Morgunblaðið - 30.08.2021, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 30.08.2021, Blaðsíða 27
Í TÓKÝÓ Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þegar horft er til verðlaunabarátt- unnar á Ólympíumóti fatlaðra í Tók- ýó, Paralympics, stóðu vonir Íslands og féllu með því hvort Má Gunnars- syni tækist að komast á verðlauna- pallinn í 100 metra baksundinu á laugardaginn. Má vantaði herslumuninn í hörku- keppni þar sem sáralítið skildi að hann og næstu menn á undan og endaði hann í 5. sæti. Íslandsmetið féll, hann synti á 1:10,36 mínútu og bætti það um 7/100 úr sekúndu, en Már hefði þurft að bæta það um 82/ 100 úr sekúndu til að komast á pall- inn. Það er ekki mikið á hundrað metrum. Biðin eftir verðlaunum verður því lengri. Jón Margeir Sverrisson komst síðastur Íslendinga í verð- launasæti á Ólympíumóti þegar hann synti til gullverðlauna árið 2012, í London, en leikarnir hér í Tókýó verða aðrir leikarnir í röð án íslenskra verðlauna. Það hefur ekki gerst áður frá því að Ísland keppti fyrst á þessum vettvangi árið 1980. En með því er ekki endilega sagt að framfarir skorti hjá fötluðu, ís- lensku íþróttafólki. Ísland var ásamt fleiri Norðurlandaþjóðum í farar- broddi á þessum vettvangi á sínum tíma. Á seinni árum hefur orðið bylt- ing í íþróttum fatlaðra á heimsvísu, þar sem leikarnir í London árið 2012 voru stór vendipunktur, eins og Kári Jónsson frjálsíþróttaþjálfari sagði frá í Morgunblaðinu í síðustu viku. Nú eru það stórþjóðirnar sem eiga bróðurpartinn af keppendunum á Ólympíumótinu. Það segir hins- vegar sitt um sterka stöðu Íslands að í nánast öllum greinum íslensku keppendanna eru þeir í félagsskap með mótherjum frá stærstu þjóð- unum, Bretlandi, Bandaríkjunum, Brasilíu, Ástralíu, Kína, Japan, Rússlandi, Úkraínu, Kanada og öðr- um af svipaðri stærð. Það eru ris- arnir og svo Ísland sem eiga fólkið í 5-10 efstu sætunum. Már keppti í þriðja sinn á mótinu í morgun, í 200 metra fjórsundi, (sjá mbl.is) og á lokagreinina eftir, 100 metra flugsund, á föstudag. Már sagði eftir baksundið að nú myndi hann njóta þess sem eftir væri af mótinu og mæta pressulaus í þessar síðari greinar sínar. Róbert Ísak Jónsson varð tíundi í 100 metra bringusundi, aukagrein sinni, í gær og var 2/100 frá Íslands- meti sínu þegar hann synti á 1:10,12. Róbert keppir í 200 metra fjórsundi á morgun og verður þar væntanlega í hörðum slag um að komast í úrslit en hann á fyrirfram níunda besta tímann af átján keppendum. Róbert virðist þurfa að stórbæta Íslands- metið til að komast langt í greininni en hann hefur sýnt á mótinu hve gríðarlegur keppnismaður hann er. Thelma Björg Björnsdóttir komst í úrslit í 100 metra bringusundi og hafnaði þar í áttunda sæti. Hún á eftir að keppa í 400 metra skriðsundi en á ekki mikla möguleika á úr- slitasæti þar. Frjálsíþróttakonan Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir hóf sinn feril á Ól- ympíumóti með miklum látum en þessi tvítuga stúlka bætti Íslands- met sitt í kúluvarpi um 47 sentí- metra í fyrsta kasti og kastaði 9,57 metra. Hún varð sjöunda í keppni átta af þeim bestu í heiminum og varð þriðja í röð Evrópubúa. Bergr- ún er nýbyrjuð að leggja áherslu á kúluvarpið og var langyngsti kepp- andinn en flestir mótherjanna voru reyndar kempur á fertugsaldri. Bergrún keppti síðan í langstökk- inu í gær en náði sér ekki fyllilega á strik og varð að sætta sig við átt- unda sætið. Hún hefði náð fimmta eða sjötta á góðum degi. Patrekur Andrés Axelsson varð sjöundi af jafnmörgum sem luku keppni í 400 metra hlaupi blindra á laugardaginn. Hann bætti Íslands- metið sitt um 22/100 úr sekúndu, hljóp á 56,73 sekúndum, og fékk dýr- mæta reynslu í keppni við bestu hlaupara heims í sínum flokki. Frjálsíþróttafólkið íslenska hefur því lokið keppni í Tókýó. _ Ítarleg umfjöllun um viðburði helgarinnar á Ólympíumóti fatlaðra er á mbl.is/sport/olympiuleikar Lengri bið eftir verðlaunum - Már var 82/100 úr sekúndu frá bronsinu og setti Íslandsmet - Bergrún með glæsilegt met í kúluvarpi - Frjálsíþróttafólkið hefur lokið keppni í Tókýó Ljósmynd/ÍF Tókýó Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir í langstökkinu á Ólympíuleikvanginum í gær en hún keppti í báðum sínum greinum á mótinu um helgina. _ Enska knattspyrnufélagið Arsenal og brasilíski vængmaðurinn Willian vinna nú að því að rifta samningi hans við félagið svo honum verði unnt að ganga til liðs við Corinthians í heimalandinu á frjálsri sölu. Willian á enn eftir tvö ár af samningi sínum við Arsenal. Hann er sagður vera með 200.000 pund í vikulaun og stæði Arsenal þannig frammi fyrir því að spara gífurlegar fjárhæðir losni það við hann af launaskrá sinni. _ Stórliðin Barcelona og Real Ma- drid fögnuðu bæði sigri í spænsku 1. deildinni í fótbolta um helgina. Dani Carvajal skoraði sigurmark Real í 1:0-útisigri á Real Betis á laugardag- inn. Hollendingurinn Memphis Depay sá um að skora sigurmark Barcelona í 2:1-heimasigri á Getafe. Sergi Ro- berto skoraði fyrra mark Barcelona og Carles Alena gerði mark Getafe er hann jafnaði í 1:1. Real og Barcelona eru með sjö stig eftir þrjá leiki. _ Suðurkóreski framherjinn Hwang Hee-Chan er genginn til liðs við enska knattspyrnufélagið Wolver- hampton Wanderers. Hann kemur frá þýska félaginu RB Leipzig og gerir eins árs lánssamning. Hwang, sem er 25 ára gamall, gekk illa hjá Leipzig á síðasta tímabili og náði ekki að skora eitt einasta deildarmark eftir að hafa slegið í gegn með venslafélagi Leip- zig, Red Bull Salzburg í Austurríki. _ Haraldur Franklín Magnús, at- vinnukylfingur úr GR, hafnaði í öðru sæti í B-NL Challenge- mótinu í Spijk í Hollandi, sem er hluti af Áskor- endamótaröð- inni, eftir að hafa keppt við þrjá aðra kylf- inga í bráðabana í gær. Haraldur lék best þeirra fjögurra kylfinga sem end- uðu jafnir í efsta sæti á lokahringnum á samtals ellefu höggum undir pari. Haraldur varð að sætta sig við að falla úr leik á þriðju holu í bráðabana, en ár- angurinn er sá besti hjá Haraldi á mótaröðinni. Birgir Leifur Hafþórsson er eini íslenski kylfingurinn sem hefur náð að vinna mót í Áskorenda- mótaröðinni en það gerði hann í Frakklandi haustið 2017. _ Lionel Messi lék sinn fyrsta leik fyrir París SG er hann kom inn á sem varamaður á 66. mínútu í 2:0-útisigrinum á Reims í frönsku 1. deildinni í fótbolta í gær- kvöldi. Leikurinn er sá fyrsti sem Messi leikur fyrir annað félagslið en Barcelona, en þar hafði hann verið all- an ferilinn þar til hann samdi við PSG í sumar. Kylian Mbappé gerði bæði mörk Parísarliðsins. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2021 KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Sauðárkrókur: Tindastóll – Keflavík....... 18 Hásteinsvöllur: ÍBV – Stjarnan ............... 18 Würth-völlur: Fylkir – Þróttur R ....... 19.15 1. deild kvenna, Lengjudeildin: Norðurálsvöllur: ÍA – HK ........................ 18 Í KVÖLD! Evrópudeild karla 1. umferð, fyrri leikir: Celje – GOG .......................................... 33:29 - Viktor Gísli Hallgrímsson var allan tím- ann á bekknum hjá GOG. RN Löwen – Spor Toto ....................... 38:22 - Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir Lö- wen. Spor Toto – RN Löwen ....................... 22:42 - Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir Lö- wen. Austurríki Alpla Hard – Toulouse........................ 23:27 - Hannes Jón Jónsson þjálfar Alpla Hard. Svíþjóð Bikarkeppnin, riðlakeppni: Tumba – Skövde .................................. 29:35 - Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 2 mörk fyrir Skövde. Boden – Guif......................................... 29:31 - Aron Dagur Pálsson skoraði 1 mark fyr- ir Guif en Daníel Freyr Ágústsson var ekki í hópnum. Anderstorp – Kristianstad ................. 24:34 - Teitur Örn Einarsson skoraði 8 mörk fyrir Kristianstad. Kristianstad – Skövde......................... 32:27 - Andrea Jacobsen skoraði 2 mörk fyrir Kristianstad. Lugi – Drott.......................................... 40:28 - Ásdís Þóra Ágústsdóttir lék ekki með Lugi vegna meiðsla. .$0-!)49, England Brighton – Everton ................................. 0:2 - Gylfi Þór Sigurðsson var settur í leyfi hjá Everton. Manchester City – Arsenal..................... 5:0 - Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leik- mannahópi Arsenal. Burnley – Leeds....................................... 1:1 - Jóhann Berg Guðmundsson lék fyrstu 63 mínúturnar hjá Burnley. Aston Villa – Brentford .......................... 1:1 - Patrik Sigurður Gunnarsson var ekki í leikmannahópi Brentford. West Ham – Crystal Palace .................... 2:2 Norwich – Leicester................................. 1:2 Newcastle – Southampton....................... 2:2 Tottenham – Watford .............................. 1:0 Wolves – Manchester United.................. 0:1 C-deild: Morecambe – Sheffield Wed. ................. 1:0 - Jökull Andrésson lék allan leikinn með Morecambe. Þýskaland Bayern München – Werder Bremen ..... 8:0 - Glódís Perla Viggósdóttir kom inn á sem varamaður á 62. mínútu hjá Bayern. Karó- lína Lea Vilhjálmsdóttir var ekki í hópnum. Eintracht Frankfurt – Sand................... 2:1 - Alexandra Jóhannsdóttir kom inn á sem varamaður á 77. mínútu hjá Frankfurt. B-deild: Schalke – Düsseldorf .............................. 3:1 - Guðlaugur Victor Pálsson lék fyrstu 86 mínúturnar hjá Schalke og var fyrirliði. Ítalía B-deild: Lecce – Como ........................................... 1:1 - Þórir Jóhann Helgason lék fyrstu 87 mínúturnar með Lecce en Brynjar Ingi Bjarnason var allan tímann á bekknum. SPAL – Pordenone.................................. 5:0 - Mikael Egill Ellertsson kom inn á sem varamaður á 65. mínútu hjá SPAL. Rúmenía CFR Cluj – FCSB ..................................... 4:1 - Rúnar Már Sigurjónsson lék fyrstu 78 mínúturnar með Cluj og skoraði. Danmörk AGF – OB.................................................. 2:2 - Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 70 mínúturnar með AGF. - Aron Elís Þrándarson lék fyrstu 78 mín- úturnar með OB. SönderjyskE – Viborg ............................ 2:2 - Kristófer Ingi Kristinsson lék fyrstu 65 mínúturnar með SönderjyskE Silkeborg – Randers................................ 2:1 - Stefán Teitur Þórðarson lék fyrstu 54 mínúturnar hjá Silkeborg og lagði upp tvö mörk. Bröndby – AGF ........................................ 2:2 - Barbára Sól Gísladóttir lék allan leikinn með Bröndby. Bandaríkin New York City – New England ............. 2:0 - Guðmundur Þórarinsson lék fyrstu 87 mínúturnar með New York. - Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 58 mínúturnar með New England. KNATTSPYRNA Raphael Varane hafði í nógu að snú- ast er hann þreytti frumraun sína með Manchester United í ensku úr- valsdeildinni í knattspyrnu í gær. United vann torsóttan 1:0-útisigur gegn Wolves og var franski varnar- maðurinn í lykilhlutverki. Varane, sem gekk til liðs við United frá spænska stórliðinu Real Madríd í sumar, var yfirvegaður og öflugur í varnarlínunni er heimamenn press- uðu stíft og fengu urmul færa til að komast í forystu. Frakkinn lagði svo upp sigurmarkið, renndi boltanum á Mason Greenwood sem skoraði um tíu mínútum fyrir leikslok. Með sigr- inum er United nú með sjö stig eftir fyrstu þrjá leiki sína. Næst fær liðið Newcastle í heimsókn á Old Traf- ford eftir landsleikjahlé. Fullt hús stiga Tottenham hélt sigurgöngu sinni áfram í gær með 1:0-sigri á heima- velli gegn Watford. Harry Kane var í byrjunarliði Tottenham í fyrsta sinn eftir að hafa verið orðaður við Manchester City í sumar en Suður- Kóreumaðurinn Heung-Min Son skoraði sigurmark heimamanna sem hafa unnið alla þrjá deildarleiki sína. Þá var Jóhann Berg Guðmunds- son í byrjunarliði Burnley sem mátti sætta sig við 1:1-jafntefli gegn Leeds á heimavelli. Chris Wood kom Burnley yfir á 61. mínútu en Jóhann Berg var tekinn af velli tveimur mín- útum síðar. Patrick Bamford skoraði svo jöfnunarmark fyrir gestina um fjórum mínútum fyrir leikslok. AFP Frumraun Raphael Varane fagnar sigurmarkinu með liðsfélögum sínum. Varane öflugur í fyrsta leik - Tottenham eina liðið með fullt hús

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.