Morgunblaðið - 10.09.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.09.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2021 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Sóknarpresturinn á Skagaströnd, sr. Bryndís Valbjarnardóttir, hefur tímabundið tekið við þjónustu á Blönduósi. Presturinn þar, sr Svein- björn R. Einarsson, er farinn til starfa í Garðabæ. Ljóst þótti að styrkja þyrfti kristnihald í Garða- prestakalli, meðan annars vegna fjölgunar íbúa. Ákvörðun um þetta var tekin á Biskupsstofu og sr. Ur- sula Árnadóttir var tímabundið prestur á Blönduósi en er nú farin í námsleyfi. Þá hleypur Skagastrand- arprestur í skarðið, en um 30 kíló- metrar eru milli þessara byggða. „Í raun sést með þessu hver mann- auður þjóðkirkjunnar er, að svona megi leysa mál þegar presta þarf á tiltekna staði tímabundið,“ segir Pétur Markan, samskiptastjóri þjóð- kirkjunnar, í samtali við Morgun- blaðið. Frá því síðastliðið vor hefur gilt ráðningastopp hjá þjóðkirkj- unni, það er að störf sem losna eru ekki auglýst. Þetta fyrirkomulag gildir fram í nóvember, en ráðstöfun þessi var gerð í sparnaðarskyni. Vænst er að stoppinu verði aflétt í haust, en til að svo megi verða þarf samþykkt kirkjuþings. Kristnihald sé öflugt Nokkur kurr mun vera meðal Blönduósbúa vegna þessa máls og athugasemdir verið gerðar. „Við heyrum alltaf frá fólki þegar svona ráðstafanir eru gerðar. Ósk almenn- ings um prestsþjónustu úti í sam- félaginu er sterk og alltaf fyrir hendi. Slíkt segir okkur einfaldlega að sem allra fyrst þarf að finna var- anlega lausn á prestsmálum á Blönduósi. Krafan um öflugt kristni- hald á Íslandi er sterk, sem er mjög gott mál,“ segir Pétur Markan. Prestur hleypur í skarðið - Þjónar Blönduósi frá Skagaströnd - Kurr á svæðinu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Blönduóskirkja Afleysingaprestar annast kristnihald í byggðarlaginu. Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi vegna landriss við Öskju en undanfarnar vikur hafa hraðar landbreytingar mælst þar. Talið er líklegt að kvika sé að safnast þar fyr- ir á 2-3 km dýpi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra. GPS-mælingar og úrvinnsla gervi- tunglamynda gefa til kynna að sjö sentímetra landris hafi verið á síð- ustu vikum á þessu svæði. „Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburða- rás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, um- hverfis eða byggðar yrði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verk- ferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðs- aðila,“ segir í tilkynningunni. Þá hefur Veðurstofan einnig breytt fluglitakóða fyrir Öskju úr grænum í gulan. gunnhildursif@mbl.is Óvissustig vegna landriss - Fluglitakóða yfir Öskju breytt í gulan Morgunblaðið/Sigurður Bogi Askja Hraðar landbreytingar hafa mælst í Öskju að undanförnu. Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is „Okkur finnst yfirvöld ekki hafa sýnt mikinn áhuga á að ná samningum við okkur,“ segir Þórarinn Guðnason, formaður Læknafélags Reykjavíkur, en félagið sleit samningaviðræðum við Sjúkratryggingar Íslands í vik- unni. Samningar sérfræðilækna hafa verið lausir frá árinu 2018 og segir Þórarinn að samningaferlið hafi verið langt og strangt. „Það var búið að reyna viðræðurnar til þrautar.“ Læknafélagið gerði könnun á með- al lækna í sumar þar sem kom fram að yfirgnæfandi meirihluti vildi slíta viðræðum, eða um 84%. Af ríflega 300 sérfræðilæknum svöruðu 243 könn- uninni. Einungis 14% vildu halda áfram viðræðum með sama formi. „Þessi könnun var mjög skýr. Við ræddum niðurstöðuna innan félags- ins og samninganefndarinnar. Við sáum því ekki annan valmöguleika en að það væri skynsamlegast að hætta viðræðum og taka upp þráðinn þegar ný ríkisstjórn tekur við,“ segir Þór- arinn. „Það eru allir flokkar í framboði búnir að tala um að þeir ætli að for- gangsraða heil- brigðiskerfinu og lagfæra margt sem er ekki full- komið, svo sem skipulag og fjár- þörf. Við bindum því ákveðnar von- ir við að það verði tekið tillit til þess að þessi starfsemi hefur á síðustu fimm árum minnkað um allt að 20%.“ Þórarinn nefnir að minni þjónusta sérfræðilækna þýði að álagið eykst annars staðar í heilbrigðiskerfinu svo sem á heilsugæslunni og bráðamót- töku. Hann bætir við að þjónustan hafi ekki heldur aukist í samræmi við fólksfjölgun og öldrun þjóðarinnar. Þórarinn nefnir að einingaverð hafi gliðnað og ekki verið bætt. „Það er himinn og haf á milli þróunar á launa- vísitölu og einingaverðinu,“ segir hann og bætir við að einingaverð hafi hækkað um 65% frá 2008 en á sama tíma hefur launavísitalan hækkað um 134%. Þá hefur einingaverðið ekki hækkað í tvö ár. „70% af kostnaðinum okkar eru launakostnaður. Það geta því allir ímyndað sér af hverju við þurftum að setja á aukagjöld til þess að brúa þetta bil.“ Þórarinn nefnir að engar hækkanir hafi komið til síðustu 18 mánuði, hvorki vegna launa, heims- faraldurs né vinnutímastyttingar. „Það hefur jafnvel endað í rekstrar- stöðvun hjá læknastöðvum sem ekki hafa lagt á aukafjöld eins og Heilsu- borg og Domus. Þá hafa engar nýj- ungar verið teknar upp í þessum þekkingargeira frá árinu 2013. Þetta hefur verið þungur róður.“ Viðræðurnar reyndar til þrautar - 84% sérfræðilækna vildu slíta viðræðum - Taka aftur upp þráðinn þegar ný ríkisstjórn tekur við Þórarinn Guðnason Drottningarbrautin á Akureyri, frá skautahöll- inni að flugvellinum, fékk nýtt malbik í vikunni þegar malbik var lagt á um eins kílómetra kafla. Malbikun Akureyrar vann verkið fyrir Vegagerðina og segir Jón Smári Sigur- steinsson, verkefnastjóri hjá Malbikun Ak- ureyrar, að mikið hafi verið að gera við mal- bikun í blíðunni norðanlands í sumar, en tuttugu manns vinna að malbikun hjá fyrir- tækinu. Mikið hafi verið unnið fyrir Vegagerðina, en einnig fyrir sveitarfélög og fleiri. Jón Smári áætlar að fyrirtækið hafi þegar lagt um tutt- ugu þúsund tonn af malbiki og áætlað sé að leggja um tíu þúsund tonn til viðbótar í haust. Flest hafa verkefnin verið á Norðurlandi, með- al annars stór bílastæði við Dettifoss, en einnig á Snæfellsnesi. Þar hafi vinnuflokkur verið í fjórar vikur og oft á tíðum verið rigning og talsvert kaldara en fyrir norðan. Óneitanlega hafi menn saknað blíðunnar. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Drottningarbraut í sparifötin í blíðunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.