Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.08.2021, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.8. 2021
HEIMSMINJASKRÁ
BRASILÍA Vestur af Ríó de Janeiro í Brasilíu er garður, sem arkitektinn og
listamaðurinn Roberto Burle Marx, sem var uppi 1909 til 1994, bjó til og þró-
aði á 40 árum. Hugðist hann búa til „lifandi listaverk“ og „landslagsrannsókn-
arstofu“ með plöntum af staðnum á grundvelli hugmynda módernista. Hann
hófst handa árið 1949 og hafði starf hans áhrif á þróun nútímagarða um allan
heim, að því er segir í rökstuðningi UNESCO fyrir að setja verk Marx á heims-
minjaskrá. Garðinn einkenna flæðandi form, ofgnótt gróðurs, arkitektónísk
garðahönnun, dramatískar andstæður í litum, notkun hitabeltisplantna og áhrif
hefðbundinnar þjóðmenningar. Nú er að finna í garðinum ótrúlega fjölbreytt
safn plantna. Þetta er fyrsti nútímahitabeltisgarðurinn, sem fer á heimsminja-
skrá. Á myndunum má sjá stúdíó arkitektsins umvafið gróðri og safn listmuna,
sem þar er að finna innan dyra.