Morgunblaðið - 08.09.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.09.2021, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2021 Atvinnuauglýsingar Blaðberar Upplýsingar veitir #,&)"-/% í síma %!" $#$$ Morgunblaðið óskar eftir blaðber#! $ .('!+*$" Raðauglýsingar Raðauglýsingar Kjósarhreppur auglýsir skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 Deiliskipulag í landi Brekkna, Kjósarhreppi Sveitarstjórn Kjósarhrepps samþykkt þann 7. júlí 2021 að auglýsa deiliskipulagstillögu frístundabyggðar Brekkna í landi Möðruvalla 1, Kjósarhreppi, dags. 25.06.2021 og telur að heimilt sé að falla frá gerð lýsingar skipulagsverkefnisins sbr. 3. mgr. 40. gr. Skipulagslaga, enda liggi allar megin forsendur deiliskipulagstillögunar fyrir í aðalskipulagi og í áður samþykktu skipulagi sem öðlaðist ekki gildi. Deiliskipulag frístundabyggðar Brekkna í landi Möðruvalla 1 í Kjósarhreppi tekur til 11 ha svæðis. Innan svæðisins verða skilgreindar tíu frístundalóðir, uppbygging er hafin á sex lóðum, Brekkum 3, 4, 8, 9 og Möðruvöllum 13 og 14. Lóðirnar eru nú þegar stofnaðar úr landi Möðruvalla 1, sem er í eigu Kjósar- hrepps. Skipulagsvæðið hallar til norð-austurs og er við rætur Möðrudalsháls. Aðkoma að lóðum er um veginn Brekkur sem tengist Meðalfellsveg (461). Skipulagssvæðið afmarkast í suðri, norðri og vestri af Möðruvöllum 1. Í norð/austri afmarkast svæðið af lóð sem heitir Möðruvellir Hitaveita og í austri af lóð sem heitir Hæðarskarð. Deiliskipulag frístundabyggðar Möðruvellir 1, var samþykkt í hreppsnefnd árið 2006, en það öðlaðist ekki gildi þar sem það láðist að auglýsa gildistöku þess í B-deild Stjórnartíðinda. Markmið skipulagsins er að skapa ramma utanum heildstæða frístundabyggð, þannig að heildar yfirbragð byggðar verði gott og fyrirhuguð uppbygging falli vel að þeirri byggð sem fyrir er. Fyrir liggur staðbundið ofanflóðahættumat frá Veðurstofu Íslands, dags. 11.06.2021. Niðurstaða matsins er í stórum dráttum eftirfarandi: „Að áhættan á byggingareitunum er talin ásættanleg fyrir frístundahús, þ.e. að staðaráhætta er minni en 5 af 10000 ári, en C-lína hættumats er miðuð við staðaráhættuna 3 af 10000 ári. Þó væri ekki ráðlegt að reisa hús mikið nær farvegunum úr Stóragili en nú er vegna aur og vatnsflóðahættu. Mest er aurflóðahættan á reit 9 en einnig þyrfti að huga að þessu á reit 4. Einnig ætti ekki að reisa hús austast á byggingareit Möðruvalla 14, í vatnsfarveginum sem þar er. Ekki er víst að allir byggingareitirnir myndu standast hættumat fyrir íbúðahús enda strangari kröfur gerðar til slíkra bygginga. Þannig mætti ekki breyta frístundahúsunum í íbúðarhús eða reisa íbúðarhús á skipulagssvæðinu án þess að frekara mat yrði gert sem miðaði við þær forsendur“. Deiliskipulagstillagan verður til sýnis í anddyri hreppsskrifstofu Kjósarhrepps í Ásgarði frá og með 10. september 2021 til 25. október 2021. Tillögurnar verða jafnframt birtar á heimasíðu Kjósarhrepps, kjos.is. Athugasemdir eða ábendingar vegna deiliskipulagstillögunnar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 25. október 2021. Póstlagðar athugasemdir berist á skrifstofu Kjósarhrepps að Ásgarði Kjós, 276 Mosfellsbæ, eða með tölvupósti á netfangið skipulag@kjos.is Samþykkt á breytingu aðalskipulags Kjósarhrepps 2017-2029 Sveitarstjórn Kjósarhrepps samþykkti 7. júlí 2021 tillögu á breytingu Aðalskipulags Kjósarhrepps 2017-2029. Breytingin varðar landnotkun í landi Eyrarkots. Í breytingunni felst að breyta landnotkun á hluta landbúnaðarsvæðis í landi Eyrarkots, í verslunar- og þjónustusvæði (2 ha), frístundabyggð (4,8 ha) og íbúðarbyggð (10 ha). Tillagan var auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, frá 8. apríl til 31. maí 2021. Umsagnir bárust og hafa umsagnir sveitarstjórnar um þær verið sendar þeim sem þær gerðu. Með vísan til umburðarbréfs Atvinnu- og nýsköpunarráðu- neytisins, dags. 28.05.2021, um breytingar á jarðalögum, þá samþykkti Sveitarstjórn þann 1. september 2021, að breyta landnotkun á hluta landbúnaðarsvæðis í landi Eyrarkots, í verslunar- og þjónustusvæði (2 ha), frístundabyggð (4,8 ha) og íbúabyggð (10 ha). Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda. Þeir sem óska frekari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Kjósarhrepps. Samþykkt á óverulegri breytingu aðal- skipulags Kjósarhrepps 2017-2029 Sveitarstjórn Kjósarhrepps samþykkti á fundi sínum þann 7. júlí 2021, tillögu á breytingu Aðalskipulags Kjósarhrepps 2017- 2029, sbr. 2 mgr. 36. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, þannig að landnotkun á landareigninn Álfagarður, sem er um 7,9 ha, verði breytt úr landbúnaðarlandi í íbúabyggð. Sveitarstjórn telur að breytingin sé óveruleg og hafi ekki í för með sér mikil áhrif á einstaka aðila eða hafi áhrif á stór svæði. Með vísan til umburðarbréfs Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis- ins, dags. 28.05.2021, um breytingar á jarðalögum, þá sam- þykkti Sveitarsjórn á fundi sínum þann 1. september 2021, að breyta landnotkun úr landbúnaðarlandi í íbúabyggð um 7,9 ha. Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda. Þeir sem óska frekari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Kjósarhrepps. Kjósarhreppur 7.9. 2021 Skipulags- og byggingarfulltrúi Kjósarhrepps Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Skák kl. 13. Samsöngur með Helgu Gunnars við píanóið kl. 13.45. Kaffi kl. 14.30-15.20. Nánari upplýsingar í síma 411-2701. Allir velkomnir. Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju kl. 12. Opið hús full- orðinsstarfs í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 12.30-15.30. Súpa og meðlæti gegn vægu gjaldi. Upplýsingar á www.arbaejarkirkja.is Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9-12. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni. Velkomin. Sími 411-2600. Boðinn Handavinnustofa er opin frá kl. 13-15. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10.Tálgað með Valdóri frá kl. 9.15. Frjáls spilamennska kl. 12.30-15.45. Opið kaffihús kl. 14.30. Nú eru hin ýmsu námskeið að fara í gang hjá okkur og eru ennþá laus pláss í t.d. myndlist og tálgun. Allar nánari upplýsingar í síma 535-2760. Bústaðakirkja Opið hús í dag. Göngutúr kl. 12.30 frá safnaðarsal í ca 45 mínútur. Slökun, spil, spjall, handavinna og kaffið góða hjá Sigurbjörgu. Prestur verður með hugleiðingu og bæn. Starfið er í umsjá Hólmfríðar djákna. Allir hjartanlega velkomnir. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Opin listasmiðja kl. 9-12. Línudans kl. 10-11. Frambjóðendur frá Sjálfstæðisflokknum í heimsókn kl. 14-15.Tálgun með Valdóri kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45-15.15. Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Brids í Jónshúsi kl. 13. Stólajóga kl. 11 í Kirkjuhvoli. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 15 /15.40 og 16.20. Zumba Gold kl. 16.30. Guðríðarkirkja. Félagsstarf eldri borgara í dag kl. 12. Helgistund í kirkjunni og söngur. Snæddur verður hádegisverður í safnaðarsalum, verð 1000 kr. Farið verður yfir skemmtilega dagskrá okkar fram að jólum. Hlökkum til að sjá ykkur, sr. Leifur Ragnar, sr. Pétur, Hrönn og Lovísa. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9- 11. Ganga með Evu kl. 10-11, allir velkomnir. Útskurður með leiðbein- anda kl. 9-12, 500 kr. skiptið. Hraunsel Billjard kl. 9-16. Stóla-jóga kl. 10. Línudans kl. 11. Bingó kl. 13. Gaflarakórinn kl. 16. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Framhaldssaga kl. 10.30. Handavinnuhópur kl. 13-16. Brids kl. 13. Styttri ganga kl. 13.30. Hádegismatur kl. 11.30- 12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Morgunleikfimi útarpsins kl. 9.45 í Borgum. Gönguhópur Korpúlfa leggur af stað frá Borgum kl. 10, þrír styrkleikahópar og gleðileg ganga sem endar með góðu kaffispjalli. Minnum á hópsöng- stund á morgun í Borgum fimmtudaginn 9. september með Hannesi Guðrúnarsyni. Hádegisverður kl. 11.30-12.30 og kaffihús Borgardætra er opið frá kl. 14.30-15.30 með ljúfum veitingum. Allir velkomnir. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag er postulínsmálun í handverks- stofu 2. hæðar kl. 9-12. Þá er bókband í smiðju 1. hæðar fyrir hádegi kl. 9-12.30, og eftir hádegi kl. 13-16.30. Þá verður pílukast í setustofu 2. hæðar kl. 10.30-11.15. Eftir hádegi, kl. 14-15 verður svo dans með Vitatorgsbandinu. Við ljúkum svo dagskrá dagsins með hlaðvarpi í handverksstofu 2. hæðar kl. 15. Nú "&&$# þú það sem þú !ei%a# að ' FINNA.is 200 mílur Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Nýr Ford Transit Double Cab L3 7 manna. Þessi er væntanlegur núna þegar ógerningur er að fá vinnubíla. Verð 5.300.000 án vsk. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.