Morgunblaðið - 08.09.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 08.09.2021, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2021 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ÿ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ÿ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ÿ alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum GLUGGATJÖLD alnabaer.is 2021 ALÞINGISKOSNINGAR DAGMÁL Andrés Magnússon Stefán Einar Stefánsson „Við höfum öll verið sammála um það, og nú er ég að vísa til stjórn- arflokkanna, að við göngum öll óbundin til kosninga. Við erum ekki í kosningabandalagi. En ég segi það, þetta stjórnarsamstarf hefur auðvit- að gengið bara ágætlega og betur en margir spáðu hér í upphafi. Það væri í meira lagi einkennilegt ef við rædd- um ekki saman – ef við höldum meiri- hluta – hvort það væri flötur að halda áfram.“ Þetta segir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, í ítarlegu viðtali í Dagmálum sem birt er í opinni dag- skrá á mbl.is í dag, þegar hún er innt eftir því hvernig hún sér fyrir sér hið pólitíska landslag að loknum kosn- ingum. Samkvæmt nýrri könnun MMR sem birt var í Morgunblaðinu á mánudag mælist flokkur hennar með 10,8% fylgi og 7 þingmenn, en flokk- urinn fékk 11 þingmenn kjörna í kosningunum 2017. Þar má einnig sjá að stjórn VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks heldur velli með 33 þingsætum á móti 30 þingsætum stjórnarandstöðunnar. „Stóra málið fyrir okkur, og út úr þessu hefur auðvitað verið snúið og ýmsir reynt að halda því fram t.a.m., að kjósendur VG væru með því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, en auðvit- að er það bara þvættingur. Stóra málið fyrir okkur er að því sterkari sem við erum eftir þessar kosningar því sterkari rödd hafa okkar vinstri grænu málefni í næstu ríkisstjórn og um það snýst þetta,“ bætir Katrín við. VG ber einn ábyrgð á fylginu Í viðtalinu sem er hið fyrsta af 9 sem tekið er á vettvangi Dagmála við forystumenn þeirra flokka sem bjóða fram á landsvísu, er Katrín spurð út í hvort það fylgistap sem virðist í kort- unum hjá VG megi rekja til sam- starfs við Sjálfstæðisflokkinn. „Við vorum í ríkisstjórn 2009-2013, ég sat nú í þeirri ríkisstjórn. Þá töp- uðum við helmingi fylgis okkar í kosningunum 2013. Við misstum 5 þingmenn á kjörtímabilinu. Það er ekki auðvelt að vera í ríkisstjórn. [...] Mér dettur ekki í hug að kenna sam- starfsflokkum mínum, hvorki nú né þá, um það fylgi. Það er algjörlega á okkar ábyrgð. Sú ábyrgð er að við höfum tekið ákvarðanir, ekki einu sinni heldur tvisvar að okkur þyki mikilvægt að við beitum okkur við myndun ríkisstjórna af því að við teljum okkur geta náð meiri fram- gangi með okkar mál innan ríkis- stjórnar en utan,“ segir Katrín og bendir jafnframt á að báðar ríkis- stjórnirnar sem þarna er vísað til hafi tekist á við risavaxin verkefni, ann- ars vegar fall bankanna og hins veg- ar heimsfaraldur og náttúruham- farir. Ljóst er að einn mesti ágreining- urinn sem komið hefur upp á yfir- borðið á kjörtímabilinu milli stjórn- arflokkanna lýtur að embættisfærslu heilbrigðisráðherra sem lítur á einkarekstur í heilbrigðisþjónustu sem eitur í beinum. Katrín segir að VG hafi talað fyrir þeirri áherslu í kosningunum 2017 að styrkja þyrfti grundvöll opinbera heilbrigðiskerfis- ins og því sé umræðan um þetta mál nokkuð „öfugsnúin“. Líta beri til þess að heilsugæslan sem fyrsti viðkomu- staður fólk innan kerfisins hafi verið efld til muna. Spurð út í gagnrýni á þá ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðis- ráðherra og flokkssystur hennar, að senda fólk í liðskiptaaðgerðir til Sví- þjóðar þar sem einkaaðilar sinni verkinu í stað þess að semja við ís- lensk fyrirtæki um þjónustuna, bendir Katrín á að nú sé verið að koma upp liðskiptasetri við sjúkra- húsið á Akranesi. Hún vék sér undan að svara spurningu um hvort að í því fælist sóun á opinberu fé að senda fólk í aðgerðir sem kosti tvöfalt það sem kosta myndi að framkvæma slík- ar aðgerðir hér heima. Gerir ekki kröfu um heilbrigðisráðuneytið Hefur þeirri spurningu verið varp- að fram hvort VG muni gera kröfu um að halda áfram á lyklunum að heilbrigðisráðuneytinu, verði flokk- urinn í meiirihluta að kosningum loknum. „Það liggur ekkert fyrir um það hvaða ráðuneyti við myndum gera kröfu um. Og það hangir auðvitað bara líka á hvernig ríkisstjórn verður mynduð. Þið eruð búnir að ræða það hér hversu flókið úrlausnarefni það getur orðið og þá sér hver maður það í hendi sér að það er illa hægt að fara að skipuleggja einhver ráðuneyti og hvernig þau raðast niður á einstaka flokka,“ segir hún, sérstaklega spurð út í þá óeiningu sem vart hefur orðið í stjórnarliðinu vegna ákvarðana heil- brigðisráðherra sem miða að því að draga úr einkarekstri í heilbrigðis- þjónustu. Styðja ekki aðildarumsókn Katrín var í hópi stjórnarliða sem stóðu á bak við aðildarumsókn að Evrópusambandi í ríkisstjórn Jó- hönnu Sigurðardóttur árið 2009. Katrín segir reynsluna hafa kennt að heppilegra sé að standa utan banda- lagsins. „[...] Við höfum rætt þetta og ég tel algjörlega morgunljóst að það verður ekki aftur sótt um aðild að ESB nema fyrir því sé meirihluti á þingi sem einnig nyti leiðsagnar þjóðar- innar þegar hann liggur fyrir. Það er þannig og ég segi það líka því maður dregur lærdóm af því sem maður upplifir í gegnum stjórnmálin, að ég fylgdist mjög náið með Grikklandi á sama tíma og Íslandi átti í sínu stríði við að koma landinu aftur á lappirnar eftir hrun og við vorum auðvitað hér í prógrammi hjá AGS. Grikkland var bæði með AGS og ESB í sínu pró- grammi og ég tel að við höfum komið betur út úr þessu, standandi utan Evrópusambandsins og án evru.“ Hún ítrekar í svari sínu, þegar eftir því er gengið, að VG muni ekki mynda meirihluta fyrir slíkri ákvörð- un í þinginu, þótt eftir því verði leit- að. Á stefnuskrá VG er sem fyrr kall- að eftir úrsögn Íslands úr NATO. Katrín segist styðja þá afstöðu þótt hún styðji einnig þjóðaröryggis- stefnu Íslands sem samþykkt var ár- ið 2016 og felur í sér aðild ríkisins að varnarbandalaginu. Hún segist taka skyldur sínar sem forsætisráðherra alvarlega gagnvart þeirri samþykkt og hafi af þeim sökum m.a. mætt til leiðtogafundar Atlantshafsbanda- lagsins og haldið þar á lofti sjónar- miðum friðar og andstöðu við kjarn- orkuvopn. Skoða beri fjármagnstekjurnar Flokkarnir sem nú bjóða fram til Alþingis hafa mjög ólíkar og mis- stórkarlalegar hugmyndir um skatt- kerfisbreytingar. Katrín kallar eftir sátt um kerfið og að ekki sé ráðist í kollsteypur varðandi útfærslu þess milli kosninga. „Skattkerfisbreytingar eiga að gagnast best hinum verr settu í sam- félaginu. við eigum að nýta skatt- kerfið sem jöfnunartæki. Við segjum líka að ríkissjóður er í þeirri stöðu að við höfum þá trú að við munum geta vaxið út úr þessari kreppu. Við telj- um ekki að það sé brýn þörf til tekju- öflunar,“ segir Katrín en hún telur að reynslan af nýju þrepi tekju- skattskerfisins gefi tilefni til að skoða fjármagnstekjuskattinn og mögulega þrepaskiptingu hans. Þar megi t.d. gera mun á fjármagns- tekjum sem komi til vegna sparnað- ar annars vegar og hagnaðar eða arðgreiðslna hins vegar. Hún hafnar því hins vegar að VG skuldi kjósendum svör um hvaða út- færslu flokkurinn sjái fyrir sér varð- andi skattinn. Það þurfi að skoða. Breytingarnar verði aldrei „risastór tekjuöflunarleið“ heldur séu aðgerð- irnar hugsaðar til að „gera kerfið réttlátara og gagnsærra. „[...] og ég held að við höfum gert það með því að hækka fjármagns- tekjuskattinn og hækka frítekju- markið og þá var t.d. komið til móts við kröfu sem lengi hafði verið uppi um sölu á frístundahúsnæði. Það var svo sem ekkert stefnumál okkar VG en við gátum fallist á það því okkur þótti ákveðin sanngirnisrök fyrir því.“ Hún segir ekki á stefnuskrá VG að taka upp stóreignaskatt líkt og Samfylkingin hefur haldið fram að eigi að gera. Ekki séu þær aðstæður uppi nú sem voru á árunum eftir bankahrun þegar auðlegðarskattur var tekinn upp. Ríkissjóður standi í raun vel. Veiðigjöld hvetji til nýsköpunar Katrín segist vel geta fellt sig við það kerfi sem nú hafi verið komið upp varðandi innheimtu veiðigjalda af sjávarútveginum. Þar hafi lend- ingin orðið að gjaldið svaraði til 33% af afkomu fyrirtækjanna. Deila hefði mátt um hvort hlutfallið hefði átt að vera einhverjum prósentum hærra eða lægra en að þetta hafi orðið lendingin. Hún telur að gjaldið nú geri út- gerðarfyrirtækjunum kleift að fjár- festa í nýjum búnaði sem sé lyk- ilatriði þegar komi að orkuskiptum. Katrín undirstrikar að verkefni næstu missera og ára verði að end- urreisa efnahaginn eftir kórónu- kreppuna. Það verði a.m.k. hennar erindi komi hún að myndun næstu ríkisstjórnar og hún er bjartsýn á tækifæri Íslands og að það takist. „Þannig að við séum að fá betra hag- kerfi út úr þessari kreppu en það sem fór inn í hana.“ Stóreignaskattur ekki á dagskrá - Forsætisráðherra vill skoða flöt á áframhaldandi stjórnarsamstarfi - Gerir ekki kröfu um heil- brigðisráðuneytið - Núverandi fyrirkomulag innheimtu veiðigjalda styður við loftslagsmarkmið Morgunblaðið/Eggert Dagmál Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og forsætisráðherra, er í fyrsta formannaviðtali Dagmála í kosningabaráttunni, en þar komu m.a. stjórnarsamstarf og kosningastefna VG til tals.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.