Morgunblaðið - 24.08.2021, Side 14

Morgunblaðið - 24.08.2021, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Langt er síðan fyrst var kvartað undan loftgæðum í Fossvogsskóla og börn tóku að veikj- ast þar án sérstakra viðbragða borgarinnar. Vorið 2019 var skólanum þó lokað vegna myglu og tekið til við viðgerðir, sem samt voru ekki árangursríkari en svo að áfram kenndu börn sér meins. Við því var fyrst skellt skollaeyrum, en í vor var loks brugðið á það ráð að loka Foss- vogsskóla og aka um 350 skóla- börnum og 50 manna starfsliði meira en 10 km leið í Korpu- skóla, sem stóð tómur, en þar fundust líka rakaskemmdir og mygla þegar til átti að taka. Nú, rétt rúmri viku fyrir ætl- aða skólasetningu, stóð til að kennsla færi fram í Víkings- heimilinu, en þegar foreldrar gerðu athugasemdir við aðstöð- una þar, var gerð fyrirvaralaus netkönnun um hvar börnunum væri best niður komið, af því að borgaryfirvöld vildu varpa ábyrgðinni á foreldrana. Um kostina vissu fæstir þeirra nokk- uð, en til að bæta gráu ofan á svart var þetta opin netkönnun, sem hver sem er gat kosið um. Þetta væri hlægilegt ef það væri ekki sárgrætilegt. Það hefur verið með ólík- indum að horfa upp á vandræða- gang borgaryfirvalda vegna Fossvogsskóla undanfarin ár. Enn þá, enn og aftur er skóla- starfið í uppnámi. Orðið vand- ræði nær þó ekki fyllilega utan um framgang borgaryfirvalda, sem hefur ekki aðeins einkennst af tómlæti og vanhæfni til þess að sinna skyldum sínum, heldur einnig undanbrögðum og ósann- indum eftir því sem málið vindur upp á sig. Öll höfum við skyldum að gegna gagnvart börnum; for- eldrar gagnvart eigin börnum, en í siðuðu samfélagi höfum við líka sameiginlegar skyldur gagnvart öllum börnum hvað varðar öryggi og aðbúnað, heil- brigði og uppfræðslu. Þær sam- eiginlegu skyldur höfum við að mestu falið stjórnvöldum, sem við höfum valið í lýðræðislegum kosningum. Þeim völdum fylgir mikil ábyrg. Á vef Reykjavíkurborgar seg- ir að skóla- og frístundaráð borgarinnar skuli gæta þess að skólar „búi við fullnægjandi hús- næði og að annar aðbúnaður sé fyrir hendi.“ Börn, kennarar og annað starfslið í Fossvogsskóla hafa ekki búið við fullnægjandi húsnæði árum saman, en borg- arstjóri og borgarkerfið hafa lokað augum fyrir vandanum, ekki viljað ræða hann og dregið lappirnar við úrlausn hans svo með ólíkindum er. Fyrir nokkrum vikum hældist Samfylkingin um af verkefninu Betri borg fyrir börn. Skeyting- arleysi borgarstjóra, borgar- stjórnar og borgar- kerfisins gagnvart börnum í Fossvogs- skóla og heilbrigði þeirra og menntun bendir ekki til þess að sú umhyggja risti djúpt. Það gengur ekki fyrir meiri- hlutann að láta eins og þetta sé eitthvert pólitískt upphlaup á vegum minnihlutans; þetta er ekki flokkspólitískt mál umfram það sem Samfylkingin og stuðn- ingsflokkar hennar hafa gert það að. Raunar hafa fulltrúar minnihlutans verið ákaflega til- litssamir að því leytinu og bar- áttan fyrir lausn málsins hefur að mestu verið rekin af for- eldrum barna í Fossvogsskóla. Þar á meðal er Agnar Freyr Helgason, dósent við Háskóla Íslands, sem situr í skólaráði fyrir hönd foreldra, sem er fyrr- verandi formaður ungliðahreyf- ingar Samfylkingarinnar í Reykjavík. Það er ömurlegt að fylgjast með því hvernig borgaryfirvöld í Reykjavík hafa ekki aðeins brugðist skyldum sínum við börn í Fossvogsskóla, reynt að eyða málinu og drepa því á dreif, gefið rangar og misvísandi upp- lýsingar og bitið höfuðið af skömminni með því að reyna að varpa ábyrgðinni af sér, rétt eins og þeim komi málið lítt sem ekki við. Ábyrgðin er samt augljós. Hana bera öðrum fremur Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Skúli Helgason, formaður Skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, sem báðir sitja í borgarstjórn fyrir Sam- fylkinguna. Þeir bera þó ekki skömmina einir, enda nóg af henni fyrir alla. Ábyrgðina ber gervallur borgarstjórnarmeiri- hlutinn, Píratar, Viðreisn og Vinstrigræn líka. Og skömmina líka. Hér er ekkert smámál á ferð- inni. Þarna er einn af grunn- skólum borgarinnar kominn á vergang, beinlínis vegna van- rækslu borgaryfirvalda á grunn- skyldum sínum. Málið er ekki nýframkomið, heldur var mygl- an mallandi í Fossvogsskóla ár- um saman, börn að veikjast og verða af námi vegna óskiljanlegs áhugaleysis, doða og sleifarlags hjá stjórnendum á vegum borg- arinnar, þar sem bæði stjórn- málamenn og embættismenn borgarinnar virtust vona að mál- ið leystist af sjálfu sér og köll- uðu umkvartanir foreldra móð- ursýki. Og þrátt fyrir allt sem á undan er gengið virðast öll við- brögð borgarinnar enn miðast við að koma sér undan ábyrgð. Borgarbúum gefst kærkomið tækifæri til þess að létta þeirri ábyrgð af borgarstjórnarmeiri- hlutanum næsta vor. Hann stendur ekki undir henni, en verra er að þangað til þurfa 350 börn áfram að þola mygluna í ráðhúsinu. Borgarstjórnar- meirihlutinn hefur brugðist börnunum} Myglan í ráðhúsinu S und er frábær hreyfing, nærandi fyrir bæði líkama og sál. Bað- og sund- menning landans er raunar svo sterk, að foreldrar kenna börnum sínum að umgangast vatn frá unga aldri, ýmist í ungbarnasundi eða með reglulegu busli og leik í laugum landsins. Skólakerfið gegn- ir einnig lykilhlutverki, því sundkennsla er hluti af íþróttakennslu öll grunnskólaárin. Undanfarið hafa hins vegar ýmsir dregið í efa þörfina á því, enda ættu unglingar frekar að læra aðra hluti á efsta stigi grunnskóla. Á dögunum lagði hópur ungmenna, sem skipa ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóð- anna, breytingatillögur fyrir ríkisstjórnina. Hóp- urinn lagði til, að sundkennsla yrði valfrjáls á efsta stigi í grunnskóla en aðrir þættir settir í námskrána í hennar stað. Ungmennin vilja kennslu í fjármálalæsi í aðalnámskrá grunnskóla, svo nem- endur skilji allt frá launaseðli til stýrivaxta. Þau vilja vand- aða umhverfisfræðslu fyrr á námsferlinum, í stað hræðslu- fræðslu eins og þau segjast fá núna. Þau vilja aukna kennslu um réttindi barna, hinsegin fræðslu og lífsleikni í aðal- námskrá grunnskólanna. Þá leggja þau til breytt einkunna- kerfi, þar sem talnaeinkunn komi í stað hæfniviðmiða sem fáir nemendur og foreldrar skilji til fulls. Hugmyndir ungmennaráðs eru góðar og ríma vel við markmið menntastefnu, sem ég lagði fyrir og Alþingi sam- þykkti síðastliðinn vetur. Menntastefnan tekur mið af þörf- um samfélagsins á hverjum tíma, þar sem markmiðið er að tryggja öllum börnum góða menntun og jafna tækifæri þeirra til lífsgæða í framtíðinni. Skyldusund á unglingsárum er ekki endilega lykillinn að því, þótt mikilvægi góðrar hreyf- ingar verði seint ofmetið. Menntastefna er einskis virði án aðgerða, sem varða leiðina að markmiðinu. Þess vegna er umfangsmikil og metnaðarfull aðgerðaáætlun í smíðum, í víðtæku samráði við lykilaðila í skóla- kerfinu og Efnahags- og framfarastofnunina (OECD). Fyrsta áfanga af þremur verður hleypt af stokkunum í september, þegar nýhafið skólastarf vetrarins verður komið vel af stað og ég hlakka til að taka utan af þeim harða pakka. Aðgerðirnar eiga að efla menntakerfið okkar, tryggja betur en áður skóla án aðgreiningar og stuðla að bættu starfsumhverfi kennara. Efnisbreytingar á aðalnámskrá grunnskól- anna koma sannarlega til greina, við innleiðingu mennta- stefnunnar. Þær eru vandmeðfarnar og varfærni innbyggð í grunnskólakerfið, enda leiðir aukið vægi einnar náms- greinar til minna vægis annarrar. Unglingarnir okkar þurfa svo sannarlega að synda en all- ar breytingar eru mögulegar með góðum vilja og minna vægi sundkennslunnar gæti skapað svigrúm fyrir aðrar að- kallandi greinar. Skólasamfélagið þyrfti svo í sameiningu að ákveða, hvernig sá tími yrði best nýttur. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Þurfa unglingar að synda? Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is U ndanfarna daga hefur borið mikið á umræðu um Covid-sjálfspróf en í gær gerði heilbrigðis- ráðherra breytingu á reglugerð sem kvað á um að einungis heil- brigðisstarfsmanni eða sérþjálf- uðum starfsmanni væri heimilt að framkvæma greiningu á vottuðu hraðprófi. Voru sjálfspróf því áður bönnuð en eru nú leyfileg. Björn Rúnar Lúðvíksson, yfir- læknir ónæmisfræðideildar Land- spítalans og prófessor í ónæm- isfræði, segist vera fylgjandi slíkum sjálfs- prófum. Hann telur þó að notk- un þeirra verði að vera í sam- ráði við sýkla- og veirufræði- deild Landspít- ala. „Það er al- gert lykilatriði að sérfræðingar þeirrar deildar hafi eitthvað um þetta mál að segja þegar ákveðið er hvaða próf eigi að taka upp og hvers konar eftirlit eigi að vera á notkuninni. Það er mikilvægt að þessi próf séu að gera það sem þau segjast eiga að gera,“ segir Björn og nefnir að alltaf séu einhverjir sem séu ekki greindir með sjúkdóminn en eru sannarlega með hann. „Það er vandinn en ég er fylgjandi því að þetta sé notað skynsamlega til að auka öryggi borgaranna. Ég held að það sé ekki hægt að nota þessi próf til þess að greina endilega sjúkdóminn líkt og PCR-prófin.“ Ekki rannsökuð á Delta Björn segir mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því hvaða greiningapróf er verið að tala um. „Í grunninn má segja að þessi próf sem eru notuð til þess að greina hvort viðkomandi geti verið sýktur af Covid-veirunni séu þrenns kon- ar. Þau próf sem við höfum helst notast við hérlendis eru kjarnsýru- próf (PCR-próf) og mótefnavaka- próf sem eru hraðprófin. Með þessum prófum er kannað í ein- hverjum líkamsvessa sem er oftast nær í nefholi eða í yfirborði slím- húðarinnar hvort veiran sé til stað- ar.“ Þá nefnir Björn að mikilvægt sé að gera greinamun á næmi og sértæki greiningaprófanna til þess að gera grein fyrir notagildi þeirra. „Þegar við tölum um næmi prófs er það geta prófs til þess að finna þá sem hafa sannarlega sjúk- dóm. Þegar við tölum um sértæki þá er það næmi prófs til þess að finna þá sem eru sannarlega nei- kvæðir. Það er því mikill munur á þessu tvennu en oftast er eingöngu talað um næmi prófanna.“ Björn segir að kjarnsýru- prófin séu næmust en þau greina erfðaþætti veirunnar. „Þau hafa næmi sem er í flestum tilvikum vel yfir 97% en það þýðir þó, að það eru 3% af þeim sem eru jákvæðir sem sannarlega hafa sjúkdóminn en eru neikvæðir í prófinu.“ Þá segir Björn að einnig skipti máli hvar sýnið sé tekið. „Þau sýni sem eru tekin aftast í nefkokinu, sem oftast þarf nokkuð þjálfaðar hend- ur til að gera, eru best,“ segir Björn og nefnir að sýni sem séu tekin í munnholi séu verst. „Það sem gerir þetta nú flókn- ara er það að við erum að eiga við nýtt afbrigði veirunnar sem þessi próf voru upphaflega ekki hönnuð fyrir en þetta afbrigði hefur breytt erfðaefni sínu að einhverju leyti. Við eigum eftir að fá uppreiknað næmi þessara prófa á þetta nýj- asta afbrigði veirunnar. Þó að allt bendi til þess að næmi PCR- prófanna sé mjög gott.“ Hin gerð greiningarprófa sem notuð eru hérlendis eru síðan hraðprófin en þau greina ekki erfðaefni veirunnar. Björn nefnir þó að slík próf séu að ryðja sér til rúms. „Hraðprófin sem við þekkj- um eru að greina afurðir svokall- aðra MRN-sameinda sem eru pró- tein. Þessi próf hafa alls ekki eins gott næmi og sértæku PCR- prófin.“ Björn nefnir að Evrópusam- bandið setji góð skilmerki um hvað hraðprófin þurfi að uppfylla. „Vandinn þarna er hins vegar að það eru um 130 próf samþykkt og við höfum ekki nákvæmar upplýs- ingar um flest þeirra. Þá hefur ekki að minni vitund verið sann- reynt að prófin greini Delta- afbrigði veirunnar,“ segir Björn og nefnir að flest þessara prófa komu á markaðinn löngu áður en af- brigðið var komið á fulla ferð. „Það má því vel vera, þótt ég geti ekki fullyrt það, að sum þessara prófa uppfylli ekki þau skilmerki um að þau hafi yfir 90% næmi við afbrigðinu.“ Björn segist vera fylgjandi því almennt að fólk taki þátt í eigin heilsu, „þetta er ein leiðin í því, en það er mikilvægt að það sé haft gott eftirlit með þessu og menn séu að gera þetta á réttum for- sendum. Við megum ekki vera að skapa falskt öryggi.“ „Megum ekki vera að skapa falskt öryggi“ AFP Hraðpróf Heilbrigðisráðherra hefur nú heimilað að einstaklingum sé heimilt að nota sjálfspróf til greiningar Covid-19 á sjálfum sér. Björn Rúnar Lúðvíksson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.