Morgunblaðið - 24.08.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 2021
30 ÁRA Búi Alexander fæddist í Reykjavík en
flutti fjögurra ára í Garðabæinn þar sem hann hef-
ur búið síðan. Þar gekk hann í Flataskóla og síðan í
Garðaskólann og var í fótbolta og handbolta þegar
hann var yngri. „Við fórum ágætlega stór vinahóp-
ur úr Garðabænum í MR og maður hafði heyrt góða
hluti um skólann, bæði varðandi félagslíf og nám.“
Búi Alexander útskrifaðist úr MR árið 2011 og fór í
eitt ár í verkfræði í HÍ, en fann sig ekki alveg þar.
Þá fór hann í flugnám, en hann hefur lokið við
einkaflugmannsprófið. Árið 2014 fór hann í
viðskiptafræði í HR og lauk því námi 2017, en
ákvað þá að bæta við sig og lauk tölvunarfræði úr
sama skóla árið 2019. „Ég fékk vinnu hjá Deloitte
sumarið 2019 og er búinn að vinna þar síðan, í ráð-
gjafardeildinni.“
Helstu áhugamál Búa Alexanders eru golf. „Í fyrra, Covid-sumarið mikla,
fór maður á fullt í golfið.“ Hann fylgist líka með íþróttum, sérstaklega fót-
bolta og körfubolta og Tottenham er lið hans í ensku deildinni.
FJÖLSKYLDA Foreldrar Búa Alexanders eru Eymundur Einarsson, end-
urskoðandi í Garðabæ, og Ásgerður Óskarsdóttir, flugfreyja hjá Icelandair.
Systkini hans eru Einar, tölvunarfræðingur hjá Icelandair, og Birna, nemi
og markmaður í fótbolta hjá Fylki.
Búi Alexander Eymundsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Treystu á hæfileika þína og vertu
óhræddur að breyta til. Mundu að þú ert að
taka mikilvægt skref inn í framtíðina.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú þarft að ræða málin við vinnu-
félaga þína svo einhver skriður komist á
samstarfið. Það væri einnig skynsamlegt að
bera framtíðaráform þín undir vini og vanda-
menn.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er ekki hægt að gera svo að
öllum líki og því skaltu halda þínu striki
ótrauður. Einbeittu þér að því að byggja þig
upp fyrir framtíðina.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Lífið hefur leikið við þig að undan-
förnu, ekki vera hissa þótt snurður hlaupi á
þráðinn á næstunni. Reyndu að láta það ekki
slá þig út af laginu.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það er ekkert vit í öðru en að hafa alla
hluti á þurru þegar taka þarf ákvörðun í mik-
ilvægu máli. Ef þú vilt að þér verði eitthvað
úr verki þarftu að halda þig við raunveruleik-
ann.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Ef þú kynnist einhverjum sem þér
finnst gaman að spjalla og gantast við skaltu
gæta þess að sleppa ekki takinu af viðkom-
andi.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Álit annarra á gjörðum þínum skiptir
engu máli því þú veist að þú ert að gera rétt.
Það er samt eitt og annað sem sækir á þig
og veldur þér hugarangri, reyndu að hugsa
um eitthvað annað.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú vilt ná árangri í því sem þú
ert að gera og dagurinn í dag ætti að skila
þér góðum árangri.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú munt komast að því að þú
átt margt sameiginlegt með vinnufélögum
þínum. Reyndu að vera hjálplegur og veita
öðrum stuðning.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú átt gott með að láta þér lynda
við aðra í dag, þökk sé jafnlyndi þínu og
hæfileikum til þess að spjalla við allt og alla.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það getur reynst erfitt að losa
sig við gamla siði jafnvel þótt þeir reynist
manni dýrkeyptir.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Hafðu augun opin fyrir þeim mögu-
leikum sem þér gefast á kynnum við fólk
sem deilir með þér áhugamáli.
holtsskóla og þar fór hann að sinna
trúnaðarstörfum fyrir kennara og
sat m.a. í stjórn Samtaka móður-
málskennara, þar af tvö ár sem for-
maður. Hann hélt áfram í Kór Lang-
holtskirkju. „Það var dýrmæt
reynsla að syngja undir stjórn Jóns
Stefánssonar í Langholtskirkju.
Hann var alveg einstakur maður og
Þegar þau komu heim frá Noregi
skráði hann sig í nám við Kennara-
háskólann sem þá var þriggja ára
nám og útskrifaðist sem íslensku-
kennari. „Ég kynntist afar skemmti-
legum leiðbeinendum og kennurum í
skólanum og tel mig virkilega hepp-
inn að hafa farið í þetta nám.“
Sæmundur fór að kenna við Lang-
S
æmundur Helgason fædd-
ist 24. ágúst 1971 í
Reykjavík. „Ég ólst upp í
yndislegu Bakkahverfi í
Neðra-Breiðholti í faðmi
fjölskyldu og vina.“ Sæmundur var
bæði í handbolta og í fótbolta á vet-
urna. „Í mínu uppeldi var ég svo
heppinn að vera í góðum félagahópi í
KFUM. Á þessum tíma var mjög öfl-
ugt starf hjá KFUM í skúrnum í
Maríubakka og skemmtilegir leið-
togar og má nefna þá Helga Gísla-
son, Hreiðar Stefánsson og Arn-
mund Kristin Jónasson sem leiddu
starfið og voru einstaklega skemmti-
legir.“ Sæmundur segir að það hafi
líka verið öflugt skátastarf í hverfinu
og sunnudagaskólar, en hann og vin-
ir hans hafi heillast af KFUM. Á
sumrin dvaldi hann hjá Guðríði, föð-
urömmu sinni, í Austurhlíð í Blöndu-
dal fram á unglingsárin.
Sæmundur lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Sund árið
1991. „Þá var MS hverfisskóli fyrir
Neðra-Breiðholt og það varð eig-
inlega örlagavaldur í mínu lífi því ég
kynntist síðan Kristínu konunni
minni í MS. „Systur okkar Kristínar
sungu í kór MS og þær plötuðu okk-
ur Kristínu í kórinn með sögum um
skemmtileg kórpartí. Við sáumst í
fyrsta skipti á kóræfingu og ég man
eftir skrýtnu og sætu stelpunni frá
Hornafirði í gulu úlpunni. Við kynnt-
umst þarna en byrjuðum ekki saman
fyrr en í útskriftarferðinni til Mal-
lorca. Þar var mikið djamm, en
minna hjá okkur Kristínu, því við
vorum svo ástfangin.“
Eftir skólann fór Sæmundur að
vinna hjá Bræðrunum Ormsson og
var þar sölumaður í átta ár. Unga
parið byrjaði að búa saman með
systur Kristínar, en eftir ár keyptu
þau sér íbúð í Breiðholtinu og áttu
Heiðrúnu dóttur sína árið 1994. Þau
fluttu þau til Noregs 1996 þar sem
Kristín fór í nám í veðurfræði og þar
bjuggu þau í fimm ár og eignuðust
soninn Helga. „Það var hálfgerð
paradís að vera í Bergen þennan
tíma og alveg yndislegur tími. Ég fór
að keyra vörubíl og sjá fyrir okkur.
Svo fór ég líka að syngja í kór År-
stad kirke í Bergen og það var virki-
lega gaman að syngja þar.“
setti djúp spor í líf manns.“ Árið
2004 ár lauk Sæmundur B.Ed.-námi
með íslensku sem kjörsvið. Árið
2013 varð mikið breytingaár hjá fjöl-
skyldunni. „Kristín var búin að vera
að vinna hjá Veðurstofunni frá því
við komum heim frá Noregi. Svo
bauðst henni að verða forstöðumað-
ur við nýstofnaða Náttúrustofu Suð-
austurlands á Höfn og þá var ekkert
annað að gera en að flytja austur.“
Sæmundur segir að það hafi verið
ævintýri að fara á allt öðruvísi stað,
en Kristín er frá Höfn svo það hjálp-
aði mikið og foreldrar hennar búa
þar. Sæmundur fór strax að starfa
við Grunnskóla Hornafjarðar og hef-
ur veri þar sl. átta ár. „Mér fannst
ég líka búa á litlum stað þegar ég var
í Langholtsskóla. Það er bara þann-
ig að fólkið í kringum mann verður
þorpið manns og ég man alltaf eftir
að vinnuveitandi minn í Noregi bjó í
litlum bæ stutt frá Bergen. Hann
sagði oft: „Ég bý í Arna, nafla al-
heimsins.“ Það er svolítið þannig að
nafli alheimsins er þar sem þú ert
hverju sinni.“
Sæmundur situr í bæjarstjórn
Sveitarfélagsins Hornafjarðar og
hefur gert undanfarin sjö ár. „Ég
var ekkert sérstaklega pólitískur
fyrr en ég kom á Höfn. Ég hef gam-
Sæmundur Helgason kennari og bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Hornafirði – 50 ára
Börnin Guðbjörg Margrét, Sonja og Arnþór Atlabörn, bróður Sæmundar og
Heiðrún, Helgi og Hermann Bjarni Sæmundarbörn. Myndin var tekin 2020.
Nafli alheimsins er þar sem þú ert
Útivist ágúst 2021 Gönguhópurinn í Múlaskála í Lónsöræfum í ágúst 2021.
Fremri röð f.v.: Ólöf Eiríksdóttir, Kristín Hermannsdóttir, Aðalheiður Helga-
dóttir, Gunnhildur Stefánsdóttir, Unnur Hermannsdóttir og Helga Sigurð-
ardóttir. Aftari röð f.v.: Atli Helgason, Sæmundur Helgason, Skúli Sæland,
Þorsteinn R. Hermannsson, Ólafur Árnason og Jóhannes Símonarson.
Söngurinn Sæmundur hefur sungið
alla tíð og er í Karlakórnum Jökli.
Til hamingju með daginn
Akranes Mikael Berg Brekason fæddist 6. apr-
íl 2021 kl. 16.18 á Sjúkrahúsinu á Akranesi.
Hann vó 4.028 g og var 53 cm langur. Foreldrar
hans eru Breki Berg Guðmundsson og Rósa
María Sigurgeirsdóttir.
Nýr borgariFERSKT OG GOTT PASTA
TILBÚIÐ Á ÖRFÁUM MÍNÚTUM!