Morgunblaðið - 30.08.2021, Blaðsíða 32
CHANEL Nettur stóll
frá Calia Italia
Stærð: 67 cm
Leður: Biscotto. Verð 190.000 kr.
Stóllinn er einnig fáanlegur með
snúningsfæti. Hægt að panta í
tveggja og þriggja sæta sófa, í
mörgum litum, bæði
í leðri og taui
fyrir heimilið
Sendum
um
land
allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377
bustod@bustod.is | www.bustod.is
FALLEGAR VÖRUR
JULIET er æðislega fallegur sófi frá Calia á Ítalíu.
Stærð 216 cm. Verð 690.000 kr.
Einnig fáanlegur sem stóll og 2ja sæta sófi (160 cm).
ORLANDO tungusófi frá Calia á Ítalíu.
Nautsleður allan hringinn.
Stærð: 271x167 cm. Verð 590.000 kr.
Einingasófi þar sem hægt er að púsla saman sófa á marga
vegu. Einnig hægt að panta í tveggja og þriggja sæta sófum.
Hægt að panta í mörgum litum, bæði í leðri og taui.
PIER sófinn frá Calia á Ítalíu er orðið eitt vinsælasta módel
Bústoðar. Það er fáanlegt í fjölmörgum litum af taui, micro-
fiber eða leðri. Hægt er að fá Pier í mörgum útfærslum,
bæði með og án rafmagns, og jafnvel tungusófa.
Ítalskt, gegnlitað nautsleður
3ja sæta sófi (226 cm) 339.000 kr.
2,5 sæta sófi (206 cm) 319.000 kr.
2ja sæta sófi (186 cm) 299.000 kr.
Hornsófi 270 x 227 cm með rafmagni í sæti. Verð 615.000 kr.
Stóll á snúningsfæti í ítölsku
nautsleðri. Einnig fáanlegur
á löppum. Hægt að panta
stólinn í mörgum litum,
bæði leðri og taui.
75 cm á breidd.
Verð frá 139.000 kr.
Gítarleikarinn Hróð-
mar Sigurðsson send-
ir frá sér sína fyrstu
hljómplötu í dag,
samnefnda honum,
og er það Reykjavik
Record Shop sem
gefur út. Útgáfu-
tónleikar verða haldn-
ir af þessu tilefni í
kvöld kl. 20 á Jazzhá-
tíð Reykjavíkur í Flóa
í Hörpu. Hróðmar
samdi lögin og sá um
útsetningar og kemur
hljómsveit fram með honum á tónleikunum í kvöld.
Hróðmar leikur á rafgítar, Ingibjörg Elsa Turchi á raf-
bassa, Magnús Jóhann Ragnarsson á hammondorgel
og hljómborð, Magnús Trygvason Eliassen á trommur,
Kristofer Rodriguez Svönuson á slagverk, Elvar Bragi
Kristjónsson á trompet og flygilhorn, Tumi Árnason á
tenórsaxófón og Ingi Garðar Erlendsson á básúnu.
Hróðmar heldur útgáfutónleika
MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 242. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Breiðablik sendi öðrum liðum Pepsi Max-deildarinnar í
fótbolta skilaboð með því að valta yfir Fylki, 7:0, á úti-
velli í gærkvöldi. Með sigrinum fór Breiðablik aftur upp
í toppsætið, sem Víkingur hafði fengið að láni í stutta
stund fyrr um daginn með því að vinna 2:1-útisigur á
FH. Aðeins tvö stig skilja liðin að þegar þrjár umferðir
eru eftir. Íslandsmeistarar Vals töpuðu hins vegar stig-
um í toppbaráttunni er liðið tapaði á heimavelli fyrir
Stjörnunni, 1:2. HK vann 1:0-sigur á Keflavík og fór upp
úr fallsæti í leiðinni á kostnað Fylkis. »26
Breiðablik skoraði sjö gegn Fylki
ÍÞRÓTTIR MENNING
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
„Sumarið var algjörlega frábært á
Jaðri,“ segir Steindór Ragnarsson,
framkvæmdastjóri Golfklúbbs
Akureyrar. Aðsóknarmet var slegið
í fyrrasumar og nú stefnir allt í að
það verði snarlega slegið í ár. Þátt-
taka í mótum var með mesta móti og
yfir 200 manns skráðir til leiks í
þremur stórmótum sumarsins. Ís-
landsmótið fór fram á Jaðarsvelli og
vakti að venju athygli.
Steindór segir ánægjulegt að upp-
lifa aukna golfiðkun almennings og
vinsældir Jaðarsvallar. „Við vorum
mjög ánægðir í fyrrasumar með
mikla og góða aðsókn en áttum ekki
endilega von á að metið sem þá var
sett yrði slegið strax næsta sumar á
eftir,“ segir hann.
Á liðnu ári voru spilaðir tæplega
27 þúsund hringir á vellinum sem
var það mesta frá árinu 2014, um 5
þúsund hringjum meira en það ár.
Að meðaltali voru spilaðir 212 hring-
ir á dag yfir sumarmánuðina í fyrra.
Svipuð aðsókn var að vellinum í júní
í ár en rauk upp í júlí síðastliðnum
þegar aðsókn jókst um 20% frá í
fyrra. „Heildartölur yfir fjölda gesta
á vellinum liggja ekki fyrir strax en
við sjáum samt að þeir eru fleiri en í
fyrra og erum himinlifandi yfir því,“
segir Steindór.
Mikil gróska
Hann segir mikla grósku í gangi í
golfíþróttinni, fjölgað hafi í klúbbn-
um og barna- og unglingastarf
blómstri sem aldrei fyrr. Kylfingar
frá GA hafi náð góðum árangri í
sumar og það hafi alltaf jákvæð
áhrif. Þá nefnir hann að golfmótin
hafi slegið í gegn, á þremur mótum
sumarsins fór aðsókn yfir 200
manns, flestir voru keppendur á
miðnætursólarmótinu Arctic Open,
252 í allt, og gekk ljómandi vel upp
enda leikið langt fram eftir bjartri
nóttu. Hin mótin voru hjóna-
parakeppni Golfskálans og GA og
Höldur/Askja Open. Þá fór Íslands-
mótið í golfi fram á Jaðarsvelli, fjöl-
margir áhorfendur fylgdust með
bæði á vellinum og eins útsend-
ingum í sjónvarpi, en Steindór segir
samstarf við Golfsamband Íslands
og RÚV í þeim efnum hafa verið far-
sælt. Steindór segir að veðrið hafi
svo sannarlega leikið við kylfinga,
einstakt veður nánast í allt sumar,
hitamet slegin og varla komið dropi
úr lofti. „Völlurinn var mjög þétt
setinn, virkilega líflegt hjá okkur
alla daga, sem er mjög gaman. Það
er ánægjulegt að heyra ánægða
klúbbfélaga og gesti Jaðarsvallar
tala vel um þá frábæru aðstöðu sem í
boði er. Ég veit að margir kjósa að
nota sumarfrí sitt til að leika golf hér
og á nágrannavöllum og njóta þess
sem Akureyri hefur upp á að bjóða,“
segir hann og bætir við að nú í ár
hafi útlendingar á ný farið að sjást á
vellinum eftir hlé af völdum heims-
faraldurs í fyrra.
„Við höfum fengið þó nokkuð af
útlendingum, m.a. var hjá okkur
hópur Dana sem kom gagngert á
Norðurlandið til að spila golf á völl-
um á norðanverðu landinu.“
Eins nefnir hann að í samstarfi við
Icelandair Hotels og KEA hótel hafi
verið boðið upp á golfnámskeið fyrir
gesti og hafi þau öll selst upp, slíkur
sé áhuginn. „Það eru byrjaðar að
berast bókanir fyrir næsta ár og það
er gaman að segja frá því að Arctic
Open 2022 er nánast orðið full-
bókað,“ segir Steindór.
Metaðsókn á Jaðarsvelli
- Aðsóknarmet frá í fyrra slegið í ár - Þrjú stór golfmót
með yfir 200 þátttakendur - Útlendingar mættir til leiks
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Jaðar Steindór Ragnarsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar.
Golf Kylfingar gera sig klára til að hefja leik á Jaðarsvelli GA.