Morgunblaðið - 08.09.2021, Síða 25

Morgunblaðið - 08.09.2021, Síða 25
Bókamarkaðurinn á Akureyri verð- ur opnaður í dag, miðvikudag, og stendur til 19. september. „Vegna heimsfaraldursins féll markaðurinn niður á síðasta ári og því eru nú tæp- lega tvö ár frá síðasta markaði. Að þessu sinni höfum við komið okkur fyrir á rúmgóðu svæði á Glerár- torgi, þar sem Rúmfatalagerinn var áður til húsa. Opið verður alla daga milli kl. 10-18. Mikið úrval bóka á sanngjörnu verði, stærstu flokkarnir þetta árið eru barnabækur og spennusögur í vasabroti,“ segir í tilkynn- ingu frá Félagi íslenskra bóka- útgefenda sem stendur fyrir mark- aðnum. Bókamarkaðurinn hefst á Akureyri MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2021 Í nýrri ljóðabók Eydísar Blön- dal, Ég brotna 100% niður, fléttar höfundurinn saman hið persónulega og hið póli- tíska, enda er hið pólitíska oftar en ekki persónulegt og hið persónu- lega pólitískt. Loftslagsmálin og sjálfsmyndarkrísa renna saman í eitt eins og titill verksins gefur hugmynd um. Að brotna niður er ekki það sama og að brotna niður. Eydísi tekst að byggja upp sann- færandi heildarmynd með þessu ljóðasafni. Hún leiðir lesandann úr einu ljóði í annað þannig að hvert ljóð verður eins og eðlilegt framhald af því sem á undan er komið. Sömu táknin, sömu myndirnar og sömu umfjöllun- arefnin skjóta upp kollinum víðs vegar í bókinni sem styrkir ljóða- safnið í heild. Einna mest áberandi eru appelsínurnar sem koma fyrir víða á síðum bókarinnar og prýða að auki kápuna. Appelsínubörkur, appelsínutré, aldinkjöt, fræ. Eitt- hvað svo hversdagslegt en samt svo óíslenskt. Súrt og sætt. Appelsínan er í nýju hlutverki í hverju ljóði en býr til athyglisverð- ar tengingar þeirra á milli. Það sama má segja um vegasaltið og performansinn, fallið til jarðar og móðurhlutverkið. Allt myndar þetta áhugaverða þræði sem lesandinn getur reynt að fylgja eftir á ferð sinni í gegnum bókina. Í verkinu verður vegasaltið tákn þeirrar jafnvægislistar sem lífið er en verður einnig eins konar leiðar- stef í uppbyggingu ljóðabókarinnar. Höfundurinn reynir að halda jafn- vægi á ferðalaginu um öll hin ólíku umfjöllunarefni sem tekin eru fyrir og tekst oftast vel til. Í þeim ljóðum þar sem Eydís er beinskeyttari og er mikið niðri fyr- ir, til dæmis þegar hún fjallar um loftslagsmál, fær boðskapurinn að njóta sín. Það reynist þó vera á kostnað þess ljóðræna og áhuga- verða sem einkennir ýmis önnur ljóð safnsins. Best heppnuðu ljóðin í bókinni eru hins vegar þau þar sem skrif Eydísar eru torræð, þar sem hún blandar saman ólíkum merkingar- sviðum og textinn veitir lesand- anum einhverja mótstöðu. Þar verður útkoman afskaplega spenn- andi. Þegar það sem er að gerast í kollinum á ljóðmælandanum fær að skína í gegn, í sinni hráustu mynd, verða óreiðukenndar og órökréttar hugsanir að sterkum ljóðlínum. Lífið og dauðinn, óttinn og kvíðinn, og síðast en ekki síst ástin renna saman í hringiðu orða sem vekur lesandann til umhugsunar. Eydís sýnir að hún er skáld sem skrifar beint inn í samtímann og á mikið erindi við lesendur. Ég brotna 100% niður er vandað verk sem hefur að geyma sterka há- punkta auk þess sem vel úthugsuð heildarmynd dýpkar myndheim hvers ljóðs fyrir sig. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Jafnvægislist Höfundurinn reynir að halda jafnvægi á ferðalaginu um öll hin ólíku umfjöllunarefni sem tekin eru fyrir og tekst oftast vel til, segir meðal annars í gagnrýni um bók Eydísar Blöndal, Ég brotna 100% niður. Appelsínur vega salt í sannfærandi heildarmynd Ljóðabók Ég brotna 100% niður bbbbn Eftir Eydísi Blöndal. JPV útgáfa, 2021. Kilja, 45 bls. RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR BÆKUR Franska kvik- myndastjarnan Jean-Paul Bel- mondo er látin, 88 ára að aldri. Belmondo var einn þekktasti leikari frönsku nýbylgjunnar og mikill hjarta- knúsari á sínum tíma, oft líkt við bandaríska kollega sína Marlon Brando og James Dean. Þekkt- asta hlutverk hans er eflaust hlutverk andhetjunnar Michel Poiccard í kvikmynd Jean-Luc Godard, Á bout de souffle, og á fyrri hluta ferils síns fór hann oftar en ekki með hlutverk karla sem voru harðir af sér og utan- veltu í samfélaginu, eins og því er lýst á vef The New York Tim- es. Á seinni hluta ferilsins tók hann að sér öllu mýkri hlutverk. Belmondo lék í kvikmyndum af ýmsu tagi, bæði hasarmyndum, spennumyndum og gamanmynd- um og úr síðastnefnda flokknum má nefna Le Magnifique þar sem grín var óspart gert að njósna- bókum og -myndum á borð við þær um James Bond. Belmondo látinn Jean-Paul Bel- mondo árið 1973.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.