Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.08.2021, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.8. 2021
MENNTUN
Þ
essi pistill fer í gegnum nokkr-
ar áskoranir í sambandi við ís-
lenskt menntakerfi með aðal-
áherslu á grunnskólann.
Fjallað er um nokkrar mikilvægar
kenningar sem tengjast þessum
áskorunum sem á sama tíma geta
tengst möguleikum á hvaða aðgerðir
ætti að grípa til. Þær aðgerðir, eða
verkefni, köllum við Kveikjum neist-
ann! Verkefnið hefst í Vest-
mannaeyjum 17. ágúst nk. Verkefnið
sem er 10 ára þróunar- og rannsókn-
arverkefni með heildstæða nálgun á
skólastarfið, er stutt af
Vestmannaeyjabæ, mennta-
málaráðuneyti, Háskóla Íslands og
Samtökum atvinnulífsins. Háskóli Ís-
lands og SA hafa stofnað Rannsókn-
arsetrið Menntun og hugarfar með
aðsetur við menntvísindasvið. Setrið
ber ábyrgð á verkefninu.
ÁSKORANIR
40% af 3 ára börnum eru í áhættu-
hópi hvað málþroska og orðaforða
varðar samkvæmt tölum frá leik-
skólum í Hafnarfirði á tímabilinu
2015-2020. Til samanburðar voru árið
1998 16% í áhættuhópi.
39% af börnum eru ekki full læs,
eða geta ekki lesið sér til gagns eftir
2. bekk í Reykjavík árið 2019. Árið
2002 var þessi tala 33% og hefur því
hækkað um 6%.
Ef lestrarfærni er skoðuð má sjá
að 34% drengja og 19% stúlkna 15
ára geta ekki lesið sér til gagns, því
þau skilja ekki þann texta sem þau
lesa. Bæði kynin hafa farið 34 stig
niður frá árinu 2000. Það hefur verið
stöðugur 40 stiga munur á kynjunum
á tímabilinu 2000 til 2018. PISA-
könnunin hófst árið 2000. Árið 2018
voru 26% sem ekki náðu hæfniþrepi 2
sem er grunnhæfni, en voru 15% árið
2000. Sú staðreynd að bæði 15 ára
unglingar eiga í erfiðleikum með les-
skilning og að þriggja ára börn eigi í
erfiðleikum með almennan mál-
þroska boðar ekki bjartari tíma, því
miður.
Bæði drengjum og stúlkum hefur
farið mikið aftur í stærðfræði frá
árinu 2003, eða úr 515 stigum í 495
stig. Árið 2018 voru 21% sem ekki
náðu viðmiði 2 en voru 13% árið 2003.
Í náttúrufræði er sama staða og í
stærðfræði og hefur hæfni farið mik-
ið niður á við frá árinu 2006, eða úr
491 í 475 stig. 2018 voru 16% sem
ekki náðu hæfniþrepi 2 en voru 25%
árið 2018.
Ísland skoraði lægst af OECD-
löndum í félagsfærni árið 2020.
Kannanir sýna að fleiri unglingar
glíma við kvíða, þunglyndi og stress
og geta þar samfélagsmiðlar spilað
stórt hlutverk. Ungmenni eru stöð-
ugt að bera sig saman við aðra hvað
varðar útlit og klæðnað og aðra þætti
sem getur valdið því að áskoranir
verða of stórar.
Lyfjanotkun hefur aukist, en bæði
notkun á ADHD-lyfjum og kvíðastill-
andi lyfjum hefur aukist gífurlega
síðasta áratug. Árið 2010 tóku 8,3%
drengja og 2,8% stúlkna ADHD-lyf
og árið 2019 tóku 15% drengja og 7%
stúlkna ADHD-lyf. Árið 2017 tóku
21% íslenskra drengja 10-14 ára
tauga- og geðlyf, til samanburðar
tóku 9% sænskra drengja á sama
aldri slík lyf. 14% íslenskra stúlkna á
sama aldri tóku tauga- og geðlyf en
7% sænskra stúlkna.
Mikið brottfall er úr framhalds-
skólum, þá mest hjá drengjum (32%)
en einnig stúlkum (22%) en þó allra
mest hjá innflytjendum (62%).
30/70% kynjahlutfall er við Há-
skóla Íslands sem er stærsta kynja-
hlutfall sem er mælt í OECD-ríkjum.
Við mælum leshraða þrátt fyrir að
leshraði sé ekki í lestrarfærnisjöfn-
unni (lestrarfærni=umskráning x
málskilningur) og fremstu fræði-
menn heims á sviði lestrarkennslu
byrjenda, Heikki Lyytinen og Kate
Nation styðja það ekki. Einnig eru
viðmiðin þannig gerð að börn og ung-
lingar eiga erfitt með að ná þeim. Að
vera stöðugt minntur á að þú sért
ekki nógu góður veldur mjög líklega
kvíða og leiða á því sviði sem það
tengist.
Við erum með samræmt stærð-
fræðipróf í 4. bekk fullt af lesskiln-
ingsverkefnum, þegar margir eru illa
læsir með slakan málskilning. Einnig
byrjum við of snemma á að nota
orðadæmi í stærðfræði, eða strax í 1.
bekk, þegar má reikna með að yfir
50% barna séu ekki læs.
VÍSINDI
Gilbert Gottlieb sýndi með sinni
virtu kenningu að það er alltaf sam-
spil milli gena, taugakerfis, atferlis
og umhverfis í þróun hvers einstak-
lings. Það eina sem við sem foreldrar,
kennarar og þjálfarar getum gert er
að skapa örvandi og ögrandi um-
hverfi fyrir börn og unglinga og
hjálpa þeim að finna sín áhugasvið og
styðja námsferlið.
Edelman segir að með þjálfun
byggjum við upp tauganet það sem
oft kallast „deep learning“ eða djúp
þekking (e. plasticity). Sú færni og
þekking sem við sköpum hefur sýnt
sig að vera gífurlega sérhæfð eins og
við segjum: „Það sem er þjálfað
þróast,“ (What is trained develops).
Fókus opnar dyrnar að öllu námi.
Það þarf fókus til að afla upplýsinga
og það þarf fókus til að koma frá sér
upplýsingum.
Ericsson er mjög þekktur fyrir
sína kenningu sem kallast markviss
þjálfun (deliberate practice). Þar er
unnið með klár afmörkuð markmið
sem eru mælanleg. Þar er gífurlega
mikilvægt að hafa réttar áskoranir og
eftirfylgni, þar sem staða einstak-
lingsins er skoðuð og ný markmið
sett. Mentor, þjálfari eða kennari er í
lykilhlutverki með að setja markmið
og viðhafa eftirfylgni. Mikilvægasta
við kenningu Ericsson er að allir geti
bætt sína færni og þekkingu með
markvissri þjálfun.
Csikszentmihalyi kom með sína
kenningu 1975 sem kallast flæði eða
„flow“. Lykill kenningarinnar er sá
að til að komast í flæði þá þarf að vera
rétt samband milli áskorana og
færni. Þegar maður kemst í flæði þá á
nám sér stað og maður öðlast „mast-
ery“. Jákvæð styrking er einnig mjög
mikilvæg í kenningu Csikszentmi-
halyi. Hann sem fræðimaður er með
yfir 120.000 tilvitnanir, það er að
segja vísindagreinar sem vitna í
hann, sem sýnir mikilvægi kenning-
arinnar.
Rannsóknir okkar, minnar (Sig-
mundsson) og fræðimannanna
Dweck og Duckworth hafa sýnt að
lykilþættir í hugarfari til þess að ná
árangri tengjast ástríðu, þrautseigju
og gróskuhugarfari. Menn skora
hærra í ástríðu, það er að segja sterk-
um áhuga fyrir sviði eða þema, en
konur skora hærra í þrautseigju sem
tengist sterkt sjálfsaga og samvisku-
semi. Menn hafa hátt samband milli
ástríðu og þrautseigju en konur hátt
samband milli þrautseigju og grósku-
hugarfars. Þetta samspil breytist
með auknum aldri samkvæmt okkar
rannsóknum.
MÖGULEIKAR
Efla fókus með:
Styttri tíma í kennslustundum, eða
hámark 40 mínútur og svo 10 mín-
útna frímínútur.
Hreyfistund alla daga vikunnar.
Tveir íþróttatímar, einn sundtími og
tveir tímar með alhliða hreyfingu (72
extra 40 mín. tímar í hreyfingu á
hverju skólaári). Hreyfing er jákvæð
fyrir hreyfifærni, hreysti, vellíðan, fé-
lagsfærni og einbeitingu.
Það að hafa ástríðutíma í lok skóla-
dagsins gefur börnum möguleika á að
fá að velja viðfangsefni sem þau hafa
áhuga á sem hefur jákvæð áhrif á líð-
an gegnum aukið flæði, aukna ástríðu
og aukna þrautseigju. Dæmi um slík
áhugasvið gætu verið skapandi grein-
ar eins og tónlist, myndlist, leiklist,
dans og skák.
Efla nám með:
Áskorun miðað við færni er lykill
númer eitt. Börn fá alltaf áskoranir
sem passa við þeirra færni. Lykill til
að komast í flæði og til að öðlast
„mastery“. Það þýðir til dæmis að
leshraðamælingar eru ekki notaðar
en þær geta komið börnum úr flæði,
og orðadæmi í stærðfræði eru ekki
notuð fyrr en börn hafa öðlast góðan
mál- og lesskilning.
Forgangsraða ætti kennslustund-
um, eins og að hafa fyrir hádegi lest-
ur og íslensku (markmið 80-90% full-
æs eftir 2 bekk), stærðfræði,
náttúrufræði þar sem mikil áhersla
verður á markvissa þjálfun í anda
fræðimannsins Ericsson. Skapandi
greinar eiga að vera eftir hádegi þar
sem börnum gefst meira val og sér-
hæfing.
Þjálfunartíminn á að vera strax
eftir hádegi, en í þjálfunartímanum fá
allir fá áskoranir miðað við færni –
fyrstu tvö árin er höfuðáhersla á lest-
ur en læsi er lykilinn að öllum öðrum
lyklum náms og menntunar.
Þörf er á betri eftirfylgni, það er að
segja við verðum að vita hvar hvert
barn stendur miðað við það sem er
markmið námskeiðsins: Ferlið er
þannig: stöðumat – markmið – þjálf-
un – stöðumat – ný markmið – þjálf-
un.
Gefa þarf jákvæða styrkingu við
ferlið, sem sagt styðja barnið/ung-
linginn þegar það/hann vinnur vel og
er með fókus á verkefni.
Þróa þarf stöðumatspróf í lestri,
það er að segja leskilningspróf frá 1.
til 10. bekkjar.
Þróa þarf stöðumatspróf í stærð-
fræði og náttúrufræði frá 1. til 10.
bekkjar. Frá og með öðrum bekk 30
atriði (20 frá öðrum bekk, 5 frá 1.
bekk og 5 frá 3. bekk).
Efla áhuga með að:
Vinna verkefni sem tengjast
áhugasviði. Lesa texta og bækur sem
vekja áhuga barna og unglinga.
Skrifa texta um viðfangsefni sem
fangar áhugann.
Vinna verkefni í öðrum fögum þar
sem áhugasvið stjórnar vali.
Lykilatriði er að kveikja neistann!
Hermundur er prófessor við Norska
tækni- og vísindaháskólann í Þrándheimi
og við Menntun og hugarfar rannsókn-
arsetur við Háskóla Íslands.
Svava Þ. Hjaltalín er grunnskólakennari
og verkefnastjóri við Menntun og
hugarfar rannsóknarsetur við Háskóla
Íslands.
Kveikjum neistann!
Vísindi og samfélag
Hermundur Sigmundsson hermundur@hi.is
Svava Þ. Hjaltalín
40% af þriggja ára börnum eru í áhættu-
hópi hvað málþroska og orðaforða varðar
samkvæmt tölum frá leikskólum í Hafnar-
firði á tímabilinu 2015-2020. Til saman-
burðar voru árið 1998 16% í áhættuhópi.
Morgunblaðið/Hari
Lykill 1: Læsi: "best practice".
Markmið 80-90% læsir eftir 2.
bekk. Notum „bókstaf-hljóða
aðferð/hljóðaaðferð“. Þegar
læsi er náð finna áskoranir
miðað við færni. Mikilvægt
lestur margra bóka, skrifa
teksta/skapandi skrif og
munnleg framsögn.
Lykill 2: Náttúrufræði/
stærðfræði. Klár markmið
frá 1-10 bekk og stöðumat/
mælingar/próf til að bæta eft-
irfylgni.
Lykill 3: Hugarfar. Ástríða,
þrautseigja, gróskuhugarfar
og tilgangur. Vinna markvisst
frá 1 bekk með þessa þætti.
Lykill 4: Efla hreyfingu. Já-
kvæð áhrif á ró/einbeitingu/
sjálfsmynd/vellíðan/hreyfi-
færni/hreysti.
Lykill 5: Þjálfunartíminn. Allir
fá áskoranir miðað við færni í
grunnfögum. Efla færni/
þekkingu.
Lykill 6: Ástríðutíminn. Nem-
endur fá meiri skapandi fög:
tónlist/raftónlist, myndlist,
dans/leiklist/framsögn, skák.
LYKLAR
VERKEFNISINS