Morgunblaðið - 24.08.2021, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 2021
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnustofa
kl. 9-12. Handavinna kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Ljós-
myndanámskeið kl. 12.45-14.45. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Velkomin.
Sími 411-2600.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11.
Prjónað til góðs kl. 8.30-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Bónusrútan
kl. 13.10. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni. Hægt er að panta
hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt
frá kl. 13.45 -15.15. Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá
Jónshúsi kl. 10.
Hraunsel Brids kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Bingó kl. 13.15.
Korpúlfar Botsía kl. 10 í Borgum. Helgistund kl. 10.30. Spjallhópur í
Borgum kl. 13 og Hannes Guðrúnarson mætir með gítarinn í Borgir
kl. 13.30 og stýrir samsöng með þekktum lögum sem allir kannast
við. Grímuskylda og virðum sóttvarnarreglur.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag byrjum við daginn á hressandi
hópþjálfun í setustofu kl. 10.30, kl. 14.15 verður nytsamleg tölvu- og
snjallsíma aðstoð. Við endum svo daginn á gönguferð í verslun kl. 15.
Verið öll velkomin til okkar á Vitatorg. Hlökkum til að sjá ykkur!
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í Seltjarnarnesslaug kl. 7.10. Kaffispjall í
króknum kl. 10.30. Pútt á flötinni við Skólabraut kl. 11. Kynningarfund-
ur vegna vetrardagskrárinnar verður fimmtudaginn 8. september, en
þá verður opið hús í salnum á Skólabraut milli kl. 13 og 16. Endilega
kíkið í heimsókn í aðstöðu félagsstarfsins og fáið nánari upplýsingar
eða hringið í Kristínu,s. 8939800.
kristin.hannesdottir@seltjarnarnes.is
Nú !##u"
þú það sem
þú $ei%a" að
á FINNA.is
IÐNAÐARMENN VERSLANIR
VEITINGAR VERKSTÆÐI
BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA
Færir þér
fréttirnar
mbl.is
Bækur
Bækur til sölu
Chess in Iceland Willard fiske
1905. Þjóðsögur Sigfúsaar
Sigfússonar 1-16, ib., Megas
textabók, Ritsafn Kristmanns
Guðmundssonar, The adventures
of Huckleberry Finn, 1884 ,1.
útg., Íslensk bygging Guðjón
Samúlesson, Íslenskt fornbréfa-
safn 1-14, ib., ób., Ný jarðabók
fyrir Ísland 1861, Íslenskir
Annálar 1847, Marta og María,
Tove Kjarval 1932, áritað,1886,
Skarðsbók, Ljóðabók Jóns
Þorlákssonar, Bægisá, Svarfdæl-
ingar 1-2., Árbækur Espolíns 1-
12, 1. útg., Aldafar og örnefni í
Önundarfirði, Gestur Vestfirð-
ingur 1-5, Stjórnartíðindi 1885-
2000, 130 bindi, Manntalið 1703,
Kollsvíkurætt, Fjallamenn,
Hæstaréttardómar 1920-1960,
40 bindi, Þjóðsögur Jóns Árna-
sonar, Kvennablaðið 1.-4. árg,
Bríet 1895, Ódáðahraun 1-3,
Fritzner orðabók 1-4, Flateyjar-
bók 1-4, Íslenskir Sjávarhættir 1-
5, Tímarit Verkfræðinga Íslands
1.-20. árg., Tímarit hins íslenska
Bókmenntafélags 1-25, Árs-
skýrsla sambands íslenskra Raf-
veitna 1942-1963. Hín 1.- 44.
árg., Töllatunguætt 1-4, Síðasti
musterisriddarinn, Parceval,
Ferðabók Þ. TH., 1- 4, önnur útg.,
Ættir Austfirðinga 1- 9, Heims-
meistaraeinvígið í skák 1972,
Landfræðisaga Íslands 1-4,
Lýsing Íslands 1-4, plús minning-
arbók Þ. HT., Almanak hins
Íslenska Bókmenntafélags 1875 -
2006, 33 bindi, Inn til fjalla 1-3,
Fremra Hálsætt 1-2, Kirkjuritið
1.- 23. árg., Bergsætt 1- 3,
V-Skaftafellsslýsla og íbúar
hennar, 1. útg. Náttúrfræðingur-
inn 1.-60. árg., ób., Lestrarbók
handa alþýðu á Íslandi 1874,
Dvöl 1-10 Torfhildur Hólm 1901,
Hvað er bak við myrkur lokaðra
augna.
Uppl. í síma 898 9475
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Bílar
100% RAFMAGN
MERCEDES-BENZ EQC 400
4matic. Árgerð 2021, ekinn 4 Þ.KM,
rafmagn, sjálfskiptur .
Verð 10.590.000. Rnr.120919.
SÁ VINSÆLASTI Í DAG
MMC Outlander Intense Phev
Plug In Hybrid.
Árgerð 2021, Óekinn NÝR BÍLL,
Bensín/Rafmagn, sjálfskiptur.
Verð 5.350.000. Rnr.215593.
Nánari upplýsingar veita
Höfðabílar ehf. í síma 577-4747
Smá- og raðauglýsingar
Hálsfesti týnd
Hálsfesti með stjörnumerki tapaðist
í Landspítalanum við Hringbraut í
blóðtöku- eða röntgendeildinni
þann 12. ágúst.
Finnandi vinsamlegast hafið sam-
band í síma: 864-2035 eða í gegnum
netfangið hjp@internet.is
Fundarlaun í boði.
Tapað/fundið
✝ Lára Runólfs-
dóttir fæddist
á Ásbrandsstöðum
í Vopnafirði 8. júlí
1934. Hún lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Hlíð sunnu-
daginn 15. ágúst
2021.
Foreldrar henn-
ar voru Runólfur
Guðmundsson,
bóndi og póstur, f.
21. janúar 1898, d. 4. janúar
1989, og Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja, f. 18. maí 1899, d.
11. mars 1992. Systkini Láru:
Einar, f. 2. nóvember 1921, d.
30. mars 2003. Björg Halldóra,
f. 24. júlí 1923, d. 3. mars 2013.
Gunnar, f. 27. mars 1927, d. 13.
apríl 2017. Kristín, f. 6. desem-
ber 1928, d. 25. maí 2015.
Guðný Sigurbjörg, f. 17. októ-
ber 1930, d. 3. ágúst 2016. Sig-
rún, f. 8. júlí 1934, tvíburasyst-
ir Láru.
Lára giftist 19. júlí 1957, eft-
Hafsteinn, Haukur og Hinrik.
4. Hugrún Ósk, f. 2. febrúar
1973, maki Ottó Biering Ott-
ósson, synir: Hermann Biering,
Vilhelm Ottó Biering og Lárus
Sólon Biering. Barna-
barnabörnin eru 17.
Lára stundaði hefðbundið
barnaskólanám eins og var á
þeim tíma. Veturinn 1955 til
1956 stundaði hún nám við
Húsmæðraskólann að Löngu-
mýri í Skagafirði. Lára vann
víða við heimilisaðstoð og einn-
ig hálfan vetur á hótel Vík í
Reykjavík. Lára og Hermann
hófu búskap á Hámund-
arstöðum í Vopnafirði árið
1957 í félagi við foreldra Her-
manns. Árið 1975 hættu þau
búskap og fluttu til Akureyrar.
Á Akureyri vann Lára lengst
af á Skinnaiðnaði.
Útför Láru fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju, í dag, 24. ágúst
2021, kl. 13. Athöfninni verður
streymt, stytt slóð:
https://tinyurl.com/mj3w8kut
Hlekk á streymi má finna á:
https://mbl.is/andlat Jarðsett
verður í kirkjugarðinum á
Naustahöfða á Akureyri.
irlifandi eig-
inmanni sínum,
Hermanni Ein-
arssyni, f. 17. mars
1929, syni
hjónanna Guð-
bjargar Guð-
mundsdóttur, f. 30.
nóvember 1897, d.
23. júlí 1990, og
Einars Svein-
björnssonar, f. 4.
janúar 1899, d. 9.
maí 1980.
Börn Hermanns og Láru
eru: 1. G. Eyrún, f. 22. nóv-
ember 1957, maki hennar var
Kolbeinn Hjálmarsson, d. 25.
október 2017, dætur: Dísa
Hrönn, Elín Helga og Halla
Björg. Synir Kolbeins af fyrra
hjónabandi eru Ármann og
Björgvin. 2. Rúnar Halldór, f.
16. júní 1959, maki Guðrún Ína
Einarsdóttir, börn: Guðjón Val-
ur og Guðbjörg Lára. 3. Hulda
Kristín, f. 11. desember 1963,
maki Svanur Kristinsson, synir:
Það reynist mér ekki auð-
velt að setjast niður og skrifa
minningargrein um hana
mömmu. Ég finn fyrir miklum
söknuði við fráfall hennar, en
um leið ylja góðar minningar
um hvað hún var hlý og góð við
lítinn strák.
Þegar ég síðan eltist og gat
tekið þátt í sveitastörfum við
hlið mömmu og pabba sá ég
fljótt dugnaðinn og kraftinn
sem hún bjó yfir. Oft voru
vinnudagarnir langir og í mörg
horn að líta á mannmörgu
sveitaheimili. En að loknum
löngum vinnudegi var hún vís
til að bjóða mér í kapphlaup á
milli húsa og alltaf lét hún mig
vinna þótt hún, sem var svo
létt á fæti, hefði auðveldlega
unnið mig.
Árið 1975 urðu miklar breyt-
ingar í lífi okkar fjölskyldunn-
ar, en þá brugðu foreldrar
okkar búi og fluttu til Akur-
eyrar. Það voru viðbrigði að
koma frá því að búa í sveit og
stunda nám í heimavistarskóla
yfir í að flytja í svo stórt sveit-
arfélag. Þá var dýrmætt fyrir
okkur systkinin að hafa
mömmu heimavinnandi til að
hjálpa okkur við aðlögun á nýj-
um stað.
Eftir að ég flutti til Reykja-
víkur árið 1984 var það mér
mikils virði að koma norður
með fjölskyldu mína og njóta
alls þess besta sem mamma og
pabbi höfðu upp á að bjóða.
Mamma var snillingur þegar
kom að tertum og öðru með-
læti og kom enginn að tómum
kofanum hjá henni, óteljandi
kökusortir og dýrindis matur
alltaf á borðum fyrir svanga
gesti. Aldrei var kvartað yfir
innrás fjögurra manna fjöl-
skyldu að sunnan um páska ár-
um saman. Mamma fylgdist vel
með öllum sínum afkomendum
allt fram á síðasta dag og var
stálminnug á menn og málefni
og þá sérstaklega ef það sneri
að einhverju eða einhverjum í
Vopnafirði, en þar var hún
fædd og uppalin og bjó þar
stóran hluta ævinnar. Það er
ekki nema hálfur mánuður síð-
an við flettum upp í minni
hennar sem var sem fyrr
óbrigðult.
Við leiðarlok vil ég þakka
þér, mamma mín, fyrir alla þá
elsku sem þú hefur sýnt mér
og mínum, og ég veit að allt
þitt fólk sem á undan er geng-
ið hefur tekið vel á móti þér.
Þín verður sárt saknað.
Þinn sonur,
Rúnar.
Hún Lára frænka mín hefur
fengið hvíldina. Báðar ólumst
við upp á Ásbrandsstöðum í
Vopnafirði. Hún hjá foreldrum
sínum Guðrúnu og Runólfi, en
ég hjá móðursystkinum mín-
um, Kristínu, Halldóri og Ás-
geiri, ásamt Guðnýju og Sig-
rúnu systrum Láru. Þó svo að
heimilin væru tvö var sam-
gangur og samvinna ævinlega
mikil, enda búið í sama húsinu.
Eins og á öðrum sveitaheim-
ilum liðu árin við hefðbundin
störf innanhúss og utan.
Veturinn 1955 til 1956 voru
þær tvíburasystur Sigrún og
Lára í Húsmæðraskólanum á
Löngumýri. Það var spennandi
að heyra þær segja frá dvöl-
inni þar og sjá alla handavinn-
una sem þær komu með heim
um vorið. Enda hafði Lára allt-
af mikið yndi af handavinnu.
Ég var um fermingu þegar
Lára og Hermann Einarsson,
eiginmaður hennar í meira en
sex áratugi, hófu búskap á Há-
mundarstöðum í Vopnafirði og
bjuggu þar til ársins 1975.
Eftir að við Hermann fórum
að búa á Höfn í Hornafirði
voru árlegar heimsóknir og
dvöl í Vopnafirði sjálfsagðar.
Auðvitað var þá jafnan farið í
heimsókn í Hámundarstaði til
Láru og Hermanns og fjöl-
skyldu þeirra. Veturinn 1973
til 1974 dvaldi Eyrún dóttir
þeirra hjá okkur á Höfn og
stundaði nám við gagnfræða-
skólann hér. Við höfum stund-
um hugleitt það, að vafalaust
var það erfitt bæði fyrir Ey-
rúnu 16 ára gamla og foreldra
hennar að sjá á eftir henni
þennan vetur, en svona gengu
hlutirnir til þá.
Haustið 1975 fluttu Lára og
Hermann ásamt börnum sínum
fjórum til Akureyrar og áttu
þar heimili upp frá því. Í ferð-
um okkar fjölskyldunnar þang-
að norður voru þau ævinlega
heimsótt og okkur alltaf tekið
tveim höndum. Gestrisni
þeirra var alltaf í fyrirrúmi. Á
sama hátt voru þau kærkomnir
gestir hjá okkur á Höfn og
komu oft hér í heimsókn, ekki
síst eftir að þau fóru að taka
þátt í húsbílaferðum víða um
land, sem þau höfðu mikla
ánægju af.
Oft vorum við líka samtímis
í heimsókn á Ásbrandsstöðum
á sumrin og þá oft margt um
manninn. Undi fólk sér þar við
leik og störf og minnast börnin
okkar góðra kynna frá þeim
tíma við Láru og fjölskyldu
hennar.
Eftirminnilegt er vorið 2011
en þá vorum við sem oftar í
heimsókn á Akureyri og buðu
þau Lára og Hermann til
veislu þar sem við hittum alla
stórfjölskylduna á Akureyri og
áttum eftirminnilega stund
saman.
Skömmu seinna fékk Lára
áfall og náði aldrei fullri heilsu
eftir það. Í síðustu heimsókn
okkar til Akureyrar, haustið
2018, hittum við Láru, Her-
mann, dætur þeirra og fjöl-
skyldur og eigum ánægjulegar
minningar frá þeirri dvöl.
Það er mikill missir fyrir
Sigrúnu tvíburasystur Láru
þegar hún er fallin frá. Þær
voru alla tíð mjög nánar og
höfðu mikið samband. Oft dag-
lega í síma. Við vottum henni
innilega samúð, en hún er nú
ein eftirlifandi systkinanna frá
Ásbrandsstöðum.
Hermanni, börnum og fjöl-
skyldum þeirra vottum við
innilega samúð og minnumst
að leiðarlokum Láru með hlý-
hug og þakklæti.
Blessuð sé minning hennar.
Heiðrún
og Hermann.
Lára Runólfsdóttir
Þegar fólk býr
fjarri manni þá læð-
ist söknuðurinn
öðruvísi að. Þótt
hugur minn dvelji nú í öllum
minningum okkar, elsku Dadda
mín, þá síast þetta allt inn hæ-
nuskref fyrir hænuskref.
Það verður ekki tekið af þér að
þú gerðir þitt besta sem stóra
systir. Hvort sem það var að stel-
Helga Brynhildur
Kristmundsdóttir
✝ Helga Bryn-
hildur Krist-
mundsdóttir fædd-
ist 29. nóvember
1974. Hún lést 20.
júlí 2021.
Útförin fór fram
16. ágúst 2021.
ast með mig sex ára
til að gata eyrað
mitt eða allar þær
stundir sem við
hlógum saman.
Þessar minningar
munu ylja mér
næstu ár.
Undir öðrum
stjörnum hefði allt
orðið öðruvísi og við
sætum brosandi í
sólinni, því alltaf
gastu brosað í gegnum allt sem
gekk á.
Þegar öld mín er öll þá hitt-
umst við á ný. Þangað til þá bæ
og heyrumst síðar.
Friðvin Ingi Ernstsson
Berndsen.