Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.08.2021, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.08.2021, Side 32
SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 2021 Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími 554 6969 lur@lur.is • lur.is Verið velkomin í heimsókn Mikið úrval hvíldarstóla fyrir alla Hvíldin byrjar í LÚR LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL Breski sundmaðurinn Adam Peaty mun skipta út sundgleraug- unum fyrir dansskó á næstunni þegar hann tekur þátt í bresku þáttunum Strictly Come Dancing. Peaty vann tvö gull á Ólympíu- leikunum í Tókýó á dögunum, í 100 metra bringusundi og 4x100 metra fjórsundi með blandaðri boðsundsveit Stóra-Bretlands. „Ég er ekki sá mýksti á landi,“ sagði Peaty í útvarpsþætti BBC. „En hafandi sagt það þá er ég íþróttamaður. Ég er vanur því að leggja hart að mér. Það er í blóði mínu.“ Peaty fetar þar með í fótspor landa síns sem einnig vann gull á leikunum í Tókýó í sundlauginni, eða öllu heldur fyrir ofan laugina með því að vekja á sér athygli fyrir annað en gullmedalíurnar. Tom Daley vann gull í samhæfðum dýfingum af 10 metra palli en sló í gegn á áhorfendapöllunum í Tókýó er hann prjónaði á meðan hann fylgdist með öðrum keppendum í loftinu. AFP Færir sig yfir á dansgólfið Daley við prjónastörfin í stúkunni í Tókýó. AFP Adam Peaty tók með sér tvö gull frá Tókýó en ætlar nú að láta reyna á dans. Adam Peaty hvílir sundið á meðan hann tekur dansinn fyrir í raunveruleikaþáttunum Strictly Come Dancing. Rottur voru farnar að láta á sér kræla í Reykjavík þegar vetur gekk í garð árið 1921 að því er fram kom í Morgunblaðinu 23. október það ár, og það þótt eitrað hefði verið árið áður. „Enda er það kunnugt að eigi dugir að eitra aðeins einu sinni, heldur þarf stöðugt eftirlit og ávalt að eitra á ný, þar sem rottu verður vart,“ sagði í blaðinu. „En hér í bænum hefir þessa eigi verið gætt sem skyldi, og þarf þar batnaðar við.“ Í fréttinni er farið yfir árang- ur af eitruninni árið áður í Reykjavík og víðar. Sérlega góð- ur árangur hefði náðst á Ak- ureyri og Sauðárkróki. „Hefir reynsla sú sem fengin er þannig orðið til þess að ýta undir kaupstaðina úti á landinu, og er það vel farið, því vit- anlega er kostnaðurinn við eitr- unina hverfandi hjá því verð- mæti, sem rotturnar skemma. En vitanlega er það ekki hyggi- legt, að vanrækja að hafa eftirlit með útbreiðslu rottunnar eftir eitranirnar; hún eykur fljótt kyn sitt á ný alstaðar þar sem henn- ar verður vart. Og skipunum þarf að veita sérstaka athygli.“ GAMLA FRÉTTIN Rottur í Reykjavík Rotta á gangstétt í Reykjavík einhverju eftir að fréttin var skrifuð um nauð- syn þess að eitra reglulega til að halda þessum vágesti í skefjum. Morgunblaðið/Arnaldur ÞRÍFARAR VIKUNNAR Noomi Rapace, leikkona. Guðrún Gísladóttir, leikkona. Dísa Anderiman, tölvunarfræðingur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.