Morgunblaðið - 11.09.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.09.2021, Qupperneq 2
9,8% 11,1% 12,0% 12,%1 12,8% 12,5% 12,1% 11,5% 10,0% 7,4% 6,1% 5,5% 15% 10% 5% 0% Þróun atvinnuleysis síðustu 12 mánuði September 2020 til ágúst 2021 sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst Almennt atvinnuleysi Vegna skerts starfshlutfalls 9,0 1,2 9,9 1,4 10,6 1,4 10,7 1,2 11,6 1,1 11,4 1,1 11,0 1,1 10,4 9,1 7,4 6,1 5,5 Heimild: Vinnumálastofnun Verulega dró úr atvinnuleysi á land- inu í ágúst þegar skráð atvinnuleysi minnkaði í 5,5% úr 6,1% í júlí. Heild- aratvinnuleysi hefur ekki mælst minna frá því í febrúar í fyrra. Vinnumálastofnun (VMST) birti yfirlit yfir stöðuna á vinnumarkaði í gær þar sem fram kemur að 11.499 voru án atvinnu í lok ágúst og fækk- aði atvinnulausum körlum um 404 og konum um 634 frá júlílokum. VMST spáir því að draga muni áfram úr atvinnuleysi í september og verða á bilinu 5,1% til 5,4%. Atvinnuleysi í ágúst var sem fyrr mest á Suðurnesjum en það hefur minnkað verulega á umliðnum mán- uðum. Var skráð atvinnuleysi á svæðinu 9,7% í seinasta mánuði og minnkaði úr 10,9% í júlí. Næstmest var atvinnuleysið 6,1% á höfuð- borgarsvæðinu. 12,8% atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara „Alls voru 4.492 erlendir atvinnu- leitendur án atvinnu í lok ágúst og fækkaði um 440 frá júlí eða að með- altali um 9% frá júlí. Mesta hlutfalls- lega fækkun atvinnulausra frá júlí var meðal atvinnulausra erlendra ríkisborgara í ferðatengdri starf- semi ýmiss konar eða um 12% svo og í menningartengdri starfsemi ýmiss konar. Þessi fjöldi samsvarar um 12,8% atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara,“ segir VMST. omfr@mbl.is Verulega dregur úr atvinnuleysi - Spár um áframhaldandi lækkun 2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. www.kofaroghus.is - Sími 553 1545 TIL Á LAGER Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik máfinnaávefokkar NAUST - 14,44 fm Tilboðsverð 449.400kr. 30% afsláttur VANTAR ÞIGPLÁSS? Afar einfalt er að reisa húsin okkar. Uppsetning tekur aðeins einn dag TILBOÐÁGARÐHÚSUM! Stjórnarráð Íslands Dómsmálaráðuneytið Auglýsing um framlagningu kjörskráa vegna kosninga um sameiningu sveitarfélaga Kjörskrár vegna kosninga um sameiningu sveitarfélaganna Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps, sem haldnar verða laugardaginn 25. september 2021, skulu lagðar fram eigi síðar en 15. september 2021. Kjörskrá skal leggja fram á skrifstofu sveitarstjórnar eða á öðrum hentugum stað sem sveitarstjórn auglýsir sérstaklega. Kjörskrá skal liggja frammi á almennum skrifstofutíma til kjördags. Þeim sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrár er bent á að senda þær hlutaðeigandi sveitarstjórn. Dómsmálaráðuneytinu, 10. september 2021. Samverustund var haldin í Dómkirkjunni í gær vegna alþjóðlegs forvarnadags sjálfsvíga. Tilgangur dagsins er að stuðla að forvörnum sjálfsvíga og minnast þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi. Í lok stundarinnar var kveikt á kertum til að minnast látinna ástvina. Tendraði þessi unga stúlka þá ljós á einu kerti, til minningar um föður sinn. Salbjörg Bjarnadóttir stýrði samverustundinni og söngvarinn KK flutti tónlist, auk þess sem Björn Hjálm- arsson læknir var með hugvekju og Edda Björgvins- dóttir talaði af reynslu sem aðstandandi og ávarpaði viðstadda. Í tilefni alþjóðadagsins voru einnig samverustundir víða um land. Þá var fólk hvatt til að kveikja á kerti og setja út í glugga til að minnast þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tendruðu ljós fyrir látna ástvini Kristján Jónsson kris@mbl.is Landslagið er að breytast hjá kon- unum í knattspyrnunni í Evrópu. Fjárhagslegur ávinningur í Evrópu- keppnum félagsliða hefur ekki verið umtalsverður í kvennaflokki. Í karla- flokki hefur mikið fé farið frá Knatt- spyrnusambandi Evrópu til þeirra liða sem ná árangri í Evrópukeppn- unum. Hæstu upphæðirnar hafa ver- ið í Meistaradeild Evrópu. Áhugi sjónvarpsáhorfenda í álf- unni á Meistaradeild kvenna hefur aukist til muna. Fyrir vikið var fyrir- komulagi keppninnar breytt fyrir keppnistímabilið 2021-2022 og er notast við riðlakeppni eins og hjá körlunum. Áður var útsláttar- fyrirkomulag notað í Meistaradeild kvenna, líkt og unnendur bolta- greina þekkja úr bikarkeppnum. Með riðlakeppninni er leikjum í keppninni fjölgað og umgjörðin verður áhugaverðari fyrir sjónvarps- stöðvar. Í þeim geira eru fyrirtækin nú tilbúin til að greiða mun hærra verð en áður fyrir sjónvarpsréttinn að Meistaradeild kvenna. Útgreiðsla frá Knattspyrnusam- bandi Evrópu, UEFA, til aðildar- félaga vegna Meistaradeildar kvenna mun hækka um liðlega fjórar milljónir evra. Eins og fram kemur á íþróttasíðum blaðsins í dag hefur Breiðablik unnið sér inn á milli 70 og 80 milljónir vegna árangurs kvenna- liðs félagsins á síðustu vikum. Breiðablik komst í gegnum fyrstu tvær umferðir Meistaradeildarinnar og mun leika í riðlakeppninni ásamt bestu liðum Evrópu. Aðildarsambönd UEFA hafa notið notið góðs af vinsældum Meistara- deildar karla í sjónvarpi. Félög á Ís- landi hafa fengið greiðslur vegna þessa sem hafa verið kenndar við barna- og unglingastarf. Næsta vor munu væntanlega öll félög sem eiga lið í efstu deild kvenna í sumar fá greiðslur sem til eru komnar vegna sölu á sjónvarpsrétti á Meistaradeild kvenna. »48 Aukinn áhugi hefur mikil áhrif - Mun hærri greiðslur en áður vegna Meistaradeildar kvenna - Íslensk félög fá greiðslu næsta vor Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Smárinn Leikmenn Breiðabliks þakka áhorfendum á Kópavogsvelli fyrir stuðninginn á fimmtudagskvöldið þegar liðið sló Osijek frá Króatíu út. Andlát Daníels Eiríkssonar, sem lést á Landspítalanum í apríl á þessu ári eftir að honum voru veittir áverkar í Vindakór í Kópavogi degi áður, er ekki komið á borð héraðssaksókn- ara. Þetta kemur fram í svari emb- ættis héraðssaksóknara við fyr- irspurn mbl.is. Rúmenskur karlmaður, sem um tíma sat í gæsluvarðhaldi vegna málsins, sagði að um slys hefði verið að ræða og kvaðst niðurbrotinn vegna andláts Daníels. Tengsl voru á milli mannanna og einhver samskipti á milli þeirra, eins og Margeir Sveinsson yfirlög- regluþjónn rannsóknardeildar stað- festi í kjölfar málsins. Margeir sagði einnig að málið tengdist að öllum líkindum ekki skipulagðri glæpa- starfsemi eða manndrápinu í Rauða- gerði. Þrír karlmenn voru upp- haflega handteknir vegna Vinda- kórsmálsins en tveimur þeirra var sleppt úr haldi stuttu síðar. Ekki komið á borð héraðssaksóknara

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.