Morgunblaðið - 10.09.2021, Side 27

Morgunblaðið - 10.09.2021, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2021 _ Aron Pálmarsson, fyrirliði ís- lenska karlalandsliðsins í handknatt- leik og leikmaður Álaborgar í Dan- mörku, fór meiddur af velli í leik liðsins gegn Ringsted í dönsku úr- valsdeildinni. Danski miðillinn Nor- djyske greinir frá því að Aron hafi fundið fyrir eymslum í mjöðm og því hafi verið tekin ákvörðun um að taka hann af velli eftir tuttugu mínútna leik. Aron mun gangast undir frekari læknisskoðun síðar þar sem alvar- leiki málsins mun að öllum líkindum koma betur í ljós. _ Framtíð Kolbeins Sigþórssonar, landsliðsmanns í knattspyrnu, hjá sænska félaginu Gautaborg skýrist í næstu viku samkvæmt sænska net- miðlinum Fotboll Direkt. _ Alþjóðaólympíunefndin hefur tek- ið þá ákvörðun að meina íþróttafólki frá Norður-Kóreu að keppa fyrir hönd Norður-Kóreu á næstu Vetr- arólympíuleikum sem munu fara fram í nágrannaríkinu Kína á næsta ári. Keppnisbannið virðist vera sett á í refsingarskyni fyrir að taka ekki þátt í nýafstöðnum Ólympíuleikum í Tókýó. Þangað sendi Norður-Kórea sem sagt enga keppendur. Sá mögu- leiki verður hins vegar væntanlega fyrir hendi að íþróttafólk frá Norður- Kóreu sem nær lágmarki fyrir Vetr- arólympíuleikana fái að keppa á leik- unum undir ólympíufánanum. _ Jón Axel Guðmundsson skilaði sínu hjá Bologna í deildabikarkeppn- inni í körfuknattleik á Ítalíu í gær en úrslitin voru ekki góð. Bologna fékk skell gegn Venezia 67:95. Jón Axel skoraði níu stig og var þriðji stiga- hæstur hjá Bologna. Hann tók einnig fjögur fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Jón Axel hefur að undanförnu stigið sín fyrstu skref með Bologna en hann lék í Þýskalandi á síðasta tímabili. _ Serbinn Novak Djokovic er kom- inn í undanúrslit á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis eftir örugg- an sigur gegn Ítalanum Matteo Ber- rattini í fjórðungsúrslitum í New York í Bandaríkjunum. Djokovic tap- aði fyrsta settinu 7:5 eftir upp- hækkun en vann næstu þrjú sett 6:2, 6:2 og loks 6:3 og einvígið 3:1. Djokovic mætir ólympíumeistaranum Alexander Zverev í undanúrslitum á morgun en Djokovic hefur unnið öll þrjú risamót tímabilsins til þessa; Opna franska meistaramótið, Opna ástralska meistaramótið og Wimble- don-mótið. Takist honum að vinna Opna banda- ríska meistaramótið verður hann fyrsti karlinn til að vinna slemmuna en hin þýska Steffi Graf afrekaði það í kvennaflokki árið 1988. Eitt ogannað HANDBOLTI Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Markvörðurinn stóri og stæðilegi, Viktor Gísli Hallgrímsson, er þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs gamall að hefja sitt sjötta tímabil í meistara- flokki í handknattleik karla. Þrjú þeirra voru hjá uppeldisfélaginu Fram en fyrir tveimur árum söðlaði hann um og hóf að reyna fyrir sér í atvinnumennsku hjá danska úrvals- deildarfélaginu GOG. Í upphafi vik- unnar var svo tilkynnt að Viktor Gísli myndi ganga í raðir franska stórliðsins Nantes að loknu tíma- bilinu sem er nýhafið. Samningur hans við GOG rennur einmitt út þá og því heldur Viktor Gísli til Nantes á frjálsri sölu næsta sumar. „Þetta leggst bara mjög vel í mig. Ég er mjög spenntur fyrir þessu. Þetta er geggjaður klúbbur og það er aðallega bara spenningur hjá mér,“ sagði Viktor Gísli í samtali við Morgunblaðið. Skrefin sem hann er að taka á ferlinum virðast þaul- hugsuð og því lék blaðamanni for- vitni á að vita hvort allt væri ekki hreinlega að fara eftir áætlun. „Jú klárlega. Það var alltaf markmiðið að fara eitthvað annað eftir árin þrjú í Danmörku og það er allavega að ganga upp núna. Það er bara gaman,“ sagði Viktor Gísli. Fleiri lið sýndu áhuga á að kló- festa hann. „Já vissulega en Nantes bauð upp á það sem mig langar að fá út úr þessu, sem er að komast í góða deild og fá spiltíma í Meist- aradeildinni. Þetta leit þannig út að ég fengi mesta spiltímann og besta tækifærið til þess að verða aðal- markvörður þar. Það er mikilvægt,“ útskýrði Viktor Gísli. Geggjað að spila Evrópuleiki Auk þess að vera A-landsliðs- maður frá því að hann var aðeins 17 ára gamall og hafa tekið þátt í topp- baráttu í dönsku úrvalsdeildinni tvö tímabil í röð hefur Viktor Gísli feng- ið dýrmæta reynslu í Evrópu- keppni, en GOG komst alla leið í átta liða úrslit í Evrópudeildinni á síðustu leiktíð. Þar féll liðið úr leik gegn pólska liðinu Wisla Plock. „Það er búið að vera geggjað og það er geðveikt gaman að hafa farið langt og fengið að spila erfiða leiki. Þegar við lendum á móti þessum lið- um frá Austur-Evrópu þá hentar það okkur ekkert mjög vel,“ sagði hann. „Við eigum svolítið erfitt með þyngdina og styrkinn hjá þessum liðum. Það hefur svona orðið okkur að falli, það gerði það líka í fyrra. En það var geggjað tækifæri að fá að taka þátt í þessari keppni,“ bætti Viktor Gísli við, en á fyrsta tímabili hans lék GOG í Meistaradeild Evr- ópu og komst liðið ekki upp úr riðli sínum á meðan tvö félög frá Austur- Evrópu gerðu það, Dinamo Búkar- est og áðurnefnt Wisla Plock. Vel hefur gengið hjá Viktori Gísla hingað til hjá GOG, bæði honum sjálfum og liðinu. Á fyrsta tímabili hans lenti GOG í öðru sæti í barátt- unni um Danmerkurmeistaratitilinn eftir einvígi við Álaborg. Síðastliðið haust varð liðið svo bikarmeistari í frestaðri keppni frá fyrsta tímabili Viktors Gísla og fylgdi því eftir með deildarmeistaratitli síðastliðið vor. GOG tókst hins vegar ekki að kom- ast í úrslitaeinvígi gegn Álaborg annað tímabilið í röð. „Vegna Covid voru tvær bikar- keppnir. Við unnum fyrri sem var í raun og veru árið á undan. Þannig að tæknilega urðum við bikarmeist- arar og deildarmeistarar á síðasta tímabili,“ útskýrði Viktor Gísli. Því er ekkert því til fyrirstöðu að setja markið hátt á nýhöfnu tímabili. „Við erum búnir að styrkja okkur vel og erum með umtalsvert betra lið en í fyrra. Menn eru spenntir fyrir því að reyna að ná lengra í Evr- ópudeildinni heldur en planið var í fyrra, af því að við komumst svo langt þá. Mönnum leist vel á þetta og fannst mjög gaman. Markmiðið er að ná sem lengst þar. Svo er það auðvitað að reyna að vinna Danmerkurtitilinn, menn eru búnir að bíða lengi eftir því og í fyrra vorum við mjög nálægt því. Við toppuðum bara á vitlausum tíma á meðan Álaborg toppaði einmitt á réttum tíma og spilaði mjög vel í lokin. Við þurfum að reyna að tíma- setja það aðeins betur og ná kannski úrslitarimmu við Álaborg í lok tímabilsins,“ sagði hann. Er hægt að skáka Álaborg? Spurður hvort GOG geti skákað Álaborg á lokatímabili hans í Dan- mörku, sagði Viktor Gísli: „Ef við lendum ekki í alvarlegum meiðslum og toppum á réttum tíma þá eigum við alveg möguleika. Þeir eru nátt- úrlega með örlítið meiri breidd og kannski aðeins meiri reynslu. Það getur aðeins sagt til sín þegar tíma- bilið er svona langt. En ég vil alla- vega trúa því að við getum unnið þá.“ Beðinn um að líta aðeins lengra til framtíðar og fara yfir markmið sín með Nantes og íslenska landslið- inu á komandi árum stóð ekki á svörum: „Ég vil fá að spila í Meist- aradeildinni og standa mig vel þar. Ég vil reyna að spila sem mest og tryggja mig sem aðalmarkvörð hjá Nantes. Með landsliðinu er raunverulega það sama uppi á teningnum, að reyna að verða 100 prósent fyrsti markvörður þar og ná góðum ár- angri. Við erum með helvíti gott lið á leiðinni, það eru margir ungir leik- menn að koma upp. Þessi kyn- slóðaskipti sem er búið að tala um mjög lengi eru ekki alveg búin en eru komin vel á veg og margir búnir að öðlast góða reynslu. Við þurfum bara að fá aðeins meiri spiltíma saman og þá fer þetta að koma,“ sagði Viktor Gísli að lokum í samtali við Morgunblaðið. Viktor Gísli valdi franska liðið að vel athuguðu máli - Landsliðsmarkvörðurinn færir sig frá GOG til Nantes á næsta ári - Væntingar um að verða aðalmarkvörður Nantes - Lið GOG orðið sterkara AFP Vítakast Vítaskyttur fyllast eflaust kvíða á vítalínunni andspænis Viktori Gísla Hallgrímssyni. FH, Afturelding og Stjarnan tryggðu sér öll sæti í 8-liða úrslitum bikarkeppni karla í handknattleik með sigrum í 16-liða úrslitum í gær. FH vann nauman 27:26-sigur á nágrönnum sínum og erkifjendum í Haukum. Þá marði Afturelding ríkjandi bikarmeistara ÍBV, 29:28. Stjarnan vann svo þægilegan 28:24- sigur gegn Gróttu þar sem Björg- vin Þór Hólmgeirsson fór hamför- um og skoraði 11 mörk. FH mætir Víkingi/Val, Aftureld- ing mætir Mílunni/Fjölni og Stjarn- an mætir KA í 8-liða úrslitunum. Þrjú úrvalsdeild- arlið eru úr leik Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Markahæstur Björgvin Hólmgeirs skoraði 11 mörk fyrir Stjörnuna. Cloé Lacasse skoraði þrennu þegar Benfica tryggði sér sæti í riðla- keppni Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu í gær með 4:0-sigri á Twente. Benfica sigraði samtals 5:1 í rimmu liðanna. Cloé fékk íslenskan ríkisborgara- rétt fyrir nokkrum árum en hér heima lék hún með ÍBV og var einn marksæknasti leikmaður íslensku úrvalsdeildarinnar. Apollon Limassol féll hins vegar úr keppni þegar liðið tapaði fyrir Zhytlobud en Þórdís Hrönn Sigfús- dóttir var í liði Limassol. Cloé Lacasse skoraði þrennu Morgunblaðið/Árni Sæberg Þrenna Cloé Lacasse lék með ÍBV áður en hún hélt til Portúgals.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.