Morgunblaðið - 10.09.2021, Síða 17

Morgunblaðið - 10.09.2021, Síða 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2021 10. september er alþjóðlegur forvarn- ardagur sjálfsvíga og þá eru gjarnan skipu- lagðir alls kyns við- burðir til að opna um- ræðuna um sjálfs- skaða og sjálfsvíg, auk þess sem fjöldi fallegra minningar- stunda á sér stað. Við höfum sjálfar íhugað og reynt að taka eigið líf. Við erum líka hluti af hópi Hugaraflsfólks sem hefur per- sónulega reynslu af málefninu og erum að gefa út bókina Boðaföll, nýjar nálganir í sjálfsvígs- forvörnum. Við höfum sterka skoð- un og reynslu af því hvernig mis- munandi umræða getur reynst skaðleg og önnur hjálpleg. Það skiptir máli hvaða orð við notum. Þau endurspegla þá hugmyndafræði sem við aðhyllumst og hvaða framtíðarmöguleika við eigum ef við höfum á annað borð einhvern tímann upplifað öng- stræti. Þegar við tölum um sjálfs- skaða, sjálfsvígshugsanir og -tilraunir þá hættir fólki til að sjúk- dómsvæða skiljanlega angist og nota gildishlaðin orð. Sá orðaforði kemur oft úr læknisfræðilega lík- aninu. Sjálfsskaði, sjálfsvígshugs- anir og -tilraunir eru ekki sjúk- dómseinkenni. Við erum gagnrýnar á réttmæti geðsjúkdómagreininga og teljum þær ekki sjálfkrafa hjálplegar. Þær ná að sama skapi takmarkað utan um upplifanir okk- ar og sýna ekki heildarmynd vand- ans. Einnig ber að nefna að fjöldi fólks hefur upplifað þessa angist án þess að hafa nokkurn tímann feng- ið geðsjúkdómastimpil. Ekkert okkar „fremur sjálfs- morð“ eða „fremur sjálfsvíg“ því við erum ekki að tala um glæp og við viljum ekki ala frekar á for- dómum í þessum málaflokki. Við tölum um það að taka eigið líf, velja að kveðja þennan heim, stytta sér aldur eða sjá sér engar aðrar leiðir færar til að lifa áfram. Við viljum opna umræðuna um þessar skiljanlegu tilfinningar og uppræta skömmina sem viðhelst í óvönduðu orðavali. Við höfum líka tekið eftir ákveðinni orðræðu hjá þeim sem vilja opna umræðu um sjálfsvíg. Þar er endurtekið talað um von og myndavalið sýnir gjarnan logandi sprittkerti. Við vitum af eigin reynslu að þetta er rétt og lífið getur orðið betra en á sama tíma ná þessi skilaboð engan veginn til markhópsins þegar við erum í öng- stræti. Þetta virkar innantómt og það þarf að mæta hverju og einu okkar þar sem við erum stödd hverju sinni. Það er ekki nóg að segja að við þurfum að tala um hlutina eða að það sé von. Það þarf að leggja spilin á borðið og ræða rætur vandans og gefa raunveruleg tól til að rækta von í staðinn fyrir að nefna hana eingöngu á nafn, líkt og hún spretti fram úr tómarúmi. Hvað um það þegar fólk deyr vegna sjálfsvígs? Við höfum orðið varar við óhjálplegt orðalag líkt og „Hann tapaði fyrir sjúkdómnum“, „Hún var ekki rétt (sjúkdóms) greind“, „Hán var með falinn sjúk- dóm“, „Við gerðum allt; þau voru hjá geðlækni, fengu geðlyf eða voru hjá sálfræðingi“. Við sem samfélag vorum að tapa ein- staklingi, það var ekki ein- staklingur sem tapaði baráttunni. Við skiljum að það leynist einhver sáluhjálp í því að tengja sjálfsvígið við yfirnáttúruleg öfl, veikindi eða geðsjúkdóm, líkt og þetta væri bíl- slys eða náttúruhamfarir. Það léttir aðeins af ábyrgðinni og vanlíð- aninni sem eftirlifendur finna fyrir og miðlar því að þetta hafi í raun verið óviðráðanlegt. Staðreyndin er sú að aðstandendur gerðu allt sem þau gátu miðað við upplýsingarnar sem þau höfðu um eðli sjálfsskaða og sjálfsvíga. Aðstandendur og samfélagið hafa hins vegar í raun ekki verið með hjálplegustu bjarg- ráðin né hugmyndafræðina til að takast á við undirliggjandi orsök vandans sem birtist fyrst og fremst sem einstaklingsþjáning. Fólk gríp- ur þess vegna til sjúkdómsgrein- inga því það er að reyna að ein- falda einhvern veruleika sem er flóknari en svo. Við viljum fjar- lægja þessa sjúkdómstengingu en veita sáluhjálpina og stuðninginn. Við getum því miður ekki bjargað öllum og í flestum tilvikum hefur fólk þjáðst lengi í þögn áður en þau yfirgefa þennan heim. Í raun get- um við ekki bjargað neinum nema okkur sjálfum. Það sem eftir- lifendur geta gert er að miðla nýrri sýn, opna umræðuna og vinna að auknum jöfnuði í samfélaginu svo aðstæður fólks batni og færri neyð- ist til að ganga í gegnum svart- nætti. Við viljum heyra frá fólki sem hefur íhugað eða reynt að taka eig- ið líf. Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga ætti að miðla persónu- legum reynslu- og batasögum fólks sem hefur verið á þessum stað. Það vantar sárlega umræðu um bata og það sem reynist okkur hjálplegt. Þær eru ekki áberandi í um- ræðunni í dag. Það heyrast nær eingöngu sögur frá aðstandendum sem hafa misst ástvin eða viðtöl við fagfólk sem telur mikilvægt að ræða efnið frá þeim sjónarhóli að þetta sé hræðilegur fjölskyldu- harmleikur eða fylgifiskur svokall- aðra geðsjúkdóma. Það eru haldnar fallegar minningarstundir og söfn- unarátök um þau sem hafa farið og restin af umræðunni varðar þau sem eru að berjast fyrir eigin lífi í vanlíðan sem virðist engan enda taka. Okkur langar að draga fram umræðu um að við erum gríðarlega stór hópur fólks sem hefur verið á þessum stað en fögnum nú lífinu, eða erum þakklát fyrir að hafa ekki náð að fara, eða erum í það minnsta sátt í dag. Við erum ekki alltaf himinlifandi eða hoppandi kát, en við erum ekki í endalausu ströggli. Ekki frekar en öll önnur! Eftir Sigurborgu Sveinsdóttur og Svövu Arnardóttur Svava Arnardóttir » Það sem eftirlif- endur geta gert er að miðla nýrri sýn, opna umræðuna og vinna að auknum jöfnuði í sam- félaginu svo aðstæður fólks batni og færri neyðist til að ganga í gegnum svartnætti. Höfundar eru Hugaraflsfélagar og tveir af höfundum bókarinnar Boðaföll, nýjar nálganir í sjálfsvígsforvörnum. Sigurborg Sveinsdóttir Tölum um sjálfsvíg VINNINGASKRÁ 193 9809 21394 33475 41555 50589 60225 70584 325 10082 21758 34341 41794 50801 60234 71154 469 10532 22003 34596 42449 50991 60367 71231 691 10727 22312 34853 42455 51009 60507 71267 702 10781 22412 34952 42548 51642 61260 71313 2149 10807 22506 35037 43181 51694 62162 71418 2369 10862 22542 35069 43241 51947 62364 71825 2519 10953 22924 35198 43764 52274 62407 72504 2927 12257 23058 35263 43801 52335 62602 72810 3166 12366 23181 35327 43916 52463 62752 72854 3288 12919 23380 35386 44036 52659 62846 73745 3741 13912 23877 35918 44066 52967 62981 73856 3884 14438 25882 36494 44073 53011 63600 73892 3998 14587 26213 36581 44395 53139 63755 74495 4478 15116 26254 36622 44496 53256 64136 74563 4865 15124 26585 36986 44542 53388 64365 75162 5252 15149 26895 37769 44929 53520 64633 75222 5386 15367 27106 38057 45047 53606 65062 76056 5618 15446 28533 38123 45189 53913 65081 76175 6023 16298 28609 38217 45325 55067 65675 76189 6093 16505 28677 38241 45356 55348 65802 76422 6510 16865 29429 38754 45428 55555 66326 77094 7068 17074 30030 38944 45624 55816 66514 77584 7197 17540 30223 39070 46427 55963 66719 78009 7206 17745 30483 39170 46595 57020 67539 78279 7387 17785 31123 39395 47514 57133 67997 78323 7579 18112 31185 39602 48236 57945 68394 78613 7595 18122 31206 39634 48280 58486 68410 78707 7791 18377 31419 39683 48495 58786 68707 78708 7814 18543 31715 39836 48619 58893 69261 78932 7827 20142 31876 39932 48861 58986 69399 79131 7857 20299 31892 40239 48863 59235 69615 8328 20640 32015 40543 49646 59258 70079 9151 20788 32039 40777 49854 59259 70127 9516 20911 32623 40824 50189 59372 70261 9658 21065 32682 40918 50204 59825 70313 9675 21165 32866 41376 50517 60217 70536 510 9666 18441 30199 43432 51042 59440 75439 933 10767 18806 30972 43616 52363 60201 75759 1504 10981 22316 31401 43700 53048 61425 75907 2281 11780 22516 33435 43912 53206 62625 76097 2413 12217 23171 34165 44201 53443 63606 76232 3381 12430 24155 34343 45090 53768 65302 77138 6148 12567 24684 36781 47276 54080 65317 77161 6776 12762 26856 38097 47755 55107 65383 78847 7017 12883 27146 39817 48269 55861 67042 79795 7551 13794 27169 40431 48633 56518 67318 8451 13917 27262 41009 50082 57789 68813 9199 16044 28361 41304 50584 57913 71383 9637 16163 28866 42581 50834 58308 72932 Næstu útdrættir fara fram 16., 23. & 30. sept 2021 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 3002 67037 69483 70532 74462 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 1161 13170 24365 28280 42228 71851 1524 21194 25514 30239 54363 77245 3778 21554 26691 37661 60190 77592 11567 22410 28167 39500 60795 79928 Aðalv inningur Kr. 15.000.000 Kr. 30.000.000 (tvöfaldur) 2 8 7 8 7 19. útdráttur 9. september 2021 Bæði foreldrar, vinir og margvíslegur áróð- ur hefur áhrif á það hvort unglingar byrji að reykja. Sama gildir um áfengisneyslu. Því hefur lengi verið haldið fram að foreldrar sem reykja og drekka „smiti“ börnin sín. Þetta er þó ekki alveg svona einfalt. Íslensk- ar rannsóknir hafa leitt í ljós að taki foreldrar einarða afstöðu gegn eigin reykingum og alkóhólneyslu, vernd- ar það börnin verulega gegn slíku „smiti“. Átök og skilnaður Ef börn og unglingar blandast ekki inn í átök, rifrildi og spennu á heimilinu dregur það verulega úr líkunum á að börnin fari að reykja og drekka þótt foreldri geri það. Þetta á ekki síst við um skiln- aðarátök. Takist foreldrum að tryggja börnunum félagslegt öryggi og stöðugleika eftir skilnað, hefur skilnaðurinn sem slíkur ekki merkj- anleg neikvæð áhrif á heilsuhegðun barna. Þátttaka Nærvera foreldra er mikilvægur fyrirbyggj- andi þáttur sem dregur úr neikvæðum áhrifum umhverfis á heilsu- hegðun barna. Því meiri tíma sem for- eldrar eiga með börn- um sínum, því minni eru líkurnar á að börn- in taki upp heilsuspill- andi lífshætti. Það er því ýmislegt sem við getum gert til að draga úr líkunum á því að börnin okkar taki upp eftir okkur óhollan lífsstíl og engin ástæða til að láta hendur fallast þótt við séum ef til vill engir fyrirmynd- arforeldrar á öllum sviðum. Heimildir: Kristjansson AL, James JE, Allegrante JP, Sigfusdottir ID, Helgason AR. Adoles- cent substance use, parental monitoring, and leisure-time activities: 12-year outco- mes of primary prevention in Iceland. Prev Med. 2010 Aug;51(2):168-71. Kristjansson AL, Sigfusdottir ID, James JE, Allegrante JP, Helgason AR. Percei- ved parental reactions and peer respect as predictors of adolescent cigarette smoking and alcohol use. Addict Behav. 2010 Mar;35 (3):256-9. Kristjansson AL, Sigfusdottir ID, Alle- grante JP, Helgason AR. Acta Paediatr. Parental divorce and adolescent cigarette smoking and alcohol use: assessing the importance of family conflict. 2009 Mar;98 (3):537-42. Epub 2008 Nov 19. Fyrirmyndarforeldrar Eftir Ásgeir R. Helgason » Þótt foreldrar geti vissulega verið nei- kvæðar fyrirmyndir barna sinna, þá er hægt að draga verulega úr skaðanum. Ásgeir R. Helgason Höfundur er dósent í sálfræði við Há- skólann í Reykjavík og sérfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu. asgeir@krabb.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA? Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.