Morgunblaðið - 08.09.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.09.2021, Blaðsíða 28
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Frá því í byrjun árs hefur Magnea Ingvarsdóttir, íslenskukennari og menningarfræðingur, haldið ókeypis námskeið í bragfræði fyrir börn og fullorðna. Síðan í maí hafa þau verið í Borgarbókasafninu Árbæ klukkan 11-12 annan mið- vikudag í mánuði og verður næsta námskeið í dag. Fyrstu fjóra mánuði ársins var kennslan hér og þar eins og til dæmis á kaffi- og matsölustöðum og í heimahúsum. Krakkarnir mættu tvisvar í viku en fullorðnir einu sinni í mánuði. „Ég stofnaði hópinn Bragskinnu, fé- lag áhugafólks um bragfræði og ís- lenskt mál, í þeim tilgangi að vekja athygli á bragfræðinni,“ útskýrir Magnea. Fólk úr stórfjölskyldunni, vinir og fleiri hafi komið saman, fljót- lega hafi fjölgað í hópnum og festa hafi komist á hlutina þegar Borgar- bókasafnið hafi boðið aðstöðu í Ár- bænum og tekið að sér að kynna starfsemina. Magnea segist hafa byrjað að læra bragfræði á efri árum og hreinlega fallið fyrir henni. „Mér finnst að allir eigi að læra bragfræði því það er af hinu góða.“ Námskeiðið hafi ýtt undir þessa skoðun sína og það hafi sýnt sig að allir geti lært að setja saman vísu. „Ég byrjaði á þvi að kenna að setja saman ferskeytlu og fer eftir Hátta- tali Sveinbjörns Beinteinssonar, næst er það draghendan, ríma númer 2.“ Sáir fræjum Í byrjun komu foreldrar með litlu börnin sín, allt niður í þriggja ára. Magnea segist hafa keypt hljóðfæri svo þau yngstu gætu verið með og klappað saman taktinn. Eldri börn hafi fengið kynningu á stuðlum og höfuðstöfum og eldra fólkið hafi feng- ið fræðslu um flóknari bragarhætti. „Ragnar Ingi Aðalsteinsson brag- fræðingur hefur svo mætt og farið yfir ljóðin þeirra.“ Magnea segir að aðalatriðið sé að ná til barnanna. „Þetta er fyrst og fremst áhugamál hjá mér, að efla ís- lenskt mál og kynna bragfræði, að sá góðum fræjum fyrir börnin til að efla orðaforðann og auðvelda þeim að tala fallegt mál.“ Hún bendir á að þótt bragfræði sé kennd í skólum virðist hún ekki hafa náð almennri fótfestu. „Ég tel að börn geti lært bragfræði með réttum verkfærum,“ segir hún og vísar meðal annars til þess að hún hafi kennt 12 ára börnum að yrkja. Íslenskar skáldkonur frá 19. öld hafa lengi átt upp á pallborðið hjá Magneu og þar er efniviður hennar í meistararitgerð, sem hún vinnur að við Háskóla Íslands. Um árabil hefur hún haldið úti fésbókarsíðunni Tóf- unni, þar sem hún fjallar meðal ann- ars um ljóð kvennanna. „Ég hef haldið þessum ljóðum til haga vegna þess að konurnar ortu ljóðin sín á fallegri íslensku og mér fannst ástæða til að benda á það.“ Eftir að hafa kynnt sér ljóðin vel hafi hún beint sjónum að bragfræð- inni í verkum kvennanna og í bland við orðaforðann hafi verið full ástæða til að búa til vandaða kennsluáætlun fyrir börn og fullorðna. „Orðaforði þessara kvenna er svo fallegur en hann er svolítið að gleymast. Nám- skeiðin eru tilvalin leið til þess að koma honum á framfæri.“ Kennslustund Magnea Ingvarsdóttir með hópi áhugasamra um bragfræði í Borgarbókasafninu Árbæ. Bragfræði fyrir alla - Magnea Ingvarsdóttir með námskeið fyrir börn og fullorðna Magnea Ingvarsdóttir Bragfræði Börnin aðalatriðið. Sagnakaffi í Borgarbókasafninu Gerðubergi verður haldið í kvöld og kemur að þessu sinni fram þjóðlaga- hljómsveitin Brek sem leggur áherslu á að tvinna sam- an áhrif frá mismunandi stílum þjóðlaga- og dægur- tónlistar. Einnig reynir sveitin að finna nýjar og spennandi leiðir við notkun hljóðfæranna. Lög sveit- arinnar eru sungin á íslensku og sækja innblástur m.a. í íslenska náttúru og veðrabrigði. Í júní gaf hljómsveitin út sína fyrstu breiðskífu. Sagnakaffið fer að þessu sinni fram í Bergi í Gerðubergi og geta gestir fengið sér kaffi og með því í kaffihúsinu áður en dagskrá hefst. Brek í Sagnakaffi Gerðubergs Kolbeinn Þórðarson skoraði mark íslenska U21-árs landsliðs karla í knattspyrnu þegar liðið tók á móti Grikklandi í 4. riðli undankeppni EM 2023 á Würth- vellinum í Árbænum í gær. Leiknum lauk með 1:1- jafntefli en Kolbeinn kom íslenska liðinu yfir á 37. mín- útu með skoti af 30 metra færi sem Kostas Tzolakis réð ekki við. Ísland er með 4 stig eftir fyrstu tvo leiki sína í þriðja sæti riðilsins, með þremur stigum minna en Kýpur og einu stigi minna en Grikkland, en Ísland á leik til góða á bæði lið. Næsti leikur liðsins er heima- leikur gegn Portúgal hinn 11. október. »23 Jafntefli gegn Grikkjum í Árbæ Í KRAFTI CREDITINFO ER ÞITT FYRIRTÆKI FRAMÚR- SKARANDI? SKORAÐU SAMKEPPNINA Á HÓLM! Sýndu að þú sért framúrskarandi Pantaðu vottun á creditinfo.is MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 251. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.