Morgunblaðið - 30.08.2021, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 30.08.2021, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2021 Blautfóður. Fullt af blautfóðri. Fyrir hunda og ketti. Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes www.gaeludyr.is „AFGANGARNIR YKKAR VERÐA TILBÚNIR EFTIR SMÁSTUND.“ „ÞEGAR ÉG VAR Á ÞÍNUM ALDRI GAT ÉG HLAUPIÐ HUNDRAÐ METRANA Á 12 MÍNÚTUM SLÉTTUM!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að láta kirkjuklukkurnar hringja. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÁTTU EINHVERNOST? ÉG SKAL GÁ NEIBB KVUUURRR… ÉG KEM RÉTT BRÁÐUM HRÓLFUR! ÉG ER BARA AÐ SETJA PENINGANA MÍNA Í SPARIGRÍSINN! SPARIGRÍSINN! EN HALLÆRISLEGT! HVAÐ? ÉG HEYRÐI EKKI HVAÐ ÞÚ SAGÐIR! EKKERT! riddarakrossi af Haraldi 6. Noregs- konungi fyrir ritstörf. Í fyrra þegar hann gaf út bókina Maðurinn frá miðöldum, hlaut hún verðlaun sem besta fræðibók Noregs árið 2020. Í haust kemur út skáldsagan Kol- beinsey. „Kolbeinsey er djúpsál- fræðileg stúdía um mannssálina og þar nota ég gömul skáldskapartæki eins og metamorfósuna sem er alltof lítið notuð í þeim veruleikalitteratúr sem hefur svolítið tekið yfir sviðið. Í bókinni er ég að reyna að búa til mynd af mannssálinni.“ Kolbeinsey kemur einnig út í Noregi. Bergsveinn er búinn að vera mest- megnis á Íslandi síðan Covid-bylgjan skall á þó enn sé hann búsettur í Noregi. Fyrir afmælið var hann á leiðinni norður á Strandir að gera upp hlöðu afa síns. „Heimspeking- arnir segja að maður eigi að hlúa að eigin garði. Ég sagði vinum og kunn- ingjum að ég vildi ekki halda veislu eða fá gjafir en þeir mættu endilega koma og hjálpa mér við smíðarnar í smá tíma.“ Það er aldrei að vita nema hægt verði að fara þar á hlöðuball, hlusta á fyrirlestur eða sækja nám- skeið þegar fram líða stundir. Fjölskylda Unnusta Bergsveins er Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leikkona, f. 2.7. 1969. Bergsveinn á dæturnar Sunn- evu, f. 7.11. 2001 og Emblu, f. 25.11. 2005, með fyrrverandi eiginkonu sinni, Helle Thune. Systkini Berg- sveins eru Bergdís Aðalheiður Krist- jánsdóttir, Ragnheiður Eva Birgis- dóttir, Hekla Birgisdóttir, Guðjón Steingrímur Birgisson og Þurý Bára Birgisdóttir. Foreldrar hans eru Birgir Guð- jónsson, skipstjóri, f. 27.7. 1940, og Ingibjörg Magnea Magnúsdóttir, húsmóðir, f. 30.3. 1938. Þau búa í Kópavogi. Bergsveinn Birgisson Kristín Sigríður Jónsdóttir húsfreyja, Strandasýslu Sigurgrímur Sæmundur Guðbrandsson bóndi, StrandasýsluVilhelmína Pálína Sæmundsdóttir húsfreyja, Strandasýslu Guðjón Guðmundsson bóndi og útgerðarmaður, Strandasýslu Birgir Guðjónsson skipstjóri, Kópavogi Ragnheiður Halldórsdóttir húsfreyja, Dalasýslu og Ströndum Guðmundur Guðmundsson skipsformaður og bóndi, Strandasýslu Gróa Einarsdóttir húsfreyja, Strandasýslu Loftur Bjarnason bóndi, Strandasýslu Aðalheiður Loftsdóttir húsfreyja, Strandasýsu Magnús Sigvaldi Guðjónsson bóndi, Strandasýslu Ingibjörg Þórólfsdóttir húsfreyja, Dalasýslu og Ströndum Guðjón Sigurðsson bóndi, Dalasýslu og Ströndum Úr frændgarði Bergsveins Birgissonar Ingibjörg Magnea Magnúsdóttir húsmóðir, Kópavogur Ámiðvikudaginn skrifaði Indriði á Skjaldfönn á fésbók: LÁN Í ÓLÁNI. BANKASTJÓRINN ER BJARTSÝNN UM FLEST OG BOÐAR AÐ HLAUPI Á SNÆRI, ÞVÍ LOKSINS FENGUM VIÐ FRÁBÆRA PEST SEM FÆRIR OSS TÆKIFÆRI. ÞESSUM FAGNAÐARBOÐSKAP ER AUÐVITAÐ SKYLT AÐ DEILA. Helgi R. Einarsson lét þessar limrur fylgja lausn sinni á laug- ardagsgátunni með athugasemdinni „hnútukast í aðdraganda kosninga“: Illkvittni Miðflokkur í meinum minnir á gat í kleinum. Á borðið fer en bragðlaust er því nýtist varla neinum. Ein rómantísk Að vakna og vera í standi meðal vina í okkar landi af öðru ber, þó best virðist mér vera hamingja’ í hjónabandi. Gunnar Hólm Hjálmarsson skrif- aði á Boðnarmjöð á fimmtudag: „Stefna Miðflokksins fyrir kosning- arnar í haust var kynnt í 10 liðum í gær“: Valt er þeirra vinarþel sem vilja aðra pretta. Auðvitað þau vita vel að varla gengur þetta. Ég legg alltaf við hlustir þegar Sigurlín Hermannsdóttir lætur í sér heyra. Á fimmtudag spurði hún: „Er ekki eitthvað eftir af sumrinu ennþá?“ Handan sumars haustið býr húmið fyllir allar nætur rigningin á rúður knýr rokið heyra í sér lætur. Til suðurlanda söngfugl snýr sólin tregari á fætur. Handan sumars haustið býr við hornið vetur festir rætur. Kristján H. Theodórsson skrifaði á þriðjudag: „Gunnar Hólm Hjálm- arsson var að guma af uppáferðum á fjöll. Rifjaði það upp fyrir mér framtaksleysi mitt við það fjallið sem ég nánast fæddist undir og hef haft sem nágranna allt mitt líf“: Reyndist lífið löngum slór, leitt er því að una. Í Eyjafirði aldrei fór, uppá Kerlinguna. Gömul vísa í lokin: Á svellum vindi sigla ber, en sel ei hug þinn ungri frú. Rasta löður einatt er óhultara en kvenna trú. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Smávegis héðan og þaðan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.