Morgunblaðið - 08.09.2021, Side 23
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2021
_ Lið Evrópu sigraði í Solheim-
bikarnum í golfi sem fór fram í Inver-
ness-golfklúbbnum í Ohio í Bandaríkj-
unum. Lið Evrópu vann lið Bandaríkj-
anna 15:13. Eftir að hafa verið með
tveggja holu forystu fyrir lokadaginn
náði liðið að verja hana þegar spilaður
var tvímenningur á lokadeginum.
Hin finnska Matilda Castrén tryggði
sigurinn í nótt með því að eiga eina
holu á Lizette Salas og hin danska
Emily Kristine Pedersen hafði sömu-
leiðis betur gegn Danielle Kang en
hún átti eina holu á hana að lokinni
síðustu viðureign næturinnar og gull-
tryggði þannig sigurinn.
_ Knattspyrnusamband Evrópu,
UEFA, hefur fellt úr gildi bann við því
að stuðningsmenn gestaliða megi
mæta á útileiki á vegum sambandsins.
Stuðningsmenn gestaliða mega því frá
og með næstu viku ferðast á útileiki
liða sinna í Meistaradeild Evrópu, Evr-
ópudeildinni og Sambandsdeild Evr-
ópu. Þrátt fyrir þessa afléttingu af
hendi UEFA er það enn háð hverju og
einu Evrópulandi, og þeim sam-
komutakmörkunum og öðrum reglum
vegna kórónuveirufaraldursins sem
eru í gildi þar, hve margir og hvort
stuðningsmenn gestaliða megi mæta.
_ Skanderborg, lið Steinunnar Hans-
dóttur, virðist vera í miklum vandræð-
um í upphafi keppnistímabilsins í
danska handboltanum. Skanderborg
fékk hrikalegan skell á heimavelli í úr-
valsdeildinni í gær þegar liðið tapaði
gegn Odense 15:31. Steinunn skoraði
eitt mark í leiknum og nýtti annað
tveggja skotfæra sem hún fékk.
Skanderborg hefur byrjað tímabilið illa
og hefur tapað fyrstu þremur leikj-
unum. Er liðið á botninum og marka-
talan er 28 mörk í mínus. Odense er á
hinum enda töflunnar með þrjá sigra í
fyrstu þremur leikjunum.
_ Knattspyrnudómarinn Vilhjálmur
Alvar Þórarinsson dæmdi leik Norður-
Írlands gegn Slóvakíu í undankeppni
EM 2023 í flokki U21-árs landsliða
karla í gærkvöld. Leikurinn fór fram í
Lurgan á Norður-Írlandi en viðureignin
er hluti af C-riðli undankeppninnar.
Vilhjálmi til aðstoðar voru þeir Gylfi
Már Sigurðsson og Þórður Arnar
Árnason. Fjórði dómari var Helgi
Mikael Jónasson.
_ Kristín Erna Sigurlásdóttir, marka-
hæsti leikmaður kvennaliðs Víkings úr
Reykjavík í 1. deildinni, mun söðla um
að loknu yfirstandandi tímabili og
halda til Ítalíu. Fótbolti.net greindi frá
þessu í gær og þar segir að liðið sem
um ræðir sé Trani, sem leikur í C-
deildinni.
Kristín Erna, sem er þrítugur sókn-
armaður, hefur skorað 13 mörk í 15
leikjum í 1. deildinni á tímabilinu. Vík-
ingur mun enda í fjórða sæti deild-
arinnar, en ein umferð
er eftir. Á ferlinum
hefur Kristín Erna
skorað 104 mörk í
194 deild-
arleikjum í efstu
og næstefstu
deild. Hefur hún
leikið með upp-
eldisfélagi sínu
ÍBV, Fylki, KR og
nú síðast Víkingi
á ferlinum og
verður þetta því
í fyrsta sinn sem
hún mun spila
erlendis.
Eitt
ogannað
Í ÁRBÆ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Kolbeinn Þórðarson skoraði mark
íslenska U21-árs landsliðs karla í
knattspyrnu þegar liðið tók á móti
Grikklandi í 4. riðli undankeppni
EM 2023 á Würth-vellinum í Árbæn-
um í gær.
Leiknum lauk með 1:1-jafntefli en
Kolbeinn kom íslenska liðinu yfir á
37. mínútu með skoti af 30 metra
færi sem Kostas Tzolakis réð ekki
við. Skotið var beint á Tzolakis en
gríska markverðinum tókst ekki að
halda knettinum og hann endaði í
markinu.
Grikkir jöfnuðu metin átta mín-
útum síðar þegar Fotios Ioannidis
fékk langa sendingu fram völlinn.
Ioannidis tók afar vel á móti bolt-
anum, fór illa með varnarmenn ís-
lenska liðsins, og lagði boltann
snyrtilega í netið fram hjá Elíasi
Rafni Ólafssyni í marki Íslands.
Fyrirmyndarvarnarleikur
Íslenska liðið var lengi í gang og
Grikkirnir stjórnuðu leiknum frá A
til Ö fyrsta hálftímann.
Eftir að Kolbeinn kom Íslandi yfir
kom ákveðið sjálfstraust í liðið og
menn þorðu að fá boltann í lappir og
halda honum betur innan liðsins.
Í síðari hálfleik var Ísland sterk-
ari aðilinn, án þess þó að skapa sér
afgerandi marktækifæri, en íslenska
liðið fékk nokkrar afar álitlegar
sóknir, þar vantaði einfaldlega að-
eins meiri klókindi á síðasta þriðj-
ungi vallarins.
Á sama tíma varðist liðið afar vel
og Grikkjum tókst aldrei að opna ís-
lensku vörnina. Strákarnir voru afar
skipulagðir, gáfu engin færi á sér, og
Grikkjum tókst aldrei að spila sig
inn í nein svæði á bak við vörn Ís-
lands.
Ísland er með 4 stig eftir fyrstu
tvo leiki sína sem verður að teljast
nokkuð ásættanlegur árangur. Liðið
er í þriðja sæti riðilsins, með þremur
stigum minna en Kýpur og einu stigi
minna en Grikkland, en Ísland á leik
til góða á bæði lið.
Næstu leikir liðsins eru heima-
leikur gegn Portúgal í október og
svo tveir útileikir gegn Liechten-
stein og Grikklandi í nóvember.
Vantaði herslumuninn
- Íslenska U21-árs landsliðið gerði jafntefli gegn Grikkjum í undankeppni EM
- Margt var jákvætt í leik íslenska liðsins og framtíðin virðist vera afar björt
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss.
Frábær Fyrirliðinn Kolbeinn Þórðarson átti stórgóðan leik á miðjunni hjá íslenska U21-árs landsliðinu í Árbænum.
Tindastóll mætir Keflavík á Sauð-
árkróki í fjórðungsúrslitum bik-
arkeppni karla í körfuknattleik,
VÍS-bikarnum, sunnudaginn 12.
september en þetta varð ljóst í
gær.
Tindastóll vann stórsigur gegn
Álftanesi á Sauðárkróki í sextán
liða úrslitum keppninnar á meðan
Keflavík fór illa með Hött á Egils-
stöðum.
Þá mætast Stjarnan og Grinda-
vík í Mathús Garðabæjar-höllinni
en Stjarnan vann KR í Garðabæ á
meðan Grindavík lagði Breiða-
blik.
Njarðvík, sem vann nauman
sigur gegn Val í hörkuleik, fær
Hauka í heimsókn í Njarðtaks-
gryfjuna en Haukar unnu Þór
frá Akureyri í sextán-liða úrslit-
um.
ÍR-ingar, sem slógu út Íslands-
meistara Þórs frá Þorlákshöfn í
spennuleik, mæta svo Sindra á
Höfn en Sindri sló Vestra úr
keppni í gær.
Fjórðungsúrslitin fara fram 12.
september og undanúrslitin 16.
september. Úrslit bikarkeppn-
innar fara svo fram í Smáranum
í Kópavogi 18. september.
Stórleikir í fjórðungsúrslitum
Morgunblaðið/Skúli
Sending Hörður Axel Vilhjálmsson og liðsfélagar hans í Keflavík heim-
sækja Tindastól í fjórðungsúrslitum bikarkeppninnar hinn 12. september.
ÍSLAND – GRIKKLAND 1:1
1:0 Kolbeinn Þórðarson 37.
1:1 Fotios Ioannidis 45.
MM
Kolbeinn Þórðarson
M
Elías Rafn Ólafsson
Ísak Óli Ólafsson
Kristian Nökkvi Hlynsson
Stefán Árni Geirsson
Mikael Egill Ellertsson
Dómari: Gal Leibovitz, Ísrael.
Áhorfendur: 435
_ Mikael Egill Ellertsson lék sinn
fyrsta U21-árs landsleik.
_ Kolbeinn Þórðarson skoraði sitt
fyrsta mark fyrir U21-árs landsliðið í
sínum tíunda leik með liðinu.
Íslandsmeistarar Vals í handknattleik
karla drógust á móti þýsku bikar-
meisturunum Lemgo í Evrópudeildinni
þegar dregið var í gær. Liðin mætast í
2. umferð keppninnar og sigurvegarinn
kemst áfram í riðlakeppni. Valsmenn
þurfa því að klífa þrítugan hamarinn til
að komast í riðlakeppnina. Valur var í
neðri styrkleikaflokki þegar dregið var
og því voru allar líkur á að liðið myndi
fá mjög erfiðan andstæðing úr efri
styrkleikaflokknum.
Helsti markaskorari Lemgo er
hornamaðurinn og landsliðsmaðurinn
Bjarki Már Elísson. „Þessi niðurstaða
er bara geggjað skemmtileg. Það
verður geðveikt að koma heim og
spila handbolta en Valur er hins veg-
ar mjög gott lið þannig að við þurfum
að eiga mjög góða leiki á móti þeim,“
sagði Bjarki þegar Morgunblaðið
sendi honum fyrirspurn í gær.
Útlit er fyrir að leikirnir gætu farið
fram 21. og 28. september. Ýmir Örn
Gíslason og samherjar í RN Löwen
mæta Benfica og Aix með Kristján
Örn Kristjánsson innanborðs mætir
Arendal. Kadetten Schaffhausen sem
Aðalsteinn Eyjólfsson stýrir dróst á
móti Granollers.
„Geggjað
skemmtilegt“
- Valur dróst á móti Lemgo
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vörn Valsmenn þurfa að hafa vörnina í lagi gegn Lemgo.