Morgunblaðið - 24.08.2021, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 2021
Pepsi Max-deild karla
Leiknir R. – HK........................................ 0:0
Stjarnan – Fylkir...................................... 2:0
Staðan:
Valur 18 11 3 4 29:17 36
Víkingur R. 18 10 6 2 29:19 36
Breiðablik 17 11 2 4 40:20 35
KA 17 9 3 5 25:15 30
KR 17 8 5 4 26:16 29
FH 17 7 4 6 31:22 25
Leiknir R. 18 6 4 8 16:24 22
Stjarnan 18 5 4 9 22:28 19
Keflavík 17 5 2 10 20:32 17
Fylkir 18 3 7 8 18:31 16
HK 18 3 5 10 19:33 14
ÍA 17 3 3 11 18:36 12
2. deild karla
Njarðvík – Haukar ................................... 6:1
Staðan:
Þróttur V. 18 11 5 2 36:17 38
KV 18 10 4 4 34:24 34
Völsungur 18 10 3 5 40:32 33
Njarðvík 18 7 8 3 42:23 29
KF 18 8 4 6 34:28 28
Magni 18 7 6 5 37:32 27
ÍR 18 6 7 5 31:26 25
Reynir S. 18 6 5 7 35:37 23
Haukar 18 5 4 9 31:37 19
Leiknir F. 18 5 3 10 25:41 18
Fjarðabyggð 18 2 5 11 13:44 11
Kári 18 1 6 11 24:41 9
Pepsi Max-deild kvenna
Þróttur R. – Þór/KA................................. 1:0
Selfoss – ÍBV ............................................ 6:2
Staðan:
Valur 15 12 2 1 40:15 38
Breiðablik 15 10 1 4 49:22 31
Þróttur R. 15 7 4 4 31:25 25
Selfoss 16 7 4 5 30:24 25
Stjarnan 14 6 2 6 16:20 20
Þór/KA 16 4 6 6 16:22 18
ÍBV 15 5 1 9 23:36 16
Keflavík 14 3 3 8 13:24 12
Fylkir 14 3 3 8 16:34 12
Tindastóll 14 3 2 9 10:22 11
England
West Ham – Leicester ............................. 4:1
Staða efstu liða:
West Ham 2 2 0 0 8:3 6
Chelsea 2 2 0 0 5:0 6
Liverpool 2 2 0 0 5:0 6
Brighton 2 2 0 0 4:1 6
Tottenham 2 2 0 0 2:0 6
Manch. Utd 2 1 1 0 6:2 4
Everton 2 1 1 0 5:3 4
Brentford 2 1 1 0 2:0 4
Svíþjóð
Gautaborg – Varberg ............................. 1:2
- Kolbeinn Sigþórsson lék allan leikinn
með Gautaborg.
B-deild:
Helsingborg – Vasalund ......................... 0:0
- Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með
Helsingborg.
Noregur
B-deild:
Strömmen – Aalesund............................. 0:0
- Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn
með Aalesund.
>;(//24)3;(
Þýski knatt-
spyrnumaðurinn
Joshua Kimmich
verður áfram í
röðum meistara-
liðsins Bayern
München næstu
árin.
Félagið til-
kynnti í gær að
Kimmich hefði
framlengt samn-
ing sinn til ársins 2025. Kimmich er
26 ára gamall og leikur ýmist sem
bakvörður eða miðjumaður. Hann
kom til Bayern frá RB Leipzig árið
2015 og hefur spilað 175 leiki fyrir
félagið í þýsku 1. deildinni og á enn
fremur að baki 59 landsleiki fyrir
Þýskaland.
Bayern sá á eftir David Alaba til
Real Madríd í sumar og í síðustu
viku var fjallað um löngun Roberts
Lewandowski að breyta til.
Hjá Bayern
næstu árin
Joshua
Kimmich
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Samsung-völlur: Stjarnan – Fylkir ......... 18
1. deild karla, Lengjudeildin:
Domusnovav.: Kórdrengir – Þór.............. 18
Jáverkv.: Selfoss – Afturelding................ 18
Olísvöllur: Vestri – Víkingur Ó .................18
Vivaldi-völlur: Grótta – Grindavík ...... 19.15
Eimskipsv.: Þróttur R. – Fram........... 19.15
Í KVÖLD!
Aron Einar Gunnarsson, landsliðs-
fyrirliði Íslands í knattspyrnu, er
smitaður af kórónuveirunni og er í
einangrun á Spáni. Þetta kom fram
í hlaðvarpsþættinum Dr. Football
en Aron er í æfingabúðum á Spáni
með liði Al-Arabi og þarf nú að
vera í einangrun á hótelherbergi
sínu eftir að hafa greinst jákvæður
í skimun.
Íslenski landsliðshópurinn fyrir
leikina gegn Rúmeníu, Norður-
Makedóníu og Þýskalandi í sept-
ember í undankeppni HM verður
tilkynntur á morgun.
Í einangrun í
æfingaferðinni
AFP
Einangrun Aron Einar Gunnarsson
smitaðist af kórónuveirunni.
Anna Nordqvist frá Svíþjóð sigraði
á Opna breska meistaramótinu í
golfi sem fram fór á Carnoustie í
Skotlandi. Nordqvist, sem er 34 ára
gömul, sigraði þar með í þriðja
skipti á einu risamótanna í íþrótt-
inni. Hefur hún einnig unnið PGA-
meistaramótið og Evian-mótið en
risamótin eru fimm hjá konunum í
golfinu. Hafði hún talsvert upp úr
krafsinu eða liðlega 112 milljónir
íslenskra króna.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék
á mótinu árið 2017 og Valdís Þóra
Jónsdóttir ári síðar.
AFP
Skotland Anna Nordqvist þegar
sigurinn var í höfn á Carnoustie.
Sænskur sigur
á Carnoustie
STJARNAN – FYLKIR 2:0
1:0 Björn Berg Bryde 18.
2:0 Emil Atlason 84.
M
Haraldur Björnsson (Stjörnunni)
Halldór Orri Björnsson (Stjörnunni)
Hilmar Árni Halldórsson (Stjörnunni)
Emil Atlason (Stjörnunni)
Björn Berg Bryde (Stjörnunni)
Eggert Aron Guðmunds. (Stjörnunni)
Ólafur Kristófer Helgason (Fylki)
Dagur Dan Þórhallsson (Fylki)
Arnór Borg Guðjohnsen (Fylki)
Djair Parfitt-Williams (Fylki)
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 8.
Áhorfendur: 594.
LEIKNIR R. – HK 0:0
M
Brynjar Hlöðversson (Leikni)
Máni Austmann Hilmarsson (Leikni)
Daníel Finns Matthíasson (Leikni)
Bjarki Aðalsteinsson (Leikni)
Martin Rauschenberg (HK)
Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK)
Jón Arnar Barðdal (HK)
Arnþór Ari Atlason (HK)
Dómari: Þorvaldur Árnason – 8.
Áhorfendur: Um 400.
FÓTBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Stjarnan sleit sig frá fallsvæðinu í
Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu,
í bili að minnsta kosti, með 2:0-sigri
á Fylki í Garðabænum í gær. Tveir
leikir fóru þá fram sem höfðu nokk-
uð vægi í neðri hluta deildarinnar.
Stjarnan er með 19 stig eftir átján
leiki en Fylkir er með 16 stig eftir
átján leiki.
Leiknir og HK gerðu markalaust
jafntefli. Fyrir vikið færðist HK ör-
lítið nær Fylki. HK er með 14 stig
eftir átján leiki í næst neðsta sæti en
ÍA er neðst með 12 stig eftir sautján
leiki. Keflavík er með 17 stig eftir
sautján leiki en ljóst er að HK hefði
viljað ná í þrjú stig í gær til að koma
sér nær þessum liðum.
„Meira var í húfi fyrir HK í þess-
um leik og þeir lögðu sig aðeins bet-
ur fram, vörnin þétt og seigir að
pressa fram. Ásgeir Börkur Ás-
geirsson gaf allt sitt í leikinn, kast-
aði sér á eftir hverjum bolta. Leikn-
ismenn voru frekar í að hugsa um
hvað þeir gætu misst en hvað þeir
gætu fengið, lítið um neista og voru
varkárir,“ skrifaði Stefán Stefáns-
son m.a. í umfjöllun sinni um leik
Leiknis og HK á mbl.is.
Fylkismenn hafa ekki unnið leik í
deildinni frá því þeir unnu sterkt lið
KA 13. júlí. Síðan þá hefur liðið spil-
að sex leiki í deildinni og tapað fjór-
um þeirra. Fylkismenn fara upp á
Akranes 18. september og verður
áhugavert að sjá hvar liðin standa
þegar kemur að þeim leik.
„Stjörnumenn fögnuðu mikil-
vægum og sanngjörnum sigri þegar
litið er á leikinn í heild. Um leið gáfu
þeir sjálfum sér andrými í fallbarátt-
unni, en Garðbæingar eru nú fimm
stigum frá fallsæti þegar einungis
fjórar umferðir eru eftir,“ skrifaði
Stefán Gunnar Sveinsson m.a. í um-
fjöllun sinni á mbl.is.
Garðbæingar
að bjarga sér?
Morgunblaðið/Eggert
Peysutog Eggert Aron Guðmunds. skrefi á undan Orra Sveini Stefánssyni.
- HK tveimur stigum á eftir Fylki eftir
markalaust jafntefli gegn Leikni
SELFOSS – ÍBV 6:2
1:0 Kristrún Rut Antonsdóttir 8.
2:0 Brenna Lovera 20.
3:0 Þóra Jónsdóttir 41.
4:0 Caity Heap 61.
4:1 Þóra Björg Stefánsdóttir (víti) 64.
4:2 Viktorija Zaicikova 68.
5:2 Magdalena Reimus 80.
6:2 Magdalena Reimus 90.
MM
Magdalena Reimus (Selfossi)
M
Eva Núra Abrahamsdóttir (Selfossi)
Þóra Jónsdóttir (Selfossi)
Brenna Lovera (Selfossi)
Caity Heap (Selfossi)
Áslaug Dóra Sigurbjörnsd. (Selfossi)
Olga Sevcova (ÍBV)
Viktorija Zaicikova (ÍBV)
Hanna Kallmaier (ÍBV)
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson – 9.
Áhorfendur: 99.
ÞRÓTTUR – ÞÓR/KA 1:0
1:0 Dani Rhodes 76.
M
Dani Rhodes (Þrótti)
Íris Dögg Gunnarsdóttir Þrótti)
Jelena Tinna Kujundzic (Þrótti)
Katherine Cousins (Þrótti)
Lorena Baumann (Þrótti)
Sóley María Steinarsdóttir (Þrótti)
Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA)
Harpa Jóhannsdóttir (Þór/KA)
Hulda Björg Hannesdóttir (Þór/KA)
Shaina Ashouri (Þór/KA)
Dómari: Jóhann Atli Hafliðason – 6.
Áhorfendur: Um 200.
FÓTBOLTINN
Bjarni Heglason
bjarnih@mbl.is
Selfoss og Þróttur úr Reykjavík
styrktu stöðu sína í efri hluta úr-
valsdeildar kvenna í knattspyrnu,
Pepsi Max-deildarinnar, í fimm-
tándu umferð deildarinnar í gær.
Magdalena Reimus skoraði tví-
vegis fyrir Selfoss þegar liðið
vann 6:2-stórsigur gegn ÍBV á Já-
verk-vellinum á Selfossi.
Selfyssingar léku á als oddi í
fyrri hálfleik og leiddu sanngjarnt
með þremur mörkum gegn engu.
Selfoss er áfram í fjórða sætinu
með 25 stig en ÍBV er í sjöunda
sætinu með 16 stig.
„Ótrúlega sannfærandi sigur Sel-
fyssinga, sem halda áfram að berj-
ast um þriðja sætið á meðan staða
ÍBV er hreint ekki góð, rétt fyrir
ofan fallsæti,“ skrifaði Guðmundur
Karl Steindórsson m.a. í umfjöllun
sinni um leikinn á mbl.is.
_ Magdalena Reimus skoraði
sitt 19. og 20. mark í efstu deild í
96 leikjum.
Þá reyndist Dani Rhodes hetja
Þróttara þegar liðið vann 1:0-
sigur gegn Þór/KA á Eimskips-
vellinum í Laugardal.
Þróttarar fengu hættulegri færi
í leiknum og að endingu var það
Rhodes sem skoraði sigurmark
leiksins í síðari hálfleik þegar hún
slapp ein í gegn eftir stungusend-
ingu Ísabellu Önnu Húberts-
dóttur.
Þróttarar eru með 25 stig í
þriðja sætinu, líkt og Selfoss, en
Þór/KA er með 18 stig í sjötta
sætinu.
„Leikurinn var jafn og spenn-
andi og mikil barátta í algleym-
ingi allan tímann,“ skrifaði Gunn-
ar Egill Daníelsson m.a. í
umfjöllun sinni um leikinn á
mbl.is.
_ Þetta var fjórði heimasigur
Þróttara í deildinni í röð en liðið
tapaði síðast heimaleik 6. júlí.
Morgunblaðið/Eggert
Skallaeinvígi Hart barist í leik Þróttar og Þórs/KA í Laugardal í gær.
Hörð barátta
um þriðja
sætið í deildinni
- Selfoss og Þróttur unnu góða sigra