Morgunblaðið - 10.09.2021, Side 21

Morgunblaðið - 10.09.2021, Side 21
✝ Hlynur Þór Haraldsson PGA-golfkennari fæddist í Colombo, Srí Lanka, 31. ágúst 1985. Hann lést á heimili sínu í Hafnarfirði 2. sept- ember 2021. Foreldrar Hlyns eru Elín Jakobs- dóttir, f. 1954, og Haraldur Þór Bene- diktsson, f. 1952. Systir Hlyns er Helga Lucia Haraldsdóttir, f. 1982, og er sambýlismaður hennar Óðinn Rafnsson, f. 1976. Eiginkona Hlyns er Fríður Ósk Kjartansdóttir, f. 1992. Synir þeirra eru Flóki Þór, f. 2017, og Daði Þór, f. 2021. Foreldrar Fríðar eru Kolbrún Ósk Ómarsdóttir, f. 1975, Kjartan Örn Steindórsson, f. 1974, og G. Elísa Jóhannsdóttir, f. 1972. Útförin fer fram frá Hafn- arfjarðarkirkju í dag, 10. sept- ember 2021, klukkan 15. Nálgast má upplýsingar um streymi hjá fjölskyldu. Ástin mín. Það er svo margt sem hægt væri að skrifa, en ég ætla að hafa þetta stutt. Þú varst svo flinkur að semja til mín ljóð, hér er mín tilraun til þín: Stóri faðmurinn og breiða brosið, þegar þú tókst utan um mig var eins og allt hefði frosið Hjartað mitt er með sár sem aldrei grær en ævinlega verð ég þakklát fyrir gjafirnar tvær Þetta átti ekki að verða svona, svo margt sem við áttum eftir að gera en ég verð að trúa og vona að saman munum við ávallt vera. Alltaf þín, Fríður. Upphaf er það orð sem hefur einkennt líf þitt síðustu misseri elsku frændi. Upphaf búsetu á æðislegum stað, upphaf lífs tveggja Hlyns- sona og núna síðast upphaf hjóna- bands ykkar Fríðar. Það er óréttlátt og þyngra en tárum taki að þurfa að tengja líf þitt orðinu endalok. Persónuein- kenni þín og mannkostir eru í hrópandi andstöðu við það orð. Ungur, kraftmikill, myndarlegur, sterkur, útsjónarsamur og klár. Það fengu allir að sjá. En við, sem auðnaðist að kynnast þér, fengum einnig að kynnast hugulsemi, hjálpsemi, góðvild og umhyggju. Alla tíð hefur þú verið óspar á þessa þætti gagnvart mér og mín- um. Fjöldi minninga leitar á hug- ann við þessar aðstæður. Ótal- margar frá því í sveitinni á Vöðl- um í æsku, eða þegar ég var í heimsókn hjá ömmu Dúu og fylgdi henni eftir þegar hún var að stússast kringum heimilishald- ið hjá foreldrum þínum, og þá helst við að líta eftir með þér og Helgu. Aðallega þér samt, grall- arinn þinn! Vænst af öllu þykir mér þó um það þegar við tókum upp þráðinn sem fullorðnir menn og þá var þráðurinn sannarlega enn til staðar. Sterkari ef eitthvað var. Vinir og frændur. Ég votta Fríði, Flóka Þór, Daða Þór, foreldrum og systkin- um mína innilegustu samúð. Jakob E. Jakobsson. Hlynur Þór Haraldsson MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2021 ✝ Hjördís Hentze fæddist í Hovi, Suðurey, Fær- eyjum, 7. september 1932. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 2. sept- ember 2021. Foreldrar henn- ar voru Peter Hentze, f. 20.2. 1906, d. 10.6. 1978 og Olivia Tavsen, f. 6.9. 1905, d. 18.1. 1945. Systkini hennar voru María, Elísabet og Sjúrður Hentze. Hjördís giftist 10.9. 1961 eft- irlifandi eiginmanni sínum, Sig- urði Birgi Magnússyni, f. 14.9. 1935. Foreldrar hans voru Magn- ús Árni Sigfússon, f. 10.12. 1903, d. 10.8. 1971 og Freyja Jóns- dóttir, f. 28.8. 1904, d. 7.11. 1986. Börn Hjördísar og Sigurðar eru: 1) Ólafur Sigurðsson, f. 15.4. 1961, giftur Winnie Bertholdsen, ur Már Sigurðsson, f. 29.6. 1968, d. 12.1. 2011, giftur Ágústu Heru Birgisdóttur, f. 19.9. 1963, börn þeirra eru: Stefán Breiðfjörð, f. 8.1. 1985, sambýliskona Þórdís Jensdóttir, börn þeirra: Tristan Breiðfjörð og Baltasar Breið- fjörð; og Hjördís Hera Hauks- dóttir, f. 20.9. 1990, sambýlis- maður hennar Sveinn Darri Ingólfsson, sonur þeirra Haukur Orri. Hjördís ólst upp í Hovi, Suður- ey, Færeyjum og gekk í barna- skóla þar. Hún byrjaði ung að vinna og fluttist til Íslands árið 1954 ásamt vinkonu sinni Nicol- ine Kjærbech. Hjördís vann við verslunarstörf og seinna í frysti- húsi við fiskvinnslu. Hjördís og Sigurður eig- inmaður hennar hófu sinn bú- skap á Garðavegi og fluttu svo á Suðurbraut, Hafnarfirði þar sem þau bjuggu alla tíð síðan. Hjördís og Sigurður ferðuðust mikið inn- anlands með fjölskylduna, til æskustöðvanna í Færeyjum og svo seinna meir um allan heim með vinum sínum. Útför Hjördísar fer fram 10. september 2021 klukkan 10 í Hafnarfjarðarkirkju. sonur þeirra Sjúrð- ur Bertholdsen, 12.11. 1996. 2) Björn Bragi Sigurðsson, f. 11.4. 1962, d. 20.2. 2011, giftur Ingi- björgu Gunn- arsdóttur, f. 20.11. 1961, börn þeirra eru Birna Rut Björnsdóttir, f. 28.12. 1981, gift Hermanni Ár- mannssyni, börn þeirra eru Emil Ísar, Dagur Fannar, Tóbý Sól; og Sigurður Freyr Björnsson, f. 10.10. 1988. 3) Freyja Margrét Sigurðardóttir, f. 30.7. 1965, gift Helga Jóni Harðarsyni, f. 20.11. 1963, dætur þeirra eru þrjár: Freydís Helgadóttir, f. 16.6. 1990, sambýlismaður Ólafur Bjarki Ragnarsson, dóttir þeirra er Emma Björt, Glódís Helga- dóttir, f. 27.2. 1995 og Fanndís Helgadóttir, f. 5.5. 2007. 4) Hauk- Í dag kveð ég elsku bestu mömmu mína, söknuðurinn er sár, en ég hugga mig við það að hún þurfi ekki að þjást lengur. Hún er komin í sumarlandið í faðm strákanna sinna sem fóru alltof fljótt. Mamma fluttist ung frá Fær- eyjum og kynntist fljótlega pabba, svo kom barnahópurinn. Þau voru dugleg að ferðast um landið með hópinn sinn og síðan voru farnar ófáar ferðir til æsku- stöðvanna í Færeyjum. Á ég ynd- islegar minningar úr öllum þess- um ferðum. Mamma var yndisleg mamma og amma, alltaf boðin og búin að aðstoða við allt og passa stelpurn- ar mínar, oftast fengu hin barna- börnin að fylgja með og var oft mikið fjör á Suðurbrautinni hjá þeim pabba. Það var snúist í kringum alla, spilað, bakaðar pönnukökur og uppáhaldsmatur- inn eldaður. Mamma var mikil hannyrða- kona, hún saumaði og prjónaði á börnin sín og seinna barnabörnin. Hún var líka dásemdarkokkur, alltaf með mat og kökur fyrir all- an hópinn. Mamma passaði upp á fjöl- skylduna og það síðasta sem hún gerði var að gefa okkur nána sam- veru við dánarbeðinn þar sem við sátum saman og rifjuðum upp góðar minningar. Takk fyrir allt, elsku mamma mín. Þín Freyja. Elsku Hjördís, í dag munu sporin vera þung þegar við fylgj- um þér síðasta spölinn. Það hefur verið mér mjög erfitt síðustu árin að fylgjast með alzheimersjúk- dómnum smám saman taka yfir og þú að fjarlægjast okkur smátt og smátt. Elsku Hjördís, takk fyr- ir öll árin sem við höfum deilt saman í lífinu en það munu vera orðin rúmlega fjörutíu ár. Jafnt í gleði og sorg höfum við staðið saman, ég er óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og vera tengdadóttir þín. Nú ertu farin í sumarlandið og um- vafin öllum okkar ástvinum sem þangað eru komnir, við Sigurður biðjum að heilsa þeim öllum. Sofðu rótt elsku Hjördís mín. Stjörnubjart Stjörnur himins ljóma skært, ljós þitt þar kviknað er. Ljósin ykkar sem farin eru stjörnurnar okkar á himni, stjörnubjart. Ingibjörg Gunnarsdóttir (Inga). Með þessum fáu orðum langar mig að kveðja yndislegu tengda- mömmu mína, Hjördísi. Lukka mín í lífinu var að kynn- ast þessum yndislegu og góðhjört- uðu hjónum, Hjördísi og Sigga. Góðmennskan skein ávallt í gegn. Hvernig þau tóku mér og syni mínum Stefáni þegar ég kynntist Hauki syni þeirra. Ekki var samveran búin að vera lengi þegar sonur minn kallaði þau ömmu og afa og voru þau honum sem slík alla tíð. Þegar dóttir mín Hjördís fædd- ist og fékk nafnið hennar þá leyndi stoltið sér ekki. Voru þau nú svo mörg skiptin sem þær frænkur Hjördís og Freydís eyddu hjá ömmu sinni og afa í miklu dekri. Hugurinn hefur leitað í ýmsar minningar um tengdamóður mína undanfarna daga. Hún var snill- ingur í handverki og peysur sem hún prjónaði á barnabörnin voru svo fallegar og eins og vélprjón- aðar. Hún var snillingur í sauma- skap og kenndi mér margt hand- bragðið í því. Ef hún var ekki ánægð með það sem ég var að gera þá bara einfaldlega rakti hún upp og lét mig gera þetta aftur og aftur þar til hún var ánægð. Matarveislurnar voru miklar og mjög margar og snillingur var hún í matargerð og sósurnar mað- ur; mig langaði nú oft að fara með rör ofan í pottana hjá henni. En upp úr stendur hennar of- boðslega hlýja hjarta. Við kveðju- stundina er hver og einn hópur var við rúmið hennar að kveðja þá varð mér hugsað til hennar víð- sýni. Hvernig hún fylgdist af áhuga og mikilli ást með hverju og einu barnabarni og hvernig hún nálgaðist hvert og eitt á sínum og þeirra forsendum. Eftir því sem afkomendur urðu fleiri þá bara stækkaði og stækkaði hjartað. Það var mikið pláss fyrir alla. Stoltið leyndi sér aldrei yfir hópn- um sínum og talaði hún mikið um þau við hvern þann sem vildi hlusta. Þung voru höggin hjá þeim hjónum þegar þau misstu tvo syni sína með nokkurra vikna millibili. Ég trúi því að þeir bræður standi nú með mömmu sína á milli sín og fagni henni innilega. Elsku yndislega tengda- mamma. Far þú í friði þar sem þú ert laus undan þessum erfiða sjúkdómi sem heilabilun er. Þú verður ávallt elskuð. Þín tengdadóttir, Ágústa Hera Birgisdóttir. Elsku besta amma okkar. Þó að söknuðurinn og sorgin sé gríðarleg þá erum við fullar af þakklæti fyrir allan þann góða og dýrmæta tíma sem við höfum fengið saman. Við erum svo heppnar að hafa átt ömmu eins og þig, sem hló með okkur, grét með okkur og lét okkur alltaf líða eins og mikilvægustu manneskjum í heimi. Elsku amma, þú varst líka besta vinkona okkar. Við gátum rætt saman allt á milli himins og jarðar og þú varst alltaf til í að taka þátt í öllum uppátækjunum okkar, hlæja og grínast. Þú varst sú sem var alltaf hægt að treysta á. Það sem við munum sakna mest eru öll bestu ömmuknúsin, spjallið í stofunni hjá ykkur afa borðandi súkkulaðirúsínur og bestu pönnukökur í heimi og sam- verustundirnar í sveitinni. Svo má ekki gleyma spilakvöldunum þeg- ar við spiluðum svartapétur og veiðimann langt fram eftir kvöldi. Takk amma. Takk fyrir að sýna okkur alltaf ást, hlýju og um- hyggju. Takk fyrir að hafa alltaf verið til staðar fyrir okkur og sýnt öllu því sem við höfum gert áhuga. Minningarnar eru endalausar og hjálpa okkur þegar söknuðurinn virðist óyfirstíganlegur. Elsku amma, þvílík forréttindi að hafa fengið að eiga ömmu eins og þig. Við munum alltaf minnast þín með jákvæðni, gleði, ást og pönnukökum. Við elskum þig alltaf. Þínar Freydís, Glódís og Fanndís. Elsku amma fallin frá, þó hún hafi ekki verið amma mín var hún mér alla tíð sem góð amma og hef ég kallað hana ömmu frá okkar fyrstu kynnum. Kynntist henni fljótlega eftir að leiðir okkar Birnu lágu saman árið 2003. Amma varð fljótlega einn af mínum allra stærstu aðdáendum og hefur hún stutt mig og tekið minn málstað í gegnum tíðina. Það var alltaf gott að koma til ömmu og afa í heimsókn því þar var alltaf tekið vel á móti manni með hlýju faðmlagi og innilegri gestrisni, amma var góður bakari og var oftar en ekki eitthvað gott á borðum sem hún hafði bakað, hún var húsmóðir af gamla skól- anum, tók slátur og bauð þá gjarnan allri fjölskyldunni í mat og þau matarboð eru okkur öllum dýrmætar minningar sem við er- um svo þakklát fyrir. Börn elskaði amma meira en allt og börn elskuðu ömmu sömu- leiðis, börnin mín eiga hafsjó af góðum minningum með ömmu, hún hlustaði á þau og leyfði þeim að vera eins og þau vildu vera og nutu þau þess að eiga gæðastund- ir hjá ömmu og afa. Það var alltaf gott að vera í fé- lagsskap ömmu hvort sem það var heima eða í sveitinni að Krossi á Skarðsströnd eða seinna á Ragn- heiðarstöðum, í berjamó í Grafn- ingnum, í heimsóknum þeirra afa til okkar í Danmörku, alltaf var glatt á hjalla þegar amma var annars vegar. Maður gat spjallað um allt við hana ömmu og þegið góð ráð því hún var einstaklega ráðagóð. Elsku amma mín, ég þakka þér af heilum hug fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman, stundir og tími sem ég, Birna og börnin okkar erum ofsalega þakk- lát fyrir og munum geyma í hjört- um okkar um ókomna tíð. Þinn Hermann (Hemmi). Elsku amma mín. Þegar ég settist niður til að skrifa um mínar uppáhaldsminn- ingar um þig þá vissi ég ekki hreinlega hvar ég ætti að byrja. Eins sárt og það er að þú sért far- in þá veit ég að það eru fagnaðar- læti hvar sem þú ert. Ég held að það fyrsta sem kemur upp sé húmorinn þinn, það sem mér fannst gaman að hlæja með þér að þínum bestu gullkorn- um og veit ég að ég er ekki ein um það. Okkur fjölskyldunni finnst ekkert skemmtilegra en að rifja upp öll góðu gullkornin í gegnum tíðina og sögurnar sem við höfum öll upplifað með þér. Það sem við frænkurnar vorum heppnar að eiga þig að og það sem okkur leið alltaf vel hjá þér og ekki má gleyma því þegar við vor- um alltaf að berjast um athyglina frá þér þegar við gistum hjá ykk- ur afa. Er sú minning mér svo kær, að ég hafi átt svona ömmu sem myndi gera allt til þess að láta manni líða vel. Það er ekki hægt að tala um ömmu án þess að minnast á bakst- urinn og eldamennskuna. Pönnu- kökurnar, vöfflurnar, smákök- urnar, sósurnar, er bara byrjunin á því öllu góða sem þú lést krauma í eldhúsinu í gegnum tíð- ina. Beið maður alltaf með til- hlökkun eftir að fara í mat til ömmu og afa. En það sem stendur helst upp úr þegar ég hugsa um þig amma mín er væntumþykjan og öryggið sem þú lést mig alltaf finna fyrir og er ég svo stolt af því að bera nafnið þitt og þykir mér óendan- lega vænt um að heita í höfuðið á svona mikilli hetju. Ég elska þig amma mín og sakna ég þín með öllu hjarta, ég veit að pabbi er mjög glaður að hafa fengið mömmu sína til sín þar sem hann var jú mikill mömmustrákur. Þín Hjördís (Hjödda). Elsku amma mín, mig setur hljóða við þá tilhugsun að þú hafir kvatt okkur, allt mitt líf hef ég haft þig mér við hlið í blíðu og stríðu, deilt tárum og gleði og fengið styrk og stuðning frá þér. Ég sé fallega brosið þitt, heyri hláturinn þinn, finn ilminn af pönnukökunum þínum, sé þig prjóna, finn fyrir faðmlagi þínu og kossi á kinn. Það er stutt að sækja sársauka sorgarinnar en það er enn styttra að sækja þakklætið. Ég er óend- anlega þakklát fyrir allar þær stundir sem við höfum átt saman og þann hafsjó af minningum sem við höfum búið til. Öll ferðalögin sem við fórum í saman bæði þegar ég var barn og svo seinna meir með minni fjölskyldu, allar ferð- irnar í berjamó, þar sem allir biðu spenntir eftir nestinu sem þú komst með. Einnig situr eftir þakklæti fyrir litlu stundirnar okkar, þar sem þú og afi komuð óvænt í heimsókn og fenguð ykk- ur einn kaffibolla, þar sem við sát- um og horfðum saman á sjónvarp- ið og spjölluðum um allt milli himins og jarðar, öll símtölin okk- ar sem þú endaðir svo oft á að segja: „Æ Birna mín, það er alltaf svo gott að tala við þig því við skiljum hvor aðra.“ Þannig var það að við skildum hvor aðra svo vel, með eða án orða, áttum þessa ósýnilegu tengingu þar sem þurfti ekki að nota orð. Þú átt svo stóran stað í hjarta mér og barnanna minn og tókst mikinn þátt í lífi okkar. Fjölskyldan var þér alltaf efst í huga og þú vildir hafa okkur í kringum þig, þannig leið þér best og okkur líka. Þannig var það líka þegar þú kvaddir okkur, umvafin fjölskyld- unni, þegar ný stjarna tendraðist á himni þetta friðsæla haustkvöld. Þar sem við sátum í kyrrðinni og héldum í höndina á þér þegar þú undirbjóst ferðalagið þitt inn í sumarlandið og samvera, kær- leikur og þakklæti fyllti rýmið. Allt sem þú lagðir áherslu á og það sem þér fannst skipta máli í lífinu. Ég veit að pabbi og Haukur frændi tóku vel á móti þér og er það mikil huggun að vita af ykkur sameinuðum á ný. Ég er stolt af því að vera son- ardóttir þín, takk fyrir allt, elsku amma, takk fyrir að hafa gert mig að þeirri manneskju sem ég er í dag, takk fyrir allt það sem þú kenndir mér, það gefur mér styrk og mun nýtast mér um ókomna framtíð. Minning þín er ljós okkar í myrkrinu og mun lifa áfram í hjarta mínu og barnanna minna. Þín Birna. Hjördís Hentze Magnússon Ástkær faðir, tengdafaðir og afi, JÓN BENEDIKTSSON framhaldsskólakennari, Norðurvangi 18, Hafnarfirði, lést mánudaginn 30. ágúst á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Jarðarför hans fer fram í Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 17. september klukkan 13. Anna María Jónsdóttir Ragnar Jónsson Sigvaldi Jónsson og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA MATTHÍASARDÓTTIR, andaðist 30. ágúst í faðmi fjölskyldunnar á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Sléttuvegi. Útför fer fram frá Seljakirkju mánudaginn 13. september klukkan 11. Guðlaug Þorsteinsdóttir Aðalsteinn Pétursson Þórey Kristín Aðalsteinsd. Einar Magnús Einarsson Þorsteinn B. Aðalsteinsson Júlía Þrastardóttir Jóhann Pétur Aðalsteinsson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.