Morgunblaðið - 24.08.2021, Page 32

Morgunblaðið - 24.08.2021, Page 32
ÓMISSANDI FERÐAFÉLAGAR Þurrir AGM eða sýrurafgeymar fy tæki og rúllur. Öflugir start rafgeymar í mörgum stærðum. Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta Klárir í bátana ge Reyk rur, ve vel í TUDOR rafgeymar Gasskynjari Gasskynjari með rafhlöðu • 15 ára ending! rir Hleðslutæki. Lithiu m rafhl aða með 15 ár a endin gu! AGM þurrir rafgeymar fyrir Start-Stop bíla Viðurkenndir af öllum bílaframleiðendum Veldu öruggt start með TUDOR ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 236. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Tveir leikir fóru fram í Pepsi Max-deild karla í knatt- spyrnu í gær sem höfðu nokkuð vægi í neðri hluta deildarinnar. Stjarnan sleit sig frá fallsvæðinu með 2:0- sigri á Fylki í Garðabænum. Leiknir R. og HK gerðu markalaust jafntefli og er Fylkir tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið. Tveir leikir fóru einnig fram í Pepsi Max-deild kvenna en á Selfossi rigndi ekki bara regn- dropum heldur einnig mörkum. Selfoss burstaði ÍBV 6:2. Þróttur er sem fyrr í 3. sæti deildarinnar en liðið vann Þór/KA í Laugardalnum. »26 Mikilvægur sigur hjá Garðbæingum en syrtir í álinn hjá Árbæingum ÍÞRÓTTIR MENNING Þórir Baldursson píanóleikari kemur í heimsókn í Hljóð- færahúsið við Síðumúla í kvöld kl. 20, spjallar við starfsmenn og leikur nokkur lög. „Þórir hefur verið í fararbroddi í íslenskri tónlist áratugum saman og ekki til Íslendingur sem ekki hefur heyrt verk hans, meðvitað eða ómeðvitað. Sjálfur er hann meðlimur í Savanna-tríóinu en hefur komið að óteljandi verk- efnum öðrum,“ segir um viðburðinn á Facebook og hefur Þórir unnið með nokkrum heims- kunnum tónlist- armönnum og hljóm- sveitum, þeirra á meðal ABBA, Elton John, Donnu Summer og Grace Jones. Við- burðinum verður streymt á Facebook. Þórir Baldursson spjallar og leikur nokkur lög í Hljóðfærahúsinu Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Lífið er stutt, en listin er löng og hún sigrar alltaf. Eða svona yfir- leitt. Ég staðnæmist ekki við hið liðna eða erfi mál,“ segir Páll Guð- mundsson í Húsafelli. Þegar komið er niður í Borgarfjörð um Kaldadal er mynd Páls af Johann Sebastian Bach sem útvörður héraðsins; and- litsdrættir hoggnir í stein af list- fengi. Fjölda verka er einnig að finna heima við gamla bæinn í Húsafelli, þar sem heimili Páls og vinnustofa eru. Hagleiksgripir í einstöku umhverfi Skemmubyggingar og gamall súrheysturn eru nýtt í þágu listar á Húsafelli og í fyllingu tímans verða sýningar í legsteinasafninu sem nú er í byggingu. Úfar risu á dög- unum um byggingarleyfi þess og niðurrif blasti við. Því tókst að af- stýra og nú horfir Páll til fram- tíðar. „Mér finnst mikilsvert að hafa nú fengið aftur svigrúm til að skapa og búa til listaverk úr grjótinu, sem ég yfirleitt sæki í Bæjargil sem er hér skammt fyrir ofan Húsafell. Að nýta efnivið úr náttúrunni byggist á langri hefð hér á bæ,“ segir Páll. „Á leg- steinasafninu verða meðal annars slíkir steinar, gerðir af mönnum sem hér sátu; Jakobi sem var son- ur séra Snorra Björnssonar, hins rammgöldrótta prests sem hér sat á 18. öld. Synir Jakobs, þeir Gísli og Þorsteinn, voru einnig hagleiks- menn en legsteina þeirra mátti meðal annars finna í kirkjugarð- inum. Hér í Húsafelli má víða finna óvenjulega hagleiksgripi, rétt eins og umhverfið hér er einstakt. Ás- grímur Jónsson listmálari var hér mikið á fyrri hluta 20. aldar og fann hér einstök myndefni, eins og fleiri“. Kompaní við Kjarval Í starfi Páls að undanförnu ber hátt þátttaka hans í sýningunni Ei- líf endurkoma - Kjarval og samtím- inn. Sýningin er á Kjarvalsstöðum í Reykjavík og þar mynda verk Kjarvals eins konar þráð, en við hann eru sett í samhengi verk myndlistarfólks sem hátt ber í nú- tímanum. Slíkt þykir, svo vitnað sé til kynningar, vitna um þau áhrif og miklu virðingu sem Íslendingar hafa borið fyrir Kjarval. „Afi minn og alnafni, Páll Guð- mundsson á Hjálmsstöðum í Laug- ardal í Árnessýslu, og Kjarval voru miklir vinir og strengurinn sterkur. Heilsa þér Kjarval, er ljóð sem afi orti um þennan vildarvin sinn. Auð- vitað er ég með mynd af Páli afa á Kjarvalssýningunni, sem og myndir af Gunnari Kvaran sellóleikara, Ceciliu Bartoli óperusöngkonu og fleirum,“ segir Páll sem á alls 10 verk á sýningunni. Þar eiga einnig verk Eggert Pétursson, Egill Sæ- björnsson, Einar Garibaldi Eiríks- son, Katrín Elvarsdóttir, Ólafur Elíasson og Ragna Róbertsdóttir svo einhver sé nefnd. Tal og tónar „Þetta fólk sem þarna mætir Kjarval er einstakt og mér finnst gaman að tilheyra þeim hópi,“ sagði Páll í rabbi við blaðamann á vinnustofunni í Húsafelli á dög- unum. Víða var komið við tali og tónum þar og þá - og steinhörpuna sló listamaðurinn af innlifun. Grjót- ið úr gilinu þar sem hver steinflís hefur sinn tón. Tár blikuðu á hvarmi þeirra sem hlustuðu, enda eru einkatónleikar í ágúst að áliðn- um slætti allt annað en daglegt brauð. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ég Páll Guðmundsson meðhöndlar grjótið af list og er hér við sjálfsmynd, þar sem skugginn kemur skemmtilega út. Listin sigrar yfirleitt - Höggmyndirnar og hörpusláttur - Heimsókn í Húsafell

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.