti hefur sett á brottflutning
allra hermanna frá landinu.
Biden er nú undir miklum þrýst-
ingi frá Bretum og Evrópusamband-
inu um að framlengja dvöl herliðsins í
landinu umfram þann tíma til þess að
hægt verði að koma undan þeim
mikla fjölda, sem nú bíður þess á flug-
vellinum í höfuðborginni Kabúl að
verða fluttur undan harðstjórn og
hefnd talíbana.
Ringulreið ríkir á flugvellinum, og
lést einn afganskur hermenn og þrír
erlendir ríkisborgarar eftir að víga-
menn gerðu áhlaup á hann, en þýskar
og bandarískar hersveitir aðstoðuðu
við að kveða árásina niður. Banda-
ríska varnarmálaráðuneytið sagði í
gær að enn væri ekki vitað hverjir
stæðu að baki árásinni.
Hershöfðinginn Hank Taylor sagði
á blaðamannafundi í Pentagon í gær
að nú hefði tekist að flytja 16.000
manns á brott á undanförnum sólar-
hring, og að Bandaríkin hefðu bjarg-
að um 37.000 manns frá Afganistan í
heildina síðan Kabúl féll um miðjan
mánuðinn.
Munu neita öllum beiðnum
Biden lýsti því yfir í fyrrinótt að
viðræður stæðu nú yfir um að fram-
lengja þann tímafrest sem bandarískt
herlið hefði til að yfirgefa Afganistan.
Boris Johnson, forsætisráðherra
Breta, mun að öllum líkindum biðla til
Bidens að veita brottflutningnum
meiri tíma, en leiðtogar sjö helstu
iðnríkja heims funda um stöðuna í
dag.
Jean-Yves Le Drian, utanríkisráð-
herra Frakklands, sagði í gær að
meiri tíma væri þörf til þess að hægt
yrði að ljúka brottflutningi allra sem
nú sækja að flýja land, og Heiko Ma-
as, utanríkisráðherra Þýskalands,
sagði að Þjóðverjar ættu nú í viðræð-
um við bæði Bandaríkjamenn og ta-
líbana um að framlengja tímafrestinn
fram yfir 31. ágúst.
Suhail Shaheen, talsmaður talí-
bana, sagði hins vegar í gær að svarið
við öllum slíkum umleitunum yrði
neitandi, þar sem það myndi vera
ígildi þess að framlengja „hersetu er-
lendra ríkja“ yfir Afganistan.
Þá sögðu tveir heimildarmenn
AFP-fréttastofunnar úr röðum talíb-
ana, að þeir myndu ekki tilkynna um
ríkisstjórn sína eða hverjir eigi sæti í
henni fyrr en síðasti bandaríski her-
maðurinn er farinn úr landi. Talí-
banar hétu því á laugardaginn að þeir
myndu sækjast eftir að mynda bráða-
birgðastjórn með aðild sem flestra af
þeim stríðandi fylkingum sem tekist
hafa á í Afganistan.
Abdul Ghani Baradar, annar af
stofnendum talíbana-hreyfingarinn-
ar kom til Kabúl á laugardaginn og
hóf þar viðræður um myndun bráða-
birgðastjórnar við ýmsa trúarleið-
toga, embættismenn og stríðsherra.
Á meðal þeirra sem tóku þátt í við-
ræðunum fyrir hönd talíbana var
Khalil Haqqani, en hann er á lista
bandarískra stjórnvalda yfir þá tíu
hryðjuverkamenn sem þau vilja helst
koma höndum yfir.
Hafa umkringt Pansjír-dal
Talíbanar hafa átt í skærum við
andspyrnuliða og fyrrverandi her-
menn stjórnarhersins utan höfuð-
borgarinnar Kabúl, einkum í norður-
héruðum landsins. Þeir lýstu því yfir í
gær að vígamenn talíbana hefðu um-
kringt óvini sína í Pansjír-dalnum, en
þar er rótgróin andstaða við yfirráð
talíbana.
Talsmenn talíbana sögðu hins veg-
ar að viðræður stæðu nú yfir um upp-
gjöf, og að þeir vildu leysa úr stöð-
unni á friðsaman hátt. Einn leiðtogi
andspyrnuhreyfingarinnar er Ahmad
Massoud, sonur stríðsherrans Ah-
mads Shah Massoud, sem á sínum
tíma leiddi mótspyrnu Norðurbanda-
lagsins svonefnda gegn yfirráðum ta-
líbana. Massoud eldri, sem kallaður
var „ljónið frá Pansjír“, var myrtur
tveimur dögum fyrir hryðjuverka-
árásirnar 11. september 2001.
Haqqani lýsti því yfir um helgina,
að á meðal þeirra sem hann hefði
rætt við væri Massoud yngri, og að
hann hefði lýst yfir „hollustu“ við
hreyfingu talíbana. Massoud, sem í
síðustu viku óskaði eftir aðstoð
Bandaríkjastjórnar, hefur ekki svar-
að þeirri yfirlýsingu, en Ali Maisam
Nazary, talsmaður andspyrnusveita í
Pansjírdalnum, sagði við AFP-frétta-
stofuna um helgina að þær væru nú
að búa sig undir löng átök, en á sama
tíma útilokuðu þær ekki þátttöku í
bráðabirgðastjórn talíbana.
„Skilyrðin fyrir friðarsamkomulagi
við talíbana eru minni miðstjórn og
kerfi sem tryggir samfélagslegt rétt-
læti, jafnrétti, mannréttindi og frelsi
fyrir alla,“ sagði Nazary.
AFP
Kabúl Vígamenn talíbana keyra nú um götur Kabúl til að viðhalda yfirráðum sínum yfir borginni og gæta friðar.
Veita engan frest á brottför
- Talíbanar hóta „afleiðingum“ verði útlenskt herlið ekki farið frá Afganistan fyrir 31. ágúst - Biden
undir þrýstingi bandamanna um að framlengja dvöl herliðsins - Talíbanar reyna að mynda stjórn
Bandaríska matvæla- og lyfjastofn-
unin, FDA, veitti í gær bóluefni Pfi-
zer gegn kórónuveirunni fullt og
óskilyrt markaðsleyfi. Janet Wood-
cock, forstjóri stofnunarinnar, sagði
ákvörðunina marka vendipunkt í
baráttunni gegn heimsfaraldrinum,
en hingað til hafa þau bóluefni sem
þróuð hafa verið gegn kórónuveir-
unni verið á skilyrtu leyfi vegna
neyðar.
„Samþykki FDA ætti að veita auk-
ið traust fyrir því að þetta bóluefni sé
öruggt og skilvirkt,“ sagði Joe Biden
Bandaríkjaforseti á Twitter-síðu
sinni þegar samþykkið lá fyrir, en
bólusetningarherferð stjórnvalda
hefur hökt nokkuð, þar sem nokkur
hópur Bandaríkjamanna hefur látið í
ljós efasemdir um öryggi bóluefn-
anna.
Tilkynningin varð til þess að
Bandaríkjaher lýsti því yfir að hann
myndi skylda hermenn sína til þess
að fá bóluefnið. Nokkur umræða hef-
ur verið um hvort herinn ætti að taka
upp slíka skyldu, en bandarískir her-
menn þurfa nú þegar að fá bólusetn-
ingu gegn 17 öðrum sjúkdómum.
Þá ákváðu borgaryfirvöld í New
York að þau myndu skylda alla sem
starfa við menntakerfi borgarinnar
til þess að fá að minnsta kosti einn
skammt af bóluefninu fyrir 27. sept-
ember næstkomandi. Fréttaskýr-
endur vestanhafs gerðu ráð fyrir því
að fleiri fyrirtæki og stofnanir
myndu skikka starfsmenn sína í
bólusetningu, nú þegar bóluefnið
hefur fengið samþykki FDA.
Amesh Adalja, smitsjúkdóma-
læknir hjá Johns Hopkins-háskólan-
um, sagði við AFP-fréttastofuna að
hann vonaðist til að fleiri myndu nú
láta bólusetja sig, þar sem ekki væri
lengur hægt að halda því fram að um
„tilraunaefni“ væri að ræða.
Pfizer komið
með fullt leyfi
- Bólusetning skylda í Bandaríkjaher
AFP
Bólusetning Bóluefni Pfizer er nú
komið með fullt leyfi FDA.
Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, hét því í gær að Bandaríkja-
menn myndu áfram standa á bak við skuldbindingar sínar í Asíu, en
hún var í opinberri heimsókn í Singapúr. „Ég er hér, því Bandaríkin eru
forysturíki í heiminum, og við tökum það hlutverk alvarlega,“ sagði
Harris, en orðum hennar var ætlað að slá á ótta við að brottflutningur
Bandaríkjahers frá Afganistan markaði breytta stefnu í heimshlut-
anum.
Harris svaraði hins vegar ekki beint spurningum um hvort trúverð-
ugleiki Bandaríkjanna hefði orðið fyrir skaða vegna tíðinda síðustu
vikna frá Afganistan, en sagði að Bandaríkjastjórn einbeitti sér nú að
því að flytja á brott bandaríska ríkisborgara, Afgani sem hefðu unnið
fyrir erlend ríki og aðra sem væru í viðkvæmri stöðu.
Harris hyggst heimsækja fleiri ríki Suðaustur-Asíu á ferðalagi sínu,
en í dag mun hún fara til Víetnam.
Taka hlutverk sitt alvarlega
KAMALA HARRIS