Morgunblaðið - 30.08.2021, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.08.2021, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 3 0. Á G Ú S T 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 202. tölublað . 109. árgangur . SKÓLASTARF ENDURSPEGLI SAMFÉLAGIÐ UPPRUNI VEIRUNNAR Á HULDU SETTI GLÆSILEGT ÍSLANDSMET Í KÚLUVARPI NÝ SKÝRSLA 14 BERGRÚN ÓSK 27HVERAGERÐI 10 Freyr Bjarnason Þóra Birna Ingvarsdóttir Guðni Bergsson, formaður Knatt- spyrnusambands Íslands, tilkynnti um afsögn sína í gær eftir að við- brögð sambandsins við kynferðis- brotum og ofbeldismálum voru í brennidepli alla helgina. Var það niðurstaða langra fundarhalda í stjórn KSÍ, sem efnt var til eftir að þolandi steig fram og lýsti því að landsliðsmaður hefði beitt hana ofbeldi á skemmtistað árið 2017. Sagði hún Guðna hafa vitað af mál- inu, þvert á það sem hann hélt fram í Kastljósi á fimmtudaginn. Klara Bjartmarz, framkvæmda- stjóri KSÍ, segir ljóst að sambandið hafi ekki fylgt eftir þeirri þróun sem orðið hefur í samfélaginu síð- ustu ár. „Við erum miður okkar og getum ekki annað gert en að biðj- ast afsökunar og bæta okkur.“ Stjórn KSÍ ætlar þó að sitja áfram fram að næsta ársþingi KSÍ sem haldið verður í febrúar. „Til að tryggja órofna starfsemi sambandsins þá er niðurstaða stjórnar að skynsamlegt sé að hún sitji áfram,“ segir í yfirlýsingu KSÍ. Skipta út leikmönnum Eftir að yfirlýsingin birtist staðfesti Gísli Gíslason, varafor- maður KSÍ, að tvær breytingar yrðu gerðar á A-hópi landsliðs karla fyrir næsta leik. Einn leik- maður hefur dregið sig úr hópnum og stjórn KSÍ óskaði eftir því að hinn leikmaðurinn spilaði ekki í leiknum. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru það þeir Kol- beinn Sigþórsson og Rúnar Már Sigurjónsson. Stakkaskipti innan KSÍ - Formaðurinn tilkynnti afsögn sína - Sambandið ekki í takt við þróun sam- félagsins - Tvær breytingar gerðar á A-hópi landsliðs karla fyrir næsta leik MGuðni segir af sér »4 Framtakssamir Skagamenn stóðu að kassabíla- ralli í bænum um helgina og eins og sjá má kom- ust þátttakendur á fljúgandi ferð í heimasmíð- uðu ökutækjunum sínum. Fjöldi fólks tók þátt og höfðu keppendur jafnt sem áhorfendur gaman af tiltækinu. Ljósmynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson Brunað um Akranes _ Á undan- förnum árum hefur tækni- menntuðu starfs- fólki fjölgað hratt hjá stofn- unum hins opin- bera en á sama tíma hefur orðið 7% fækkun hjá stóru verkfræði- stofunum. Reynir Sævarsson, for- maður Félags ráðgjafarverkfræð- inga, hefur áhyggjur af þessari þróun og segir að hún skaði ís- lenska verkfræðigeirann með ýms- um hætti. Vandinn kann að skýrast af rang- hugmyndum um kostnað eða sífellt flóknari umgjörð útboðaverkefna en leiða má líkum að því að inn- vistun verkfræðiþjónustu hjá hinu opinbera leiði til aukins kostnaðar og minni sveigjanleika. »12 Hið opinbera rakar til sín verkfræðingum Reynir Sævarsson Í gær lágu fjórtán sjúklingar á Landspítalanum vegna kórónuveirusmits. Sjúklingum á sjúkrahúsi fækkaði því um nærri helming á rúmri viku. Tólf liggja á bráðalegudeildum og eru sex þeirra óbólusettir. Tveir sjúklingar liggja á gjörgæslu en hvorugur er í öndunarvél. Einn lést á Landspítalanum úr Covid-19 um helgina. Þetta er 33. andlátið frá upphafi faraldursins og það þriðja í þessari fjórðu bylgju. 84 smit greindust innanlands á föstudaginn og voru 34 þeirra í sóttkví við greiningu en talsvert færri greindust á laugardaginn eða 51 og var 31 þeirra utan sóttkvíar. Þó voru talsvert fleiri sýni tekin á föstudag en laugardag. Á föstu- dag voru tekin um 4.000 sýni en að- eins 2.000 sýni á laugardaginn. Fyrir helgi var opnuð ný Covid- skimunarstöð í Kringlunni 7 en þar eru framkvæmd Covid-19-skyndi- próf sem skila niðurstöðu á aðeins 15 mínútum. Þá hóf Bónus sölu á sjálfsprófum við kórónuveirunni í gær. »4 118 smit greindust samtals um helgina _ Talíbanar hafa fullvissað 100 ríki um að allir erlendir einstaklingar og Afganar með ákveðin ferðaleyfi frá ríkjunum hundrað geti enn ferðast frá Afganistan á öruggan hátt. Það muni einnig verða hægt eftir að Bandaríkjaher yfirgefur landið á morgun. Þetta segir í yfir- lýsingu frá ríkjunum hundrað. Í gær gerði Bandaríkjaher drónaárás á bíl sem var hlaðinn sprengjuefni í Kabúl, en varað hafði verið við því fyrr um daginn að annað hryðjuverk væri í uppsigl- ingu við flugvöllinn í Kabúl. »13 AFP Þjóðarsorg Þrettán bandarískir land- gönguliðar féllu í árásinni á fimmtudag. Enn verði hægt að yfirgefa Afganistan Sjálfstæðisflokkurinn, Vinstri græn og Viðreisn kynntu öll kosninga- stefnu sína á laugardaginn, en þá hélt Sjálfstæðisflokkurinn flokks- ráðsfund sinn, en hinir tveir fjar- landsfundi. Í kosningabaráttunni fram undan munu bæði Viðreisn og Sjálfstæðis- flokkurinn hamra á tækifærum landsins og framtíð þess en slagorð þeirra eru „Gefum framtíðinni tæki- færi“ og „Land tækifæranna.“ VG vilja hins vegar leiða næstu ríkis- stjórn og leggja því upp með „Það skiptir máli hver stjórnar.“ Flokkarnir deila nokkrum stefnu- málum. Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn vilja bæði slaka á sóttvarn- araðgerðum. Vinstri græn og Við- reisn boða græna skatta en Sjálf- stæðisflokkurinn vill passa að þeir séu einungis tímabundnir og ekki settir á til að efla tekjur ríkissjóðs. Þá vilja Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri græn báðir efla grænar fjár- festingar en Vinstri græn ganga skrefinu lengra og vilja skylda lífeyr- issjóði og fjármálastofnanir til að meta fjárfestingar sínar út frá lofts- lagsáhrifum. »6 og 14 Landsfundir á laugardegi - Umhverfismál fyrirferðarmikil hjá flokkunum þremur Ljósmynd/Haraldur Thors Kosningar í nánd Bjarni Benedikts- son á flokksráðsfundinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.