Morgunblaðið - 08.09.2021, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.09.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2021 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins bað dómstól sambandsins í gær að leggja dagsektir á pólsk stjórnvöld, þar til þau falla frá um- deildum umbótum á dómstólakerfi sínu sem framkvæmdastjórnin segir vega að sjálfstæði pólskra dómstóla. Pólsk stjórnvöld brugðust harkalega við beiðninni og sökuðu fram- kvæmdastjórnina um að stunda „lög- fræðilegan hernað“ gegn sér. Deilurnar snúast meðal annars um fyrirætlan pólskra stjórnvalda að setja á fót nokkurs konar agadómstól yfir dómurum í landinu, en Evrópu- sambandið heldur því fram að honum sé ætlað að þrýsta á dómara að dæma eftir vilja stjórnvalda. Pólverjar segja umbótum sínum hins vegar ætlað að bæta skilvirkni dómstólanna, en aga- dómurinn hefur m.a. vald til að svipta dómara friðhelgi, svo hægt sé að sækja þá til saka, auk þess sem hann getur skert laun þeirra. Dómstóll Evrópusambandsins skipaði í júlí síðastliðnum Pólverjum að hætta við fyrirhugaðar umbætur meðan málið væri fyrir dómnum. Pólsk stjórnvöld brugðust við með því að leggja fram breytingartillögur á umbótum sínum, en stöðvuðu t.d. ekki starfsemi agadómstólsins. Þess í stað var heitið að hann myndi ekki taka upp nein ný mál. Dómstólar séu sjálfstæðir Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnarinnar, sagði í yfirlýsingu sinni í gær að dómstóla- kerfi allra aðildarríkjanna yrðu að vera „sjálfstæð og sanngjörn“ og að réttindi íbúanna yrðu að vera tryggð á sama hátt, sama í hvaða landi þeir byggju. Vera Jourova, varaforseti ESB, sagði að úrskurðum dómstóls sam- bandsins hefði ekki verið hlítt að fullu, og nefndi sem dæmi að agadóm- stóllinn væri enn að störfum, þrátt fyrir að skipað hefði verið að hann legði þau niður tímabundið. Þá sagði Didier Reynders, fram- kvæmdastjóri ESB í dómsmálum, brýnt að pólsk stjórnvöld hlíttu úr- skurðum dómstóls sambandsins, og þess vegna hefði verið óskað eftir dagsektunum. Piotr Muller, talsmaður pólsku rík- isstjórnarinnar, sagði að hún hefði í hyggju að leggja fram umbætur á til- lögum sínum í haust. Þá sagði Muller að flest aðildarríkin hefðu fengið marga mánuði ef ekki ár til þess að gera þær breytingar sem fram- kvæmdastjórnin óskaði eftir, og að það væri því „fremur óvenjulegt“ hversu miklum flýti hún væri í núna, miðað við hvernig framkvæmda- stjórnin kæmi fram við önnur aðild- arríki. Upphæð sektanna óljós Talsmaður Evrópusambandsins sagði að framkvæmdastjórnin hefði ekki sett fram ákveðna kröfu um upp- hæð þeirra dagsekta sem óskað var eftir, og að dómstóll Evrópusam- bandsins yrði að úrskurða um upp- hæðina. Líklegt er þó talið að upp- hæðin yrði hærri en 100.000 evrur á dag, eða sem nemur rúmlega 15 millj- ónum íslenskra króna. Talið er líklegt að sektarupphæðin muni ekki liggja fyrir fyrr en end- anlegur dómur dómstólsins í máli framkvæmdastjórnarinnar gegn Pól- verjum liggur fyrir, en talið er að málaferlin geti tekið allt frá hálfu ári og upp í tíu mánuði. Telji dómstóllinn rétt að leggja á sektir yrðu þær settar fram sem ein heildarupphæð í end- anlegum dómi. Síharðandi deilur við ESB Málaferlin varðandi dómstólana eru einungis hluti af síharðnandi deil- um pólskra stjórnvalda við Evrópu- sambandið sem staðið hafa yfir und- anfarin ár, en ríkisstjórnarflokkurinn Lög og réttlæti, PiS, hefur meðal annars verið sakaður um að reyna að koma sínu eigin fólki að í dómara- stöðum. Þá kærði framkvæmdastjórnin Pólverja í júlí síðastliðnum eftir að pólsk stjórnvöld heimiluðu sveitar- stjórnum að setja á fót svæði, sem ættu að vera laus við „hugmynda- fræði“ hinsegin fólks. Deilurnar hafa meðal annars leitt til þess að lagt hefur verið til að hlut Pólverja af björgunarsjóðum Evr- ópusambandsins vegna heimsfarald- ursins verði haldið eftir þar til Pól- verjar fylgi lögum sambandsins, en til stendur að landið fái 23 milljarða evra í styrki og 34 milljarða í lán. Mateusz Morawiecki, forsætisráð- herra Póllands, hefur fordæmt þær hugmyndir og kallað þær fjárkúgun á hendur Pólverjum. AFP Síharðnandi deilur Pólskir mótmælendur, sem hliðhollir eru ESB, mótmæla við stjórnlagadómstól Póllands 31. ágúst sl. en þá tók dómstóllinn afstöðu í einu af þeim deilumálum sem sprottið hafa upp milli ESB og Póllands. Vilja sekta pólsk stjórnvöld - Framkvæmdastjórn ESB segir Pólverja ekki hafa sinnt úrskurði dómstóls sam- bandsins - Pólverjar segja framkvæmdastjórnina standa í „lögfræðihernaði“ Herréttarhöld yfir Khalid Sheikh Mohammed, sem sagður er hafa skipulagt hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 ásamt fjórum öðrum, hófust að nýju í gær eftir 18 mánaða hlé vegna heimsfaraldursins. Málaferlin gegn Mohammed hafa nú staðið í níu ár, en málið hefur dreg- ist meðal annars vegna ásakana um að sakborningarnir fimm hafi verið pyndaðir af bandarísku leyniþjónust- unni CIA. Réttarhöldin fara fram í Guant- anamo-fangelsinu á Kúbu, en talið er ólíklegt að aðalmeðferð hefjist í mál- inu fyrr en á næsta ári, og enn ólík- legra að dómur liggi fyrir. Dauðarefs- ing liggur við meintum brotum mannanna. Lítill vafi leikur á sekt Mohammed hefur viðurkennt að hann hafi stungið upp á hryðjuverka- árásunum við Osama bin Laden, þá- verandi leiðtoga hryðjuverkasamtak- anna al-Qaeda, þegar árið 1996. Þá þykir sannað að hann hafi staðið að skipulagningu árásanna, þar sem 19 hryðjuverkamenn rændu fjórum far- þegaflugvélum og flugu tveimur þeirra inn í tvíburaturnana í New York og þeirri þriðju í Pentagon- bygginguna þar sem bandaríska varnarmálaráðuneytið er til húsa. Farþegar fjórðu vélarinnar náðu hins vegar að koma í veg fyrir að hún næði til Washingtonborgar, en talið er að bandaríska þinghúsið hafi verið skot- mark hryðjuverkamannanna. Mennirnir fimm voru allir hand- samaðir á árunum 2002-2003 og hald- ið af CIA í um það bil tvö ár, þar sem þeir máttu þola illa meðferð. Verjendur þeirra segja að pynding- ar leyniþjónustunnar hafi spillt fyrir málinu öllu, og að því hefði verið vísað frá dómi hefði réttarhaldið farið fram innan Bandaríkjanna í stað Guant- anamo. Mohammed aftur dreginn fyrir dóm - Réttarhöldin hafa tekið níu ár AFP Í haldi Khalid Sheikh Mohammed hefur verið í haldi í nær 20 ár. Talíbanar tilkynntu í gær að Mo- hammad Hassan Akhund yrði for- sætisráðherra nýrrar bráða- birgðastjórnar sinnar í Afganistan, en hann var áður varautanríkisráðherra þegar talí- banar réðu landinu frá 1996 til 2001. Abdul Ghani Baradar, einn af stofnendum talíbana, verður varaforsætisráðherra og Sira- juddin Haqqani innanríkis- ráðherra. Fyrr um daginn leystu talíb- anar upp mótmæli í Kabúl gegn afskiptum Pakistana í Afganistan með því að skjóta upp í loft. Voru konur í meirihluta þeirra rúm- lega sjötíu sem mótmæltu. AFGANISTAN AFP Kabúl Mótmælin voru leyst upp. Ný bráðabirgða- stjórn mynduð Angela Merkel Þýskalandskansl- ari lýsti í gær yfir stuðningi sínum við Armin Lasc- het, kanslaraefni kristilegu flokk- anna CDU/CSU. Allt stefnir í að kristilegir muni bíða sögulegt af- hroð, en fylgi þeirra mældist um 19% í nýrri könnun sem birtist í gær. Er það hið lægsta frá stríðslokum. Merkel sagði í þingræðu sinni í gær að ríkisstjórn undir forystu Laschets myndi þýða stöðugleika og hófsemd, en hún hefur jafnframt varað við því að Die Linke, arftaka austurþýska kommúnistaflokksins, verði hleypt í ríkisstjórn, en flokk- urinn hafnar m.a. aðild Þýskalands að Atlantshafsbandalaginu. Merkel og Laschet hafa því gagnrýnt Olaf Scholz, kanslaraefni sósíal- demókrata, fyrir að útiloka ekki stjórnarsamstarf með Die Linke. ÞÝSKALAND Merkel styður við bakið á Laschet Angela Merkel

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.