Morgunblaðið - 10.09.2021, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2021
Meistaradeild Evrópu kvenna
Breiðablik – Osijek................................... 3:0
_ Breiðablik áfram 4:1 samtals.
Zhytlobud – Apollon Limassol ............... 3:1
_ Zhytlobud áfram 5:2 samtals.
- Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir lék fyrstu 68
mínúturnar með Limassol.
Benfica– Twente ..................................... 4:0
_ Benfica áfram 5:1 samtals.
- Cloé Lacasse lék fyrstu 83 mínúturnar
og skoraði þrennu fyrir Benfica.
Slavia Prag – Arsenal .............................. 0:4
_ Arsenal áfram 7:0 samtals.
Juventus – Vllaznia .................................. 1:0
_ Juventus áfram 3:0 samtals.
Lengjudeild kvenna
Víkingur R. – Grindavík .......................... 1:0
Afturelding – FH...................................... 4:0
Haukar – ÍA .............................................. 3:3
HK – Augnablik........................................ 0:2
Grótta – KR .............................................. 0:3
Lokastaðan:
KR 18 13 3 2 50:20 42
Afturelding 18 12 4 2 49:18 40
FH 18 11 3 4 44:25 36
Víkingur R. 18 9 4 5 34:32 31
Haukar 18 6 4 8 28:35 22
Grindavík 18 3 8 7 28:34 17
Augnablik 18 5 2 11 28:41 17
HK 18 4 4 10 24:40 16
Grótta 18 5 1 12 23:41 16
ÍA 18 4 3 11 20:42 15
2. deild kvenna
Leikur um 3. sæti:
Völsungur – Fram .................................... 2:1
50$99(/:+0$
Bikarkeppni karla
16-liða úrslit:
Afturelding – ÍBV ................................ 29:28
Grótta – Stjarnan ................................. 24:28
FH – Haukar ........................................ 27:26
Þýskaland
Hannover-Burgdorf – RN Löwen ..... 24:28
- Ýmir Örn Gíslason lagði upp eitt mark
fyrir Löwen.
Magdeburg – Stuttgart....................... 33:29
- Ómar Ingi Magnússon skoraði níu mörk,
gaf sex stoðsendingar og stal einum bolta
fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist-
jánsson var á leikskýrslu.
- Viggó Kristjánsson var ekki í leik-
mannahópi Stuttgart og Andri Már Rún-
arsson var á leikskýrslu.
N-Lübbecke – Bergischer .................. 20:24
- Arnór Þór Gunnarsson skoraði þrjú
mörk fyrir Bergischer.
.$0-!)49,
Ítalía
Deildabikarkeppni:
Bologna – Venezia ...............................67:95
- Jón Axel Guðmundsson skoraði níu stig,
tók fjögur fráköst og gaf tvær stoðsend-
ingar fyrir Bologna.
57+36!)49,
Heimsmeistarakeppni félagsliða í
knattspyrnu mun ekki fara fram í
Japan í desember á þessu ári eins
og til stóð vegna vandræða í
tengslum við kórónuveirufarald-
urinn, sem hefur ágerst í landinu.
„Eftir fundahöld með FIFA var
ákveðið að við gætum ekki haldið
mótið í ár vegna mikillar fjölg-
unar smita. Þá sjáum við okkur
ekki fært að taka á móti þeim
áhorfendafjölda sem er að vænta
fyrir mótið,“ sagði í tilkynningu
japanska knattspyrnusambands-
ins.
FIFA leitar því að nýrri stað-
setningu fyrir mótið. Alls taka sjö
lönd frá sex heimsálfum þátt í
heimsmeistarakeppni félagsliða.
HM fer ekki
fram í Japan
KNATTSPYRNA
Pepsí Max-deild kvenna:
Hásteinsvöllur: ÍBV – Fylkir ...............17:15
Origo-völlurinn: Valur –Selfoss ...........19:15
HANDKNATTLEIKUR
Coca Cola-bikar kvenna:
Hertz höllin: Grótta – ÍBV ........................18
Austurberg: ÍR – Haukar.....................19:30
Selfoss: Selfoss – FH ............................19:30
Kórinn: HK – Valur...............................20:30
Coca Cola-bikar karla:
Kórinn: HK – Fram ...................................18
Víkin: Víkingur – Valur.........................18:30
Set-höllin: Mílan – Fjölnir .........................20
Í KVÖLD!
Í KÓPAVOGI
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Kvennalið Breiðabliks skráði sig á
spjöld knattspyrnusögunnar þegar
það tryggði sér sæti í nýrri riðla-
keppni Meistaradeildar Evrópu,
fyrst íslenskra liða, með fræknum
3:0-sigri gegn króatíska liðinu Osij-
ek þegar liðin mættust í síðari leik
sínum í annarri umferð keppninnar
á Kópavogsvelli í gær. Fyrri leikn-
um í Króatíu lauk með 1:1-jafntefli
og vann Breiðablik þar með einvíg-
ið samanlagt 4:1.
Sigurinn í gær var aldrei í hættu
eftir frábæra byrjun Blika. Með því
að skora á 9. og 10. mínútu var
tónninn strax gefinn og Blikar
komnir í ákjósanlega stöðu. Liðið
byrjaði svo síðari hálfleikinn af við-
líka krafti og bætti við þriðja mark-
inu þegar í upphafi hans. Eftirleik-
urinn reyndist þá auðveldur og
léku heimakonur á als oddi þar sem
fleiri mörk hefðu hæglega getað lit-
ið dagsins ljós.
Breiðablik hefur verið tíður gest-
ur í útsláttarkeppni Meistaradeild-
arinnar í gegnum árin og hefur
lengst komist í átta liða úrslit undir
gamla fyrirkomulagi keppninnar.
Frá og með tímabilinu sem nú er
hafið, 2021/2022, verður keppnin
hins vegar með nýju sniði þar sem
16 sterkustu lið Evrópu munu etja
kappi í fjórum riðlum. Riðlakeppn-
in hefst snemma í október og lýkur
skömmu fyrir jól. Tvö lið í hverjum
riðli fara upp úr þeim og áfram í
átta liða úrslitin, en útsláttar-
keppnin hefst í mars á næsta ári.
Dregið verður í riðlana fjóra næst-
komandi mánudag, 13. september.
Sigur íslenskrar knattspyrnu
Það verður að teljast mikill sigur
fyrir Breiðablik en ekki síður ís-
lenska knattspyrnu yfir höfuð að
eiga fulltrúa í sterkustu keppni
Evrópu. Sigurinn tryggir Breiða-
bliki gífurlega fjármuni, en tæplega
76 milljónir króna fengust fyrir það
eitt að tryggja sér sætið í riðla-
keppninni. Þegar hún svo hefst síð-
ar á árinu gefast fleiri tækifæri til
þess að vinna sér inn enn meiri
fjármuni, þar sem umtalsverðar
upphæðir fást fyrir hvern sigur og
hvert jafntefli, tæplega 7,6 millj-
ónir króna fyrir sigur og tæplega
2,6 milljónir fyrir jafntefli.
Í fjögurra liða riðli verður leikið
heima og að heiman og því eru það
sex leikir sem bíða Blika í riðla-
keppni Meistaradeildarinnar í
október, nóvember og desember.
Laugardalsvöllur er eini löglegi
völlurinn á Íslandi með tilliti til
strangari reglna þegar komið er í
riðlakeppni og verður fróðlegt að
fylgjast með því þegar nær dregur
hversu marga leiki Breiðablik kem-
ur til með að geta spilað á honum,
því ekki er beint hlaupið að því að
spila á grasvelli hér á landi um há-
vetur.
Fyrstar í riðlakeppnina
- Sögulegt afrek
- Á meðal sextán
bestu liða Evrópu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gleði Leikmenn Breiðabliks fagna sigrinum örugga gegn Osijek innilega á Kópavogsvelli í gær.
Markakóngur þýsku bundeslig-
unnar í handknattleik á síðasta
tímabili, Ómar Ingi Magnússon, tók
í gær upp þráðinn þar sem frá var
horfið þegar Magdeburg mætti
Stuttgart í 1. umferðinni.
Magdeburg sigraði 33:29. Ómar
var markahæstur hjá Magdeburg
með 9/3 mörk en gaf auk þess sex
stoðsendingar á samherjana og stal
boltanum einu sinni.
Hornamaðurinn Arnór Þór
Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyr-
ir Bergischer en liðið vann N-
Lübbecke 24:20 á útivelli.
Markakóngurinn
tók upp þráðinn
Ljósmynd/Instagramsíða Magdeburg
Marksækinn Ómar Ingi varð
markakóngur á síðasta tímabili.
Miðvörðurinn Guðrún Arnardóttir
var valin í lið umferðarinnar í
sænsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu af hinu kunna dagblaði Aft-
onbladet. Guðrún var valin fyrir
frammistöðu sína í vörn Rosengård
gegn AIK.
Rosengård vann leikinn 3:0 og
skoraði Guðrún eitt markanna með
skalla. Guðrún er á sínu fyrsta
tímabili með Rosengård og má
segja að þar hafi hún leyst af hólmi
Glódísi Perlu Viggósdóttur, sem fór
til þýska stórliðsins Bayern Münch-
en. sport@mbl.is
Í liði vikunnar
hjá Aftonbladet
Ljósmynd/KSÍ
Svíþjóð Guðrún Arnardóttir var í
sviðsljósinu í síðustu umferð.
BREIÐABLIK – OSIJEK 3:0
1:0 Hildur Antonsdóttir 9.
2:0 Taylor Ziemer 10.
3:0 Agla María Albertsdóttir 48.
MM
Agla María Albertsdóttir
M
Hildur Antonsdóttir
Karitas Tómasdóttir
Kristín Dís Árnadóttir
Taylor Ziemer
Telma Ívarsdóttir
Rautt spjald: Ekkert.
Dómari: Abigail Marriott, Englandi
Áhorfendur: 871.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, grein
um leikinn og önnur umfjöllun – sjá
mbl.is/sport/fotbolti.
Afturelding tryggði sér í gærkvöldi
sæti í efstu deild kvenna í knatt-
spyrnu á næsta ári og fylgir þar
með KR upp um deild en KR-ingar
höfðu tryggt sér úrvalsdeildarsæti í
síðustu umferð.
Lokaumferðin fór fram í gær og
æxluðust málin með þeim hætti í
sumar að leikur Aftureldingar og
FH í lokaumferðinni var hreinn úr-
slitaleikur um að komast upp. Aft-
urelding vann 4:0-stórsigur og
skoraði Ragna Guðrún Guðmunds-
dóttir tvívegis. Sigrún Gunndís
Harðardóttir og Guðrún Elísabet
Björgvinsdóttir skoruðu einnig. KR
vann deildina en Grótta og ÍA þurfa
að sætta sig við að falla niður í 2.
deild Íslandsmótsins.
Afturelding
leikur í efstu
deild að ári
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Áfangi Mosfellingar skutu upp flugeldum eins og sjá má þegar úrvalsdeildarsætið var í höfn.