Morgunblaðið - 10.09.2021, Qupperneq 32
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
EIN ALLRA BESTA
HEILSUDÝNA Í HEIMI
SUMARLEG SÆNGURVERASETTSÆNGURVER OG NÁTTSLOPPAR
HÖFUM
ÞAÐ GOTT
HEIMA
KERTATÍMIKósý
ÚRVAL AD VÖNDUÐUM ILMKERTUM FRÁ FRANSKA
MERKINU DURANCE, FULLKOMIN Á SÍÐSUMARKVÖLDUM
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
Tónleikaröðin Jazz í hádeg-
inu er hafin á ný í Borgar-
bókasafninu og verða tón-
leikar haldnir í dag í
safninu í Gerðubergi kl.
12.15 og á morgun í Spöng-
inni kl. 13.15. Mikael Máni
Ásmundsson gítarleikari
og Leifur Gunnarsson
kontrabassaleikari koma
fram á þeim og flytja efnis-
skrá tileinkaða Miles Dav-
is. Yfirskrift tónleikanna er Miles á 10 strengi og verða
flutt verk sem Davis var skrifaður fyrir og segir í tilkynn-
ingu að sagnir hermi að hann hafi verið lunkinn að eigna
sér verk sem hann hljóðritaði þótt aðrir hafi skrifað þau.
Listræn stjórnun tónleikaraðarinnar er í höndum Leifs
og er markmið raðarinnar að færa djasstónlistina út í
hverfi borgarinnar svo fólk geti notið hennar í nær-
umhverfi sínu.
Frítt er inn á tónleikana og allir velkomnir á meðan
húsrúm leyfir og sóttvarnareglum verður fylgt.
Miles á 10 strengi í hádeginu
FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 253. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Kvennalið Breiðabliks skráði sig á spjöld knattspyrnu-
sögunnar þegar það tryggði sér sæti í nýrri riðlakeppni
Meistaradeildar Evrópu, fyrst íslenskra liða, með
fræknum 3:0-sigri gegn króatíska liðinu Osijek þegar
liðin mættust í síðari leik sínum í annarri umferð
keppninnar á Kópavogsvelli í gær. Fyrri leiknum í
Króatíu lauk með 1:1-jafntefli og vann Breiðablik þar
með einvígið samanlagt 4:1. Breiðablik hefur verið tíð-
ur gestur í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar í
gegnum árin og komst lengst í 8-liða úrslit. »26
Breiðablik verður með í riðlakeppni
Meistaradeildar Evrópu kvenna
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hjónin Björn Sigurður Björnsson
og Laufey Kristinsdóttir luku á
dögunum við að spila á öllum 65
golfvöllunum sem eru á skrá Golf-
sambands Íslands og fleirum til.
„Sumarið 2019 áttuðum við okkur á
því að við höfðum spilað á um 40
völlum innanlands og settum okkur
þá það markmið að hafa spilað á
öllum völlum landsins innan
tveggja ára,“ segir Björn.
Ekki er nóg með að þau hafi
spilað á öllum skráðum völlum
heldur reyndu þau jafnframt fyrir
sér á fimm óskráðum völlum. „Okk-
ur þykir gaman að spila golf, erum
oft með settin í bílnum og spilum
hvar sem er þegar við erum á ferð-
inni um landið.“ Hann bætir við að
mest hafi þau spilað um 90 hringi á
sumri en yfirleitt fari þau 50 til 60
hringi.
Laufey byrjaði markvisst í
íþróttinni fyrir um áratug en Björn
hefur stundað hana í um 40 ár.
„Félagi minn átti poka, ég fór með
honum í golf og eftir nokkur skipti
kviknaði áhuginn heldur betur,“
segir hann um byrjunina. Laufey
hafi snemma byrjað að slást í hóp-
inn, en ekki tekið íþróttina alvar-
lega fyrr en henni hafi verið boðið í
kvennahóp. „Þá var ekki um neitt
annað að ræða en að kaupa sett og
skrá sig í klúbbinn.“
Golf í sumarfríum
Þau eru félagar í Golfklúbbi
Reykjavíkur og kunna ákaflega vel
við sig í Grafarholtinu en láta ekki
þar við sitja. „Eftir að hún byrjaði
á fullu breyttist líf okkar töluvert
og síðan höfum við farið út um allt
að spila golf.“ Hann segir að þau
fari gjarnan í frí þar sem séu golf-
vellir og skelli sér í golf auk ann-
arrar afþreyingar. „Fyrir þremur
árum vorum við til dæmis í fríi við
Garda-vatn á Ítalíu og spiluðum
þar á fimm völlum.“
Engir tveir golfvellir eru eins
og upplifun kylfinga er misjöfn.
„Nokkrir vellir bera af,“ segir
Björn. „Erlendis er St. Andrews í
Skotlandi í mestu uppáhaldi hjá
okkur en erfitt er að gera upp á
milli uppáhaldsvallanna hérlendis.
Grafarholtið er okkar heimavöllur,
alltaf er gaman að spila á Húsavík,
frábært var að spila í 26 stiga hita
á góðum velli í Vopnafirði og í 25
stiga hita og logni á mjög skemmti-
legum og snyrtilegum Norðfjarðar-
velli. Þessir þrír síðastnefndu vellir
eru skemmtilegastir á landsbyggð-
inni en þegar á heildina er litið eru
Grafarholtið, Akureyrarvöllur og
völlurinn í Eyjum á meðal fimm
þeirra skemmtilegustu.“
Margir vellir komu þeim
skemmtilega á óvart. Í fyrrasumar
spiluðu þau fyrst golf á Vest-
fjörðum og þar hælir Björn sér-
staklega völlunum á Patreksfirði,
Bíldudal og Þingeyri. Hann nefnir
líka vellina í Ólafsfirði, á Álftanesi
og Garðavöllinn undir Jökli á Snæ-
fellsnesi. „Uppbyggingin á fámenn-
um stöðum er mesta undrunar-
efnið. Það er merkilegt hvað
margir litlir vellir úti á landi með
kannski bara 40 manns á bak við
sig eru góðir, þar hafa menn lyft
grettistaki og gert flotta velli.“
Breytt líf með golfinu
- Hjónin Björn Sigurður Björnsson og Laufey
Kristinsdóttir hafa spilað á öllum golfvöllum landsins
Í Vopnafirði Hjónin eru ánægð með völlinn og segja
ánægjulegt að hafa spilað þar í 26 stiga hita í sumar.
Í Vestmannaeyjum Björn Sigurður Björnsson og Laufey
Kristinsdóttir segja völlinn einn þann skemmtilegasta.