Morgunblaðið - 08.09.2021, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 8. S E P T E M B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 210. tölublað . 109. árgangur .
SÓKNDJARFIR
ÞJÓÐVERJAR
Í HEIMSÓKN
BLÓMASKEIÐ
HAFIÐ Í
ÁLIÐNAÐI
SANNFÆRANDI
HEILDARMYND
EYDÍSAR BLÖNDAL
VIÐSKIPTAMOGGINN dddde 25STÓRLEIKUR Í KVÖLD 22
meira í samstarfi við Samfylkingu ef
út í það væri farið. Henni detti hins
vegar ekki í hug að kenna samstarfs-
flokkunum um það. „Það er á okkar
ábyrgð.“
Á hinn bóginn er hún vongóð um
Andrés Magnússon
Stefán Einar Stefánsson
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra segir að ríkisstjórnarsam-
starfið hafi gengið vel, jafnvel betur
en flestir hafi þorað að vona, og virð-
ist opin fyrir áframhaldandi stjórn-
arsamstarfi, þótt hún ítreki að flokk-
urinn gangi óbundinn til kosninga.
„Það væri í meira lagi einkenni-
legt ef við ræddum ekki saman – ef
við höldum meirihluta – hvort það
væri flötur að halda áfram,“ segir
Katrín í formannaviðtali í Dagmál-
um Morgunblaðsins í dag, en út-
dráttur úr því er birtur í blaðinu í
dag.
Katrín gefur lítið fyrir gagn-
rýnisraddir um að flokkur hennar
hafi tapað á samstarfi við Sjálf-
stæðisflokkinn, hann hafi tapað
góðan árangur í kosningum, ríkis-
stjórnin hafi notið góðs stuðnings og
hún vonast til þess að kjósendur meti
það við flokkinn, sem leiddi hana.
Hún telur að góður árangur í bar-
áttu við heimsfaraldurinn hafi þar
eitthvað að segja, en jafnframt minn-
ir hún á að Vinstri grænum hafi einn-
ig orðið málefnalega ágengt í ríkis-
stjórnarsamstarfinu. Við erum í
pólitík til að hafa áhrif.“
Katrín segir að erindi flokks síns á
næsta kjörtímabili, komist hann í
ríkisstjórn, verði hið sama og vel-
flestra annarra flokka, að byggja á
þeim árangri, sem náðst hafi, og
koma hagkerfinu á flug aftur. „Þann-
ig að við séum að fá betra hagkerfi út
úr þessari kreppu en það sem fór inn
í hana.“
Skrýtið ef stjórnarflokk-
arnir ræddu ekki saman
- Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í viðtali við Dagmál
Morgunblaðið/Eggert
Dagmál Katrín Jakobsdóttir for-
maður Vinstri grænna í viðtali.
MStóreignaskattur ekki… »6
„Við erum að fara núna í afrétt núna á föstu-
dag að öllu óbreyttu. Mér sýnist að það verði
bara allt í lagi upp á vatnið að gera. Við tök-
um því sem að höndum ber,“ segir Sæmundur
Oddsteinsson, bóndi í Múla, sem í gær tók
stöðuna á Skaftárhlaupi við gömlu brúna yfir
Eldvatn. Áfram er búist við því að hlaupið nái
hámarksrennsli við þjóðveginn í dag.
ró okkar bændanna hér,“ segir hann og
kveðst ekki hafa áhyggjur af því að nýja brú-
in gefi sig. „Þær eru þá tvær hérna, það væri
sérstakt ef þær fara báðar.“ »4
Sæmundur segir að meira þurfi til en hlaup
sem þetta svo hann missi svefn. „Þetta er
ekki helmingur af því sem talað var um í upp-
hafi svo það sleppur allt. Það raskar ekkert
Morgunblaðið/Eggert
Skaftárhlaup raskar ekki ró bændanna
Þóroddur Bjarnason
thoroddur@mbl.is
98% stjórnenda iðnfyrirtækja vilja
að næsta ríkisstjórn leggi mikla
áherslu á stöðugleika í starfsum-
hverfi fyrirtækja, 89% segja það
skipta miklu máli fyrir rekstur
þeirra fyrirtækja að næsta ríkis-
stjórn lækki tryggingagjaldið og
83% að miklu máli skipti að einfalda
laga- og reglugerðarumhverfi fyrir-
tækja.
Þetta kemur fram í könnun Out-
come fyrir Samtök iðnaðarins meðal
stjórnenda íslenskra iðnfyrirtækja.
Sigurður Hannesson, framkvæmda-
stjóri Samtaka iðnaðarins, segir að
niðurstöður könnunarinnar komi
kannski ekki mjög á óvart en séu
staðfesting á því sem lengi hefur ver-
ið talað um. „Það er þrennt sem horft
er á. Í fyrsta lagi nefna nær allir
stjórnendur iðnfyrirtækja mikilvægi
stöðugleikans. Við höfum til dæmis
talað mikið fyrir því að opinber fjár-
mál og peningamál séu samstillt og
notuð til að jafna út sveiflur. Það hef-
ur orðið talsverð breyting á því á síð-
ustu árum til hins betra. Hagstjórnin
er orðin agaðri en hún var, en það
þarf sífellt að vera á vaktinni og nú
getur orðið breyting á eftir kosning-
ar.“
Annað atriðið sem er ofarlega í
huga stjórnenda er tryggingagjald-
ið. Þriðja atriðið var einföldun reglu-
verks sem 83% svarenda bentu á.
„Við söknum þess oft við lagasetn-
ingu að lagt sé mat á áhrif löggjafans
á atvinnulífið, þar á meðal á sam-
keppnishæfni Íslands, því hún er
nokkurs konar mælikvarði á lífs-
gæði.“ »ViðskiptaMogginn
Áhersla verði
lögð á stöðugleika
- Mikilvægt að lækka tryggingagjald